Rannsóknarritstjóri The Guardian lýsir breyttum veruleika blaðamanna í Bandaríkjunum

Michael Hudson, rann­sókn­ar­rit­stjóri The Guardian í Banda­ríkj­unum, segir blaða­menn þar í landi þurfa að þola dag­legar árásir frá stjórn­mála­mönnum, mál­sóknir og ann­ars konar þögg­un­ar­til­raunir. Á sama tíma hafi rann­sókn­ar­blaða­mennska aldrei verið mik­il­væg­ari.

Rannsóknarritstjóri The Guardian lýsir breyttum veruleika blaðamanna í Bandaríkjunum

„Það er mikil áskorun að starfa sem blaða­maður í Banda­ríkj­unum í dag,“ segir Michael Hudson, rann­sókn­ar­rit­stjóri The Guardian í Banda­ríkj­unum. „Það virð­ist sem staða blaða­mennsku, stjórn­mála og sam­fé­lags­ins alls sé að breyt­ast hratt. Á sama tíma er spenn­andi að vera hluti af blaða­mennsku sem reynir að veita hinum valda­miklu aðhald. Það hefur alltaf verið þannig og það hefur alltaf verið mik­il­vægt.“

Michael hefur starfað á miðlum eins og Wall Street Journal, Associated Press og hann var um ára­bil einn af rit­stjórum alþjóða­sam­taka rann­sókn­ar­blaða­manna – ICIJ, sem stóðu meðal ann­ars að birt­ingu Panama­skjal­anna.

Michael segir að það sé meira krefj­andi að starfa sem blaða­maður í dag en fyrir nokkrum árum. „Blaða­mennska hefur alltaf verið krefj­andi starf. Það hafa alltaf verið hópar sem hafa reynt að ráð­ast á blaða­menn og stjórna blaða­mennsku. En ég myndi segja að núna séum við á tíma­bili þar sem árás­irnar eru orðnar alvar­legri. Það virð­ist …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár