Babb í bátinn: Hagnaður fluttur frá veiðum í vinnslu

Síðustu ár hefur 49 millj­arða króna hagn­aður flust frá fisk­veiðum, sem bera veiði­gjald, yfir til fisk­vinnsl­unnar.

Babb í bátinn: Hagnaður fluttur frá veiðum í vinnslu
Hagnaður í vinnslu Helstu for­kólfar sjáv­ar­út­vegs­ins á Íslandi. Hér Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, aðal­eig­andi Ísfé­lags­ins í Vest­manna­eyjum, Þórólfur Gíslason, kaup­fé­lags­stjóri Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, Baldvin Þor­steins­son, for­stjóri Samherja, Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri Brims, Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SFS, og Þor­steinn Már Bald­vins­son, einn stofn­enda og fyrr­ver­andi for­stjóri Samherja. Mynd: Heimildin

Sú breyt­ing hefur orðið á síð­ustu árum að íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki hagn­ast ríf­lega tvö­falt meira á fisk­vinnslu heldur en á fisk­veiðum. Samhliða til­flutn­ingi á hagn­aði úr veiðum í vinnslu minnka greidd veiði­gjöld útgerð­ar­innar í rík­is­sjóð. 

Um þetta snýst meðal ann­ars veiði­gjalda­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar, sem fluttar hafa verið tæp­lega þús­und ræður um á Alþingi, þar sem met hefur verið slegið í umræðum á lög­gjaf­ar­þing­inu. 

Í fylgd með peningunum

Árin 2008 til 2016 hagn­að­ist sjáv­ar­út­veg­ur­inn um 402 millj­arða króna, að frá­dreg­inni svo­kall­aðri árgreiðslu, sem er 6 pró­sent met­inn fjár­magns­kostn­aður. Af þessum 402 millj­örðum króna var 54 pró­sent af hagn­að­inum í fisk­vinnslu en 46 pró­sent í fisk­veið­unum. Vegna þess að fisk­veiðar og -vinnsla eiga sér gjarnan stað innan sömu fyr­ir­tækja, eða tengdra aðila, á Íslandi, ólíkt til dæmis Noregi, þarf Hag­stofan að gera sér­staka rann­sókn á útgerð­ar­fé­lögum. 

„Þá höfum við gert sér­staka rann­sókn meðal fyr­ir­tækja sem eru bæði í veiðum og vinnslu og óskað eftir rekstr­ar­upp­lýs­ingum um útgerð­ina ann­ars vegar og vinnsl­una hins vegar,“ segir Magnús Kári Bergmann, deild­ar­stjóri efna­hags­mála hjá Hag­stof­unni. „Hvernig sá hagn­aður skipt­ist veltur á því hvernig verð­lagn­ing afla er háttað í innri við­skiptum.“

Afkoman af fisk­veið­unum einum og sér, að frá­dregnum kostn­aði, er síðan grunn­ur­inn fyrir 33 pró­sent greiðslu veiði­gjalds fyrir afnot af sam­eig­in­legri auð­lind þjóð­ar­innar og til greiðslu kostn­aðar vegna eft­ir­lits og rann­sókna. 

Þróun hagn­aðarHagnaður umfram vænta ávöxtun og fjár­magns­kostnað hefur farið vax­andi, en bilið milli fisk­veiða og fisk­vinnslu breikkað frá því sem var fyrir lög um veiði­gjöld 2018.

Tilflutningur á 49 milljörðum

Breyt­inginEftir að ný lög um veiði­gjöld voru sam­þykkt 2018 flutt­ist stór hluti af hagn­aði sjáv­ar­út­vegs­ins frá fisk­veiðum yfir í fisk­vinnslu. Hér birt sem hlut­fall fisk­vinnslu af hagn­aði sjáv­ar­út­vegs. Heimild: Hagstofa Íslands.

Fyrir nokkrum árum urðu síðan umskipti, sem fólust í því að hagn­aður færð­ist í vax­andi mæli frá fisk­veiði­hlut­anum yfir í fisk­vinnslu­hluta útgerð­ar­fé­laga. Þannig fór hlut­deild fisk­vinnsl­unnar af hagn­aði sjáv­ar­út­vegs­ins úr 54 pró­sent upp í 68 pró­sent árin 2017 til 2023, miðað við árin 2008 til 2016. Þannig hafa síð­ustu sjö ár, sem gögn eru til um, fisk­veiðar aðeins getið af sér 32 pró­sent af hagn­aði sjáv­ar­út­vegs­ins alls, niður úr 46 pró­sent ára­tug­inn áður.

Á fyrr­greindum sjö árum högn­uð­ust eig­endur sjáv­ar­út­vegs­ins sam­tals um 114 millj­arða króna með fisk­veiðum, en um 236 millj­arða króna af fisk­vinnslu. Ef hlut­fall skipt­ingar hagn­aðar milli fisk­veiða og -vinnslu hefði verið eins og árin 2008 til 2016 hefði 49 millj­arðar króna af hagn­aði flust frá fisk­vinnslu yfir í fisk­veiðar, sem bæri þá veiði­gjald og eru stofn til að reikna laun sjó­manna. 

Freistnivandi

Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), svar­aði ekki fyr­ir­spurn um málið sem send var 20. júní. 

Hvorki Heiðrún né Benedikt Sig­urðs­son, upp­lýs­inga­full­trúi SFS, svör­uðu fyr­ir­spurn í kjöl­farið um hvort fyr­ir­spurn­inni yrði svarað.

Kjósa
87
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Asmundur Richardsson skrifaði
    Að mínu mati er það óeðlilegt að fiskveiðar og fiskvinnsla sé á sömu hendi. Hvernig er það eðlilegt?
    11
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sjávarútvegur

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár