Írskir sjómenn óttast innrás íslenskra skipa í írska landhelgi

Íslend­ingar eru sagðir vera í við­ræðum við Evr­ópu­sam­bandið um leyfi til að veiða mak­ríl og kolmuna í lög­sögu Írlands. Mikil ólga er hjá írskum útgerð­ar­mönnum vegna þessa sem kæra sig ekk­ert um íslenska inn­rás og telja Evr­ópu­sam­bandið nýta írskar auð­lindir sem skipti­mynt fyrir önnur aðild­ar­ríki.

Írafár vegna ásælni Íslands
Írafár vegna ásælni Íslands Írska blaðið The Examiner hefur heldur betur hrist upp í ráðu­neyti land­bún­að­ar­mála á Írlandi, en ráðu­neytið fer með sjáv­ar­út­vegs­mál. Írskar útgerðir, sjó­menn og fisk­iðn­aður ótt­ast mjög um sinn hag og þjóð­ar­innar eftir að frétt­ist af því að ESB væri fyrir hönd Íra, að ræða við Ísland um mögu­legar veiði­heim­ildir íslenskra skipa í írskri lög­sögu.

Íslend­ingar virð­ast sækja það stíft að fá heim­ildir til að veiða bæða mak­ríl og kolmunna í írskri land­helgi, í við­ræðum við ESB, sem staðið hafa frá því í byrjun árs. Fregnir af þessu hafa vakið hörð við­brögð á Írlandi.

Íslend­ingar og ESB hafa ekki haft með sér tví­hliða sam­komu­lag um veiðar í lög­sögum hvors ann­ars í rúm­lega ára­tug, eða eftir að sam­komu­lag kennt við borg­ina Oporto, féll úr gildi um það leyti sem Íslend­ingar hófu aðild­ar­við­ræður við ESB árið 2009. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar hafa þó átt sér stað við­ræður milli íslenskra samn­inga­manna og ESB und­an­farið ár. Tals­maður íslenska sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­is­ins vildi ekki stað­festa neitt um að í þeim við­ræðum væru Íslend­ingar sér­stak­lega að fal­ast eftir veiði­heim­ildum í írsku lög­sög­unni.

Fjallað hefur verið um málið í írska blað­inu Irish Examiner und­an­farið. Þar hefur blaðið eftir full­trúum írskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja að leyni­legar við­ræður hafa farið fram á milli Íslend­inga og Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) frá því árs­byrjun í ár, að minnsta kosti. Og að þær feli í sér að Íslend­ingar fái mögu­lega veiði­heim­ildir í lög­sögu ESB, nánar til­tekið í írskri lög­sögu. 

Eftir að fyrstu fréttir af mál­inu voru fluttar, boð­aði ráð­herra sjáv­ar­út­vegs­mála í Írlandi í skyndi til fundar með þar­lendum hags­muna­að­ilum í sjáv­ar­út­vegi til að kynna þeim kröfur Íslend­inga við ESB, sem kynntar voru þeim í trún­aði. Sú kynn­ing var síst til að róa írsku útgerð­ar­menn­ina sem kæra sig ekk­ert um íslenska flot­ann í sínum sjó og telja ESB í engu hafa hags­muni heima­manna í heiðri, hvorki nú né áður.

Án samnings í áratug

Í grein Irish Examiner síð­ast­liðin föstu­dags­morgun er haft eftir fram­kvæmdast­t­jóra lands­hluta­sam­taka fisk­fram­leið­enda á Írlandi, Patrick Murphy, að hann hafi fyrst kom­ist á snoðir um við­ræð­urnar í árs­byrjun, fyrir slysni og hann hafi rætt málið á fundi með írska land­bún­að­ar­ráð­herr­anum, Charlie McColalogue, sem fer einnig með sjáv­ar­út­vegs­mál í írsku stjórn­inni.

„Ég ræddi við ráð­herr­ann um að mögu­legt aðgengi Íslands að írskri lög­sögu og hversu ákveðið mínir félags­menn myndu mót­mæla því ef af yrði.“ sagði Murphy við í sam­tali við Irish Examiner.

Írskir sjó­menn og útgerðir hafa lengi talið sig hafa borið allt of skarðan hlut frá borði, þegar kemur að því að úthluta veiði­heim­ildum í þeirra eigin lög­sögu. Þeir telja Evr­ópu­sam­bandið oft­sinnis hafa nýtt aðgang að írskri lög­sögu sem skipti­mynt, fyrir aðgang ann­arra ESB þjóða að veiði­rétti hjá öðrum ríkjum. Fyrir ára­tug vakti athygli skýrsla sem írsk stjórn­völd gerðu þar sem í ljós kom að innan við fjórð­ungur afla úr írskum sjó, væri dreg­inn og nýttur af þar­lendum útgerðum. Afgang­ur­inn væri veiddur og nýttur af ann­ara þjóða útgerðum.

Hangið á línunni

Ísland og ESB hafa ekki samið um aðgengi að fisk­veiðum í lög­sögum beggja, síðan samn­ingur um slíkt féll niður um það leyti sem Ísland hóf við­ræður við ESB um mögu­lega aðild. Eftir því sem næst verður kom­ist hafa þó við­ræður um mögu­legt nýtt sam­komu­lag farið fram um nokk­urt skeið, ekki síst í kjöl­far Brexit og þess nýja lands­lags sem úrsögn Breta hafði í för með sér.

Íslend­ingar hafa sem kunn­ugt er veitt kolmunna rétt utan írskrar lög­sögu und­an­farna ára­tugi, á alþjóða haf­svæð­inu vestur af Írlandi, sem nefnt er Hutton Rockall. Oftast fara þessar veiðar fram í mars eða apríl ár hvert. Það hefur oft­sinnis gerst að íslenski kolmunna­flot­inn hafi þurft að hætta veiðum, þegar kolmunn­inn hefur skot­ist yfir lín­una og inn í írska lög­sögu, þangað sem íslensku skipin mega ekki elta hann, ólíkt norsku og dönsku skip­unum sem rúlla óhikað yfir. Íslensku upp­sjáv­ar­skipin hafa því þurft að bíða þess að stofn­inn gangi áfram yfir í fær­eyska lög­sögu, þar sem Íslend­ingar hafa leyfi til að veiða úr þessum sam­eig­in­lega stofni.

„Makríll er verð­mæt teg­und hér í írskum sjó ólíkt því sem er á Íslandi þar sem hann finnst ekki í miklu magni“
Aodh O´Donnell
tals­maður írskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja í við­tali við The Irish Examiner.

Hvað varðar mak­ríl­inn, snýst málið um að ná til hans á þeim tíma þegar gæði fisks­ins eru mest. Sá tími sem best veiðist af mak­ríl­stofn­inum innan írskrar lög­sögu er akkúrat sá tími sem gæði fisks­ins eru hvað mest, ólíkt því sem er með fisk­inn þegar hann gengur inn í íslenska lög­sögu eða er veið­an­legur í Smugunni, þar sem Íslend­ingar mega veiða hann. Því eru aug­ljósir hags­munir fólgnir í því fyrir Íslend­inga að sækj­ast eftir því að fá að að fara inn í írska lög­sögu eftir þessum tveimur fisk­teg­undum, sem fjöldi þjóða veiðir úr sam­eig­in­legum stofni.

Á móti yrði þá Ísland að gefa eitt­hvað í stað­inn; heim­ildir til ESB ríkja innan íslenskrar lög­sögu, í ein­hverri mynd. Í svari sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neyt­is­ins til Heim­ild­ar­innar um málið, gang við­ræðn­anna, kröfur Íslands og kröfur ESB á móti, feng­ust þó engin svör sem hald var í, enda ljóst að samn­inga­við­ræður eru enn í gangi. Svarið var í raun diplómat­ískt eftir því:

„Ísland á reglu­lega í við­ræðum við nágranna­ríki um stjórn fisk­veiða. Hluti þeirra við­ræðna snýr að skipt­ingu afla­hlut­deildar í stofnum eins og mak­ríl og loðnu auk gagn­kvæmra skipta á afla­heim­ildum og aðgengi að lög­sögu. Slíkir samn­ingar hafa til að mynda verið gerðir við Færeyjar, Grænland og Noreg. Und­an­farin miss­eri hefur verið fundað með Evr­ópu­sam­band­inu um mögu­leika á nán­ara sam­starfi í fisk­veiði. Fyrr­nefnd lönd ásamt Evr­ópu­sam­band­inu eiga að auki sam­starf innan Norð­ur­austur-Atl­ants­hafs­fisk­veiði­ráðs­ins (NEAFC) og eiga reglu­leg sam­töl um fisk­veiði­stjórn ýmissa stofna, m.a. norsk-íslenska síld, mak­ríl, kolmunna og úthafskarfa.“

Neituðu að svara en boðuðu fund

Í svari tals­manns írska land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins til Irish Examiner vegna fregn­anna af boð­aðri inn­rás Íslend­inga inn í lög­sögu lands­ins, fékkst ráðu­neytið ekki til að svara því hvort við­ræður um það ættu sér stað eða hvar þær stæðu. Í stað­inn vís­aði ráðu­neytið írska ein­göngu til þess að ekk­ert sam­komu­lag væri í gildi milli ESB og Íslands og án þess hefðu íslensk skip enga heim­ild til veiða í lög­sögu Sam­bands­ins.

Jafn­framt sagði í svari írska ráðu­neyt­is­ins að „samn­ingar ESB við ríki utan sam­bands­ins væru í höndum fram­kvæmda­stjórnar ESB, en sam­kvæmt umboði frá full­trúum ríkja sam­bands­ins. Ráðu­neytið tekur virkan þátt í þeim við­ræðum, sem gætu haft áhrif á, eða skapað tæki­færi, fyrir írskan sjáv­ar­út­veg,“ sagði í svari tals­manns írska land­bún­að­ar­ráðu­neyt­is­ins til Irish Examiner á föstu­dags­morgun.

Stuttu síðar birt­ist fréttin og þá mun írski ráð­herr­ann skyndi­lega hafa boðað til fjar­fundar með full­trúum írskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, og var fund­ar­efnið, að sögn Irish Examiner, sagt vera, „staða mála á vegum Evr­ópu­sam­bands­ins varð­andi mögu­legra við­ræðna milli ESB og Íslands um mögu­leg tæki­færi í fisk­veiðum.“

Írskir síst rólegri eftir fundinn

Samkvæmt frétt Irish Examiner síð­ast­liðin laug­ar­dag, greindi ráð­herr­ann á fund­inum frá upp­lýs­ingum sem hann hefði frá ESB um gang við­ræðn­anna og kröfur Íslend­inga. Biðlað var til fund­ar­manna um trúnað en írska blaðið fékk þó upp­lýs­ingar um að þar hefði verið rætt sér­stak­lega um kröfur Íslend­inga um heim­ildir til að veiða mar­kíl og kolmunna, innan írsku lög­sög­unnar.

Talsmenn írska iðn­að­ar­ins virð­ast síður en svo hafa róast við þá kynn­ingu. Murphy, tals­maður fisk­fram­leið­enda, lét þannig hafa eftir sér að áhyggjur þeirra af því að enn einu sinni ætti að fórna hags­munum írsks sjáv­ar­út­vegs á alt­ari ESB, ef ekk­ert yrði að gert. 

„Ég tel mig ekki vera að mála skratt­ann á vegg­inn þó ég segi að hér hafi menn veru­legar áhyggjur af því að Írland verði leitt til slátr­unar svo stærri ESB-ríki geti á móti landað þeim samn­ingum sem þeim helst þókn­ast,“ sagði Murphy og lagði áherslu á írskir hags­munir ættu að vera í for­grunni slíkra samn­inga um írskar auð­lindir.

Í sama streng tók Aodh O'Donnell, for­svars­maður lands­sam­taka írskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, í sam­tali við írska blaðið og vís­aði sér­stak­lega til þess hann ótt­að­ist ásókn íslenskra útgerða í mak­ríl­inn, sem Írum hefði tek­ist að veiða með sjálf­bærum hætti stofn­inn sem hrygni í írskum sjó og varð­veita þannig nýt­ingu mik­illa verð­mæta.

„Makríll er verð­mæt teg­und hér í írskum sjó ólíkt því sem er á Íslandi þar sem hann finnst ekki í miklu magni,“ sagði O´Donnell. „Við getum ekki látið ESB neyða okkur til að leggj­ast flöt og taka þegj­andi við því þegar enn einu sinni á að taka ákvörðun um að samnýta okkar verð­mætu auð­lindir sjávar.“

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sjávarútvegur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár