Forsætisráðherra sagði stjórnskipan Íslands í hættu: „Við munum verja lýðveldið Ísland“

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir minni­hlut­ann á Alþingi ekki virða valda­skipti eftir kosn­ingar. Hildur Sverr­is­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sleit í gær þingi án umboðs.

Kristrún Frostadóttir Forsætisráðherra sagið lýðræðið vera í hættu.

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra gagn­rýndi mál­þóf stjórn­ar­and­stöð­unnar í umræðu um veiði­gjöld í upp­hafi þing­fundar í dag og sagði lýð­ræðið vera í hættu. Stjórn­ar­and­staðan beiti sér gegn þeim valda­skiptum sem áttu að vera eftir kosn­ingar.

Kristrún kvað sér hljóðs til að flytja sér­staka yfir­lýs­ingu kl. 10 í upp­hafi þing­fundar í dag. „Það er komin upp ný staða í íslenskum stjórn­málum sem er for­dæma­laus í sögu lýð­veld­is­ins,“ sagði hún og vís­aði þar greini­lega til þess að Hildur Sverr­is­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hefði frestað umræðum um veiði­gjöld og slitið þing­fundi án umboðs í gær­kvöldi.

Hún sagði minni­hlut­ann standa í vegi fyrir lýð­ræð­is­legri afgreiðslu mála á Alþingi. „Fram­ferði minni­hlut­ans á sér engin for­dæmi,“ sagði hún.

Gagn­rýndi hún mál­þóf stjórn­ar­and­stöð­unnar. Minni­hlut­inn við­ur­kenni ekki nið­ur­stöðu kosn­ing­anna og reyni að stýra Alþingi þrátt fyrir að hafa ekki meiri­hluta. „Sú staða sem upp er komin er alvar­leg fyrir lýð­ræðið og stjórn­skipan lands­ins,“ sagði hún.

„Þetta er það sem er í húfi, að lýð­ræðið virki fyrir fólkið,“ sagði hún og bætti við: „Við munum verja lýð­veldið Ísland.“

Sleit fundi í óþökk forseta þingsins

Klukkan 23:39 í gær­kvöldi frestaði Hildur umræðum og sleit fundi að því virt­ist án umboðs meiri­hluta for­sætis­nefndar og í óþökk for­seta Alþingis, Þórunnar Svein­bjarn­ar­dóttur.

Hildur Sverr­is­dóttirÞing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks sleit í gær þing­fundi án sam­þykkis for­seta Alþingis.

Hanna Katrín Frið­riks­son atvinnu­vega­ráð­herra brást við þessu í færslu á Facebook í morgun. „Við vissum öll að varð­staðan um sér­hags­mun­ina yrði sterk en ef þetta er rétt þá er staðan á Alþingi Íslands bein­línis orðin ugg­væn­leg,“ skrif­aði hún.

„Er þessu fólki sem­sagt ekk­ert heil­agt?“

„Er þessu fólki sem­sagt ekk­ert heil­agt?“ skrif­aði Helga Vala Helga­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ingar í athuga­semd. „Engin þing­sköp, engar reglur, bara frekjan ein sem á að ráða. Á dauða mínum átti ég von en ekki því að hinn íhalds­sami Sjálf­stæð­is­flokkur, sem talað hefur um að „bera virð­ingu fyrir stofn­unum lands­ins og Alþingi“ færi svona með þetta. Margt var sagt af stjórn­ar­liðum síð­asta kjör­tíma­bils um Píratana og stjórn­leysi þeirra en þetta hefðu þau aldrei leyft sér að gera.“

Heimsmet í bið eftir samtali

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks, sagð­ist í umræðum eftir ræðu for­sæt­is­ráð­herra taka undir það að verja þurfi lýð­ræðið. 29 þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar væru að reyna að fá meiri­hlut­ann til umræðu um veiði­gjöldin. „Þess vegna stöndum við hér,“ sagði hann.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks, sagði meiri­hlut­ann tala mikið um að stjórn­ar­and­staðan hefði slegið Íslands­met í ræðu­höldum með umræðu um veiði­gjöldin. „Ætli það sé ekki að verða Íslands­met og heims­met hversu lengi við í minni­hlut­anum höfum þurft að bíða eftir að meiri­hlut­inn sett­ist niður með okkur í sam­tali?“

Sérhagsmunir á þingi í formi stjórnarandstöðunnar

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra sagð­ist aldrei hafa upp­lifað annað eins á þingi en hún hefur lengstu þing­reynslu allra þing­manna. Gagn­rýndi hún fram­ferði Hildar Sverr­is­dóttur í gær­kvöldi. „Það er verið að klippa á lýð­ræðið,“ sagði hún. „Það er í sam­ræmi við hvers konar jað­ar­flokkur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er að verða.“

„Það er verið að klippa á lýð­ræðið“

Sagði hún meiri­hlut­ann ekki láta undan þeim sér­hags­munum sem berj­ast gegn veiði­gjöldum. „Þau eru hér inni í formi stjórn­ar­and­stöð­unnar.“

Inga Sæland, félags- og hús­næð­is­mála, sagði Ísland njóta þess að geta skipt um vald­hafa á fjög­urra ára fresti án þess að þurfa að draga þá bak við hús og skjóta þá eins og hún sagði gert í mörgum löndum. Sagði hún fram­ferði Hildar óboð­legt: „Algjör­lega for­dæma­laust og algjör­lega án nokk­urs umboðs.“

Varði gjörðir Hildar

Bryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, sagði með­ferð veiði­gjalda­frum­varps­ins brjóta gegn öllum reglum Stjórn­ar­ráðs­ins um hvernig eigi að fara með mál á Alþingi. „Þetta eru ekki einu sinni lög sem ættu að taka gildi strax. Það er ekk­ert sem liggur á þess­ari laga­setn­ingu,“ sagði hún og hvatti ráð­herra til að vinna málið betur.

„Við hér, sem kjörnir þing­menn, erum að standa vörð um gæði laga­setn­ingar,“ sagði hún.

Bætti hún því við að fram­ferði Hildar að slíta fundi fyrir mið­nætti hefði verið sam­kvæmt reglum.

Hrópuðu þá þing­menn: „Forseti slítur þing­inu.“

Ræður odd­vit­anna voru þrungnar og ljóst að yfir þessu öllu svífur hót­unin um 71. grein þing­skap­a­laga um að tak­marka ræðu­tíma í þing­sal en slík til­laga hefur þó ekki verið lögð fram. 

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár