Bjarni er „orðinn leiður á að ræða“ launamál þingmanna

Bjarni Bene­dikts­son gagn­rýnir þing­mann fyrir að benda á að launa­hækkun for­sæt­is­ráð­herra nemi tvö­faldri hækkun á taxta­launum hjúkr­un­ar­fræð­inga. Hann seg­ist „leiður á“ að ræða launa­mál þing­manna, en segir að það komi þó vel til greina að ráð­herrar leiði fryst­ingar eða launa­lækk­anir.

Bjarni er „orðinn leiður á að ræða“ launamál þingmanna
Bjarni Bene­dikts­son Fjár­mála­ráð­herra segir illa ganga að sætt­ast á fyr­ir­komu­lag um laun þing­manna. Mynd: Pressphotos

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir það koma vel til greina að laun ráð­herra verði fryst eða lækkuð í ljósi aðstæðna. Hann seg­ist vera orð­inn leiður á að ræða fyr­ir­komu­lag launa þing­manna og ráð­herra á Alþingi.

Í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum á Alþingi í dag spurði Halldóra Mogensen, þing­maður Pírata, Bjarna um launa­hækkun þing­manna og ráð­herra sem mun koma í gildi næstu mán­að­ar­mót. Sagði hún hækk­an­irnar ekki góða leið til að efla sam­stöðu í þjóð­fé­lag­inu.

„Sú fram­kvæmd mun fela í sér aft­ur­virkar greiðslur fyrir fjóra mán­uði ásamt því að laun ráð­herra hækka um rúm 100.000 á mán­uði, laun for­sæt­is­ráð­herra um 130.000 og laun okkar þing­manna um tæp 70.000,“ sagði Halldóra. „Til sam­an­burðar má nefna að heild­ar­launa­hækkun hjúkr­un­ar­fræð­inga næstu fjögur ár, verði samn­ingur þeirra við ríkið sam­þykktur, er því næst sú sama og ein hækkun á þing­far­ar­kaupi. Launa­hækkun hæst­virts for­sæt­is­ráð­herra er næstum tvö­föld sú upp­hæð.“

Spurði Halldóra hvort ekki ætti að falla frá launa­hækk­un­unum.

Bjarni sagði hækk­an­irnar ekki vera sam­kvæmt hans ákvörðun, heldur afleið­ing þess að Alþingi frestaði fyrir ári launa­hækk­unum sem þá áttu að koma til fram­kvæmda. Sagði hann þing­menn og ráð­herra vera eft­ir­báta ann­arra þegar kemur að launa­hækk­unum und­an­farin ár.

„En það sem ég er orð­inn leiður á að ræða þetta mál hér í þing­sal,“ sagið Bjarni. „Að menn skuli ekki geta komið sér saman um það yfir höfuð að finna eitt­hvert fyr­ir­komu­lag sem lætur þessa hluti ganga sinn vana­gang yfir árin. Við lögðum niður Kjaradóm. Við lögðum niður kjara­ráð. Það er stutt síðan við ákváðum að festa við­mið um þessi efni í lög. En það er ekki einu sinni búið að fram­kvæma eina ein­ustu breyt­ingu á lög­unum síðan þetta var ákveðið, áður en menn í þing­sal koma hingað upp og ætla að slá sig til ridd­ara með því að taka málin upp að nýju. Ég spyr bara: Hvernig í ósköp­unum á yfir höfuð að vera hægt að finna eitt­hvert fyr­ir­komu­lag þegar okkur gengur svona illa með þriðja fyr­ir­komu­lagið á rúmum ára­tug?“

„Við erum ekki að tala um að þetta séu eðli­legir tímar og að við eigum rétt á okkar eðli­legu launa­hækkun“

Halldóra sagði þá að greini­lega hefði hún pirrað ráð­herra. „Ég veit vel að það hefur átt sér stað. Spurning mín snýr hins vegar ekki að því. Þetta eru ekki eðli­legir tímar. Við erum ekki að tala um að þetta séu eðli­legir tímar og að við eigum rétt á okkar eðli­legu launa­hækkun. Ég veit að ráð­herra tók ekki ákvörðun um þessar launa­hækk­anir, þetta er vísi­tölu­hækkun, en við þurfum samt að taka ákvörðun um hvort við ætlum að vera í sama báti og almenn­ingur er akkúrat núna eða hvort við eigum að fá okkar launa­hækk­anir á meðan aðrir fá skerð­ingar. Það er spurn­ingin sem ég vil spyrja,“ sagði hún.

Bjarni bætti því þá við að sú spurn­ing væri sann­gjörn. „Hvað finnst mér um það að æðstu emb­ætt­is­menn rík­is­ins tækju á sig launa­skerð­ingar núna við þessar aðstæður til að sýna gott for­dæmi og fylgja öðrum í sam­fé­lag­inu? Mér finnst það vel koma til greina,“ sagði hann.

„Mér finnst hins vegar vel koma til greina, ef tekst eitt­hvert alvöru­sam­tal um það að fara í launa­fryst­ingar eða lækk­anir, að þá ættu hinir opin­beru emb­ætt­is­menn, þeir sem eru í æðstu stjórn rík­is­ins, að leiða þá breyt­ingu, þá þróun,“ bætti hann við að lokum.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Bjarni seg­ist leiður á að ræða laun þing­manna. Hann gerði það líka árið 2017, eftir að laun þing­manna voru hækkuð um 44% í einu skrefi á kjör­dag í októ­ber árið áður. „Mér finnst alveg ger­sam­lega óþol­andi að þurfa að taka umræðu um það hver kjör þing­manna eigi að vera eða ráð­herra ef því er að skipta. Mér finnst rétt að um þau mál eigi að búa með lögum og fela þriðja aðila að leiða það til lykta,“ sagði hann þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár