Seðlabankastjóri: Covid kreppan verður erfið en ekki eins slæm og hrunið

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri telur að Covid-kreppan verði ekki eins alvar­leg fyrir Ísland og kreppan sem fylgdi hrun­inu 2008. *Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra er hins vegar á öðru máli og talar um að þessi kreppa verði kannski sú dýpsta síð­ast­lið­ina öld.

Seðlabankastjóri: Covid kreppan verður erfið en ekki eins slæm og hrunið

„COVID-kreppan mun verða land­inu erfið – en mun ekki jafn­ast á við hrunið 2008,“ segir Ásgeir Jónsson, hag­fræð­ingur og seðla­banka­stjóri, í svörum sínum til Stund­ar­innar um eðli COVID-krepp­unnar sem heim­ur­inn gengur nú í gegnum. Í svari sínu vísar Ásgeir til áhrif­anna á Íslandi  en hann telur að áhrifin af krepp­unni hér á landi verði minni en í mörgum stærri ríkjum. 

Atvinnu­leysi á Íslandi á að fara upp í 14 pró­sent nú í apríl en ef svo verður þá er um að ræða mesta atvinnu­leysi sem mælst hefur á Íslandi. Atvinnu­leysi fór hæst upp í 9.3 pró­sent á Íslandi í kjöl­far hruns­ins 2008.  Samtímis spá banda­rísk yfir­völd því að atvinnu­leysi þar í landi geti farið upp í allt að 32 pró­sent. Þetta yrði einnig sögu­legt hámark atvinnu­leysis þar í landi. 

Ásgeir Jónsson segir hins vegar að allt útlit sé fyrir að þessi kreppa verði skamm­vinn. „Ef allt gengur að óskum á hag­kerfið aftur að taka við sér eftir að veikin er liðin hjá,“ segir hann.

Ásgeir er einn af við­mæl­endum Stund­ar­innar í grein um COVID-krepp­una. 

„En þetta stefnir í að verða ein mesta krísa í hund­rað ár á Íslandi“

Bjarni málar upp dekkri mynd

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra mál­aði hins vegar upp dekkri mynd af stöðuni í við­tali við RÚV í gær.  

Þá sagði ráð­herr­ann að hann teldi að höggið fyrir rík­is­sjóð út af COVID-far­aldr­inum yrði kannski á bil­inu 200 til 300 millj­arðar króna. „Ef menn eru að leita að ein­hverri tölu til þess að átta sig á því hvert verður höggið fyrir rík­is­sjóð, þá getum við alveg gleymt því að vera að tala um hund­rað millj­arða eins og ég nefndi að við værum komin yfir. Við erum farin að tala um að minnsta kosti tvö­falda þá fjár­hæð, eða meira.“

Nið­ur­staða Bjarna er að þetta stefni í að verða ein dýpsta kreppu sem Ísland hefur gengið í gegnum síð­ast­liðna öld.  „En þetta stefnir í að verða ein mesta krísa í hund­rað ár á Íslandi, í efna­hags­legu til­liti. Og þá er gott að vita til þess að við höfum nýtt góðu tím­ana til þess að hafa svig­rúm til að takast á við slíka tíma, án þess að hér fari allt á hlið­ina.“

„Þessi eilífi hrun-sam­an­burður er ekki mjög hjálp­legur til þess að átta sig á þessu efna­hags­á­falli sem nú dynur yfir.“

Dekkri myndBjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra málar upp dekkri mynd af stöð­unni en Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri.

Ásgeir: Samanburður við hrunið ekki hjálplegur

Stundin spurði Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóra þriggja spurn­inga og fylgja svör hans hér fyrir neðan. Mat Ásgeirs á stöð­unni er almennt séð nokkru bjartýnna en mat Bjarna Bene­dikts­sonar.

1. Spurning Stund­ar­innar: „Hvernig verður þessi COVID-kreppa frá­brugðin Krepp­unni miklu á fjórða ára­tugnum og krepp­unni eftir alþjóð­legu fjár­málakrís­una og banka­hrunið árið 2009?“

„Bæði áföllin 1929 og 2008 voru fjár­málakreppur. Slíkar kreppur koma í kjöl­far þess að eigna­bóla mynd­ast – á hús­næð­is­mark­aði, hluta­bréfa­mark­aði og svo fram­vegis. Bólurnar leiða til rangra fjár­fest­inga með mik­illi skuld­setn­ingu til gagns­lausra verk­efna.

Á ein­hverjum tíma­punkti springur bólan. Þannig svipta fjár­málakreppur aðeins tjöld­unum frá og sýna þá tor­tím­ingu eða tap sem þegar hefur átt sér stað að tjalda­baki – og eyður blasa við þar sem áður höfðu sýnst gagn­samar eignir og arð­bærar fjár­fest­ingar. Afleið­ing­arnar lýsa sér í gjald­þrotum, afskriftum fyr­ir­tækja og svo fram­vegis. Þjóð­hags­legar afleið­ingar fjár­málakreppa velta á því hvernig það tekst til að við­halda fjár­mála­stöð­ug­leika, það er hvernig fjár­mála­kerf­inu reiðir af. Ef margir bankar fara í þrot getur fjár­málakreppan lamað hag­kerfið. Þetta á sér­stak­lega við um lítil opin hag­kerfi með eigin mynt sem hafa hlaðið upp erlendum skuldum til þess að fjár­magna við­skipta­halla. Á ein­hverjum tíma­punkti hættir inn­flæðið og gjald­mið­ill­inn hrynur – og hag­kerfið snögg­hemlar.

Seðla­bankar heims­ins brugð­ust rang­lega við þegar hluta­bréfa­bólan sprakk árið 1929 – með aðhalds­samri pen­inga­stefnu. Í kjöl­farið varð 1/3 af öllum bönkum Banda­ríkj­anna gjald­þrota og efna­hags­lífið fór í lang­vinnan sam­drátt. Við­brögðin voru allt önnur árið 2008. Svo má segja að sam­ræmdar aðgerðir í pen­inga­málum – s.s. pen­inga­prentun – hafi komið veg fyrir að það áfall komi fram í raun­hag­kerf­inu. Jafn­framt var farið út í víð­tækar björg­un­ar­að­gerðir til þess að styðja við fjár­mála­kerfið. Und­an­tekn­ing frá þessu er Ísland – þar sem bank­arnir féllu. Gjald­mið­ill­inn hrundi og mjög harður sam­dráttur tók við.

COVID-19 kreppan er ann­ars eðlis. Hún stafar af því að rík­is­stjórnir landa loka á sam­göngur, sam­skipti og fram­leiðslu til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar. Þetta er sjálf­skipuð kreppa og stafar því ekki af ein­hverjum und­ir­liggj­andi kerf­is­vanda­málum líkt og fjár­málakreppur. Ef allt gengur að óskum á hag­kerfið aftur að taka við sér eftir að veikin er liðin hjá. Það kann hins vegar að vera að afleið­ing­arnar verði lang­vinn­ari – það er ef COVID-kreppan verði til þess að ýmsir þver­brestir sem nú þegar eru til staðar muni gliðna vegna álags­ins. Það er ef útgjöld vegna krepp­unnar leiða til rík­is­fjár­málakreppu.“

2. Spurning Stund­ar­innar: Hversu djúp verður þessi kreppa?

„Ísland er mjög vel í stakk búið til þess að takast á við COVID-áfallið – við munum geta við­haldið þjóð­hags­legum stöð­ug­leika. Hins vegar blasa við gríð­ar­legir erf­ið­leikar á vinnu­mark­aði – þegar ein stærsta atvinnu­grein lands­ins verður í lama­sessi. Við þessu er aðeins hægt að bregð­ast með því að reyna að milli­færa tekjur úr fram­tíð­inni til dags­ins í dag – svo sem að ríkið auki útgjöld sín til þess að reyna að tryggja tekjur fólks og taki til þess lán sem greidd verða með skatt­tekjum fram­tíðar. Að bank­arnir og aðrir lán­ar­drottnar veiti greiðslu­fresti og lán út á tekjur fram­tíðar. Jafn­framt – að Seðla­bank­inn lækki vexti til þess að gera þessa tekju­milli­færslu auð­veld­ari.

Það er nær öruggt að COVID-kreppan mun koma mun harðar fram í stærstu löndum Evrópu og í Banda­ríkj­unum en fjár­málakreppan 2008 – enda sluppu þessi lönd til­tölu­lega vel þá. Sama á ekki við um Ísland. COVID-kreppan mun verða land­inu erfið – en mun ekki jafn­ast á við hrunið 2008. Stór hluti af heim­ilum og fyr­ir­tækjum lands­ins varð gjald­þrota eftir 50% geng­is­fall og 20% verð­bólgu­skot. Í kjöl­farið var þörf á gríð­ar­legum kerf­is­breyt­ingum í atvinnu­líf­inu sem voru bæði erf­iðar, sárs­auka­fullar – og tóku tíma. Ísland er á allt öðrum stað núna. Þessi eilífi hrun-sam­an­burður er ekki mjög hjálp­legur til þess að átta sig á þessu efna­hags­á­falli sem nú dynur yfir. Ísland mun áfram verða ferða­þjón­ustu­land – þær fjár­fest­ingar sem nú þegar hefur verið lagt í munu koma að gagni í fram­tíð­inni. Eins og staðan er nú er fátt neitt annað hægt að gera en bíða – þar til tíðin batnar.“

3.  Spurning Stund­ar­inar: Hvernig mun þessi COVID-kreppa breyta heim­inum, ef hún mun gera það? Hvernig mun hún breyta hag­fræð­inni? Hvaða lær­dómur verður dreg­inn af henni?

„Það er erfitt að gera sér grein fyrir því hvaða breyt­ingar munu fylgja í kjöl­farið. Aug­ljós­lega munu sótt­varnir og við­bún­að­ar­á­ætl­anir nú verða teknar alvar­lega. Mörg fyr­ir­tæki munu nú hugsa um öryggi í fram­leiðslu­keðjum sínum – og leggja áherslu á að sækja aðföng og íhluti nær sér en áður hefur verið. Mögulega munu áhrifin verða þau sömu og árið 1929 – er ríkið þurfti að stíga inn í atvinnu­lífið og fór ekk­ert aftur út. Öruggt er að skattar þurfa að hækka í fram­tíð­inni til þess að borga fyrir þau útgjöld sem er stofnað til. Mögulega mun kreppan leiða til póli­tísks óstöð­ug­leika og auk­innar sér­hyggju í stefnu­mörkun – en um það er erfitt að spá á þess­ari stundu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lærdómurinn af heimsfaraldrinum

Fjarstjórnun ekki síður mikilvæg en fjarvinna
ViðtalLærdómurinn af heimsfaraldrinum

Fjar­stjórnun ekki síður mik­il­væg en fjar­vinna

Það er kúnst að reka fyr­ir­tæki sem reiðir sig á fjar­vinnu starfs­manna. Þetta segir Bjarney Sonja Ólafs­dóttir Breidert, fram­kvæmda­stjóri alþjóð­lega hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins 1xINTER­NET. Hún segir að fólk verði jafn­vel agaðra og afkasta­meira í fjar­vinnu en í hefð­bundnu vinnu­um­hverfi, að því gefnu að hún sé vel skipu­lögð og ferlar séu skýrir.
Aukin togstreita á milli almennings og elítu
ErlentLærdómurinn af heimsfaraldrinum

Aukin tog­streita á milli almenn­ings og elítu

And­stæð­ingar hnatt­væð­ingar vilja meina að heims­far­ald­ur­inn, sem nú stendur yfir, sé ekki síst afleið­ing þess að landa­mæri hafa minni þýð­ingu en áður. Margir sér­fræð­ingar á sviði alþjóða­sam­starfs telja þvert á móti að aukin alþjóða­væð­ing sé eina leiðin til að takast á við fjöl­þjóð­leg vanda­mál á borð við kór­óna­veiruna. Alþjóða­væð­ingin sé í raun mun flókn­ari og víð­tæk­ari en þorri fólks geri sér grein fyrir.
COVID-19 faraldurinn sýnir að það sem sagt var ómögulegt er vel hægt
FréttirLærdómurinn af heimsfaraldrinum

COVID-19 far­ald­ur­inn sýnir að það sem sagt var ómögu­legt er vel hægt

Skiptar skoð­anir eru um hvaða áhrif COVID-19 far­ald­ur­inn muni hafa á ferðir fólks til fram­tíðar. Fræði­menn telja þó að nú sé færi sem verði að nýta til að draga úr umhverf­is­á­hrifum flugs og ferða­mennsku. Þótt mis­mik­illar bjart­sýni gæti um hvort slíkt geti tek­ist þá hafa aðgerðir ríkja heims nú sýnt að hægt er að knýja fram veru­legar breyt­ingar á hegðun og neyslu fólks á mjög stuttum tíma, sé póli­tískur vilji fyrir því.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár