Vin­sæl­asti veit­inga­stað­ur­inn nær tómur Með Covid-krepp­unni hrynur raun­hag­kerfið og meðal ann­ars veit­inga­staðir, til að mynda vin­sæl­asti mat­sölu­staður lands­ins miðað við fjölda gesta, missa nær allar tekjur sínar svo vikum eða mán­uðum skiptir. Mynd: Heiða Helgadóttir

COVID-kreppan verður líklega versta kreppa sögunnar

Banda­ríski hag­fræð­ing­ur­inn Carmen Reinhart, sem hefur skrifað bók um fjár­málakreppur síð­ustu 600 ára, segir að COVID-kreppan sé bæði ein­stök og sögu­leg. Kreppan mun lík­lega hafa verri skamm­tíma­á­hrif í Banda­ríkj­unum en Kreppan mikla á fjórða ára­tugnum og er talið að atvinnu­leysið verði um 32 pró­sent. Á Íslandi má full­yrða að þetta verður dýpsta kreppa sög­unnar þar sem raun­hag­kerfi lands­ins hefur hrunið tíma­bundið og atvinnu­leysi fer yfir 10 pró­sent. Þetta gerð­ist aldrei eftir banka­hrunið 2008.

Efna­hag­skreppan sem Covid-far­ald­ur­inn kallar nú yfir hag­kerfi heims­ins mun hafa miklu verri afleið­ingar en kreppan eftir alþjóð­legu fjár­málakrís­una um haustið 2008. Þettta er mat Barry Eichengreens, pró­fess­ors í hag­fræði og stjórn­mála­fræði við Háskól­ann í Berkeley í Banda­ríkj­unum, sem skrifað hefur margar bækur og fræði­greinar um efna­hags­hrun og -kreppur.

„Þessi kreppa verður, djúp, ekki spurn­ing, bæði í Banda­ríkj­unum og alþjóð­lega og nær örugg­lega dýpri en kreppan eftir 2008,“ segir Eichengreen.

Í svari til Stund­ar­innar segir hann að mun­ur­inn á þess­ari efna­hag­skrepppu og einnig Krepp­unni miklu á fjórða ára­tugnum sé að nú hrynji raun­hag­kerfið. „Sérhver óham­ingju­söm fjöl­skylda er óham­ingju­söm á sinn hátt, sagði Leo Tolstoy, og sér­hver efn­hag­skreppa er ein­stök. Krepp­urnar sem riðu yfir heim­inn eftir 1929 og 2008 voru kreppur sem leiddu til hruns í heild­ar­eft­ir­spurn [e agrregate dem­and] í sam­fé­lag­inu. Þessi kreppa felur í sér hrun raun­hag­kerf­is­ins [e. Real economy], þar sem verk­smiðjur og fyr­ir­tæki munu loka, og mun það leiða til hruns á heild­ar­fram­boði [e. aggregate supply] í sam­fé­lag­inu.“

Stundin leit­aði til nokk­urra sér­fræð­inga á sviði hag­fræði og hag­sögu og bað þá að velta fyrir sér þeirri efna­hag­skreppu sem heim­ur­inn stendur nú frammi fyrir í kjöl­far Covid-far­ald­urs­ins.  Blaðið bað sér­fræð­ing­ana að velta fyrir sér afleið­ingum þess að hag­kerfi heims­ins hafa nær lok­ast sam­hliða því sem ríki heims­ins reyna að verj­ast útbreiðslu sjúk­dóms­ins og þess mann­lega og efna­hags­lega fjör­tjóns sem af honum hefur hlot­ist.

Þegar raunhagkerfið hrynur

Eitt af því sem gerir þessa kreppu svo sér­staka er að nán­ast á einu nóttu var skrúfað fyrir tekju­streymi inn í svo mörg fyr­ir­tæki, meðal ann­ars í ferða­þjón­ustu á Íslandi. Það er þetta atriði sem Barry Eichengreen kemur inn á þegar hann talar um  að þessi kreppa feli í sér hrun raun­hag­kerf­is­ins. Ekki eru mörg for­dæmi fyrir því í sög­unni að tekju­streymi svo margra fyr­ir­tækja, í svo mörgum löndum, hafi stöðvast  á nán­ast sama tíma. Ljósin slokkn­uðu eig­in­lega í hag­kerf­unum sam­tímis og öll starf­semi þeirra lam­að­ist að hluta eða stóru leyti. 

Eigandi fata­versl­un­ar­innar Geysis, Jóhann Guð­laugs­son, kom ágæt­lega inn á þetta í nýlegu við­tali við Stundina þar sem bar saman þetta ástand við stöð­una árið 2008. „Fyrri kreppa, árið 2008, sner­ist um efna­hags­reikn­ing fyr­ir­tækja þar sem skuld­setn­ing óx svo mikið, skuldir hækk­uðu. Það sem er að ger­ast núna er að tekjur fyr­ir­tækja eru að fara niður í nán­ast ekki neitt og efna­hags­hjólin eru að hætta að snú­ast. Þetta gerð­ist ekki í fyrri kreppu þar sem það gerð­ist að fyr­ir­tæki skiptu kannski um eig­endur. Fyr­ir­tækin hættu ekki að fá tekjur þá. Ég á von á því að við séum að fara að sjá dýpri kreppu en eftir banka­hrunið og það mun þurfa ansi sterkt handafl til að kom­ast út úr því. Þetta eiga eftir að verða skrítnir tímar,“ sagði Jóhann við Stundina um miðjan mars.  

Höggið af Covid-far­aldr­inum varð strax mikið fyrir flug­fé­lög, ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki, en einnig minni fyr­ir­tæki eins og marga veit­inga­staði, versl­anir og kaffi­hús sem reiða sig á sölu þjón­ustu. Á Íslandi lok­aði einn vin­sæl­asti ferð­manna­staður lands­ins, Bláa lónið, nær sam­stundis, Icelandair sagði upp fjölda manns tíma­bundið með nýt­ingu hluta­bóta­leið­ar­innar og hót­elin í land­inu standa auð. Samtímis í Svíþjóð, til dæmis, lok­aði bíla­fram­leið­end­urnir Volvo og Scania verk­smiðjum sínum tíma­bundið, flug­fé­lögin SAS og Norwegian til­kynntu um mörg hund­ruð manna tíma­bundnar upp­sagnir og versl­anir fat­ar­is­ans H&M til­kynntu 50 pró­sent sölu­sam­drátt í versl­unum sínum í  mars.  

Sam­bæri­leg dæmi væri hægt að taka frá öllum löndum heims­ins; alls staðar eru sög­urnar eins þegar tekj­urnar hætta að koma í kass­ann. 

Slökk á heilu atvinnu­grein­unumGylfi Magn­ús­son hag­fræð­ingur talar um það hvernig heilu atvinnu­grein­arnar hafi lokað í kjöl­far Covid-far­ald­urs­ins.

Heilu atvinnugreinunum lokað

Gylfi Magn­ús­son, dós­ent í hag­fræði við Háskóla Íslands og fyrr­ver­andi við­skipta­ráð­herra, kemur inn á þetta atriði í sínu mati á stöð­unni. Hann segir einnig að það sem geri atburð­ina í Covid-far­aldr­inum sér­stakan sé hversu hraðar hinar efna­hags­legu afleið­ingar voru. „Enginn vafi leikur á því að veiru­far­ald­ur­inn sem nú skekur heims­byggð­ina mun hafa veru­leg áhrif á efna­hags­líf heims­ins. Sam­drátt­ur­inn nú er mun hrað­ari en áður eru dæmi um og að því leyti ólíkur fyrri áföllum. Skýrar hag­tölur eða spár liggja ekki fyrir. Þó virð­ist óhætt að full­yrða að fram­leiðsla á vörum og þjón­ustu hefur dreg­ist saman um tugi pró­senta á nokkrum vikum í þeim löndum og svæðum þar sem brugð­ist hefur verið harka­lega við til að reyna að hefta útbreiðslu veirunnar. Heilu atvinnu­grein­unum hefur ýmist verið lokað af yfir­völdum eða eft­ir­spurn hrunið nær algjör­lega. Í mörgum öðrum atvinnu­greinum er ekki með góðu móti hægt að halda uppi starf­semi vegna þess að aðfanga­keðjur hafa rofnað eða starfs­fólk kemst ekki til vinnu,“ segir Gylfi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lærdómurinn af heimsfaraldrinum

ViðtalLærdómurinn af heimsfaraldrinum

Fjar­stjórnun ekki síður mik­il­væg en fjar­vinna

Það er kúnst að reka fyr­ir­tæki sem reiðir sig á fjar­vinnu starfs­manna. Þetta segir Bjarney Sonja Ólafs­dóttir Breidert, fram­kvæmda­stjóri alþjóð­lega hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins 1xINTER­NET. Hún segir að fólk verði jafn­vel agaðra og afkasta­meira í fjar­vinnu en í hefð­bundnu vinnu­um­hverfi, að því gefnu að hún sé vel skipu­lögð og ferlar séu skýrir.
ErlentLærdómurinn af heimsfaraldrinum

Aukin tog­streita á milli almenn­ings og elítu

And­stæð­ingar hnatt­væð­ingar vilja meina að heims­far­ald­ur­inn, sem nú stendur yfir, sé ekki síst afleið­ing þess að landa­mæri hafa minni þýð­ingu en áður. Margir sér­fræð­ingar á sviði alþjóða­sam­starfs telja þvert á móti að aukin alþjóða­væð­ing sé eina leiðin til að takast á við fjöl­þjóð­leg vanda­mál á borð við kór­óna­veiruna. Alþjóða­væð­ingin sé í raun mun flókn­ari og víð­tæk­ari en þorri fólks geri sér grein fyrir.
FréttirLærdómurinn af heimsfaraldrinum

COVID-19 far­ald­ur­inn sýnir að það sem sagt var ómögu­legt er vel hægt

Skiptar skoð­anir eru um hvaða áhrif COVID-19 far­ald­ur­inn muni hafa á ferðir fólks til fram­tíðar. Fræði­menn telja þó að nú sé færi sem verði að nýta til að draga úr umhverf­is­á­hrifum flugs og ferða­mennsku. Þótt mis­mik­illar bjart­sýni gæti um hvort slíkt geti tek­ist þá hafa aðgerðir ríkja heims nú sýnt að hægt er að knýja fram veru­legar breyt­ingar á hegðun og neyslu fólks á mjög stuttum tíma, sé póli­tískur vilji fyrir því.

20 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár