Ætlar ekki að vera með einræðistilburði sem forseti

Jón Gnarr ætlar ekki að beita ein­ræð­istil­burðum, verði hann kjör­inn for­seti. Sem borg­ar­stjóri var hann hvattur til að gera það og seg­ist hafa verið tal­aður niður fyrir að gera það ekki.

„Ég ber nú bara mjög mikla virð­ingu fyrir Alþing­inu okkar og okkar svona lýð­ræð­is­kerfi hér í land­inu og sem for­seti þá myndi ég ekki vera mikið með neina ein­ræð­istil­burði, það er að segja taka fram fyrir hend­urnar á Alþingi nema í ein­hverjum algjörum und­an­tekn­inga til­vikum,“ segir Jón Gnarr for­seta­fram­bjóð­andi. 

Jón var gestur í Pressu á föstu­dag ásamt Katrínu Jak­obs­dóttur, Baldri Þór­halls­syni og Höllu Hrund Loga­dóttur. Þau fjögur eru þeir fram­bjóð­endur sem mælst hafa með mest fylgi þeirra sem sækj­ast eftir því að verða næsti for­seti Íslands. Þetta var í fyrsta sinn sem þessi hópur fram­bjóð­enda deildi svið­inu í umræðu­þætti fyrir kosn­ingar. 

Und­an­tekn­inga­til­vikin um ein­ræð­istil­burði sem Jón minnt­ist á snúa að synj­un­ar­valdi for­seta. „Ég býst við því já, ég hef ekki hugsað mér ein­hvern veg­inn að vera að setja fram ein­hver laga frum­vörp eða neitt svo­leiðis sko.“ 

En það er alveg heim­ild til þess, þú skilur þetta þannig?

„Já, já. Ég hef ekki verið hrif­inn af ein­ræð­istil­burðum á Íslandi, alls ekki.“

En Jón hefur fundið fyrir slíkum þegar hann gegndi emb­ætti borg­ar­stjóra. „Ég var til dæmis hvattur mjög til þess í stöðu minni sem borg­ar­stjóri að vera með meiri ein­ræð­istil­burði og jafn­vel tal­aður niður fyrir að gera það ekki. Þannig að ég sé mig ekki fyrir mér beita sko neinum svona ákvæðum nema kannski mál­skots­rétt­inum í ein­hverjum und­an­tekn­ingar til­fellum.“ 

Hér má horfa á Pressu í heild sinni þar sem for­seta­fram­bjóð­end­urnir fjórir mætt­ust. Fyrri helm­ingur þátt­ar­ins er aðgengi­legur öllum en þátt­ur­inn í heild sinni er aðgengi­legur áskrif­endum. 

Kjósa
-1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár