Golli hlýtur verðlaun fyrir mynd ársins

Mynd af Yazan, ungum flótta­manni frá Gaza, að skreyta tíma­bundið athvarf sitt hér á landi með jóla­ljósum, var valin mynd árs­ins 2023 í dag. Höfundur hennar Golli og myndin er hluti af mynda­röð hans sem birt­ist í Heim­ild­inni í des­em­ber í fyrra.

Golli hlýtur verðlaun fyrir mynd ársins
Mynd árs­ins Myndin birt­ist í Heim­ild­inni sem kom út 8. des­em­ber 2023. Mynd: Golli

Í dag, 27. apríl, klukkan 15 voru afhent verð­laun í Ljós­mynda­safni Reykja­víkur fyrir myndir árs­ins 2023. Veitt voru verð­laun fyrir mynd árs­ins 2023 og frétta­mynd sama árs. Höfundur myndar árs­ins, sem er af Yazan, ungum flótta­manni á frá Gaza, er Kjartan Þor­björns­son, eða Golli, tók mynd­ina í tengslum við for­síðu­um­fjöllun Heim­ild­ar­innar sem birt­ist í 33. tölu­blaði hennar sem birt­ist 8. des­em­ber í fyrra og skrifuð var af Auði Jóns­dóttur. Golli, sem er með reynd­ustu starf­andi frétta­ljós­mynd­urum lands­ins, hafði þá nýverið hafið störf hjá miðl­inum þar sem hann sér um ljós­myndun og sinnir mynd­rit­stjórn, jafnt á vef og í blaði. 

Myndin sem Golli hlýtur verð­launin fyrir er hluti af mynda­þætti sem sýndi palest­ínsku frænd­urna Yazan og Sameer, sem komu fjórtán og tólf ára til Íslands sem flótta­menn sum­arið 2023. Þeir voru teknir í fóstur af fjöl­skyldum í Mos­fellsbæ en þegar umfjöllun Heim­ild­ar­innar birt­ist stóð til að vísa þeim úr landi. Af því varð ekki og þeir fengu sam­þykkta vernd í jan­úar síð­ast­liðnum. Í kjöl­farið var óskað eftir að þeir gætu sam­ein­ast fjöl­skyldum sínum hér­lendis og fyrr í þessum mán­uði varð af því, en fjöl­skyldur þeirra sluppu út af Gaza fyrir til­stilli Solaris-sam­tak­anna.

Í umsögn dóm­nefndar um mynd Golla sem ákveðið var að verð­launa segir að við fyrstu sýn virð­ist hún ein­föld og kyrr­lát. „Hún er þó afar tákn­ræn og hlaðin til­finn­ingu. Myndin sýnir Yazan, ungan flótta­mann frá Gaza, þar sem hann skreytir tíma­bundið athvarf sitt hér á landi með jóla­ljósum og fána heima­lands síns. Myndin kallar fram til­finn­ingar á borð við hryggð og sam­kennd og kemur vel til skila stolti hans yfir upp­runa sínum og heim­ili, heim­ili sem nú er glatað.“

Kristinn Magn­ús­son hlýtur verð­laun fyrir frétta­mynd árs­ins, en hún sýnir hina hlið­ina á einu stærsta frétta­máli árs­ins, jarð­hrær­ing­unum á Reykja­nesi. Í umsögn dóm­nefndar segir að myndin sé frá sam­veru­stund fyrir Grind­vík­inga í Hall­gríms­kirkju. „Við sáum margar stór­kost­legar myndir frá sjálfum eld­unum og eyði­legg­ing­unni sem hrær­ing­arnar höfðu í för með sér, en sig­ur­myndin fangar með eft­ir­minni­legum hætti mann­legu hlið­ina, hvernig sam­fé­lagið varð þétt­ara og fólk sýndi hvert öðru stuðn­ing á erf­iðum tíma.“

Frétta­mynd árs­insMyndin er frá sam­veru­stund fyrir Grind­vík­inga í Hall­gríms­kirkju.

Dóm­nefnd­ar­störf fóru fram í byrjun febr­úar en í ár skip­uðu dóm­nefnd­ina Árni Torfason, Hrund Þórs­dóttir, Snorri Gunn­ars­son og Andrea Bruce sem var for­maður dóm­nefndar. Andrea er stríðs­frétta­ljós­mynd­ari frá Banda­ríkj­unum og hefur meðal ann­ars unnið í Írak og Palest­ínu fyrir tíma­rit eins og The New York Times og National Geographic. Hún hefur hlotið fjölda verð­launa fyrir myndir sínar. 

Sýning opin til 18. maí

Verð­launin voru veitt á við­burði sem Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lag Íslands og Ljós­mynda­safn Reykja­víkur stóðu fyrir í dag í safn­inu. Samhliða var opnuð sýn­ingin „Myndir árs­ins 2023“ en á hana voru valdar 102 myndir frá 17 blaða­ljós­mynd­urum úr fjölda inn­sendra mynda. Á sýn­ing­unni eru mynd­irnar í sex flokkum sem eru frétta­myndir, myndir úr dag­legu lífi, íþrótta­myndir, por­trett­myndir, umhverf­is­myndir, og myndaraðir. Í ár veitti dóm­nefndin verð­laun fyrir frétta­mynd árs­ins og eina mynd úr fyrr­nefndum flokkum var valin mynd árs­ins.

Einar Þor­steins­son borg­ar­stjóri opn­aði sýn­ing­una og veitti verð­launin. Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands ávarp­aði einnig sam­kom­una.

Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lag Íslands var stofnað árið 1976 og starfar innan Blaða­manna­fé­lags Íslands. Sýningin Myndir árs­ins hefur verið haldin síðan 1979 og er ein fjöl­sóttasta ljós­mynda­sýn­ingin lands­ins ár hvert.  Hægt að nálg­ast bók með öllum myndum sýn­ing­ar­innar í safn­búð Ljós­mynda­safns Reykja­víkur. Sýningin verður opin í Ljós­mynda­safni Reykja­víkur til 18. maí.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár