Bjartmar og Margrét fengu blaðamannaverðlaun

Tveir blaða­menn Heim­ild­ar­innar fengu Blaða­manna­verð­laun Blaða­manna­fé­lags Íslands fyrr í dag. Voru þau verð­launuð fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku ann­ars vegar og við­tal árs­ins hins vegar.

Bjartmar og Margrét fengu blaðamannaverðlaun
Margrét Mart­eins­dóttir og Bjartmar Oddur Þeyr Alex­and­ers­son fengu blaða­manna­verð­laun við hátíð­lega athöfn á Kjar­vals­stöðum í dag. Mynd: Golli

Heim­ildin hlaut tvenn verð­laun af fernum á afhend­ingu Blaða­manna­verð­launa Blaða­manna­fé­lags Íslands í dag. Verð­launin voru veitt fyrir við­tal árs­ins, umfjöllun árs­ins, rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins og blaða­manna­verð­laun árs­ins. 

Bjartmar Oddur Þeyr Alex­and­ers­son er rann­sókn­ar­blaða­maður árs­ins. Verð­launin fékk hann fyrir frétta­skýr­ingu sína í Heim­ild­inni um end­ur­vinnslu­ferli drykkj­ar­ferna. Afhjúpaði rann­sókn hans að fernur, sem margir Íslend­ingar höfðu flokkað jafn­vel árum saman í þeirri trú að þær væru end­ur­unnar, eru brenndar í sem­ents­verk­smiðjum á meg­in­landi Evrópu.

„Umfjöllun og rann­sókn Bjart­mars var umfangs­mikil og teygði sig til margra landa og hafði marg­vís­leg áhrif, meðal ann­ars þær að breyt­ingar urðu á stjórn­enda­teymi Úrvinnslu­sjóðs og nýtt verk­lag var inn­leitt við end­ur­vinnslu á drykkj­ar­fernum,“ sagði í umsögn dóm­nefndar. 

Margrét Mart­eins­dóttir, blaða­maður Heim­ild­ar­innar, var verð­launuð fyrir við­tal árs­ins. En Margrét tók við­tal við rit­höf­und­inn Gyrði Elíasson þar sem Gyrðir, sem hefur í gegnum tíð­ina forð­ast kast­ljós fjöl­miðla, ræddi í fyrsta skiptið opin­skátt um þung­lyndi sem hann hefur glímt við í ára­tugi. Er ljóð­list skálds­ins fléttað inn í frá­sögn­ina en Gyrðir segir sjálfur að þund­lyndið sé viss þráður í gegnum öll hans verk.

Heimir Már Pét­urs­son, frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar, hlaut blaða­manna­verð­laun árs­ins. Var það fyrir ítar­lega umfjöllun um kjara­mál á árinu. 

Verðlaun fyrir umfjöllun árs­ins fengu Jóhannes Kr. Krist­jáns­son, Sævar Guð­munds­son og Heimir Bjarna­son hjá Reykja­vík Media og Purkur kvik­mynda­gerð. Var það fyrir sjón­varps­þætt­ina Storm sem fjöll­uðu um Covid 19-far­ald­ur­inn á Íslandi frá hliðum sem ekki höfðu sést áður í fjöl­miðlum hér á landi.

Verð­launa­haf­arnirMargrét Mart­eins­dóttir, Heimir Már Pét­urs­son, Bjartmar Oddur Þeyr Alex­and­ers­son, Jóhannes Kr. Krist­jáns­son og Heimir Bjarna­son.

Aðal­steinn Kjart­ans­son, Helgi Seljan, Ingi Freyr Vil­hjálms­son og Sunna Ósk Loga­dóttir, blaða­menn Heim­ild­ar­innar, voru til­nefnd til verð­laun­anna. Aðal­steinn og Helgi fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins, Ingi Freyr fyrir umfjöllun árs­ins og Sunna Ósk fyrir blaða­manna­verð­laun árs­ins.

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KÞM
    Kristín Þ. Magnúsdóttir skrifaði
    Besta blaðið
    1
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Í mínum huga er Heimildin besti fréttamiðillinn.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár