Neytendur blekktir til að flokka fernur sem eru brenndar

Íslendingar hafa árum saman verið hvattir til þess að skola fernur utan um mjólkur­vörur eða ávaxta­safa, brjóta þær svo saman og flokka í pappa­tunnuna. Þetta hefur verið gert undir því yfirskini að fernurnar séu svo endur­unnar. Rannsókn Heim­ild­ar­innar sýnir að svo er ekki. Þær eru þvert á móti brenndar í sements­verksmiðjum á megin­landi Evrópu.

Um síðustu áramót tóku gildi ný lög um rusl á Íslandi. Samkvæmt þeim var öllum gert skylt að flokka. Matar­leifar þurfa að fara í eina tunnu, plast í aðra, það sem ekki er hægt að endur­vinna í þá þriðju og pappinn svo loks í fjórðu. Fyrir marga er þetta ekkert nýtt. 

Fjölmargir Íslendingar hafa fyrir löngu vanið sig á að flokka ruslið sitt, í þeirri trú að með því væru þeir að leggja sitt af mörkum til að leysa þau vandamál sem óhófleg neysla hefur skapað fyrir vistkerfi jarðar. Ýmis sveitar­félög hafa auk þess fyrir löngu síðan gert ráð fyrir slíkri flokkun í sorphirðu sinni. 

Á meðal athafna sem margir kannast við að framkvæma er að þrífa og brjóta saman fernur utan um mjólkur­vörur eða djús af ýmsum toga. Þessum fernum er svo komið fyrir í pappa­tunnu, sem er svo tæmd í pappagám. Þetta er gert í þeirri trú að allt sem í þessar tunnur og gáma rati verði endur­unnið. Samkvæmt endur­vinnslu­tölfræði Íslands enda allar fernur sem safnast hér, og sendast til endur­vinnslu, endur­unnar. Úrvinnslu­sjóður, opinber sjóður sem sér um umsýslu og ráðstöfun úrvinnslu­gjalds, hefur þess utan greitt íslensku endur­vinnslu­fyrir­tækjunum Sorpu, Terra og Íslenska gáma­félaginu fjármuni fyrir að hafa sent fernurnar í það ferli.

Flestar fernur sem seldar eru á Íslandi koma frá sænsk-svissneska fyrir­tækinu Tetra Pak. Þegar Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmda­stjóri Sorpu, er spurður að því hvort hann geti sagt að mjólkur­fernur og aðrar umbúðir frá Tetra Pak, sem heimili landsins skola, flokka og setja í pappírs­tunnur, fari í raun í endur­vinnslu, er svarið: „Nei, ég get ekki sagt það.“

Brenndar í sementsverksmiðjum

Fernur eru hannaðar til að halda vökva ferskum eins lengi og mögulegt er. Þær eru alls konar en eiga það allar sameiginlegt að innihalda bæði plast og pappír. Sumar, eins og fernur utan um ávaxta­safa, G-mjólkur­vörur og Kókómjólk, eru auk þess með málma í sér. 

Þessi samsetning skapar mikla áskorun fyrir endur­vinnslu­iðnaðinn, þar sem þessar fernur eru samsettar umbúðir.

Stærsta fyrir­tækið sem notast við fernur í fram­leiðslu sinni hér á landi er Mjólkur­samsalan, en fyrir­tækið segist framleiða yfir 40 milljónir fernur á ári hverju. Mjólkur­samsalan, ásamt íslenskum endur­vinnslu­fyrirtækjum, hvetja fólk að taka tíma til að skola og flokka þessar fernur rétt, svo þær geti farið í endur­vinnslu og eignast „framhaldslíf“. Sorpa getur ekki staðfest hvort fernur hafi raun­verulega farið í endur­vinnslu undan­farin 16 ár. 

Rannsókn Heimildarinnar hefur leitt í ljós að um langt skeið hafi nær allar þær fernur sem Íslendingar hafa skolað og flokkað verið brenndar í sements­verksmiðjum í Evrópu í stað þess að vera endur­unnar eins og neytendum hefur verið talið trú um. Eftirlit með því hvar fernur sem nýttar hafa verið á Íslandi enda er lítið sem ekkert. Úrvinnsla á fernum hefur í meira en þrjá áratugi verið skipulögð og framkvæmd eingöngu með sparnað í huga fyrir innlenda fram­leiðendur á vöru sem seld er í fernum og innflutnings­fyrirtæki sem flytja inn slíka vöru. Umhverfis­sjónarmið hafa mætt afgangi en endur­vinnslu­fyrirtæki hafa fengið vel greitt fyrir að endur­vinna fernur sem eru svo ekkert endur­unnar, heldur brenndar. Sveitar­félög landsins hafa auk þess orðið fyrir fjárhags­legu tjóni vegna þess að almenningur er látinn flokka fernur sem pappír.

Jón Viggó segir að það sem sé að eiga sér stað sé kannski grænþvottur, en það er hugtak yfir það þegar fyrirtæki, stjórn­völd eða stjórn­málaflokkar villa um fyrir fólki með því að sýnast vera umhverfis­vænni en þau raun­verulega eru. „Ég held að mest af þessum umbúðum fari í brennslu og verður þá orku­nýting, eða endur­nýting með orku­vinnslu.“ 

Hann segir að Sorpa hafi verið að spyrja endur­vinnslu­fyrirtæki á Íslandi um hvort fernurnar séu endur­unnar eða ekki í næstum heilt ár, í kjölfar fyrir­spurna Heimildarinnar um málið. Engin skýr svör hafi fengist. 

Ekkert viðskiptasamband

Í markaðs­efni sem Sorpa annars vegar og íslensku endur­vinnslu­fyrirtækin Íslenska gáma­félagið og Terra hins vegar hafa sent frá sér á undan­förnum árum er fullyrt að fernur sem fyrir­tækin taki við endi í endur­vinnslu. 

Heimildin óskaði eftir upplýsingum um hvað yrði um þær fernur sem þessir þrír aðilar söfnuðu í gegnum sín söfnunar­kerfi. Hún bað einnig um upplýsingar um hvaða endur­vinnslu­efni yrðu til eftir úrvinnslu á þeim.

Bæði Terra og Íslenska gáma­félagið sögðu að þær fernur sem þau söfnuðu væru sendar til hollenska endur­vinnslu­fyrir­tækisins Peute Recycling, en enduðu hjá þýska fyrir­tækinu Raubling Papier Gmbh, sem myndi sjá um að endur­vinna þær. Þegar beðið var um stað­festingu hjá Terra, þess efnis að fernurnar færu í raun í endur­vinnslu hjá fyrir­tækinu, sendi Arngrímur Sverrisson, framkvæmda­stjóri viðskipta­þróunar hjá Terra, gögn sem áttu að sýna fram á að fernur frá fyrir­tækinu færu í endur­vinnslu hjá Raubling Papier Gmbh. 

Gögnin sem Heimildin fékk frá Arngrími staðfestu hins vegar ekkert um endur­vinnslu á fernum, þar sem hann sendi eingöngu starfs­leyfi fyrir­tækisins. Arngrímur sagði enn fremur í svari til Heimildarinnar að Terra hafi sent fernur til Raubling Papier Gmbh í yfir áratug. Þegar Heimildin bað um frekari gögn frá Terra til að sýna fram á þessi viðskipti, hætti fyrir­tækið samskiptum. Það hefur ekki svarað endur­teknum fyrir­spurnum sem sendar hafa verið síðan í september 2022. 

Þegar Heimildin ræddi við dr. Lesiak Marko, framkvæmda­stjóra Raubling Papier Gmbh, sagði hann að fyrir­tækið tæki ekki við neinum fernum nema að þær hafi uppruna­lega komið frá þýskum heimilum. Þá kannaðist hann ekki við neitt viðskipta­samband við Terra, Íslenska gáma­félagið eða hollenska endur­vinnslu­fyrirtækið Peute Recycling. 

Segjast ekki hafa getu til að endurvinna fernur

Úrvinnslu­sjóður leikur lykil­hlutverk í endur­vinnslu­stjórnsýslu Íslendinga. Hlutverk hans er að skapa hagræn skilyrði fyrir endur­notkun og endur­nýtingu úrgangs í þeim tilgangi að draga úr magni úrgangs sem fer til endanlegrar förgunar og tryggja viðeigandi förgun spilli­efna. Sjóðurinn er pólitískt fyrirbæri, stjórn hans er skipuð af umhverfis­ráðherra, sveitar­félögum landsins og helstu hagsmuna­gæslu­samtökum þess. Sjóðurinn velti um 2,3 milljörðum króna árið 2021 og þeim fjármunum er ætlað að standa undir kostnaði við úrvinnslu úrgangs. 

Samkvæmt gögnum frá Úrvinnslu­sjóði er allur blandaður pappír, sem inni­heldur meðal annars fernur, frá Terra og Íslenska gáma­félaginu, sendur áfram í gegnum Peute Recycling til þýska fyrir­tækisins Schoellershammer. 

Í samtali við Heimildina segir Armin Vetter, yfirmaður tækni- og þróunar­sviðs Schoellershammer, að það hafi enga getu til þess að endur­vinna fernur og að þær endi allar í brennslu hjá sements­verksmiðju. Segir hann enn fremur að það sé slæmt fyrir endur­vinnslu­vélar fyrir­tækisins að fá fernur í endur­vinnslu­ferlana. Þetta er nánast sama svar og forsvars­menn Smurfit Kappa í Hollandi, sem tekur á móti öllum pappír frá Sorpu, segja varðandi sína endur­vinnslu. Í svari Ólafs Kjartans­sonar, framkvæmda­stjóra Úrvinnslu­sjóðs, við fyrir­spurn Heimildarinnar heldur hann hins vegar því fram að fernur geti verið endur­unnar hjá þessum fyrir­tækjum. „Fernum hefur verið safnað saman með pappa og í endur­vinnslu­ferli pappa er hægt að aðskilja ál og plast frá endur­vinnslu­ferli á trefjum úr pappanum.“

Heimildin spurði hvaðan hann hefði þær upplýsingar að þessi fyrirtæki gætu endur­unnið fernur í sínum ferlum, en Ólafur hefur ekki svarað þeirri spurningu blaðsins. 

Sagan gengur ekki upp

Í tölvupóst­samskiptum milli Ólafs og forsvars­manna Peute Recycling í Hollandi, sem Heimildin hefur undir höndum, kemur fram að allt annað fyrirtæki taki við fernunum sem Terra og Íslenska gáma­félagið sendir þangað og komi þeim áfram til Raubling Papier.

Um er að ræða Veolia Umweltservice Ost GmbH & Co í austur­hluta Þýska­lands. 

Samkvæmt Andreas Montag, yfirmanns upplýsinga­sviðs Veolia, kannast það fyrirtæki ekki við að taka við fernum frá Peute Recycling eða hafa nokkurn tíma tekið við fernum frá Íslandi. Heimildin hefur gögn undir höndum sem sína að einu viðskipti sem voru á milli Peute Recycling og Veolia var í gegnum millilið, Purpapier í Þýska­landi. Samkvæmt þeim gögnum var hins vegar ekki um fernur að ræða, heldur venju­legan pappír. Samkvæmt rakningar­upplýsingum sem Peute Recycling sendi á Úrvinnslu­sjóð kemur fram að árið 2021 hafi fyrir­tækið sent 72 tonn af fernum til Veolia. Það stemmir ekki samkvæmt þeim gögnum sem Heimildin hefur undir höndum. Þó svo að fernurnar hafi verið vitlaust merktar í gögnunum þá stemmir ekki þyngdin, því eina sendingin sem fór var 18 tonn. Er það eina árið sem skráð er sérstak­lega fernur, en árið 2022 voru engar fernur skráðar sérstak­lega til endur­vinnslu hjá Úrvinnslu­sjóði.

Í svari Ólafs Kjartans­sonar til Heimildarinnar segir hann að Veolia Umweltservice Ost GmbH & Co sé milli­liður við að koma fernum frá Íslandi til Raubling Papier GmbH. Forsvars­menn þess kannast hins vegar ekkert við að gegna slíku hlutverki.

Endurnýting, ekki endurvinnsla

Þrátt fyrir allt ofan­greint þá er því haldið blákalt fram í opinber­lega birtri tölfræði um endur­vinnslu á Íslandi að allar fernur sem safnað hafi verið saman undan­farna áratugi og sendar til útlanda hafi að öllu leyti verið endur­unnar. Úrvinnslu­sjóður hefur greitt endur­vinnslu­fyrirtækjum í samræmi við þetta. 

Samkvæmt rannsókn Heimildarinnar eru þær greiðslur, að minnsta kosti að hluta, inntar af hendi á fölskum forsendum. Tölfræðin sem sett er fram er röng. Eftir að Heimildin fór að spyrjast fyrir um þetta hjá Úrvinnslu­sjóði svaraði framkvæmda­stjóri Úrvinnslu­sjóðs því til að sjóðurinn væri með það til skoðunar að endur­skoða úrgangs­tölfræði pappírs. „Úrvinnslu­sjóður er með til skoðunar varðandi úrgangs­tölfræði fyrir umbúðir úr pappa að taka tillit til þess hluta af fernum, plast og ál, sem fer í orku­vinnslu og telst endur­nýting en ekki endur­vinnsla.“ Í endur­nýtingu felst að fernurnar eru brenndar til að búa til orku.

Umtalsvert fjárhagstjón

Heimildin hefur rætt við tugi sérfræðinga og starfs­manna pappírs­endur­vinnslu­fyrirtækja beggja vegna Atlantshafsins. Í öllum þeim samtölum kom skýrt fram að þegar fernum er blandað við hreinan pappír hefur það áhrif á það verð sem Sorpa, og önnur fyrirtæki, geta fengið fyrir pappírinn. Þetta þýðir að með því að láta höfuð­borgarbúa – Sorpa þjónustar það svæði – flokka fernur með pappír, lækkar það verðmæti pappírsins, sem þýðir að fyrir­tækin fá minni tekjur fyrir pappírinn. 

Þar sem langflestar pappírs­myllur vilja ekki fernur í pappírinn sem þær setja í endur­vinnslu­ferlana sína fækkar það þá einnig valmöguleikum fyrir­tækjanna að koma þeim pappír sem þau safna í endur­vinnslu. Þeir sérfræðingar sem Heimildin hefur rætt við segja að verð­munurinn geti numið tugum prósenta. 

Í svari til Heimildarinnar segist Sorpa ekki geta svarað því hversu miklu fjárhags­tjóni það hefur orðið fyrir vegna þessa fyrir­komulags undan­farna áratugi.

Vissu að gæðin myndu minnka

Stað­festir ekk­ertSkjalið sem for­svars­menn Terra sendu á Heim­ild­ina til að stað­festa end­ur­vinnslu á fernum frá þeim. Skjalið segir ekk­ert um endru­vinnslu á fernum.

Sú ákvörðun að blanda fernum saman við pappír var tekin í ársbyrjun árið 2006. Samkvæmt fundar­gerð Úrvinnslu­sjóðs frá því ári kemur fram að Ólafur Kjartansson, framkvæmda­stjóri Úrvinnslu­sjóðs, og Ögmundur Einarsson, þáverandi framkvæmda­stjóri Sorpu, hefðu hist á fundi og rætt um framtíð söfnunar á fernum. Kom þar fram að bæði Úrvinnslu­sjóður og Sorpa vissu að það fengist lægra verð fyrir pappír sem yrði safnað og sendur í endur­vinnslu með því að blanda fernum saman við hann.

„ÓK ( Ólafur Kjartansson) átti nýverið fund með Ögmundi Einars­syni, framkvæmda­stjóra Sorpu. Fram kom hjá Ögmundi að hann reikni með því að semsettar umbúðir (fernur) fari saman við aðrar pappa­umbúðir enda þótt lægra verð fáist fyrir pappa­umbúðir með því móti. Hann taldi að þær átta kr./kg sem nú eru greiddar fyrir pappann myndu þá ef til vill reynast of lágt einingar­verð,“ segir í fundar­gerð stjórnar Úrvinnslu­sjóðs. 

Þessi ákvörðun gerði það að verkum að það þurfti að hækka úrvinnslu­gjaldið á venju­legum pappír sem fram­leiðendur og innflytjendur borguðu af, til þess eins að niður­greiða það tap sem yrði á sölu á pappírnum vegna þeirrar mengunar sem fernur myndu hafa áhrif á söluverð hans til endur­vinnslu. Þetta þýddi að íslensk fyrirtæki sem notuðu pappír í sínum umbúðum fóru að niður­greiða úrvinnslu­gjald á fernum.

Mjólkuriðnaðurinn lætur aðra niðurgreiða endurvinnsluna

Fernurnar hafa ekki bara áhrif á verðið, heldur geta þær haft slæm áhrif fyrir endur­vinnslu­ferlið á pappír. Þegar fernurnar fara í endur­vinnslu­ferlið er það flokkað sem óhreinindi. Þessi óhreinindi þarf að hreinsa sérstak­lega frá í ferlinu. Þetta stað­festir starfs­maður Smurfit Kappa í Hollandi, fyrir­tækisins sem Sorpa sendir allan sinn pappír til. Fernurnar enda sem eins konar vatns­drulla sem er þurrkuð og send til sementsverskmiðju sem brennir þær. Fernurnar eru ekki bara ekki endur­vinnanlegar í þessu ferli, heldur eyði­leggja þær hluta af hreinum pappír sem hefði verið endur­unninn ef fernurnar hefðu ekki farið með pappírnum, þar af leiðandi minnka þær endur­vinnslu­hlutfall pappírsins.

Mun dýrara er að endur­vinna fernur en pappír en samt hefur Úrvinnslu­sjóður ákveðið að það sé enginn munur á þessu tvennu, því sjóðurinn er með sama úrvinnslu­gjald á fernum og pappír. Í raun fá íslensk endur­vinnslu­fyrirtæki langoftast greitt fyrir pappír á meðan það þarf að borga fyrir endur­vinnslu á fernum. Þá er úrvinnslu­gjald á fernur það sama og úrvinnslu­gjaldið er á pappír, þrátt fyrir að það sé mun dýrara að endur­vinna fernur. Er því núverandi kerfi byggt þannig upp að þeir fram­leiðendur og innflytjendur sem notast við pappír í sínum umbúðum að niður­greiða söfnun, flutning og úrvinnslu á fernum hér á landi, sem Mjólkur­samsalan notast meðal annars við. 

Úrvinnslugjald stendur ekki undir kostnaði

Samkvæmt núverandi verðskrá Úrvinnslu­sjóðs vegna úrvinnslu­gjalds á fernum, mun það gjald aldrei getað staðið undir þeim kostnaði sem er vegna raun­endur­vinnslu á fernum. Hér á Íslandi er gjaldið 42 krónur á hvert kíló sem framleitt er, eða flutt inn af fernum. Á meðan er þetta gjald mun hærra til dæmis í Þýska­landi. En þar þurfa fram­leiðendur og innflytjendur á fernum að borga allt að 110 krónur á kílóið af fernum. Þá er ekki tekið tillit til þess að söfnunar­kostnaður og sendingar­kostnaður er mun dýrari á Íslandi en í Þýska­landi. Árlega fara um sex milljónir tonna af fernum í gegnum þýska söfnunar­kerfið og hefur náðst þar mikil hagræðing í bæði söfnunar­kerfinu og endur­vinnslu, en Þjóð­verjar flokka fernur með plasti þar sem þeir vita að fernur menga hreinan pappírs­straum. Eru svo fernurnar flokkaðar úr plastinu og sendar til fyrir­tækja sem sérhæfa sig í úrvinnslu á eingöngu fernum. 

Samkvæmt þeim sérfræðingum sem Heimildin ræddi við er ekki möguleiki fyrir íslensk endur­vinnslu­fyrirtæki að endur­vinna fernur án þess að borga með þeim. Fer það gegn lögum um fram­leiðenda­ábyrgð, en þau eru mjög skýr um það að fram­leiðandi beri fjárhags­lega ábyrgð á úrvinnslu þeirra umbúða sem þeir framleiða eða flytja inn og eiga að greiða úrvinnslu­gjald í samræmi við þann kostnað sem varan þeirra ber. Samkvæmt upplýsingum Heimildarinnar er að minnsta kosti eitt íslenskt endur­vinnslu­fyrirtæki sem niður­greiðir endur­vinnslu á fernum með hærri sorphirðu­gjöldum.

Kjósa
93
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Svala Jónsdóttir skrifaði
    Það lítur út fyrir að það þurfi að taka til í Endurvinnslusjóði. Einhverjir einstaklingar þar virðast ekki vera starfi sínu vaxnir.
    2
  • Eva Karlsdottir skrifaði
    Er þetta með vilja gert eða eru aðilar ekki starfi sínu vaxnir búin að flokka samviskusamlega í áraraðir
    0
  • Jóhannes Baldvinsson skrifaði
    Svo mætti alveg upplýsa hver er með umboð fyrir TetraPak á Íslandi.
    3
  • Kjartan Kjartansson skrifaði
    Bjartmar hefur ítrekað skrifað greinar um hvernig endurvinnsla á Íslandi virðist vera einhverskonar húmbúkk.

    Af hverju er ekki Ríkisendurskoðun fengin til að rýna í þessa starfsemi og staðfesta eða hrekja þessar fréttir?

    Við viljum náttúrunni vel, við skulum standa við það sem segjumst gera og sinna þessum málaflokki almennilega.

    Ömurlegt fyrir almenning að vera flokka og vinna alla þessa vinnu þegar árangurinn er ekki meiri.
    6
  • Fúsi Óttars skrifaði
    "Ísland,best í heimi"
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fernurnar brenna

Mest lesið undanfarið ár