Heimildin með flestar tilnefningar til Blaðamannaverðlaunanna

Sex blaða­menn Heim­ild­ar­innar eru til­nefndir til Blaða­manna­verð­launa Blaða­manna­fé­lags Íslands. Heim­ildin er til­nefnd í öllum flokkum og hlaut flestar til­nefn­ingar allra fjöl­miðla.

Heimildin með flestar tilnefningar til Blaðamannaverðlaunanna
Blaða­menn­irnir Ingi Freyr Vil­hjálms­son, Sunna Ósk Loga­dóttir, Margrét Mart­eins­dóttir, Aðal­steinn Kjart­ans­son, Helgi Seljan og Bjartmar Oddur Þeyr Alex­and­ers­son voru til­nefnd.

Sex blaða­menn Heim­ild­ar­innar hlutu til­nefn­ingar til Blaða­manna­verð­launa Blaða­manna­fé­lags Íslands. Hlaut mið­ill­inn fimm til­nefn­ingar í öllum fjórum flokkum verð­laun­anna. Blaða­manna­verð­launin verða afhent eftir viku, föstu­dag­inn 15. mars.

Margrét Mart­eins­dóttir hlaut til­nefn­ingu fyrir við­tal árs­ins fyrir við­tal sitt við Gyrði Elíasson rit­höf­und. Í við­tal­inu ræddi Gyrðir í fyrsta sinn opin­skátt um þung­lyndi sem hann hefur glímt við í ára­tugi.

Ingi Freyr Vil­hjálms­son hlaut til­nefn­ingu til umfjöll­unar árs­ins. Var það fyrir umfjöllun hans um sjó­kvía­eldi á Íslandi. 

Heim­ildin hlaut tvær til­nefn­ingar til rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins. Var það ann­ars vegar Bjartmar Oddur Þeyr Alex­and­ers­son fyrir frétta­skýr­ingar um end­ur­vinnslu­ferli drykkj­ar­ferna. Afhjúpaði hún að fjöl­margir Íslend­ingar hefðu flokkað fernur í þeirri trúa að þær væru end­ur­unnar þegar þær voru í raun brenndar í sem­ents­verk­smiðjum á meg­in­landi Evrópu. 

Helgi Seljan og Aðal­steinn Kjart­ans­son voru einnig til­nefndir saman til rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins. Var það fyrir umfjöllun þeirra um snjó­flóðið sem féll á Súðavík í jan­úar 1995.

Sunna Ósk Loga­dóttir var til­nefnd til Blaða­manna­verð­launa árs­ins fyrir viða­mikla umfjöllun sína um mál­efni nátt­úr­unnar. Sunna hefur skrifað gagn­rýnar greinar um tog­streitu sem skap­ast hefur í lofts­lags­málum á Íslandi. 

Heim­ildin hlaut flestar til­nefn­ingar allra miðla, eða fimm. Frétta­stofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar hlaut þrjár til­nefn­ingar til verð­laun­anna, Frétta­stofa RÚV tvær, Frétta­blaðið eina og Reykja­vík Media og Purkur eina. 

Hér má sjá tilnefningarnar í heild sinni:

Viðtal árs­ins:

  • Auður Ösp Guð­munds­dóttir, frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar. Fyrir við­tal við Evu Ólafs­dóttur sem steig fram og greindi frá kyn­ferð­is­of­beldi sem hún varð fyrir af hálfu afa síns, Guðjóns Ólafs­sonar. 
  • Björk Eiðs­dóttir, Frétta­blað­inu. Fyrir við­tal við Magnús Karl Magn­ús­son, pró­fessor í lækn­is­fræði við Háskóla Íslands. 
  • Margrét Mart­eins­dóttir, Heim­ild­inni. Fyrir við­tal við Gyrði Elíasson, rit­höf­und. 

Rann­sókn­ar­blaða­mennska árs­ins:

  •  Arn­hildur Hálf­dán­ar­dóttir og Arnar Þórisson, RÚV. Fyrir umfjöllun um svo­kall­aða „óleyf­is­bú­staði“, það er hús­næði sem er ekki sam­þykkt sem íbúð­ar­hús­næði og er oftar en ekki hættu­legt til búsetu. 
  • Bjartmar Oddur Þeyr Alex­and­ers­son, Heim­ild­inni. Fyrir frétta­skýr­ingar um end­ur­vinnslu­ferli drykkj­ar­ferna sem afhjúpaði að fernur, sem fjöl­margir Íslend­ingar hafa flokkað jafn­vel ára­tugum saman í þeirri trú að þær væru end­ur­unnar, eru brenndar í sem­ents­verk­smiðjum á meg­in­landi Evrópu. 
  • Helgi Seljan og Aðal­steinn Kjart­ans­son, Heim­ild­inni. Fyrir umfjöllun um snjó­flóðið sem féll á Súðavík í jan­úar 1995.

Umfjöllun árs­ins 

  • Elísabet Inga Sig­urð­ar­dóttir og Sunna Sæmunds­dóttir, frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar. Fyrir umfjöllun um fylli­efni og fegr­un­ar­að­gerðir í Kompás. 
  • Ingi Freyr Vil­hjálms­son, Heim­ild­inni. Fyrir umfjöllun um sjó­kvía­eldi á Íslandi.
  • Jóhannes Kr. Krist­jáns­son, Sævar Guð­munds­son og Heimir Bjarna­son, Reykja­vík Media og Purkur kvik­mynda­gerð. Fyrir sjón­varps­þætt­ina Stormur sem fjöll­uðu um Covid 19-far­ald­ur­inn á Íslandi frá hliðum sem ekki höfðu sést áður í fjöl­miðlum hér á landi.

Blaða­manna­verð­laun árs­ins

  • Heimir Már Pét­urs­son, frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar. Fyrir ítar­lega og vand­aða umfjöllun um kjara­mál á árinu.
  • Ingunn Lára Krist­jáns­dóttir, RÚV. Fyrir nýstár­lega og eft­ir­tekt­ar­verða fram­setn­ingu frétta á helstu sam­fé­lags­miðlum, til að mynda á TikTok og Instagram, og fyrir svo­kall­aðar flettifréttir á gagn­virku formi.
  • Sunna Ósk Loga­dóttir, Heim­ild­inni. Fyrir viða­mikla umfjöllun um mál­efni nátt­úr­unnar í sinni fjöl­breytt­ustu mynd. 

Fyr­ir­vari: Hér er fjallað um mál er varða Heim­ild­ina með beinum hætti.

Kjósa
32
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Öll eru þau vel að þessum viðurkenningum komin. Til lukku!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár