Á stundum erfitt með að ná andanum

Það blasir við að barn sem flúið hefur frá Gasa­strönd­inni, þar sem fjöl­skylda þess flýr sprengju­árásir, og dvalið mán­uðum saman í flótta­manna­búðum í Grikk­landi, geti verið í and­lega bágu ástandi, þjáð af áfallastreitu. Það sem Sameer Omran hefur lifað herjar enn þá á hann – þannig að stundum nær hann ekki and­anum.

Á stundum erfitt með að ná andanum
Jólalegt Sameer bað um jóla­seríu inn í her­bergið sitt til að skreyta og gera það fal­legt. Mynd: Golli

„Sameer var alveg á tánum þegar hann kom til okkar, segir Anna Guðrún Inga­dóttir, sem hefur síðan í júní verið fóst­ur­móðir Sameer Omran, tólf ára drengs sem flúði frá Gasa­strönd­inni ásamt frændum sínum en Útlend­inga­stofnun hefur til­kynnt að hann og Yazan Kaware , fjórtán ára frændi hans, verði sendir aftur til Grikk­lands, þar sem þeir dvöldu í sex mán­uði áður en þeir komu til Íslands og betl­uðu á göt­unni, við­búnir því að fólk hrækti á þá. “

Aðspurð um hvort hann sýni ein­kenni áfallastreiturösk­unar kveðst Anna Guðrún ekki vera sér­fræð­ingur, en með þeim fyr­ir­vara seg­ist hún halda að hann sé með áfallastreitu eða áfallastreituröskun. Hún lýsir atferli hans síð­ustu mán­uði á þennan hátt:

„Ég fann að hann átti mjög erfitt með að treysta okkur lengi til að byrja með. Þó sýndum við bara góð­mennsku og gerðum allt til að byggja upp traust. En hann læsti her­bergi sínu. …

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár