Sjón­deild rit­stjóra WikiLeaks Að baki síð­ustu vend­inga í máli Julian Assange býr lygi­leg saga. Kristinn hefur ekki misst kappið þegar hann horfir til fram­tíðar, þó að þessi saga gefi honum ekki færi á öðru en að vera skept­ískur og með var­ann á sér gagn­vart dóms­kerf­inu bæði í Bret­landi og Banda­ríkj­unum. Mynd: Golli

„Það er svo ótrúlega helvíti erfitt að fara frá honum“

Kristinn Hrafns­son ræðir stöð­una á málum Julian Assange en umræðan byrj­aði að breyt­ast eftir að Nils Melzer, þáver­andi skýrslu­gjafi Sam­ein­uðu þjóð­anna, gaf út á bók árið 2022 og lagði áherslu á að eng­inn hefur axlað ábyrgð á stríðs­glæpum þeim sem WikiLeaks afhjúpaði á meðan Julian sætir pynt­ingum og yfir­völd fjög­urra landa hafa marg­brotið á honum. Bókin hefur haft áhrif, jafn­vel á Joe Biden og Olaf Sholz.

Í dag snýst þetta um Julian Assange, á morgun snýst það um okkur öll,“ sagði Kristinn Hrafns­son við blaða­mann á torgi í London í kjöl­far úrskurðar breskra dóm­ara þegar Julian Assange fékk því fram­gengt að áfrýja fram­sals­beiðni Banda­ríkj­anna.

Stjórn­völd þar ytra fá þrjár vikur til að sanna að Julian fái að vísa til tján­ing­ar­frels­is­ins við rétt­ar­höldin og verði hvorki mis­munað við þau né við afplánun. Tryggja þarf að hann verði hvorki dæmdur á grund­velli þjóð­ernis síns eða dæmdur til dauða.

Þetta var 26. mars síð­ast­lið­inn.

Ákæran í Banda­ríkj­unum byggir á fornri njósn­a­lög­gjöf og er sautján­föld; hans gæti beðið allt að 175 ára fang­elsi. Julian er fyrsti blaða­mað­ur­inn sem ákærður er á grund­velli lög­gjaf­ar­innar en þann 11. apríl síð­ast­lið­inn hafði hann verið í fimm ár í His Majesty's Prison Belmarsh, helsta örygg­is­fang­elsi Breta; eftir sjö ára dvöl í sendi­ráði Ekvador í London. Þann 19. júní árið 2012 …

Kjósa
40
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Enn og aftur, öll leynd er vegna vondrar samvisku, öll bönn vegna skorts á trausti og allir peningar vegna valdaágirndar. Góð grein um, því miður alla veikleika þeirra kerfa sem homo sapíens hefur hannað. Kristinn Hrafnsson er einstök manneskja. Ég hef fylgst lengi með þessu skelfilega máli og geri framvegis, þetta er því miður ekki eina málið.
    0
  • Sigríður Jónsdóttir skrifaði
    Læt þessa slóð fylgja

    https://www.democracynow.org/2022/8/18/assange_attorneys_and_journalists_sue_the
    0
  • Sigríður Jónsdóttir skrifaði
    Takk fyrir þessa góðu grein. Ég vona innilega að Bretarnir framselji hann ekki. Demókratarnir muna enn ósigur Hillary Clinton. Það voru of margir kjósendur flokksins með óbragð í munni, en sennilega þurfti ekki uppljóstranirnar til til að Trump væri kosinn... því miður þarf kraftaverk til að koma í veg fyrir að Trump nái nú endurkjöri.... því miður, og þá mun sannarlega reyna á lýðræðið og tjáningarfrelsið í Bandaríkjunum.
    1
  • Bryndís Dagbjartsdóttir skrifaði
    Afar góð grein og vel unnin, greinargóð samantekt á hræðilegum mannréttindabrotum gagnvart þessum manni. Maður fyllist hálfgerðu vonleysi að sjá hversu mikil völd fólk hefur fólk sem jafnframt er andlega ófært um að höndla þau.
    4
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Lög=vald=peningar. Dómstólar hafa engar skyldur við réttlæti bara við þessa heilögu þrenningu. Enda ber maður enga virðingu fyrir dómstólum, því réttlætið á ekki heima þar.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár