Stöðug umferð vörubíla „algjör andstæða“ við þá upplifun sem ferðamenn sækjast eftir

Samtök ferða­þjón­ust­unnar gagn­rýna harð­lega áform um vik­ur­nám á Mýr­dals­sandi og þá miklu flutn­inga sem henni fylgja. Fram­kvæmda­að­ili sé aug­ljós­lega ekki kunn­ugur stað­háttum og sterkri stöðu ferða­þjón­ustu á svæð­inu.

Vegakerfið á Suðurlandi er nú þegar dapurt segja Samtök ferðaþjónustunnar.
Vega­kerfið á Suð­ur­landi er nú þegar dap­urt segja Samtök ferða­þjón­ust­unnar. Mynd: Pexels

Samtök ferða­þjón­ust­unnar segja „áhuga­vert“ að við umhverf­is­mat áform­aðrar námu­vinnslu á Mýr­dals­sandi virð­ist ein­göngu miðað við að gestir sjái sem minnst af námunni sjálfri en lítið til­lit tekið til þess að eitt helsta aðdrátt­ar­afl ferða­manna sem velja Ísland sem áfanga­stað er ósnortin nátt­úra, fámenni og víð­átta. „Óhætt er að segja að ryk og stöðug umferð vöru­bíla sé algjör and­stæða við þá upp­lifun.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í harð­orðri umsögn sam­tak­anna við umhverf­is­mats­skýrslu EP Power Minerals, þýska fyr­ir­tæk­is­ins sem vill vinna Kötlu­vikur undir Hafursey á Mýr­dals­sand­inn næstu öld­ina eða svo.

[adspot]

Miðað við áætl­anir um efn­is­töku, sem fram eru settar í skýrsl­unni sem verk­fræði­stofan EFLA vann, er ætl­unin að 30 flutn­inga­bílar, hver um sig um 30-35 tonn að þyngd, keyri milli Mýr­dals­sands og Þor­láks­hafnar 280 daga á ári. Um 170 kíló­metrar eru milli þess­ara staða.

Ætlunin er að keyra efni allan sól­ar­hring­inn á korters fresti, en ein ferð er skil­greind sem fullur bíll til Þor­láks­hafnar og tómur til baka. Því munu stórir flutn­inga­bílar fara um veg­inn á 7-8 mín­útna fresti og bæt­ast við þann fjölda flutn­inga­bíla sem fer um þjóð­veg­inn í að flytja fisk og aðrar vörur.

[links]„Ef horft er til áætl­aðar efn­iskeyrslu, fjölda og þyngd bíla, ástand vega­kerf­is­ins og fjár­fest­ingu rík­is­ins í við­haldi á vega­kerf­inu er aug­ljóst að áhrif efn­is­tök­unnar á vega­kerfið eiga eftir að verða veru­lega nei­kvæð,“ skrifar Ágúst Elvar Bjarna­son, verk­efn­is­stjóri hjá Samtökum ferða­þjón­ust­unnar, í umsögn­inni. „Vega­kerfi sem nú þegar er í döpru ástandi og fjár­magnað tölu­vert undir áætl­aðri fjár­mögn­un­ar­þörf.“

Samkvæmt umhverf­is­mats­skýrslu Eflu mun efn­is­flutn­ingur hafa „nokkuð nei­kvæð“ áhrif á umferð. SAF bendir á að flutn­ingnum fylgi aukið álag á vegi, auk­inn umferð­ar­þungi og nei­kvæð áhrif á umferð­ar­ör­yggi sem nú þegar sé ekki nægi­lega gott á þess­ari leið. „Leiðin er nú þegar einn vin­sæl­asti ferða­manna­vegur lands­ins enda nokkrir af vin­sæl­ustu áfanga­stöðum lands­ins á leið­inni. Í dag annar vega­kerfið milli Selfoss og Mýr­dals­hrepps varla þeirri umferð sem um hann fer.“

Akst­ursleið flutn­inga­bíl­anna mun liggja í gegnum sjö sveit­ar­fé­lög og fjóra þétt­býl­iskjarna. Í öllum þessum þétt­býl­is­kjörnum, líkt og í dreif­býl­inu við akst­ursleið­ina, hefur öflug ferða­þjón­usta byggst upp síð­asta ára­tug­inn, segir í umsögn SAF: Meðal ann­ars sé fjöldi gisti­staða þétt við þjóð­veg­inn. „Óvíst er hver áhrif efn­is­flutn­inga munu verða á þessa upp­bygg­ingu, önnur en nei­kvæð.“

Þá segja sam­tökin ljóst að íbúar og gestir við flutn­ings­leið­ina alla, frá gatna­mótum á Mýr­dals­sandi að Þor­láks­höfn, geti búist við truflun í hvert sinn sem vöru­bíll fer hjá. „Jafnvel þó að keyrt verði hægt í gegnum þétt­býli eru vöru­bílar af þess­ari stærð fyr­ir­ferð­ar­miklir í umferð­inni og valda bíl­stjórum minni bíla óör­yggi.“

Í dag fara nokkur hund­ruð gestir á dag í skipu­lagðar ferðir í íshella við Kötlu­jökul. Samkvæmt umhverf­is­mats­skýrslu EPPM er „ólík­legt“ að þessir gestir muni verða fyrir áhrifum af efn­is­tök­unni enda yrði námu­svæðið ekki sýni­legt frá jökl­inum.

„Þá er aug­ljóst að höf­undar umhverf­is­mats­skýrsl­unnar þekkja lítið til stað­hátta á svæð­inu,“ segir SAF. Þegar gengið er upp á Kötlu­jökul við Mold­heiði blasi fyr­ir­hugað námu­svæði við. Svæðið mun einnig sjást vel frá Þjóðvegi 1, frá ánni Skálm, ofan af Höfða­brekku­heiðum á leið inn í Þakgil og ofan af Hjör­leifs­höfða. Hluti land­eig­enda hyggi einmitt á upp­bygg­ingu ferða­þjón­ustu, m.a. við og á Hjör­leifs­höfða og allar líkur á að gestir þeirra horfi beint yfir efn­is­vinnsl­una. „Að þessu sögðu draga sam­tökin í efa þau orð [fram­kvæmda­að­ila] að áhrif efn­is­tök­unnar á ferða­þjón­ustu á svæð­inu yrðu óveru­leg.“

Samtök ferða­þjón­ust­unnar eru svo allt annað en ánægð með það hvernig fjallað er um atvinnu­grein­ina í umhverf­is­mats­skýrsl­unni. Í henni er því haldið fram að ferða­þjón­usta á svæð­inu sé ekki heils­ársat­vinnu­grein. „Samtökin vilja biðja skýrslu­höf­unda um að kynna sér málin betur áður en slíku er haldið fram enda er hún fyrir margt löngu orðin að heils­ársat­vinnu­grein“ og sé stærsta atvinnu­greinin í Mýr­dals­hreppi.

„Ferða­þjón­usta í Vík mun sann­ar­lega finna fyrir áhrifum af flutn­ing­unum enda flutn­ings­leiðin í gegnum bæinn,“ benda sam­tökin ná. Tvö hótel séu þétt við veg­inn og það þriðja í ein­ungis 150 metra fjar­lægð. Svipaða sögu sé að segja af öðrum þétt­býl­is­stöðum sem flutn­ings­leiðin liggur um.

Ljóst er að mati SAF að efn­istakan sjálf muni hafa nei­kvæð áhrif á land­náms­jörð­ina Hjör­leifs­höfða og þá ferða­þjón­ustu sem þar er stunduð. „Nei­kvæð­ust verða þó áhrif af flutn­ingum en þeir fara í gegnum sjö sveit­ar­fé­lög og 4 þétt­býl­iskjarna, fram­hjá fjölda gisti- og veit­inga­staða með til­heyr­andi truflun, sliti á vega­kerfi og nei­kvæðum áhrifum á umferð­ar­ör­yggi.“

Erum við tilbúin í veðmál?

Suð­ur­land er eitt mest heim­sótta svæði lands­ins meðal ferða­manna og hefur ferða­þjón­usta vaxið gríð­ar­lega á svæð­inu síð­asta ára­tug­inn. Heild­ar­skatt­tekjur þess­ara sjö sveit­ar­fé­laga sem akst­ursleiðin liggur í gegnum af ferða­þjón­ustu árið 2019 voru um einn og hálfur millj­arður.

Áætlað er að 20 störf skap­ist við efn­is­töku á Mýr­dals­sandi, 10 störf í Þor­láks­höfn og 105 störf tengd akstri og flutn­ingum. „Erum við sem áfanga­staður til­búin að veðja þeim góða árangri í ferða­þjón­ustu á svæð­inu á að nei­kvæð áhrif efn­is­tök­unnar verði svo lítil að þau komi ekki niður á öðrum atvinnu­greinum?“ spyr Ágúst Elvar í lok umsagnar SAF. „Erum við til­búin að veðja óveru­legum tekjum tveggja sveit­ar­fé­laga fyrir atvinnu­upp­bygg­ingu síð­ustu ára í öllum sjö sveit­ar­fé­lög­unum?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mýrdalshreppur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár