Sveitarfélagið sé vísvitandi að útiloka ákveðna valkosti

Sveit­ar­stjórn Mýr­dals­hrepps slær nokkra val­kosti á færslu hring­veg­ar­ins út af borð­inu með vísan til nýrra hverfa sem áformuð eru í Vík. Samtök íbúa segja stjórn­ina vís­vit­andi beita sér fyrir ákveðnum val­kosti fram­kvæmd­ar­innar.

Vík í Mýrdal.
Vík í Mýrdal. Mynd: Sunna Ósk Logadóttir

Sveit­ar­stjórn Mýr­dals­hrepps segir þann val­kost að færa hring­veg­inn í Mýrdal ofan við byggð­ina í Vík ekki koma til greina. Aðrir kostir sem ekki fela í sér strand­veg, jarð­göng í gegnum Reyn­is­fjall og veg með­fram Vík­ur­fjöru, koma ekki heldur til greina þar sem sveit­ar­stjórnin leggur áherslu á „sléttan lág­lendis­veg“ – og að hring­veg­ur­inn verði færður út úr þétt­býli.

Það mark­mið hinnar áform­uðu fram­kvæmdar Vega­gerð­ar­innar, sem nú er í umhverf­is­mati, hefur reyndar verið gagn­rýnt af Skipu­lags­stofnun. Að hennar mati ættu mark­miðin að lúta að atriðum eins og öryggi, hljóð­vist og þeirri þjón­ustu sem veg­inum er ætlað að sinna fyrir sam­fé­lagið á svæð­inu og umferð um svæð­ið, fremur en að fela í sér til­tekna val­kosti um legu veg­ar­ins. „Í mats­á­ætlun eru ekki lögð fram gögn sem rök­styðja þörf­ina á þessu mark­miði eða sýnt fram á að ekki sé unnt að ná fram ásætt­an­legu öryggi og hljóð­vist í þétt­býl­inu með end­ur­bótum á núver­andi vegi og við­eig­andi útfærslu hans og hönn­un, svo sem með til­liti til umferð­ar­hraða.“

[adspot]

Núver­andi vegur liggur yfir háls sem nefn­ist Gatna­brún. Á honum eru nokkrar krappar beygjur og 10-12 pró­sent halli en mest fer veg­ur­inn í rúm­lega 100 metra hæð. Bæði í aðal­skipu­lagi Mýr­dals­hrepps og Sam­göngu­á­ætlun stjórn­valda eru settar fram áætl­anir um strand­veg með jarð­göngum en sú veglagn­ing hefur sætt tölu­verðri gagn­rýni, bæði meðal íbúa í Mýrdal sem og víðar á land­inu og jafn­vel erlendis, sem og hjá ýmsum stofn­unum og nátt­úru­vernd­ar­sam­tökum. Er þar hin ein­stæða nátt­úra, m.a. fjöl­skrúð­ugt fugla­líf strand­svæð­is­ins, helst nefnd enda myndi veg­ur­inn m.a. liggja í nágrenni eða yfir Dyr­hólaós, sjáv­ar­leirur með sér­stæðum lífs­skil­yrðum sem njóta verndar sam­kvæmt nátt­úru­vernd­ar­lögum.

Skipu­lags­stofnun gaf nýverið álit sitt á mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­innar með skil­yrðum. Þá er næsta skref Vega­gerð­ar­innar að gera umhverf­is­mats­skýrslu, þar sem ítar­lega á að fara yfir alla þá sjö val­kosti sem settir eru fram um mögu­lega veg­línu og meta áhrif hvers og eins þeirra á umhverfið.

Í umsögn sveit­ar­stjórnar Mýr­dals­hrepps við mats­á­ætl­un­ina eru tveir val­kostir slegnir afger­andi út af borð­inu. Sá kostur að gera lag­fær­ingar á núver­andi veg­línu, líkt og það er orðað hjá Vega­gerð­inni, en leggja hann svo norðan byggð­ar­innar í Vík til að sneiða fram hjá þétt­býl­inu, fær algjöra fall­ein­kunn hjá sveit­ar­stjórn sem segir vand­séð að slíkur vegur gæti upp­fyllt kröfur um umferð­ar­ör­yggi. Þar fyrir utan myndi hann liggja um fram­tíðar bygg­ingar- og úti­vist­ar­svæði í efri hluta bæj­ar­ins og myndi þvera svæði sem nú er verið að deiliskipu­leggja fyrir nýja íbúða­byggð í aust­ur­hluta bæj­ar­ins.

Þá kemur hluti val­kosts 1b, sem gerir ráð fyrir að veg­ur­inn verði lagður með­fram fjör­unni í Vík sunnan við iðn­að­ar­svæði ekki heldur til greina að mati sveit­ar­stjórnar þar sem sam­þykkt hafi verið deiliskipu­lag um stækkun iðn­að­ar­hverf­is­ins.

Samtök íbúa og hags­muna­að­ila um ábyrgar skipu­lags- og sam­göngu­bætur í Mýrdal vöktu sér­staka athygli á þessu í umsögn sinni um mats­á­ætl­un­ina. Á meðan Vega­gerðin vinni að því að skoða og meta hvaða kostir séu í stöð­unni til að ná því mark­miði sveit­ar­fé­lags­ins að taka þjóð­veg­inn út úr þétt­býli vinni sveit­ar­fé­lagið „af fullum krafti gegn þessu sama mark­miði“.

Ef val­kostur um veg með jarð­göngum verði af ein­hverjum orsökum ekki fram­kvæm­an­legur, þá sé sveit­ar­fé­lagið að deiliskipu­leggja íbúða­byggð beint ofan í eina val­kost­inn sem gæfi mögu­leika á að taka veg­inn út fyrir þétt­býlið. „Skilja má það sem svo að sveit­ar­fé­lagið sé með vís­vit­andi hætti að beita sér fyrir að ákveðnir veg­línu­kostir verði settir inn.“

Samtökin benda enn­fremur á að nú sé unnið að nýju aðal­skipu­lagi Mýr­dals­hrepps m.a. með áform­aðri íbúa­byggð við aust­ur­enda Vík­ur­þorps. Þar með yrði þjóð­vegur 1 áfram innan þétt­býl­is­ins, segja þau. „Við bendum á að mark­mið sveit­ar­fé­lags­ins um veg út fyrir þorpið, hefur fallið um sjálft sig og á ekki lengur við, því hvar sem veg­ur­inn kemur þá verður hann alltaf innan þétt­býl­is­ins miðað við stefnu sveit­ar­fé­lags­ins í skipu­lags­málum.“

Vega­gerðin brást við athuga­semd sam­tak­anna með því að minna á að mark­mið fram­kvæmd­ar­innar með færslu hring­veg­ar­ins væru skýr en að mik­il­vægur hluti umhverf­is­mats­ins sé m.a. að bera saman umhverf­is­á­hrif val­kosta, sam­ræmi þeirra við mark­mið fram­kvæmdar og sam­ræmi við skipu­lags­á­ætl­anir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mýrdalshreppur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár