Ályktanir um áhrif vikurnáms á Mýrdalssandi lýsa „miklu skilningsleysi“

Ef fara á í vik­ur­nám á Mýr­dals­sandi ætti að flytja efnið stystu leið og í skip sunnan við námu­svæðið en ekki til Þor­láks­hafnar, að mati sveit­ar­stjórnar Mýr­dals­hrepps sem lýsir sig reiðu­búna til við­ræðna um hafn­ar­gerð.

Vík í Mýrdal.
Vík í Mýrdal. Mynd: Pexels

Sveit­ar­stjórn Mýr­dals­hrepps setur sig ekki upp á móti efn­is­töku á Mýr­dals­sandi en „eigi hún að verða að veru­leika er þó ljóst að skipu­lag hennar getur ekki orðið eins og gert er ráð fyrir í umhverf­is­mats­skýrslu“.

Á þessum orðum hefst harð­orð umsögn Einars Freys Elín­ar­sonar, sveit­ar­stjóra Mýr­dals­hrepps, við umhverf­is­mats­skýrslu vegna áform­aðrar námu­vinnslu á Mýr­dals­sandi. Verk­fræði­stofan Efla vann skýrsl­una fyrir þýska fram­kvæmda­að­il­ann, EP Power Minerals. Um er að ræða áform um gríð­ar­lega mikla vinnslu vik­urs og flutn­inga þess um 170 kíló­metra leið frá Hafursey á Mýr­dals­sandi til Þor­láks­hafnar. Efnið yrði flutt þessa leið, að því er fram kemur í skýrsl­unni, á stórum flutn­inga­bílum sem færu full­lestaðir frá námu til hafnar á korters fresti allan sól­ar­hring­inn og tómir til baka. Þannig færu bíl­arnir, ýmist tómir eða lestaðir, um suð­ur­strönd­ina á um 7 mín­útna fresti með til­heyr­andi sliti á vegum, líkt og Umhverf­is­stofnun og Vega­gerðin hafa bent á, auk­inni slysa­hættu og loft-, hljóð og sjón­mengun.

[adspot]

„Sú ályktun að starf­semin hafi óveru­leg áhrif á úti­vist og ferða­mennsku eins og hún er skipu­lögð er röng,“ skrifar Einar Freyr í umsögn sinni um mats­skýrsl­una. Hann bendir á að þjóð­veg­ur­inn sé lífæð ferða­mennsku á Íslandi og því ljóst að sú umferð sem starf­semin geri ráð fyrir muni hafa veru­leg nei­kvæð áhrif á ferða­mennsku og alla almenna umferð á þjóð­veg­inum. „Eins er það mat sveit­ar­stjórnar að áhrif á umferð séu veru­lega nei­kvæð og að þær álykt­anir sem dregnar eru í skýrsl­unni lýsi miklu skiln­ings­leysi á aðstæðum á þjóð­veg­inum á Suð­ur­landi,“ heldur Einar áfram. Áhrif svo umfangs­mik­illa land­flutn­inga á hljóð­vist í þétt­býli yrðu enn fremur veru­lega nei­kvæð.

[links]Vikurinn á að flytja með skipum frá Þor­láks­höfn til Evrópu og nota sem íblönd­un­ar­efni fyrir sem­ent. Þegar fyrri hug­myndir um vik­ur­vinnslu á þessum slóðum komu upp fyrir um tveimur ára­tugum gerðu áætl­anir ráð fyrir að vik­ur­inn yrði fluttur til vinnslu í verk­smiðju í Vík og þaðan til hafnar – annað hvort í Reykja­vík eða Þor­láks­höfn. Þau áform voru mun minni í sniðum en runnu hins vegar út í sand­inn.

Einar sveit­ar­stjóri telur eðli­legt að horfa til mögu­legra áhrifa starf­sem­innar á atvinnu­líf og nær­sam­fé­lagið í ljósi þess rasks sem yrði á umhverfi. Skipulag starf­sem­innar eins og henni er lýst í umhverf­is­mats­skýrslu geri ráð fyrir fáum – ef nokkrum – störfum sem raun­veru­lega yrðu stað­sett á svæð­inu því flutn­inga­starf­semi getur öll haft höf­uð­stöðvar ann­ars staðar og sama gildir um þjón­ustu við slíka starf­semi. „Í þeim til­fellum skilar starf­semin engum arði til nær­sam­fé­lags­ins,“ skrifar Einar Freyr.

Sveit­ar­stjórn Mýr­dals­hrepps mælist til þess að fyr­ir­komu­lag starf­sem­innar verði end­ur­skoðað og ráð verði gert fyrir því að vikrinum yrði skipað af strönd­inni sunnan við námu­svæðið. Sveit­ar­fé­lagið lýsir sig reiðu­búið til við­ræðna um hafn­ar­gerð sem gæti enda opnað á mögu­leika fyrir ann­ars konar atvinnu­starf­semi. „Þannig mætti koma í veg fyrir veru­lega nei­kvæð áhrif á umferð, hljóð­vist og ferða­mennsku með því að flytja vik­ur­inn stystu leið með und­ir­göngum þar sem þvera þarf þjóð­veg­inn,“ skrifar Einar Freyr. Með slíku fyr­ir­komu­lagi væri tryggt að starf­semin skil­aði sér í atvinnu­upp­bygg­ingu í heima­byggð og verð­mæta­sköpun á efn­is­töku­svæð­inu. Enn fremur væri slíkt fyr­ir­komu­lag mun frekar í sam­ræmi við til­gang starf­sem­innar um að gera ferlið sem umhverf­is­væn­ast.

Straumhöfn og náttúrulegar flæður

En hvar gæti verið höfn á þessum slóðum?

Ragnar Önund­ar­son, einn þeirra fjöl­mörgu sem skil­uðu umsögn um umhverf­is­mats­skýrsl­una, segir að með hinum gríð­ar­miklu þunga­flutn­ingum myndi stór hluti hring­veg­ar­ins „fletj­ast út“ og þjóðin þurfa að borga við­haldið.

Hann hvetur fram­kvæmda­að­il­ann til að skoða nátt­úru­legar „straum­hafnir“, nýta nátt­úru­legar flæður, sem m.a. er að finna við Ing­ólfs­höfða, í Mýrdal og við Holtsós. En spurn­ingin sem eftir standi sé sú hvar nátt­úru­fórnin yrði minnst. Hann segir þetta „hug­ar­flug án teng­ingar við kostn­aðar- og hag­kvæmn­is­út­reikn­inga“ en skoða verði alla kosti. „Að láta svona gríð­ar­lega breyt­ingu sem vik­ur­flutn­ing­arnir verða afskipta­lausa á ekki heldur að vera val­kostur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mýrdalshreppur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár