Vikurflutningar myndu slíta vegum á við milljón fólksbíla á dag

Vega­gerðin telur að sú aukn­ing á þunga­um­ferð sem fylgja mun áform­uðu vik­ur­námi á Mýr­dals­sandi hefði mikil áhrif á nið­ur­brot vega og flýta þyrfti við­halds­að­gerðum, end­ur­bygg­ingu vega og fram­kvæmdum. Við­bót­ar­kostn­aður rík­is­ins myndi hlaupa á millj­örðum.

Vegir á Suðurlandi uppfylla á löngum köflum ekki nútíma hönnunarviðmið.
Vegir á Suð­ur­landi upp­fylla á löngum köflum ekki nútíma hönn­un­ar­við­mið. Mynd: Pexels

Full­lestaður flutn­inga­bíll spænir upp vegum á við um 10 þús­und fólks­bíla. Ef farnar yrðu 164 ferðir á dag með vikur frá fyr­ir­hug­aðri námu á Mýr­dals­sandi til Þor­láks­hafnar, þar af um helm­ing ferð­anna með fullan farm, má ætla að slitið á veg­unum þessa 170 kíló­metra leið jafn­ist á við, var­lega áætlað, milljón fólks­bíla. Allan árs­ins hring.

Um þetta gríð­ar­lega við­bót­ar­á­lag á vega­kerfið, sem veikt er fyrir og myndi þarfn­ast veru­legrar styrk­ingar á kostnað skatt­greið­enda, er m.a. fjallað í umsögn Vega­gerð­ar­innar um umhverf­is­mats­skýrslu um hið áform­aða vik­ur­nám við Hafursey á Mýr­dals­sandi. Skýrslan er unnin af verk­fræði­stof­unni Eflu fyrir fram­kvæmda­að­il­ann EP Power Minerals. Vikurinn stendur til að nota sem íblönd­un­ar­efni í sem­ent í Evrópu.

[adspot]

Umhverf­is­stofnun segir í sinni umsögn, sem Kjarninn fjall­aði tjum í gær, að ef flutn­inga­bíl­arnir verði sex öxla, þ.e. með tengi­vagn, slíti hver og einn þeirra full­lestaður burð­ar­lagi á við 20-30 þús­und fólks­bíla. Miðað við það blasa við enn skugga­legri tölur: Slit á vegum sem jafn­ast á við 2-3 millj­ónir fólks­bíla á degi hverjum. Allan árs­ins hring.

[links]Því gert er ráð fyrir að eftir að fullum afköstum við vik­ur­flutn­ing­ana verður náð verði farnar 164 ferðir á dag að með­al­tali yfir árið eftir þjóð­veg­inum milli námu og hafnar. Í helm­ingi þeirra ferða yrði um tóman bíl að ræða, en vissu­lega risa­stóran og þungan bíl. Flutn­inga­bílar færu um leið­ina á sjö mín­útna fresti eða þar um bil, ýmist tómir eða með vik­ur­farm. Á vegi sem fer í gegnum fjóra þétt­býl­is­staði, vin­sæla ferða­manna­staði og frið­sælar sveitir.

„Aukning þunga­um­ferðar af þeirri stærð­argráðu sem hér um ræðir getur haft áhrif á sam­fé­lags­lega þætti svo sem mengun, hávaða og ferða­mennsku auk umferð­ar­ör­yggis og nið­ur­brots vega,“ segir í umsögn Vega­gerð­ar­innar um umhverf­is­mats­skýrsl­una. Þunga­um­ferð hér á landi sé oft nærri 10 pró­sentum af heild­ar­um­ferð á þjóð­veg­inum. Sé gengið út frá því að svo sé á umræddum vegum í dag megi gera ráð fyrir að hlut­fall þetta hækki í 15-20 pró­sent.

Óásættanlegt að umferðin fari í gegnum þéttbýli

Yrði vik­ur­námið að veru­leika með öllum þessum þunga­flutn­ingum myndi því umferðin á hring­veg­inum gjör­breyt­ast og verða hættu­legri. Ákveðin hætta fylgir ávallt blöndun á þunga­um­ferð og umferð óvar­inna veg­far­enda þó svo að hraða­tak­mörk séu virt, bendir Vega­gerðin á. Nefnir hún sér­stak­lega þétt­býlin í Vík, Hvols­velli, Hellu og Selfossi í þessu sam­bandi. Til langs tíma telur Vega­gerðin „ekki ásætt­an­legt að svo umfangs­mikil þunga­um­ferð sem hér um ræðir fari í gegnum þétt­býli“.

Því hér er ekki tjaldað til einnar nætur, líkt og Umhverf­is­stofnun kemst að orði í sinni umsögn. Miðað er við að vik­ur­námið standi í heila öld. Verið er að tala um hund­rað ár af marg­falt meiri umferð.

Á skipu­lags­á­ætl­unum er gert ráð fyrir að hring­veg­ur­inn verði færður út fyrir þétt­býlið í Vík og á Selfossi og leggur Vega­gerðin áherslu á að hring­vegur muni í fram­tíð­inni liggja utan við þétt­býlið á Hvols­velli. Erfiðara er um vik að sögn stofn­un­ar­innar að færa veg­inn út fyrir þétt­býlið á Hellu. Í Vík og á Selfossi þverar þjóð­veg­ur­inn í dag göngu­leiðir skóla­barna, er bent á í umsögn­inni.

Þá bendir Vega­gerðin á að hring­veg­ur­inn austan Mark­ar­fljóts er um 6,5-7 metrar að breidd á köflum og því mjórri en veg­hönn­un­ar­reglur fyrir nýja vegi segja fyrir um. Einnig er nefnt að veg­ur­inn um Gatna­brún í nágrenni Víkur geti verið erf­iður. Hann liggur í allt að 119 metra hæð yfir sjáv­ar­máli, á honum eru krappar beygjur og um 12 pró­sent halli. Þar hafa orðið alvar­leg slys, m.a. þar sem flutn­inga­bílar hafa farið út af vegi.

Myndi fjölga umferðarslysum um 6-9 á ári

Veruleg við­bót­ar­um­ferð þungra öku­tækja á þessum hluta Hring­veg­ar­ins mun hafa nei­kvæð áhrif á umferð­ar­ör­yggi. „Ætla má að sú aukn­ing þunga­um­ferðar sem til­greind er í umhverf­is­mats­skýrslu geti valdið því að umferð­ar­slysum fjölgi um 6-9 á ári næstu ár. Búast má við sam­fé­lags­legum kostn­aði við fjölgun slysa sem því nemur,“ segir Vega­gerðin í umsögn sinni.

Þunga­um­ferð brýtur, eðli máls­ins sam­kvæmt, vegi hraðar niður en umferð fólks­bíla. Við sam­an­burð á öku­tækjum með til­liti til áhrifa á nið­ur­brot vega má vísa til þess að nið­ur­brot vegar af full­lest­uðum flutn­inga­bíl sam­svari nið­ur­broti af um 10 þús­und fólks­bílum. „Ljóst er að sú aukn­ing á þunga­um­ferð sem hér um ræðir mun hafa umtals­verð áhrif á nið­ur­brot vega og flýta þyrfti bæði við­halds­að­gerðum, end­ur­bygg­ingu vega og fram­kvæmdum sem nú þegar eru á áætlun,“ segir í umsögn­inni. „Jafn­framt geta end­ur­bætur orðið dýr­ari en gert er ráð fyrir sam­kvæmt gild­andi áætl­unum þar sem mögu­lega þarf að gera auknar kröfur til breiddar burð­ar­vega og slitlaga vegna auk­innar þunga­um­ferðar.“

[adspot]

Samkvæmt reynslu Vega­gerð­ar­innar er æski­legt að end­ur­nýja klæð­ing­ar­slit­lög á stofn­vegum á 6-7 ára fresti og mal­biks­slit­lög á 10-14 ára fresti. Þá er miðað við að þunga­um­ferð sé undir 10 pró­sentum. Aukin þunga­um­ferð muni því valda því að nið­ur­brot veg­anna verður hrað­ara og við­halds­þörf eykst. Bendir stofn­unin á að umfang við­halds á slit­lögum sé háð fjár­veit­ingum hverju sinni.

Samkvæmt sam­göngu­á­ætlun eru á umræddri leið milli áform­aðrar námu og hafnar gert ráð fyrir nokkrum stórum fram­kvæmdum, m.a. nýrri brú yfir Ölfusá, styrk­ingum og end­ur­bótum á Þor­láks­hafn­ar­vegi, kafla frá Selfossi að Skeiða­vega­mótum og frá Skeiða­vega­mótum að Hellu.

„Fyr­ir­huguð aukn­ing í þunga­flutn­ingum mun lík­lega hafa áhrif á ofan­greindar áætl­anir hvað varðar val á breidd vega, upp­bygg­ingu og val á slit­lagi,“ segir Vega­gerðin og bendir á að þessir þættir muni valda því að fram­kvæmda­kostn­aður verður hærri en nú er gert ráð fyrir. Mögulega þurfi að flýta fram­kvæmdum á sam­göngu­á­ætlun og end­ur­byggja kafla á hring­vegi sem ekki eru komnir á áætlun.

Milljarðar í aukin útgjöld ríkisins

Ætla má að kostn­aður við end­ur­bygg­ingu núver­andi veg­kafla í 9 metra breiðan veg með mal­biki geti verið á bil­inu 80-200 millj­ónir króna á hvern kíló­metra af vegi. „Áætluð heild­ar­upp­hæð gæti því numið allt að 7 millj­örðum króna miðað við verð­lag árs­ins,“ segir Vega­gerðin. Kostn­að­ar­auki vegna fyr­ir­hug­aðrar auk­innar þunga­um­ferðar gæti numið 30-50 pró­sentum af heild­ar­upp­hæð­inni.

Og þá er ótal­inn sá auka­legi við­halds­kostn­aður sem myndi falla á ríkið.

Kostn­aður vegna við­halds slitlaga á hvern kíló­metra er við núver­andi aðstæður áætl­aður 1-1,5 millj­ónir á ári. „Æskilegt væri að mal­bika lengri kafla fyrr en áætl­anir gera ráð fyrir gangi áætl­anir um þunga­flutn­inga vegna námu­vinnsl­unnar eftir,“ segir Vega­gerðin í umsögn sinni. Gera megi ráð fyrir að kostn­aður vegna við­halds á slit­lagi auk­ist þar sem við­hald á mal­biki sé kostn­að­ar­sam­ara en við­hald á klæðn­ingu. „Við­halds­kostn­aður á umræddri leið getur orðið 2,5-3,5 millj­ónir á ári á hvern kíló­metra af vegi.“

Vega­gerðin minnir á mik­il­vægi þess að ástand vega verði ásætt­an­legt fyrir fyr­ir­hugað við­bót­ar­á­lag sem vik­ur­flutn­ing­arnir myndu skapa. „Til að tryggja við­un­andi ástand vega­kerf­is­ins þyrfti að flýta fram­kvæmdum sem lagðar hafa verið til á sam­göngu­á­ætlun, end­ur­byggja stærri hluta Hring­vegar og auka fjár­magn til við­halds.“

Það er nið­ur­staða Vega­gerð­ar­innar að áhrif fram­kvæmd­ar­innar á umferð verði veru­lega nei­kvæð en ekki nokkuð nei­kvæð eins og fram­kvæmda­að­ili heldur fram í mats­skýrslu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mýrdalssandur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár