Vísa ásökunum um hótanir á bug

EP Power Minerals, fyr­ir­tækið sem hyggur á námu­vinnslu á Mýr­dals­sandi segir engan full­trúa sinn hafa hótað ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum svæð­inu líkt og þau haldi fram. Skuld­inni er skellt á leigj­endur með­eig­enda að jörð­inni Hjör­leifs­höfða.

Ferðamenn við íshellana í Kötlujökli.
Ferða­menn við íshell­ana í Kötlu­jökli. Mynd: Mynd af vef Katla Tracks

„Þetta er ekki rétt,“ segja tals­menn tékk­neska fyr­ir­tæk­is­ins EP Power Minerals (EPPM) um ásak­anir tveggja ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja um hót­anir og róg­burð. EPPM hyggur á vik­ur­nám úr Mýr­dals­sandi og sam­kvæmt umhverf­is­mats­skýrslu mun fyr­ir­tækið nota gamla þjóð­veg­inn á sand­inum til að kom­ast með vik­ur­inn frá Hafursey þar sem náman yrði stað­sett.

Í umsögn ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins SouthCoast Adventure við skýrsl­una var rengd sú full­yrð­ing að hann væri í eigu EPPM. Um væri að ræða þjóð­leið í eigu íslenska rík­is­ins sem hefði síð­ustu ár verið þjón­u­staður af þeim ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum sem hann nýta, m.a. við að aka ferða­mönnum að íshell­unum í Kötlu­jökli. „Vafi leikur því á eign­ar­haldi EPPM á gamla þjóð­veg­inum og hvort eþeir hafi rétt ti að rjúfa hann þar sem fyr­ir­hugað námu­svæði liggur,“ sagði í umsögn ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæk­is­ins Katla Track .

[adspot]

Í svörum EPPM og verk­fræði­stof­unnar Eflu við umsögn­unum, sem send voru Skipu­lags­stofnun nýverið og Kjarninn fékk afhent, segir að „eng­inn vafi“ sé á eign­ar­hald­inu. „Vega­gerðin er búin að afsala sér veg­inum og hann er nú á for­ræði land­eig­enda.“

Land­eig­endur jarð­ar­innar Hjör­leifs­höfða, sem gamli þjóð­veg­ur­inn fer um, eru EP Power Minerals og tveir Íslend­ingar sem eiga 10 pró­sent á móti tékk­neska fyr­ir­tæk­inu.

[links]Ferða­þjón­ustu­að­il­arnir gagn­rýna í umsögnum sínum að EPPM ætli sér að gera end­ur­bætur á veg­inum svo hann þoli þunga­um­ferð og að hann verði ein akrein með reglu­legum útskotum á 500 metra fresti svo að bílar geti mæst. „Engin umfjöllun er um áhrif þessa á aðkomu að þjóð­lend­unni og upp­lifun ferða­manna sem sækja svæðið heim til að upp­lifa nátt­úru­feg­urð og kyrrð; hvorki á fram­kvæmda­tíma vega­gerðar né á vinnslu­tíma efn­is­töku,“ segir í umsögn Kötlu Track.

EPPM tekur ekki undir þetta í svörum sínum. „Kyrrðin mun aukast til muna við að keyra á vegi sem er búið að end­ur­byggja og verður við­haldið til að akst­ur­inn sé sem auð­veldastur. Ef sett verður bundið slit­lag munu þæg­indin og kyrrðin aukast enn frekar.“

Þá hafna tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins alfarið þeim ásök­unum að hót­anir hafi borist frá for­svars­mönnum þess um gjald­tökur á veg­inum og lok­anir að þjóð­lend­unni Kötlu­jökli.

Í svörum við þessu segir að Íslend­ing­arnir sem eigi 10 pró­sent í Hjör­leifs­höfða hafi stofnað fyr­ir­tækið Viking Park Iceland ehf. sem ætli að byggja upp ferða­þjón­ustu á jörð­inni. „Öll umræða um gjald­töku er frá leigj­endum þeirra komin. EPPM ætli „að leyfa þessum heima­mönnum að byggja upp ferða­þjón­ust­una í friði“ og skipti sér ekki að því að öðru leyti en að ætla sér að vera „góður granni,“ líkt og það er orðað. „Enginn full­trúi EPPM hefur nokkurn tím­ann verið í sam­skiptum við Katlatrack og hótað né svo mikið sem minnst á gjald­töku.“

Þá segir að full­trúar Viking Park hafi ekki talað um að loka þjóð­lend­unni né loka aðgangi að Hjör­leifs­höfða­jörð­inni, „ein­göngu taka gjald af umferð á vegi sem land­eig­endur þurfa að byggja upp og við­halda“.

SouthCoast Adventure eru á sömu nótum í sinni umsögn um hina áform­uðu námu­vinnslu og þunga­flutn­inga sem henni fylgja.

[adspot]

„EP Power Minerals taka fram í skýrsl­unni að þeim sé það mik­il­vægt að vinna fram­kvæmd­ina í sátt og sam­lyndi við heima­menn og að þeir muni koma fram við landið og íbúa af virð­ingu,“ segir í umsögn­inni. „Því miður er það ekki það við­horf sem að við höfum mætt af þeirra for­svars­mönnum heldur þvert á móti hroka, hót­unum og róg­burði.“

Talsmenn EPPM segja að eng­inn starfs­maður eða full­trúi fyr­ir­tæk­is­ins hafi „nokkurn tím­ann átt í sam­skiptum“ við SouthCoast Adventure. „Líklegra er að hér sé verið að rugla EPPM saman við ein­hverja aðra sem að tala alls ekki fyrir hönd fyr­ir­tæk­is­ins. EPPM leggur mikla áherslu á að starfa í sátt og sam­lyndi við heima­menn og sýna landi og þjóð virð­ingu.“

Í svörum við þessum ásök­unum ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækj­anna seg­ist EPPM leggja mikla áherslu á að Skipu­lags­stofnun „geri sér grein fyrir því að hér er um mis­skiln­ing að ræða og að EPPM hafi ekki átt í neinum sam­skiptum né haft neina aðkomu að þessu máli“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

eppowerminerals

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár