Segja námufyrirtækið hafa hótað gjaldtöku og sýnt hroka

Fyr­ir­tækið EPPM sem vill vinna vikur í stórum stíl á Mýr­dals­sandi seg­ist vilja vinna að verk­efn­inu í sátt og sam­lyndi við heima­menn. Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki segja við­mótið allt ann­ars eðlis og ein­kenn­ast af hroka og róg­burði.

Horft yfir hið áformaða efnistökusvæði í átt að Hafursey.
Horft yfir hið áform­aða efn­is­töku­svæði í átt að Hafursey. Mynd: Katlatreck

Fyr­ir­tæki sem eru með ferða­þjón­ustu á Kötlu­jökli gagn­rýna harð­lega áform um umfangs­mikið vik­ur­nám á Mýr­dals­sandi. For­svars­mann­eskjur þeirra segj­ast hafa veru­legar áhyggjur ef af námu­vinnsl­unni verði. Hún myndi hafa gríð­ar­lega nei­kvæð áhrif á það frum­kvöðla­starf sem unnið hafi verið í upp­bygg­ingu afþrey­ingar við þjóð­lend­una Kötlu­jökul sem skapi í dag 40-50 störf, allan árs­ins hring, auk afleiddra starfa. Þau gera fjöl­margar athuga­semdir við það mat á umhverf­is­á­hrifum sem verk­fræði­stofan Efla kemst að í umhverf­is­mats­skýrslu fram­kvæmd­ar­innar fyrir þýska fyr­ir­tækið EP Power Minerals (EPPM). Áhrif á ferða­þjón­ustu og úti­vist séu stór­lega van­metin og engu sé lík­ara en að skýrslu­höf­undar hafi ekki leitað til nokk­urs úr ferða­þjón­ust­unni til að afla upp­lýs­inga. Þó sé atvinnu­greinin ein sú mik­il­væg­asta á land­svæð­inu.

[adspot]

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki hafa á síð­ustu árum byggt upp ferða­mennsku á þjóð­lend­unni Kötlu­jökli sem byggir á návígi við ósnortna nátt­úru og frið­sæld þessa stór­brotna og ein­staka svæðis, skrifar Guðjón Þor­steinn Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Katlatrack ehf. Í starfi fyr­ir­tækj­anna sé virð­ing og umhyggja fyrir svæð­inu höfð að leið­ar­ljósi. Við slíkt fari námu­vinnsla „engan veg­inn“ saman.

Í mats­skýrsl­unni komi fram að fjöldi ferða­manna sem verði fyrir áhrifum sé ekki mik­ill. „Það er rangt mat,“ segir Guðjón því fjöld­inn geti numið nokkrum hund­ruðum á degi hverjum. „Mat á áhrifum fram­kvæmd­ar­innar á þætti eins og upp­lifun, fágæti lands­lags, nátt­úru, nátt­úru­minjar og sögu svæð­is­ins er ábóta­vant,“ skrifar hann einnig.

Flutningabílar á 7 mínútna fresti allan sólarhringinn

Vik­ur­náman er áformuð við Hafursey á Mýr­dals­sandi. Á hverjum degi, myndu flutn­inga­bílar aka til og frá námunni, á sjö mín­útna fresti að með­al­tali, um gamla þjóð­veg­inn á sand­inum. Guðjón vekur athygli á því í umsögn sinni að um gamla þjóð­leið sé að ræða. Hann furðar sig á því að í skýrsl­unni segir að veg­ur­inn sé í eigu fram­kvæmda­að­ila en ekki rík­is­ins, en síð­ustu ár hafa fyr­ir­tækin sem fara með ferða­menn að jökl­inum þjón­u­stað veg­inn á eigin kostnað.

Lítið er hins vegar gert úr umferð um veg­inn í mats­skýrsl­unni en auk ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækj­anna aka hann ferða­langar á eigin vegum. Þá er hann einnig nýttur af hesta­fólki og göngu­fólki. „Nýting veg­ar­ins varða því hags­muni allra Íslend­inga.“

Mest er umferðin um veg­inn að sum­ar­lagi eins og gefur að skilja. Þar er lands­lagið stór­kost­legt, útskýrir Guðjón, og segir and­stæð­urnar í því miklar þegar komið er austur að Hafursey. Það nátt­úru­undur sé ekki ólíkt mæli­felli norðan Mýr­dals­jök­uls, iðja­grænt móbergs­fjall sem standi upp úr svörtum sand­inum.

Þá gerir hann athuga­semdir við að engin umfjöllun sé í mats­skýrslu EP Power Minerals um áhrif hinnar miklu þunga­um­ferðar á upp­lifun ferða­manna sem leið eiga um svæðið. Ekki sé heldur fjallað um áhrif á öryggi þeirra.

Í mats­skýrslu segir að efn­is­töku­svæðið yrði ekki sýni­legt frá Kötlu­jökli. „Það er þó fjarri lagi,“ skrifar Guðjón, því þegar gengið er upp á jökul­inn við Mold­heiði blasi það við. Það mun jafn­framt sjást vel frá þjóð­veg­inum, frá ánni Skálm, ofan af Höfða­brekku­heiðum á leið inn í Þakgil, á leið inn að Kötlu­jökli, ofan af Hjör­leifs­höfða og áfram mætti lengi telja, segir Guðjón. „Sýni­leiki svæð­is­ins er því van­met­inn í umhverf­is­mat­inu en ekki ofmetin eins og leitt er líkum að í skýrsl­unni“.

Hann segir að efn­istakan muni hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á umhverfið og kippa stoðum undan þeirri ferða­þjón­ustu sem byggð hefur verið upp og stunduð er á svæð­inu.

Hafa slæma reynslu af forsvarsmönnum framkvæmdaaðila

Í mats­skýrsl­unni segir orð­rétt: Það er mik­il­vægt mark­mið EPPM að fram­kvæmdin sé unnin í sátt og sam­lyndi við heima­menn og mun EPPM leggja sig fram um að koma fram við landið og íbúa af virð­ingu.

„Þetta er þvi miður ekki reynsla und­ir­rit­aðs síð­ast­liðin tvö ár en hót­anir hafa borist frá for­svars­mönnum EPPM um gjald­tökur og lok­anir að þjóð­lend­unni Kötlu­jökli,“ skrifar Guðjón í umsögn sinni. „Lítið bendir til þess að fram­haldið verði með öðrum hætti en það sem á undan er gengið.“

Undir þetta tekur kollegi hans, Ársæll Hauksson, eig­andi og fram­kvæmda­stjóri Southcoast Adventure. Sátt og sam­lyndi og virð­ing við íbúa sé ekki „því miður ekki það við­horf sem við höfum mætt af þeirra for­svars­mönnum heldur þvert á móti hroka, hót­unum og róg­burði.“

Ársæll segir EPPM gera „afar lítið“ úr áhrifum fram­kvæmd­ar­innar á fyr­ir­tækin sem flytja ferða­menn í vin­sælar íshella­ferðir í Kötlu­jökli. „Við höfum þungar áhyggjur af fyr­ir­hug­uðum fram­kvæmdum og áhrifum þeirra á upp­lifun okkar gesta.“

Hann tekur undir með Guðjóni að gamli þjóð­veg­ur­inn sé í eigu íslenska rík­is­ins þrátt fyrir að öðru sé haldið fram. Það að gera hann ein­breiðan með slit­lagi og útskotum mun að sögn Ársæls „vissu­lega hafa trufl­andi áhrif á okkar starf­semi, sér­stak­lega í ljósi fjölda stórra öku­tækja sem þeir munu hafa á svæð­inu“.

Þá finnst honum lítið gert úr hljóð­mengun sem af starf­sem­inni á Mýr­dals­sandi myndi skap­ast. Í skýrsl­unni segi að vissu­lega verði til „nýjar mann­gerðar hljóð­upp­sprettur“ þar sem í dag séu engar. Er þar vísað til stór­virkra vinnu­véla í námunni, færi­banda og flutn­inga­bíla. „Það veldur okkur tölu­verðum áhyggjum og mun hafa áhrif á okkar starf­semi ef frið­sæld og kyrrð hálend­is­ins verður raskað,“ skrifar Ársæll í umsögn sinni. „Einnig verður það að telj­ast furðu­legt“ að í skýrsl­unni sé því rang­lega haldið fram að fáir ef nokkrir verði fyrir áhrifum af hinum nýju, mann­gerðu hljóð­upp­sprettum. „Það stenst engan veg­inn að hans sögn í ljósi þess að á svæð­inu er fjöldi ferða­manna í skipu­lögðum ferðum á vegum ferða­þjón­ustu­að­ila auk tals­verðs fjölda fólks sem ferð­ast um svæðið á eigin vegum.

[adspot]

Gréta María Grét­ars­dóttir, for­stjóri Arctic Adventures, skrifar á svip­uðum nótum og félagar hennar segir það stað­reynd að fram­kvæmdin muni valda meira sand­foki og breyta ásýnd lands­ins. Þar er hún ekki aðeins að vísa til námu­vinnsl­unnar sjálfrar heldur til hinna miklu þunga­flutn­inga. „Þetta er ekki mynd sem laðar ferða­menn að,“ skrifar hún. Ferða­menn komi til að sjá ósnortna nátt­úru sem meng­andi iðn­aður fari ekki saman við – og eigi þar með ekki sam­leið með íslenskri ferða­þjón­ustu.

„Allir ferða­menn sem heim­sækja suð­ur­strönd­ina verða fyrir áhrifum af þess­ari fram­kvæmd og því er um mjög mikla áhættu að ræða fyrir íslenskt sam­fé­lag.“ Hún segir athygl­is­vert að ekki hafi verið leitað til ferða­þjón­ustu­að­ila á svæð­inu við gerð umhverf­is­mats­ins, að minnsta kosti sé ekki vitnað í þá í skýrsl­unni. Þetta kemur þannig út að fram­kvæmda­að­il­inn einn hafi lagt mat á áhrifin á úti­vist og ferða­mennsku og segi þau óveru­leg.

„Áhrif á lofts­lag heims­ins er sam­kvæmt útreikn­ingum í skýrsl­unni jákvætt og verður það ekki dregið í efa,“ skrifar Gréta. „Þó er ljóst að áhrif á losun Íslands mun aukast því um meng­andi fram­kvæmd er að ræða sem aftur hefur nei­kvæð áhrif á þá ímynd sem byggð hefur verið upp af Íslandi sem hreinu landi með ósnort­inni nátt­úru.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mýrdalssandur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár