Flutningabíll æki að meðaltali á sex mínútna fresti í gegnum þéttbýlisstaði á Suðurlandi

Skipu­lags­stofnun áréttar, í áliti sínu vegna mats­á­ætl­unar um fyr­ir­hug­aða vik­ur­námu við Hafursey á Mýr­dals­sandi, að umhverf­is­mats­skýrsla þurfi að fjalla um áhrif afar umfangs­mik­illa flutn­inga með vik­ur­inn til Þor­láks­hafnar.

Miklir þungaflutningar um Suðurlandið fylgja vikurnáminu sem fyrirhugað er við Hafursey. Mynd af þjóðvegi 1 í Rangárvallasýslu.
Miklir þunga­flutn­ingar um Suð­ur­landið fylgja vik­ur­nám­inu sem fyr­ir­hugað er við Hafursey. Mynd af þjóð­vegi 1 í Rang­ár­valla­sýslu. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Skipu­lags­stofnun segir að í umhverf­is­mats­skýrslu sem verið er að vinna vegna fyr­ir­hug­aðrar vik­ur­vinnslu þýska fyr­ir­tæk­is­ins STEAG Power Minerals (SPM) við Hafursey á Mýr­dals­sandi þurfi að gera ítar­lega grein fyrir fyr­ir­komu­lagi á þeim umfangs­miklu flutn­ingum sem fyr­ir­hug­aðir eru frá námunni og til lag­er­svæðis, sem ráð­gert er að verði við Þor­láks­höfn.

Í áliti sínu um til­lögu að mats­á­ætlun fyr­ir­tæk­is­ins, sem Kjarninn fjall­aði um í sept­em­ber, segir Skipu­lags­stofnun að gera þurfi grein fyrir stærð og þyngd flutn­inga­bíla og fjölda, tíðni og tíma­setn­ingu ferða, ásamt akst­ursleiðum. Þá segir að meta þurfi áhrif flutn­ing­anna á umferð­ar­mann­virki, umferð og umferð­ar­ör­yggi og gera grein fyrir því hvar flutn­ing­arnir kalli á breyt­ingar á umferð­ar­mann­virkjum og mót­væg­is­að­gerðir, ef það eigi við.

Mikið umfang til langrar framtíðar

Að um umfangs­mikla flutn­inga sé að ræða er heldur betur ekki ofsagt, en áætl­anir gera ráð fyrir því að þegar vinnslan verði komin á full afköst verði farnar 120 ferðir með Kötlu­vik­ur­inn um það bil 180 kíló­metra leið frá Mýr­dals­sandi til Þor­láks­hafnar, 249 daga árs­ins. Árleg efn­istaka er áætluð 1,43 millj­ónir rúmmetrar.[links]

Þetta magn þýðir að ef ekið væri lát­laust með vik­ur­inn til Þor­láks­hafnar og með tóma bíla til baka allan sól­ar­hring­inn færi vöru­bíll í aðra hvora átt­ina á 6 mín­útna fresti að með­al­tali þá daga sem flutn­ingar færu fram. Gert er ráð fyrir því að nægt efni sé á staðnum til að halda vik­ur­nám­inu gang­andi á þessum hraða í rúma öld.

Eins og vega­kerfið á Suð­ur­landi er í dag liggur bein­ast við að þessir flutn­ingar fari í gegnum fjóra þétt­býl­is­staði á leið­inni frá Mýr­dals­sandi vestur í Þor­láks­höfn; Vík í Mýrdal, Hvols­völl, Hellu og Selfoss, en með til­komu nýrrar brúar sem til stendur að byggja yfir Ölfusá yrði þó mögu­legt að sneiða hjá Selfossi og aka með hlössin um Ölfusið á leið til Þor­láks­hafnar.

„Geturðu sýnt okkur mynd af svona bíl?“

Vöru­bíl­arnir sem SPM sér fyrir sér að not­aðir verði til verks­ins eru af stærri gerð­inni, en þeir eiga að geta borið heila 48 rúmmetra af efni, sam­kvæmt til­lögu að mats­á­ætlun. Starfs­maður hjá Skipu­lags­stofnun virt­ist undr­ast þá tölu og sendi verk­fræð­ingi hjá Eflu, sem kom að gerð til­lög­unnar fyrir hönd fram­kvæmda­að­ila, tölvu­póst með beiðni um frek­ari útskýr­ingar.

[adspot]

„Er þetta rétt tala? Geturðu sýnt okkur mynd af svona bíl?“ sagði í tölvu­póst­inum frá sér­fræð­ingi Skipu­lags­stofn­unar, sem sendur var þann 20. sept­em­ber.

Í svar­inu frá starfs­manni Eflu, sem barst sam­dæg­urs, sagði að ekki það væri ekki búið að taka ákvörðun um hvaða fram­leið­andi eða útfærsla nákvæm­lega yrði fyrir val­inu, en að lík­lega yrði not­ast við flutn­inga­bíla með tengi­vagni.

Verk­fræð­ing­ur­inn lét síðan fylgja með tengla á nokkrar myndir af bílum af þess­ari stærð­argráðu af erlendum vef­síðum og einnig skýr­ing­ar­myndir úr við­auka við reglu­gerð um stærð og þyngd öku­tækja, til þess að sýna fram á að „slík öku­tæki eru leyfð á vegum lands­ins“.

Umhverfismatið þurfi að taka til flutninganna líka

Skipu­lags­stofnun hnykkir á því í áliti sínu að umhverf­is­mat fram­kvæmd­ar­innar þurfi ekki ein­ungis að taka til efn­is­vinnsl­unnar sjálfrar á Mýr­dals­sandi, heldur líka flutn­ing­anna á efn­inu til lag­er­svæð­is­ins, sem reiknað er með að verði lík­lega um 2,5 kíló­metrum vestan við Þor­láks­höfn, og þaðan til hafnar.

Umhverf­is­á­hrif sjálfra flutn­ing­anna voru gerð að umtals­efni í nokkrum umsögnum sem bár­ust til Skipu­lags­stofn­unar um málið. Í umsögn Heil­brigð­is­eft­ir­lits Suð­ur­lands sagði auk ann­ars að flutn­ing­arnir kæmu til með að valda ónæði fyrir íbúa þétt­býl­is­stað­anna þar sem umferðin færi um og auka hættu á meng­un­ar­slysum, þar sem um þunga­flutn­inga væri að ræða á far­ar­tækjum sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti.

Uppskipun frá Mýrdalssandi ófýsileg og Landeyjar bara fyrir Vestmannaeyjaferju

Í sumum athuga­semdum um málið, eins og til dæmis þeirri sem barst frá Mýr­dals­hreppi, var lagt til að skoðað ræki­lega hvort mögu­legt væri að skipa efn­inu beint út frá strönd­inni, enda væri það umhverf­is­vænna og í meira sam­ræmi við bæði áherslur sveit­ar­fé­lags­ins og rík­is­ins í umhverf­is­málum.

Í athuga­semdum við inn­sendar umsagnir sem bár­ust Skipu­lags­stofnun frá verk­fræði­stof­unni Eflu, sem starfar sem áður sagði fyrir hönd fram­kvæmda­að­il­ans í skipu­lags­ferl­inu, sagði að í und­ir­bún­ingi fram­kvæmd­ar­innar hefði verið skoðað að ráð­ast í hafn­ar­gerð í grennd við efn­is­töku­stað­inn á Mýr­dals­sandi, en það væri mjög erf­iður kostur.

Grunn fjara, sand­burður, vond veður og óheft úthafs­alda væru þættir sem gerðu það að verkum að öll mann­virkja­gerð væri mjög erfið og umfangs­mikil. Auk þess teldi fram­kvæmda­að­il­inn það ekki til vin­sælda fallið að byggja mann­virki í fjör­unni við Hjör­leifs­höfða, þann vin­sæla ferða­manna­stað. Þó var fall­ist á að fjallað yrði um þennan val­kost í umhverf­is­mats­skýrslu.

Land­vernd sagði í sinni umsögn um málið að það kæmi á óvart að Land­eyja­höfn hefði ekki verið sett fram sem val­kostur fyrir útskipun vik­urs­ins, í ljósi þess að hún væri mun nær Mýr­dals­sandi en Þor­láks­höfn.

Í athuga­semd­unum frá Eflu segir að það hafi vissu­lega verið skoðað hvort Land­eyja­höfn kæmi til greina, en að lög og hafn­ar­reglu­gerð um Land­eyja­höfn komi í veg fyrir að hægt sé að nota höfn­ina í nokkuð annað en áætl­un­ar­sigl­ingar á milli lands og Vest­manna­eyja.

Að aka með efnið sem leið liggur frá Mýr­dals­sandi til Þor­láks­hafnar er því tal­inn fýsi­leg­asti kost­ur­inn á þessum tíma­punkti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mýrdalssandur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár