Vörubílar myndu aka 120 ferðir á dag með Kötluvikur

„Þetta er ekk­ert smá­ræði og ég held að menn átti sig engan veg­inn á því hvað þetta er mikið umfang,“ segir Guð­mundur Odd­geirs­son, bæj­ar­full­trúi í Ölfusi, um fyr­ir­hug­aða vik­ur­námu á Mýr­dals­sandi og flutn­inga á efn­inu til Þor­láks­hafnar.

Vikurnáman yrði austan við Hafursey á Mýrdalssandi.
Vik­ur­náman yrði austan við Hafursey á Mýr­dals­sandi. Mynd: South.is

Yrði vik­ur­náma við Hafursey á Mýr­dals­sandi að veru­leika og vinnslan næmi um 1 milljón tonna á ári, líkt og þýska fyr­ir­tækið STEAG Power Minerals (SPM) áformar, þyrftu vöru­bílar að aka tæp­lega 30 þús­und ferðir á ári um 180 kíló­metra leið til Þor­láks­hafnar með vik­ur­inn. Miðað við 249 vinnu­daga á ári eins og áætl­anir gera ráð fyrir, yrðu ferðir vöru­bíl­anna 120 á hverjum þeirra. „Svo má tvö­falda þessar tölur til að fá ferð­irnar fram og til baka.“

[links]Þetta segir Guð­mundur Odd­geirs­son, bæj­ar­full­trúi O-lista fram­fara­sinna og félags­hyggju­fólks í Ölfusi. Hann hefur ýmis­legt við hina fyr­ir­hug­uðu námu­vinnslu að athuga, vinnslu sem yrðu sú langstærsta sinnar teg­undar hér á landi – segir verið að reyna „að slá ryki í augu fólks“ – en bendir enn­fremur á að önnur stór vik­ur­vinnsla sé í kort­unum. Þau áform eru á vegum Eign­ar­halds­fé­lags­ins Horn­steins ehf. og efnið yrði fengið úr Litla-Sand­felli í Þrengsl­unum. Félagið og Ölfus und­ir­rit­uðu vilja­yf­ir­lýs­ingu vegna verk­efn­is­ins fyrir tæpu ári.

Að mati Guð­mundar þarf að ræða þessi áform í sam­hengi, m.a. með til­liti til mik­illa þunga­flutn­inga um vega­kerfi sem þegar er tæpt vegna álags, en einnig út frá áhrif­unum á umhverfið og íbúa. „Þetta er ekk­ert smá­ræði og ég held að menn átti sig engan veg­inn á því hvað þetta er mikið umfang.“

[adspot]

Tillaga SPM að mats­á­ætlun vegna vik­ur­vinnsl­unnar á Mýr­dals­sandi var aug­lýst í sumar. Sjö lög­bundnar umsagnir bár­ust frá stofn­unum en eina athuga­semdin sem barst að öðru leyti var frá Land­vernd. Mats­á­ætlun er eitt skref í umhverf­is­mats­ferli fram­kvæmda sem lýkur með áliti Skipu­lags­stofn­unar.

SPM stofn­aði fyr­ir­tækið Power Minerals Iceland ehf. hér á landi og festi það kaup á jörð­inni Hjör­leifs­höfða, sem hin fyr­ir­hug­aða náma er innan, og á í henni 90 pró­sent á móti 10 pró­senta eign­ar­hlut Lása­stígs ehf.

Efnið yrði tekið úr vik­ur­lagi úr Kötlu­gosum austan og suð­austan Haf­urs­eyjar á Mýr­dals­sandi. Til að byrja með myndi vinnslan nema um 200 þús­und tonnum á ári en að fimm árum liðnum um einni milljón tonna. Vikrinum, sem ætl­aður er sem íblönd­un­ar­efni í sem­ent, yrði svo ekið á geymslu­svæði í Þor­láks­höfn og þaðan sett um borð í skip sem flytti hann til Evrópu og mögu­lega Norður-Ameríku.

Tillagan var til umræðu á síð­asta fundi skipu­lags- og umhverf­is­nefndar Ölfus og setur hún spurn­ing­ar­merki við áhrif verk­efn­is­ins á lífs­gæði íbúa m.a. vegna foks á efni og mik­illar umferðar. Einnig er í afgreiðslu nefnd­ar­innar lögð áhersla á að ef af verk­efn­inu verður verði að gera ráð­staf­anir til að hindra efn­is­fok og að efni verði ekki haug­sett á hafn­ar­svæði.

Guð­mundur lagði á þessum fundi framítar­lega bókun þar sem m.a. sagði að efn­is­flutn­ing­arnir frá Mýr­dals­sandi til Þor­láks­hafnar, haug­setn­ingin og akstur til skips og frá, myndu „vissu­lega hafa marg­vís­leg áhrif til lak­ari lífs­gæði íbúa Þor­láks­hafnar“.

Bæjarráðið áhugasamt

Sama dag og skipu­lags- og umhverf­is­nefnd fjall­aði um málið var það einnig til umfjöll­unar í bæj­ar­ráði. Þar var tekið fyrir minn­is­blað frá SPM þar sem fyr­ir­tækið lýsir þeim vilja sínum að fá að koma upp aðstöðu til að geyma því sem nemur um það bil tveimur skips­förmum, um 18 þús­und tonnum, af jarð­efnum nærri Þor­láks­höfn. Sér­stak­lega lýsa þeir áhuga á þremur lóðum við Óseyr­ar­braut.

„Bæjarráð lýsir sig áhuga­samt fyrir fram­gangi þessa máls og [er] jákvætt fyrir því að finna starf­sem­inni hent­uga lóð innan sveit­ar­fé­lags­ins svo fremi sem tryggt sé að allt jarð­efni verði geymt í lok­uðum húsum þannig að ekki sé sjón-, ryk- eða hávaða­mengun af starf­sem­inni,“ segir í sam­þykkt ráðs­ins um málið. Var bæj­ar­stjóra falið að upp­lýsa fyr­ir­tækið um þessa afstöðu og vinna því áfram far­veg.

„Við höfum hist til að fara yfir hlut­ina en málin eru á frum­stigi hvað okkur varðar,“ segir Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri Ölfus, við Kjarnann. For­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafi sagst þurfa lóð sem næst hafn­ar­svæð­inu sem og skipa­lægi. „Við höfum á sama hátt útskýrt áherslur okkar hvað varðar skipu­lag og gert félag­inu grein fyrir því að ríkar kröfur verði gerðar til allrar starf­semi sem liggur nærri íbúða­svæðum. Þannig komi ekki til greina að um verði að ræða opnar efn­is­geymslur né nokkra starf­semi sem leiðir til ryk- eða hljóð­meng­unar svo dæmi sé tekið.“

Guð­mundur bendir á að hafn­ar­svæðið sé nálægt byggð­inni og „ef vik­ur­inn af Mýr­dals­sandi yrði fluttur til Þor­láks­hafnar yrði unnið með hann allan sól­ar­hring­inn“ og því myndi fylgja hávaði, hvort sem haug­arnir yrðu yfir­byggðir eða ekki. Flytja þurfi efnið frá geymslu­svæði til skips – hvort sem það yrði með færi­bandi, eins og nefnt er í skýrsl­unni, eða á vöru­bílum.

Hann bendir enn fremur á að byggðin í Þor­láks­höfn fær­ist sífellt nær þeim vegi sem vöru­bílar aka að hafn­ar­svæð­inu. „Fram­kvæmda­að­ilar eru svo tví­saga í því, sam­kvæmt skýrsl­unni, hvar haug­setn­ingin á að vera.“ Ýmist sé talað um að hún yrði í 2,5 kíló­metra fjar­lægð frá höfn­inni eða fimm. Þá megi einnig skilja, við lestur skýrsl­unnar, að hún yrði á hafn­ar­bakk­anum.

Að mati Guð­mundar verður að gera rík­ari kröfu á fram­kvæmda­að­ila í nákvæmni í skýrslum sem þessum – enda séu þær grund­vall­arplagg fyrir eft­ir­lits­að­ila, sveit­ar­fé­lög og aðra til að gera upp hug sinn varð­andi áform­aðar fram­kvæmdir. Í skýrslu SPM sé bæði magn og fyr­ir­hug­aðar stað­setn­ingar starf­sem­innar á reiki. Á einum stað sé t.d. talað um 200 millj­óna tonna vinnslu á ári „sem er aug­ljós­lega villa,“ segir Guð­mundur. „Menn eru almennt alltof gin­keyptir fyrir að stökkva á eitt­hvað án þess að skoða málin til enda.“ Í þessu til­viki sé verið að tala um 200 þús­und tonna fram­leiðslu í byrjun, „en við eigum að horfa á enda­punkt­inn, það sem þeir stefna á að gera, sem er um milljón tonna árs­fram­leiðsla“.

Félagið í söluferli

SPM er í sölu­ferli. Fyr­ir­tækið EP Power Europe (EPPE), sem er hluti af tékk­nesku Energetický a prů­myslový hold­ing (EPH) sam­steyp­unni, er að kaupa það af STEAG. Um þetta er fjallað í mats­skýrslu fyr­ir­tæk­is­ins. EPPE mun með kaup­unum eign­ast SPM að fullu og allar eignir þess á Íslandi, þ.m.t. jörð­ina Hjör­leifs­höfða og Power Minerals Iceland ehf. Guð­mundur kall­aði þetta „brask“ í bókun sinni í skipu­lags- og umhverf­is­nefnd. Spurður nánar út í hvað hann eigi við segir hann söl­una vekja spurn­ingar um ávinn­ing verk­efn­is­ins. „Er þetta raun­veru­lega að fara að skila ein­hverju fyrir lofts­lagið og hag­kerfið eins og þeir vilja vera láta?“

STEAG er einn af stærstu orku­fram­leið­endum Þýska­lands og sér­hæfir sig í kola­verum og hin síð­ari ár einnig í öðrum orku­gjöfum. SPM, dótt­ur­fé­lag þess, heldur utan um við­skipti með hlið­ar­af­urðir kola­brennsl­unnar, m.a. sölu á svo­kall­aðri flug­ösku sem notuð er sem íblönd­un­ar­efni í sem­ent. Meg­in­mark­miðið með því að vinna vikur á Mýr­dals­sandi er að sögn SPM að draga úr kolefn­islosun tengdri sem­ents­fram­leiðslu með því að nota vikur í stað ösk­unnar. „Með auk­inni umhverf­is­vit­und hefur kola­verum í Vestur-Evrópu fækkað mikið og fram­boð á kola­ösku dreg­ist saman,“ segir í mats­á­ætlun SPM. Í Þýska­landi sé stefnt að því að árið 2038 verði búið að loka öllum kola­verum. „Í stað þess að útvega kola­ösku ann­ars staðar frá ætlar SPM sér að nota vikur til að bjóða við­skipta­vinum sínum umhverf­is­vænt hrá­efni.“

En hver yrði hin raun­veru­lega kolefn­islosun frá vik­ur­fram­leiðsl­unni, með þessum mikla akstri lands­hluta á milli sem og skipa­flutn­inga til Evrópu og Norður-Ameríku? Á þetta benda bæði Land­vernd og Heil­brigð­is­eft­ir­lit Suð­ur­lands í athuga­semdum sínum við til­lögu að mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­innar og vilja að kolefn­is­spor hinnar fyr­ir­hug­uðu starf­semi verði reiknað út.

„Svo er það nátt­úru­verndin í þessu,“ segir Guð­mundur sem furðar sig á þeirri stað­hæf­ingu sem sett er fram í skýrslu SPM að hin áform­aða náma sé „vissu­lega end­ur­nýj­an­leg“ – líkt og það er orðað. Katla muni gjósa aftur „og það munu koma jök­ul­hlaup niður á Mýr­dals­sand sem bera með sér óhemju af vikri og öðrum jarð­efnum“.

Ef þetta væru gild rök, segir Guð­mundur, „væri þá ekki hægt að heim­færa þau á allt? Hverja ein­ustu fram­kvæmd sem hér hefur verið gerð? Þetta er ein­kenni­leg rétt­læt­ing á raski á nátt­úr­unni og allt eins mætti þá segja: Að öllum lík­indum má búast við ísöld og að mann­anna verk muni afmást. Eru það gild rök fyrir að raska landi?“

[adspot]

Elliði bæj­ar­stjóri segir að fundir með fram­kvæmda­að­ilum hafi verið „með ágætum“, enda fyr­ir­tækið ekki að „fara fram á neitt annað af okkur en lóð og hafn­ar­að­stöðu. Eitthvað sem við erum svo sem að vinna að alla daga. Staðan núna er sú að við erum að lenda í þröngri stöðu með lóðir undir atvinnu­starf­semi og fjöl­margar fyr­ir­spurnir frá fyr­ir­tækjum sem sjá fram­tíð­ina í Þor­láks­höfn“.

Hann segir ein­göngu hafa verið rætt við fyr­ir­tækið um að koma starf­semi þeirra fyrir annað hvort utan þétt­býl­is­ins í Þor­láks­höfn eða innan iðn­aðar- og hafn­ar­svæðis. „Í báðum til­vikum með aðkomu beint að höfn­inni án umferðar um íbúða­byggð­ina.“

Segir aðkomu íbúa verða tryggða

Við­ræð­urnar séu enn á frum­stigi og of snemmt sé að full­yrða nokkuð um hvert þær leiði. Spurður hvort að til greina komi að íbúar fái að kjósa um málið segir hann það ekki hafa verið rætt sér­stak­lega „en það er þó hverjum degi ljós­ara að ef til dæmis þarf að breyta skipu­lagi þá verður aðkoma íbúa tryggð“.

Guðmundi hugn­ast hins vegar hug­myndin alls ekki. Starf­semin yrði af þeirri stærð­argráðu að hún myndi hafa mikil áhrif, ekki síst í litlu sam­fé­lagi eins og Þor­láks­höfn. „Þó að þetta myndi skila tekjum með hafn­ar­gjöldum og fleiru þá verðum við að hugsa um hverju við erum að fórna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mýrdalssandur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár