Skýrslan uppfyllir ekki „eðlilega kröfu um valkostagreiningu“

Sveit­ar­stjórn Mýr­dals­hrepps vill að EP Power Minerals, sem áformar námu­vinnslu á Mýr­dals­sandi, skoði að skipa vikrinum upp af strönd­inni við Vík. Sveit­ar­stjór­inn segir að eftir eigi að skoða hvernig höfn á þessum slóðum þyrfti að vera.

Mikið vikurnám er áformað við Hafursey á Mýrdalssandi. Ef fyrirætlanir EP Power Minerals ganga eftir yrði efnið unnið úr námunni næstu hundrað árin eða svo.
Mikið vik­ur­nám er áformað við Hafursey á Mýr­dals­sandi. Ef fyr­ir­ætl­anir EP Power Minerals ganga eftir yrði efnið unnið úr námunni næstu hund­rað árin eða svo. Mynd: Katlatreck

Umhverf­is­mats­skýrsla EP Power Minerals um áform­aða námu­vinnslu á Mýr­dals­sandi „upp­fyllir að mínu mati ekki eðli­lega kröfu um val­kosta­grein­ingu,“ segir Einar Freyr Elín­ar­son, sveit­ar­stjóri Mýr­dals­hrepps, við Kjarnann. Í umsögn við skýrsl­una sagði að sveit­ar­stjórnin setti sig ekki upp á móti efn­is­töku á Mýr­dals­sandi, en eigi hún að verða að veru­leika „er þó ljóst að skipu­lag hennar getur ekki orðið eins og því er lýst í umhverf­is­mats­skýrsl­unni“.

Sveit­ar­stjórnin sagð­ist mæl­ast til þess að fyr­ir­komu­lag starf­sem­innar yrði end­ur­skoðað og ráð gert fyrir því að vikrinum verði skipað af strönd­inni sunnan við námu­svæðið. Sveit­ar­fé­lagið lýsti sig enn­fremur reiðu­búið til við­ræðna um hafn­ar­gerð sem gæti, að því er fram kom í umsögn­inni, opnað á mögu­leika fyrir ann­ars konar atvinnu­starf­semi.

[adspot]

Einar Freyr segir við Kjarnann að sveit­ar­fé­lagið hafi nú fundað með full­trúum EP Power Minerals vegna máls­ins og komið því á fram­færi sem fram kom í umsögn sveit­ar­fé­lags­ins. „Í því felst ekki að óform­legar eða form­legar við­ræður um höfn í Vík séu hafnar,“ tekur hann fram.

Það sé því ekki tíma­bært að ræða mögu­lega kostn­að­ar­skipt­ingu vegna hafn­ar­gerðar „en það sem sveit­ar­fé­lagið mun þrýsta á um er að raun­veru­leg val­kosta­grein­ing fari fram í umhverf­is­mati“.

Í umhverf­is­skýrslu fram­kvæmda­að­ila, sem kynnt var á vef Skipu­lags­stofn­unar í haust, kom fram að til stæði að vinna vikur við Hafursey á Mýr­dals­sandi, jafn­vel til næstu hund­rað ára. Efnið yrði flutt um 170 kíló­metra leið til Þor­láks­hafnar þar sem það yrði sett um borð í skip og flutt til Evrópu og notað sem íblönd­un­ar­efni í sem­ent.

Svo mikil yrði vinnslan að gert er ráð fyrir því að full­fermdir flutn­inga­bílar þyrftu að aka frá námunni og til Þor­láks­hafnar á fimmtán mín­útna fresti allan sól­ar­hring­inn. Og svo tómir sömu leið til baka.

Sveit­ar­stjórn Mýr­dals­hrepps var meðal þeirra fjöl­mörgu sem lýstu áhyggjum af þessum miklu flutn­ingum sem þyrftu að fara um þorpið á vík og nokkra aðra þétt­býl­iskjarna til við­bótar áður en að skips­hlið í Þor­láks­höfn yrði komið.

Rangar ályktanir dregnar

„Sú ályktun að starf­semin hafi óveru­lega áhrif á úti­vist og ferða­mennsku eins og hún er skipu­lögð er röng,“ benti Einar Freyr á í umsögn Mýr­dals­hrepps. „Þjóð­veg­ur­inn er lífæð ferða­mennsku á Íslandi og því er ljóst að sú umferð sem starf­semin gerir ráð fyrir mun hafa veru­leg nei­kvæð áhrif á ferða­mennsku og almenna umferð á þjóð­veg­inum.“

Eins væri það mat sveit­ar­stjórnar að áhrif á umferð væru veru­lega nei­kvæð og „að þær álykt­anir sem dregnar séu í skýrsl­unni lýsi miklu skiln­ings­leysi á aðstæðum á þjóð­veg­inum á Suð­ur­landi“. Áhrif svo umfangs­mik­illa land­flutn­inga á hljóð­vist í þétt­býli væru enn fremur veru­lega nei­kvæð.

[links]Sveit­ar­stjórn Mýr­dals­hrepps telur eðli­legt að horft sé til mögu­legra áhrifa starf­sem­innar á atvinnu­líf og nær­sam­fé­lagið í ljósi þess rasks sem verður á umhverfi. „Skipulag starf­sem­innar sem umhverf­is­mats­skýrslan gerir ráð fyrir býður upp á að fá, ef nokkur, störf verði raun­veru­lega stað­sett á svæð­inu.“

Með því að skipa vikrinum upp af strönd­inni við Vík mætti styðja við atvinnu­lífið á svæð­inu en einnig koma í veg fyrir veru­leg nei­kvæð áhrif á umferð, hljóð­vist og ferða­mennsku með því að flytja vik­ur­inn stystu leið með und­ir­göngum þar sem þvera þyrfti þjóð­veg­inn. „Með slíku fyr­ir­komu­lagi væri tryggt að starf­semin skil­aði sér í atvinnu­upp­bygg­ingu í heima­byggð og verð­mæta­sköpun á efn­is­töku­svæð­inu,“ sagði í umsögn Mýr­dals­hrepps. Enn fremur væri slíkt fyr­ir­komu­lag mun frekar í sam­ræmi við til­gang starf­sem­innar um að gera ferlið sem umhverf­is­væn­ast.

Spurður um hvers konar höfn kæmi til greina á þessum slóðum segir Einar Freyr að ekki hafi verið aflað upp­lýs­inga um hvernig höfn þyrfti að gera eða hver kostn­að­ur­inn yrði. „Það eru atriði sem eðli­legt væri að kafa dýpra í við val­kosta­grein­ingu,“ segir hann við Kjarnann.

[adspot]

Er það skýr afstaða sveit­ar­stjórnar að ef efn­inu verður ekki skipað af strönd­inni sunnan námu­svæð­is­ins þá verði ekk­ert fram­kvæmda­leyfi gefið út?

„Hvað varðar afstöðu sveit­ar­stjórnar um mögu­lega útgáfu fram­kvæmda­leyfis þá er í mínum huga ekki tíma­bært að ræða það fyrr en álit Skipu­lags­stofn­unar á umhverf­is­mats­skýrsl­unni liggur fyrir,“ svarar Einar Freyr.

Nú þegar allar umsagnir um skýrsl­una eru komnar til Skipu­lags­stofn­unar þarf fram­kvæmda­að­ili, EP Power Minerals, að svara þeim og bregð­ast við þeim í end­an­legri mats­skýrslu. Síðan mun Skipu­lags­stofnun gefa út álit sitt á fram­kvæmd­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

eppowerminerals

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár