Vikurnám á Mýrdalssandi myndi hafa „verulegan kostnað fyrir samfélagið“

Full­hlað­inn sex öxla vöru­bíll slítur burð­ar­lagi á við 20-30 þús­und fólks­bíla, bendir Umhverf­is­stofnun á varð­andi áform­aða vik­ur­flutn­inga frá Mýr­dals­sandi til Þor­láks­hafnar. Ráðast þyrfti í mikla upp­bygg­ingu vega­kerfis vegna flutn­ing­anna.

Ráðast þyrfti í nauðsynlegar styrkingar vega vegna þungaflutninganna til og frá Mýrdalssandi.
Ráðast þyrfti í nauð­syn­legar styrk­ingar vega vegna þunga­flutn­ing­anna til og frá Mýr­dals­sandi. Mynd: Birgir Þór Harðarson

„Þessi mikla umferð vik­ur­flutn­inga­bíla um vegi og þétt­býli allt frá Mýr­dals­sandi að Þor­láks­höfn mun hafa í för með sér aukna slysa­hættu, verri loft­gæði auk óþæg­inda vegna hávaða. Hér er ekki verið að tjalda til einnar nætur heldur væri hér um að ræða flutn­inga sem mögu­lega gætu staðið yfir ára­tugum saman.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn Umhverf­is­stofn­unar um áformað vik­ur­nám fyr­ir­tæk­is­ins EP Power Minerals við Hafursey á Mýr­dals­sandi. Vikurinn á að nota sem íblönd­un­ar­efni í sem­ents­fram­leiðslu, aðal­lega í Evrópu.

Umhverf­is­á­hrif sjálfrar efn­is­tök­unnar yrðu all­nokkur en fram­kvæmdin er að mati Umhverf­is­stofn­unar nokkuð óvenju­leg að því leyti að áhrifin yrðu lang­mest og að sumu leyti óaft­ur­kræf vegna efn­is­flutn­ing­anna til Þor­láks­hafnar. Þeir miklu efn­is­flutn­ingar sem eru fyr­ir­hug­aðir myndu kalla á nauð­syn­legar fram­kvæmdir á hring­veg­inum.

[adspot]

Fram­kvæmdin felst í því að á næstu 100 árum verði unnt að taka 146 millj­ónir rúmmetra af vikri við Hafursey. Teknir yrðu 286 þús­und rúmmetrar fyrsta árið en aukið á fimm árum í 1,43 millj­ónir m3 á ári sem eftir það yrði árlegur útflutn­ingur. Ekið yrði með efnið á stórum flutn­inga­bílum til Þor­láks­hafnar og til að koma svo miklu efni þangað þyrftu bíl­arnir að aka full­fermdir á korters fresti allan sól­ar­hring­inn frá Mýr­dals­sandi og svo tómir til baka.

[links]Í umsögn sinni um umhverf­is­mats­skýrslu fram­kvæmda­að­ila beinir Umhverf­is­stofnun sjónum sínum m.a. að þessum miklu og for­dæma­lausu þunga­flutn­ingum. Í henni kemur fram að lengi hafi verið ljóst að áhrif ýmissa fram­kvæmda sem hafa í för með sér aukna umferð flutn­inga­bíla hafi verið gróf­lega van­metin þegar komi að vega­kerfi lands­ins. „Þungir bílar eru ráð­andi þegar kemur að nið­ur­broti á burð­ar­lagi vega,“ bendir stofn­unin á. „Full­hlað­inn sex öxla vöru­bíll slítur burð­ar­lagi á við 20-30 þús­und fólks­bíla.“ Að mati Umhverf­is­stofn­unar eru löngu tíma­bært að þessi áhrif verði metin og á það sér­stak­lega við þá fram­kvæmd sem hér um ræðir þar sem áhrif verða að mestu leyti utan skil­greinds áhrifa­svæðis námunnar á Mýr­dals­sandi og verður í raun á Hring­vegi 1 frá Mýr­dals­sandi að hring­torgi við Hvera­gerði og þaðan um Ölfus suður að Þor­láks­höfn.

Víða eru þjóð­vegir á Íslandi að stofni til burð­ar­litlir vegir sem hafa verið end­ur­bættir ítrekað sem í raun eru aðgerðir sem voru nægj­an­legar á sínum tíma. Síðan strand­sigl­ingar svo gott sem lögð­ust af hefur álag á veg­ina auk­ist ár frá ári og tekið stökk þegar nýjar greinar bæt­ast við eins og t.d. lax­eldi þar sem nauð­syn­legt er að koma vör­unni á markað sem fyrst.

Vegir víða stórskemmdir eftir þungaflutninga

Í dag má víða sjá vegi sem eru stór­skemmdir eftir þunga­um­ferð sem þeim vegum var engan veg­inn ætlað að bera, segir í umsögn Umhverf­is­stofn­unar. Vegna auk­inna fisk­flutn­inga megi t.d. segja að hluti Snæ­fells­vegar á Mýrum sé stór­skemmdur og að lík­indum nán­ast ónýtur þar sem ástandið er verst. Sama megi segja um Vest­fjarð­ar­veg um Saurbæ og Dali. „Vegir eru víða það aflagðir að djúp hvörf mynd­ast og veg­ur­inn afvatnar sig sig ekki. Þetta eykur veru­lega slysa­hættu á vega­köflum sem eru hvað verstir.“ Stofn­unin telur ekki hægt að ráða bót á þessum vegum heldur þurfi nýfram­kvæmdir til.

„Umhverf­is­stofnun telur að fjalla þurfi um þessi áhrif sem fela í sér veru­legan kostnað fyrir sam­fé­lagið auk þeirra umhverf­is­á­hrifa sem fel­ast í efn­is­töku mikið stærri í sniðum og öðru­vísi en gert hefur verið.“

Ekki kemur til greina að mati stofn­un­ar­innar að hægt verði að aka með vik­ur­inn um þétt­býlið í Vík á núver­andi vegi. Því má telja ljóst, segir í umsögn­inni, að for­senda þess­ara flutn­inga er að lagður verði nýr vegur um Mýrdal. Því telur Umhverf­is­stofnun að fjalla eigi um umhverf­is­á­hrif nýs vegar um Mýrdal og vega­gerð um Hringveg undir Eyja­fjöllum sem telj­ast vera hluti og for­senda umhverf­is­á­hrifa efn­is­töku á Mýr­dals­sandi. „Ef ein­ungis er ætl­unin að skoða námuna sem slíka án afleiddra áhrifa á jarð­mynd­anir, lands­lag, sam­fé­lög og umferð­ar­ör­yggi þá er að mati Umhverf­is­stofn­unar verið að líta fram­hjá þeim miklu og óaft­ur­kræfu áhrifum sem fylgja munu efn­is­töku á Mýr­dals­sandi.“

Vegur um Dyrhólaós hefði neikvæð áhrif á verndargildi

Í umhverf­is­mats­skýrsl­unni er bent á að stefnt sé að því að gera göng í gegnum Reyn­is­fjall og ef það verði að veru­leika yrði efn­is­flutn­ing­ur­inn í gegnum þau. Umhverf­is­stofnun bendir hins vegar á að ef göngin verði að veru­leika muni veg­ur­inn að öllum lík­indum liggja um Dyr­hólaós. Að mati stofn­un­ar­innar mun sú veglagn­ing hafa nei­kvæð áhrif á vernd­ar­gildi óss­ins, Loft­sala­hellis, Reyn­is­dranga og Reyn­is­fjalls sem eru svæði á nátt­úru­minja­skrá.

Umhverf­is­stofnun gerir athuga­semdir við fram­setn­ingu nokk­urra þátta í umhverf­is­mats­skýrsl­unni. Í henni er t.d. tekið fram að loft­gæði fram­kvæmd­ar­innar séu metin „óveru­lega nei­kvæð“ m.a. vegna þess að ábreiða verði sett yfir farm­inn á hverjum vöru­bíl. Hér er ekki ætl­unin að ganga lengra en lög og reglur segja til um, líkt og ætla má, og bendir stofn­unin á að nú þegar séu í umferð­ar­lögum ákvæði um að hefta skuli fok jarð­efna af vöru­bílum með yfir­breiðslu.

Mestu áhrif af þessum flutn­ingum á loft­gæði yrðu hins vegar frá vöru­bíl­unum sjálfum, útblæstri þeirra, t.d. á sóti og nit­uroxíð sam­böndum en einnig efn­isögnum frá sliti á bremsu­borðum og dekkjum. Einnig myndu flutn­ingar auka upp­þyrlun vegryks og stuðla þannig að auk­inni svifryks­mengun, að mati stofn­un­ar­innar.

„Stórir bílar eru mun mik­il­virk­ari í að þyrla upp vegryki heldur en litlir,“ segir í umsögn­inni. „Þessir miklu efn­is­flutn­ingar fara í gegnum nokkra þétt­býl­is­staði og því við­búið að loft­mengun á þeim stöðum muni aukast.“ Það er því mat stofn­un­ar­innar að áhrif efn­is­flutn­inga á loft­gæði í íbúða­byggð á flutn­ings­leið­inni verði ekki óveru­lega nei­kvæð, líkt og fram­kvæmda­að­ili metur það, heldur nokkuð nei­kvæð til tals­vert nei­kvæð.

[adspot]

Í umhverf­is­mats­skýrsl­unni kemur fram að árlega muni kolefn­islosun minnka um 800 milljón kg CO2 ígilda vegna steypu­fram­leiðslu þegar búið sé að taka losun vegna flutn­inga með í reikn­ing­inn, þar sem vikur af Mýr­dals­sandi mun koma í stað sem­ents­gjalls,

Umhverf­is­stofnun telur þetta mis­vísandi þar sem í skýrsl­unni kemur fram að nú þegar sé notuð kolaaska sem íblönd­un­ar­efni í stað sem­ents­gjalls og því þegar búið að ná þessum lofts­lags­á­vinn­ingi. Framboð af kola­ösku muni hins vegar drag­ast saman á næstu árum eða ára­tugum þar sem stefnt sé að því að loka kola­orku­verum m.a. í Þýska­landi. „Vikurinn frá Mýr­dals­sandi er þó ekki eina hugs­an­lega hrá­efni sem gæti leyst kola­ösk­una af hólmi,“ segir í umsögn Umhverf­is­stofn­unar.

Vinnsla á nýju efni er ekki í anda hringrás­ar­hag­kerf­is­ins, þegar hægt er að nýta efni sem nú þegar fellur til í annarri fram­leiðslu. „Með notkun efnis sem fellur til nær fram­leiðslu­stað loka­vör­unnar má þannig bæði nýta úrgang og draga veru­lega úr efn­is­flutn­ingum,“ stendur í umsögn­inni. „Þar sem for­senda efn­is­tök­unnar er að vik­ur­inn verði nýttur í stað kola­flugösku er rétt að benda á að nýt­ing þess efnis sem nú þegar fellur til í Evrópu en er ef til vill ekki end­ur­nýtt í dag heldur urðað, fellur betur að stefnu stjórn­valda hér­lendis sem og innan Evr­ópu­sam­bands­ins um hringrás­ar­hag­kerfi og auð­linda­nýt­ingu.“ Nefnir stofn­unin í þessu sam­bandi efni sem falla til við brennslu heim­il­issorps í Evrópu og timb­urs sem í dag er urðað en væri mögu­lega hægt að nota.

Ekki minnkuð kolefnislosun

Námu­vinnslan á Mýr­dals­sandi miðar að því að vinna stað­göngu­efni fyrir flug­ösku. Efnið getur virkað sem heppi­legt óbrennt íblönd­un­ar­efni í sem­ents­gjall en „nokkuð vel er í lagt að full­yrða að verk­efnið snú­ist um að „minnka kolefn­islosun“ eins og það er orðað í skýrsl­unni þar sem það snýr ekki að því að minnka losun heldur fremur að við­halda núver­andi losun frá sem­ents­fram­leiðslu sem á sama tíma eykur losun á Íslandi,“ segir Umhverf­is­stofnun.

Í mats­skýrsl­unni eru ein­ungis metin áhrif á losun á heims­vísu en ekki metin nei­kvæð áhrif hvað varðar skuld­bind­ingar Íslands í lofts­lags­málum. „Engin vafi er á því að þeir efn­is­flutn­ingar sem rætt er um í skýrsl­unni muni hafa áhrif til aukn­ingar los­unar hér á landi,“ segir Umhverf­is­stofnun því losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda vegna vik­ur­flutn­inga með vöru­bílum frá Mýr­dals­sandi til Þor­láks­hafnar kæmi fram í los­un­ar­bók­haldi Íslands.

Stofn­unin telur að lofts­lags­á­vinn­ingur sem er ætlað að koma fram í öðru landi gæti ekki talist sem rök­stuðn­ingur fyrir umtals­verðum umhverf­is­á­hrifum á Íslandi nema þá að fyrir liggi alþjóð­legir samn­ingar um slíkt.

Taka verði svo með í reikn­ing­inn þau umhverf­is­á­hrif sem óhjá­kvæmi­lega munu fylgja efn­is­töku og raski vegna vega­gerðar sem þessir flutn­ingar munu kalla á. „Svona miklir efn­is­flutn­ingar eiga að mati Umhverf­is­stofn­unar ein­ungis að fara fram á skil­greindum námu­vegum þar sem ekki er blandað saman efn­is­flutn­ingum og almennri umferð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mýrdalssandur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár