Sunnlenskir sveitarstjórar hugsi yfir auknum þungaflutningum um Suðurland

Bæj­ar­stjór­inn í Árborg segir ljóst að byggja þurfi upp nýjan veg umhverfis Selfoss til að anna stór­kost­legri aukn­ingu vöru­flutn­inga úr austri og til Þor­láks­hafnar, óháð því hvort fyr­ir­hug­aðir flutn­ingar Kötlu­vik­urs af Mýr­dals­sandi verði að veru­leika.

Bæjarstjórinn í Árborg lítur svo á að það þurfi að byggja upp nýjan veg, ýmist sunnan við Selfoss eða í Ölfusi, til að höndla þungaflutninga austan að og til Þorlákshöfn.
Bæj­ar­stjór­inn í Árborg lítur svo á að það þurfi að byggja upp nýjan veg, ýmist sunnan við Selfoss eða í Ölfusi, til að höndla þunga­flutn­inga austan að og til Þor­láks­höfn. Mynd: Pexels

Gísli Halldór Hall­dórs­son bæj­ar­stjóri í Árborg segir fyr­ir­sjá­an­legt að vöru­flutn­ingar úr austri og til Þor­láks­hafnar muni aukast stór­kost­lega á næstu árum, jafn­vel þrátt fyrir að ekki kæmi til þeirra stór­felldu vik­ur­flutn­inga úr landi Hjör­leifs­höfða á Mýr­dals­sandi sem áætl­anir eru uppi um að ráð­ast í af hálfu þýska fyr­ir­tæk­is­ins STEAG Power Minerals.[links]

Bæj­ar­stjór­inn segir í svari til Kjarnans að hann og póli­tísk for­ysta bæj­ar­stjórnar hafi vakið athygli á því að útlit sé fyrir mjög aukna flutn­inga í gegnum Selfoss og að þessi mál hafi verið rædd margoft á fundum með Vega­gerð­inni og einnig við alþing­is­menn og ráð­herra, er þeir hafi rekið á fjörur Árborg­ara.

Hann segir að sveit­ar­fé­lagið hafi þegar gripið til aðgerða til að leysa fyr­ir­sjá­an­legan vanda til næstu örfárra ára, en það hafi reyndar ekki verið gert með þá stór­felldu vik­ur­flutn­inga sem fyr­ir­hug­aðir eru um Suð­ur­landið til hlið­sjónar.

Við­brögðin fólust í því að leggja veg­bút sem lengir göt­una Suð­ur­hóla, sem liggur í jaðri byggðar á Selfossi, yfir á Gaul­verja­bæj­ar­veg. Þessi ráð­stöfun kemur í veg fyrir að allir vöru­flutn­ingar frá austri til vest­urs þurfi að fara um Aust­ur­veg, sem kalla má aðal­göt­una í bænum og er hluti af þjóð­vegi 1 í dag.

„Suð­ur­hól­arnir í Árborg liggja hins­vegar í gegnum íbúa­byggðir á Selfossi og henta engan veg­inn fyrir stór­aukna flutn­inga fram­tíð­ar­innar, með eða án vik­ur­flutn­ing­anna frá Mýr­dals­sandi. Þetta höfum við bent Vega­gerð­inni og stjórn­mála­mönnum á,“ segir Gísli Halldór.

Nýr vegur suður af Selfossi eða um Ölfusið

Sel­fyss­ingar munu losna við þjóð­veg 1 út úr bænum þegar ný brú yfir Ölfusá verður til­búin, en þegar hún verður komin í notkun mun þó áfram liggja bein­ast við að beina þeim vöru­flutn­ingum sem koma að austan og til Þor­láks­hafnar eða áfram út á Reykja­nes í gegnum þétt­býli bæj­ar­ins.

Bæj­ar­stjór­inn segir að með eða án þeirra miklu vik­ur­flutn­inga sem fyr­ir­hug­aðir eru frá Mýr­dals­sandi sé fyr­ir­sjá­an­legt að vöru­flutn­ingar þessa leið­ina auk­ist stór­kost­lega. Áhrifa­þætti í því segir hann vera stór­aukið fisk­eldi á Aust­fjörðum og sömu­leiðis aukna mat­væla­fram­leiðslu á Suð­ur­landi.

[adspot]

Gísli Halldór bendir á tvær leiðir, sem hann segir hugs­an­legar til lausnar. Önnur væri sú að byggja upp nýjan veg nokkuð suður af Selfossi. Segir hann bæj­ar­yf­ir­völd hafa bent á stað­setn­ingu Vot­múla­vegar í því sam­bandi, en að ef til vill ætti slíkur vegur að vera enn sunnar.

„Hin leiðin er að fara að Hvera­gerði og þaðan suður Ölfusið til Þor­láks­hafnar, sem er sú leið sem Vega­gerðin horfir mest til. Í báðum til­vikum þarf að byggja upp nýjan veg. Ég læt aðra um að dæma hvor leiðin er heppi­legri. Beinasta leiðin austan að til Þor­láks­hafnar liggur auð­vitað í gegnum Árborg, en okkur er síst af öllu kapps­mál að fá alla þessa þunga­um­ferð í gegnum sveit­ar­fé­lagið. Umfram allt viljum við þó leggja okkar af mörkum til að stuðla að far­sælli lausn,“ segir Gísli Halldór.

Áhugi hjá Rangæingum á að nýta Landeyjahöfn meira

Lilja Ein­ars­dóttir, sveit­ar­stjóri Rangár­þings eystra, segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að fyr­ir­hug­aðir vik­ur­flutn­ingar frá Mýr­dals­sandi hafi til umræðu á vett­vangi sveit­ar­stjórn­ar­innar.

„Vissu­lega höfum við velt þessu fyrir okkur og bent á þessa gríð­ar­legu umferð sem þessu myndi fylgja. Und­an­far­inn ára­tug hefur verið sívax­andi álag á Þjóðveg 1 og myndi þetta síður en svo draga úr því álagi,“ segir Lilja.

[box]

Land­eyja­höfn er í Rangár­þingi ytra, en eins og rakið var í umfjöllun Kjarnans í gær var viðrað í umsögn um til­lögu að mats­á­ætlun vegna vik­ur­náms­ins á Mýr­dals­sandi að skoðað yrði hvort hægt væri að skipa vikrinum upp í Land­eyja­höfn, en ekki í Þor­láks­höfn.

Í athuga­semdum sem verk­fræði­stofan Efla sendi Skipu­lags­stofnun fyrir hönd fram­kvæmda­að­il­ans sagði að það hefði verið skoðað á fyrri stigum, en í ljós hefði komið að sam­kvæmt lögum og reglu­gerðum um Land­eyja­höfn megi ein­ungis nýta höfn­ina undir sigl­ingar með far­þega til og frá Vest­manna­eyjum.

Lilja segir þó að það hafi verið áhugi hjá sveit­ar­stjórn­inni um að „nýta Land­eyja­höfn meira en gert er í dag,“ en full­ljóst sé að það til þess þyrfti að koma til end­ur­bóta og upp­bygg­ingar á höfn­inni sjálfri og svæð­inu umhverfis hana. „En Land­eyja­höfn er á höndum rík­is­ins sem er afar óvenju­legt,“ bætir sveit­ar­stjór­inn við.

Hún segir hlut­að­eig­andi aðila hafa viðrað þessa umræðu við fyrri sveit­ar­stjóra í Rangár­þingi eystra og að sveit­ar­stjórnin hafi alltaf verið opin fyrir umræðu um hvers konar upp­bygg­ingu og ný tæki­færi sem varði Land­eyja­höfn.

Á Hellu er fólk hugsi

Ágúst Sig­urðs­son, sveit­ar­stjóri í Rangár­þingi ytra, segir í svari til Kjarnans að sveit­ar­stjórnin þar hafi ekki fengið neina kynn­ingu á mál­inu né beiðni frá Skipu­lags­stofnun um að veita umsögn um það.

„Höfum bara séð þetta í fréttum,“ segir Ágúst, um fyr­ir­ætl­anir STEAG Power Minerals og fyr­ir­hugað umfang vik­ur­flutn­inga, sem leið liggur um Suð­ur­landið og þar með í gegnum þétt­býlið á Hellu.

Hann segir bæj­ar­yf­ir­völd „að sjálf­sögðu hugsi yfir mál­inu“ en að sér­stök umræða hafi ekki verið tekin um það, enn sem komið er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár