Bætt við valkosti án jarðganga vegna fjölda athugasemda

Vega­gerðin hefur bætt við nýjum val­kosti áform­aðrar færslu hring­veg­ar­ins í Mýrdal. Sá liggur sam­hliða núver­andi vegi og norðan við Vík­ur­þorp og gerir því ekki ráð fyrir jarð­göngum í gegnum Reyn­is­fjall.

Þeir valkostir sem verða til skoðunar í mati á umhverfisáhrifum ásamt athugunarsvæði. Nýi valkosturinn, 4b, er gula línan.
Þeir val­kostir sem verða til skoð­unar í mati á umhverf­is­á­hrifum ásamt athug­un­ar­svæði. Nýi val­kost­ur­inn, 4b, er gula línan. Mynd: Vegagerðin

Vega­gerðin hefur bætt við nýjum val­kosti áform­aðrar færslu hring­veg­ar­ins í Mýrdal. Sá liggur sam­hliða núver­andi vegi og norðan við Vík­ur­þorp og gerir því ekki ráð fyrir jarð­göngum í gegnum Reyn­is­fjall.

[links]Í kjöl­far umsagna og athuga­semda sem bár­ust á síð­asta ári við drög Vega­gerð­ar­innar að mats­á­ætlun nýs hring­vegar í Mýrdal ákvað stofn­unin að bæta við einum val­kosti. Í aðal­skipu­lagi Mýr­dals­hrepps er ný veg­lína dregin með­fram strönd­inni og í jarð­göngum í gegnum Reyn­is­fjall. Það gagn­rýna margir og benda m.a. á hið við­kvæma og sér­stæða líf­ríki Dyr­hóla­ósa, sem fjórir val­kostir gera ráð fyrir að veg­ur­inn liggi við eða yfir. Einnig er bent á land­rof og sand­fok í Vík­ur­fjöru, mik­inn kostnað við gangna­gerð og til­heyr­andi rask og ásýnd­ar­breyt­ingar í nágrenni nokk­urra helstu nátt­úruperla Íslands.

Innan og í nágrenni hins fyr­ir­hug­aða fram­kvæmda­svæðis með­fram strönd­inni eru svæði sem njóta verndar, m.a. vegna fugla­lífs og jarð­myndana. Dyr­hólaey er friðland fugla, Dyr­hólaós er á nátt­úru­minja­skrá vegna sjáv­ar­leirna með sér­stæðum lífs­skil­yrðum og austur af Vík er alþjóð­lega mik­il­vægt fugla­svæði (IBA), Vík­ur­hamrar.

[adspot]

Í nýrri mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­innar, sem Vega­gerðin hefur lagt fram til Skipu­lags­stofn­unar, kemur hvergi fram að sú leið sem dregin er upp á aðal­skipu­lagi sveit­ar­fé­lags­ins sé aðal­val­kostur. Sá kostur er þó merktur „val­kostur 1“ og á einum stað segir að vegur um Mýrdal við Dyr­hólaós sé tal­inn „bæta umferð­ar­ör­yggi og útrýma erf­iðum far­ar­tálma í vetr­ar­veðrum á leið­inni frá Hell­is­heiði til Reyð­ar­fjarðar“.

Einnig kemur skýrt fram að við umhverf­is­matið, sem mats­á­ætlun er eitt skref í, sé miðað við sömu mark­mið og komi fram í aðal­skipu­lagi Mýr­dals­hrepps: Að „megin for­senda sveit­ar­fé­lags­ins fyrir færslu og stað­setn­ingu hring­veg­ar­ins er að með því verði hann greið­fær lág­lendis­vegur í stað vegar um hættu­legar brekkur og mis­vinda­samt svæði. Auk þess sem veg­ur­inn er færður út úr þétt­býl­inu í Vík og stytt­ist um 3 km“.

Sambærilegra gagna aflað um alla kosti

Í svörum við athuga­semdum, sem birtar eru í við­auka mats­á­ætl­un­ar­innar, er hins vegar ítrekað að í mat­inu sé gerð grein fyrir raun­hæfum val­kostum og þeir bornir saman með til­liti til umhverf­is­á­hrifa. Aflað verði sam­bæri­legra gagna um þá alla „til að tryggja sam­an­burð­ar­hæfni í umhverf­is­mat­inu“. Ákvörðun um aðal­val­kost muni svo m.a. byggja á upp­lýs­ingum sem safnað er, lögum um mat á umhverf­is­á­hrifum, vega­lögum og lögum um nátt­úru­vernd.

367 umsagnir og athuga­semdir við mats­á­ætl­un­ar­drögin bár­ust Vega­gerð­inni, ýmist frá íbúum og öðrum ein­stak­lingum, sam­tökum, fyr­ir­tækjum og stofn­unum. Margar bár­ust í gegnum vefsjá verk­efn­is­ins sem er nýlunda hjá stofn­un­inni. Ýmsar breyt­ingar og við­bætur voru gerðar á áætl­un­inni í kjöl­farið. Ein sú stærsta er sú að bætt er við val­kosti sem gerir m.a. ráð fyrir að nýr vegur liggi sam­hliða núver­andi hring­vegi um Mýrdal og að núver­andi vegur verði hlið­ar­vegur með heim- og tún­teng­ingum.

Frekari rannsóknir á Dyrhólaósi

Í kjöl­far umsagna Haf­rann­sókn­ar­stofn­unar og Nátt­úru­fræði­stofn­unar Íslands var svo ákveðið að bæta við sér­stakri rann­sókn á líf­ríki Dyr­hóla­óss­ins og nær­liggj­andi straum­vatna. Einnig verður í umhverf­is­mats­skýrslu, sem er næsta skref í ferl­inu, gerð grein fyrir mögu­legum áhrifum val­kosta á skuld­bind­ingar Íslands í lofts­lags­málum.

Eftir athuga­semdir frá Veð­ur­stofu Íslands verður skerpt á umfjöllun um nátt­úruvá, m.a. hættu á miklum ofan­flóðum við mögu­leg jarð­göng. Að sama skapi verður skerpt á fram­kvæmda­lýs­ingu og mats­spurn­ingum og myndefni hefur verið upp­fært. Rann­sókn­ar­tíma­bil á fugla­lífi var lengt vegna ábend­inga þar að lút­andi og ekki er lengur talað um núver­andi veg sem „fjall­veg“ enda fer hann hæst í 119 metra yfir sjáv­ar­máli.

Vega­gerðin mun láta vinna þrí­vídd­ar­líkan af val­kostum, líkt og Land­vernd og fleiri aðilar ósk­uðu eftir, auk þess sem unnar verða ásýnd­ar­myndir sem gefa til kynna útlit jarð­ganga og vega­gerðar eftir að fram­kvæmdum lýkur.

Slysatíðni á veginum um Vík yfir meðaltali

Hring­veg­ur­inn liggur nú um Gatna­brún og að hluta í 10-12 pró­sent halla með var­huga­verðum beygjum. Einnig liggur hann í gegnum þétt­býlið í Vík.

Umræða um færslu eða vega­bætur á þessum slóðum hefur staðið lengi en auk­ist á síð­ustu árum sam­hliða vax­andi umferð. End­ur­bóta er þörf svo veg­ur­inn upp­fylli veg­hönn­un­ar­reglur Vega­gerð­ar­innar. Jafn­framt hefur þétt­býlið í Vík stækkað með til­heyr­andi umferð veg­far­enda yfir og við veg­inn. Með­alslysa­tíðni á veg­inum í gegnum Vík á tíma­bil­inu 2014-2018 er umtals­vert hærri en með­alslysa­tíðni á þjóð­vegum í þétt­býli á land­inu öllu. Á kafl­anum vestan Víkur er slysa­tíðnin nokkru hærri en á þjóð­vegum í dreif­býli en á veg­inum austan Víkur er hún aðeins lægri.

Áfram er gert ráð fyrir umferð­ar­aukn­ingu um svæðið en þó ekki eins mik­illi og und­an­farin ár.

Margir val­kostir um legu veg­ar­ins eða end­ur­bætur hafa verið nefndir til sög­unnar síð­ustu árin en Vega­gerðin ætlar að meta umhverf­is­á­hrif sjö slíkra kosta. Fjórir þeirra gera ráð fyrir jarð­göngum í Reyn­is­fjalli.

Valkostur 1

Samkvæmt skipu­lags­línu. Veglínan liggur sunnan Geita­fjalls að vest­an­verðu, með­fram Dyr­hóla­ósi sem er á nátt­úru­minja­skrá, og í göngum sunn­ar­lega um Reyn­is­fjall. Austan Reyn­is­fjalls liggur leiðin með­fram sjó og sam­ein­ast núver­andi vegi í Vík. Einnig er til skoð­unar að fara með veg­lín­una austar og tengj­ast veg­inum austan við þétt­býlið.

Valkostur 1b

Útfærsla á skipu­lags­línu. Í tengslum við for­hönnun hefur skipu­lags­línan verið útfærð og henni hnikrað til á nokkrum stöðum vegna veg­tækni­legra atriða.

Valkostur 2

Norður fyrir Geita­fjall. Veglínan liggur í vestri norður fyrir Geita­fjall, yfir ræktað land í Reyn­is­hverfi en sam­ein­ast veg­línu val­kosts 1 fyrir ofan ósinn og liggur líkt og hann um göng sunn­ar­lega um Reyn­is­fjall. Vegurinn teng­ist svo núver­andi vegi austan við þétt­býlið í Vík.

Valkostur 3

Þverun Dyr­hóla­óss. Veglínan er að hluta til sam­bæri­leg val­kosti 1 en í stað þess að taka sveigju norður fyrir ósinn er ósinn þver­aður að hluta.

Valkostur 4

Lag­fær­ingar á núver­andi vegi. Kost­ur­inn felur í sér lag­fær­ingar á núver­andi veg­línu með mark­mið fram­kvæmdar í huga. Vegurinn er bættur við Geita­fjall og Gatna­brún og lagður norðan við þétt­býlið í Vík. Fjallað er um kost­inn í umhverf­is­skýrslu Aðal­skipu­lag Mýr­dals­hrepps 2012-2028 og kemur þar fram að sveit­ar­stjórn telji að þrátt fyrir breyt­ingar á núver­andi veg­línu þá sé kost­ur­inn ekki raun­hæfur þar sem hann er ekki tal­inn upp­fylla mark­mið um öruggan heils­árs­veg.

Valkostur 4b

Frekari lag­fær­ingar á núver­andi vegi. Val­kostur 4b er útfærsla af val­kosti 4 og gerir ráð fyrir að nýr vegur liggi sam­hliða núver­andi Hring­vegi um Mýrdal og að núver­andi Hring­vegur verði hlið­ar­vegur með heim- og tún­teng­ingum. Þessum kosti var bætt við í kjöl­far athuga­semda.

Valkostur 5

Útfærsla á núll­kosti. Um er að ræða útfærslu á núll­kosti austan Reyn­is­fjalls, og val­kosti 4 eða 4b vestan Reyn­is­fjalls. Þessum val­kosti var einnig bætt við í kjöl­far athuga­semda. Vega­gerðin telur hann þó ekki ákjós­an­legan með til­liti til umferð­ar­ör­yggis og þeirrar stefnu að færa hring­veg út fyrir þétt­býli, og er hann fyrst og fremst settur fram til sam­an­burðar í umhverf­is­mat­inu.

Verði einn sá kosta val­inn sem gera ráð fyrir jarð­göngum í gegnum Reyn­is­fjall reiknar Vega­gerðin með að þau verði 1,3-1,5 kíló­metrar að lengd auk veg­skála sem þurfa að vera nokkuð langir vegna hættu á ofan­flóðum. Gert er ráð fyrir að fara inn í fjallið að austan í yfir 10 metra hæð yfir sjáv­ar­máli og yfir í 8 metra hæð vestan megin.

Varnargarður þyrfti að vera 7,5 metra hár

Er jarð­göng­unum sleppir austan megin fjalls­ins myndi veg­ur­inn liggja um Vík­ur­fjöru. Gert er ráð fyrir tvennum und­ir­göngum til að tryggja aðgengi gang­andi, hjólandi og hesta­um­ferðar frá Vík og niður í fjör­una. Meðfram veg­inum þyrfti að vera varn­ar­garður. Þar sem rann­sókn á stöð­ug­leika strand­ar­innar stendur enn yfir er ekki hægt að fast­setja hæð mann­virkj­anna en fyrstu drög benda til þess að lág­marks­hæð veg­ar­ins þyrfti að vera um 5,7 m.y.s. og varn­ar­garðs­ins að austan um 7,5 m.y.s.

Vega­gerðin bendir á í svörum sínum við athuga­semdum að fjár­mögnun á fram­kvæmd­inni sjálfri liggi ekki fyrir. Und­ir­bún­ing fram­kvæmdar sé að finna í gild­andi sam­göngu­á­ætlun og þar komi jafn­framt fram að leitað verði leiða til að fjár­magna fram­kvæmd í sam­starfi við einka­að­ila. „Sú vinna hefur ekki farið fram.“

[adspot]

Allir geta kynnt sér mats­á­ætl­un­ina og veitt umsögn. Umsagnir skulu vera skrif­legar og ber­ast eigi síðar en 27. jan­úar 2022 til Skipu­lags­stofn­unar bréfleiðis eða með tölvu­pósti á skipulag@skipulag.is.

Gert er ráð fyrir að kynn­ing­ar­tími á umhverf­is­mats­skýrslu verði nú á vor­mán­uðum og að álit Skipu­lags­stofn­unar, síð­asta skrefið í umhverf­is­mats­ferl­inu, liggi fyrir í haust. Þá er hægt að hefja umsókn­ar­ferli vegna fram­kvæmda­leyfis. Ráðgert er að fram­kvæmdir geti haf­ist árið 2023 og taki um þrjú ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mýrdalshreppur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár