Valkostir vegarins um Mýrdal „ekki meitlaðir í stein“

Enn kemur til greina að bæta við og breyta þeim val­kostum sem Vega­gerðin hefur sett fram á hring­veg­inum um Mýrdal. Yfir 270 manns hafa þegar sent athuga­semdir og hafa flestir áhyggjur af áhrifum á líf­ríki Dyr­hóla­óss.

Dyrhólaós fóstrar fjölskrúðugt fuglalíf árið um kring.
Dyr­hólaós fóstrar fjöl­skrúð­ugt fugla­líf árið um kring. Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson

„Forsaga þessa verk­efnis er orðin ansi löng og spannar lík­lega ein­hverja ára­tugi,“ sagði Þorbjörg Sæv­ars­dóttir, verk­fræð­ingur á hönn­un­ar­deild Vega­gerð­ar­innar, á íbúa­fundi í dag þar sem fyr­ir­hug­aðar vega­fram­kvæmdir í Mýr­dalnum voru kynntar. Fundinum var streymt og voru um 90 manns að horfa þegar mest lét. Á fundi Land­verndar um málið í síð­ustu viku var einnig fjöl­mennt, um 200 manns, og því aug­ljóst að margir hafa áhuga og skoðun á vega­mál­unum í Mýr­dals­hreppi.

Vega­gerðin kynnti nýverið í drög að til­lögu að mats­á­ætlun um hring­veg­inn um Mýrdal þar sem fjórir val­kostir voru kynntir til sög­unnar. Flestir þeirra liggja sunnar en núver­andi vegur og með­fram eða yfir Dyr­hólaós, um jarð­göng í gegnum Reyn­is­fjall og þaðan með­fram Vík­ur­fjöru að núver­andi þjóð­vegi austan byggð­ar­innar í Vík.

[adspot]

Margir ótt­ast hins vegar umhverf­is­á­hrifin og af þeim 270 athuga­semdum sem þegar hafa borist um drögin er það líf­ríkið í og við Dyr­hólaós sem flestir ótt­ast að spillist með vega­fram­kvæmd­unum. Þá hafa einnig margir lýst áhyggjum af áhrifum veg­ar­ins á upp­lifun ferða­manna af fjör­unum, að því er Erla Björg Aðal­steins­dóttir, umhverfis- og auð­linda­fræð­ingur hjá VSÓ ráð­gjöf, sagði á fund­inum í dag. Dyr­hólaós er á nátt­úru­minja­skrá.

[links]Ýmsar útfærslur á veg­lín­unni um svæðið hafa verið í umræð­unni síð­ustu ár og ára­tugi. Veglínan með­fram sjónum hefur verið á aðal­skipu­lagi Mýr­dals­hrepps frá árinu 2013. Í sam­göngu­á­ætlun, sem sam­þykkt var á síð­asta ári, er gert ráð fyrir fjár­magni til að und­ir­búa verk­efnið en ekki er búið að fjár­magna það eða fram­kvæmd­ina sem slíka, benti Þorbjörg á.

Vega­gerðin hefur ákveðið að vinna að for­hönnun fram­kvæmd­ar­innar sam­hliða mati á umhverf­is­á­hrifum. Sú hönnun byggir á frum­drögum Vega­gerð­ar­innar frá árinu 2008 og gild­andi aðal­skipu­lagi sveit­ar­fé­lags­ins. „Það er alveg ljóst að umfang þess­arar fram­kvæmdar er þannig að hún er háð lögum um mat á umhverf­is­á­hrifum,“ sagði Þorbjörg.

Óvenjulegt svæði sem hefur hátt verndargildi

Náttúra og lands­lag í Mýrdal er óvenju­legt fyrir marga hluta sakir og í umsögn Umhverf­is­stofn­unar um drög að aðal­skipu­lagi Mýr­dals­hrepps á sínum tíma kom fram að leggja ætti áherslu á að vernda Dyr­hólaey, Dyr­hólaós, fjörur við Dyr­hólaey, þar með talið Reyn­is­fjöru, og vot­lendi norðan við Dyr­hólaós sem eina heild, enda um að ræða svæði sem er mik­il­vægt fyrir fugla­líf og njóti auk þess vin­sælda meðal ferða­manna. „Stofn­unin telur að veglagn­ing yfir Dyr­hólaós muni rýra vernd­ar­gildi svæð­is­ins og hafa í för með sér nei­kvæð sjón­ræn áhrif og áhrif á lands­lag,“ sagði í umsögn­inni. Umhverf­is­stofnun sagð­ist ekki mót­fallin lag­fær­ingum á hring­veg­inum um Mýrdal en taldi að skoða yrði „mun betur hvort ekki megi bæta sam­göngur með við­un­andi hætti með lag­fær­ingum á núver­andi vegi“.

Nátt­úru­öflin hafa mótað lands­lagið í for­tíð og nútíð og hvergi á land­inu hefur land­brot verið jafn mikið og framan við Vík­ur­fjöru en um hana mun nýr vegur liggja verði sjáv­ar­leiðin fyrir val­inu. Fram að Kötlu­gosi árið 1918 braut mikið úr fjör­unni en eftir það gekk fjaran fram um allt að 400 metra. Um árið 1970 fór hún hins vegar að ganga til baka og er nú á svip­uðum stað og hún var þegar Katla gaus 1918. Gríð­ar­legt sjáv­ar­flóð og land­brot átti sér svo stað 9. jan­úar 1990 þegar mesta aftaka brim í heila öld gerði við suð­ur­strönd­ina.

Til þess­ara þátta þarf að taka til­lit í hönnun veg­ar­ins sem og umhverf­is­mat­inu. Reisa þyrfti varn­ar­garða með­fram veg­inum í Vík­ur­fjöru og einnig þarf að meta aðra nátt­úruvá, svo sem Kötlugos.

[adspot]

Drög að til­lögu að mats­á­ætlun er fyrsta skrefið í umhverf­is­mats­ferl­inu og eitt af þeim stigum sem almenn­ingur getur átt aðkomu að. Vega­gerðin og VSÓ ráð­gjöf, sem er stofn­un­inni innan handar við umhverf­is­matið, hafa opnað vefsjá þar sem öll gögn um hina fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmd verða birt jafn­óðum og þau liggja fyrir. Þar er einnig hægt að senda inn athuga­semdir og ábend­ingar og hafa vel á þriðja hund­rað slíkar borist nú þegar.

Í til­lögu­drögum Vega­gerð­ar­innar segir að núver­andi vegur um Gatna­brún fari hæst í 119 metra hæð. Á honum eru krappar beygjur og halli veg­ar­ins er 10-12 pró­sent á kafla. Þar getur auk þess verið mis­vinda­samt og hált. Markmið fram­kvæmd­ar­innar eru nokkur, m.a. að fá greið­færan veg allan árs­ins hring, að bæta umferð­ar­ör­yggi, fækka bröttum brekkum og kröppum beygjum og sömu­leiðis fækka veg­teng­ingum.

Vega­gerðin hefur ekki tekið afstöðu til hvaða kostur verður fyrir val­inu heldur er einmitt ferl­inu framundan ætlað að vega og meta þá val­kosti sem til greina koma. Einn þeirra er lag­fær­ing á núver­andi vegi og að færa hann að hluta norður fyrir þétt­býlið í Vík.

Spurð hvaða veg­línu Vega­gerðin vildi sagði Þorbjörg að núna væri verið að „vinna með skipu­lags­lín­una frá Mýr­dals­hreppi“ en að hægt væri „að skoða allt“ á þessu stigi máls­ins. „Það er ekki meit­lað í stein að það séu nákvæm­lega þessir fjórir val­kostir sem fara í til­lög­una [að mats­á­ætlun]. Við getum bætt við val­kostum eða breytt ennþá.“ Þess vegna er við­mið­un­ar­svæði fyrir rann­sóknir haft mjög rúmt svo að svig­rúm sé til að hnika til veg­lín­unni ef nið­ur­staða umhverf­is­mats­ins gefur til­efni til.

Aðal­val­kost­ur­inn er sá kostur sem Vega­gerðin mun sækja um fram­kvæmda­leyfi fyrir, segir Þorbjörg. Hann er val­inn út frá ýmsum þáttum, s.s. kröfum um veg­tækni, stefnu­mörkun sam­göngu­á­ætl­unar, kostn­aði og umhverfis- og sam­fé­lags­sjón­ar­miðum.

Drög að til­lögu að mats­á­ætlun hring­veg­ar­ins um Mýrdal voru aug­lýst í lok des­em­ber og rennur athuga­semda­frestur út þann 1. febr­úar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár