Fólk orðið fyrir skítkasti og einelti og legið hefur við slagsmálum

Deilur um hring­veg­inn í Mýrdal hafa orðið svo heitar að fólk hefur flutt í burtu. Vega­gerðin áformar að færa veg­inn með­fram sjónum og í jarð­göng en „gat­inu í gegnum Reyn­is­fjall“ var að sögn íbúa þröngvað í gegn með „póli­tísku handafli“.

Vík í Mýrdal.
Vík í Mýrdal. Mynd: Af Wikipedia

„Þið trúið því ekki hversu margir hafa sent mér skila­boð um að þeir séu á sama máli og ég en vilji ekki segja sína skoðun opin­ber­lega því að þau séu hrædd við það og vilji ekki eiga á hættu að vera útskúfað.“

Þetta sagði Vigdís Eva Stein­þórs­dóttir, full­trúi Samtaka íbúa og hags­muna­að­ila í Mýrdal, á fundi Land­verndar í dag þar sem fjallað var um áform­aða færslu á hring­veg­inum um Mýrdal. Um 200 manns horfðu á beint streymi af fund­inum og upp­töku af honum má nálg­ast hér.

Vigdís er í hópi þeirra sem vilja bæta og færa til núver­andi veg um Gatna­brún norðan Reyn­is­fjalls í stað þess að leggja nýjan veg við eða yfir Dyr­hólaós og gera jarð­göng í gegnum Reyn­is­fjall – um svæði sem Vigdís segir ein­stak­lega fal­legt og nátt­úruperlu í heild sinni. Fram­kvæmd­irnar myndu því fela í sér „mjög mik­inn fórn­ar­kostnað“.

[adspot]

Vega­gerðin hefur aug­lýst drög að til­lögu að mats­á­ætlun um færslu hring­veg­ar­ins í Mýrdal. Í til­lög­unni eru taldir upp fjórir kostir sem eru til skoð­unar. Þrír þeirra fel­ast í færslu veg­ar­ins að sjónum en einn í upp­bygg­ingu í núver­andi vegstæði með til­færslu að hluta. Veglína með­fram sjónum er þegar á aðal­skipu­lagi Mýr­dals­hrepps og á sam­göngu­á­ætlun sem sam­þykkt var á Alþingi í haust.

„Ég var komin með leið á að heyra talað um þessi göng eins og það væri þegar stað­fest að það ætti að verða af þeim,“ sagði Vigdís, sem er upp­alin í Mýr­dalnum. Þess vegna tók hún sig til fyrr í mán­uð­inum og skrif­aði færslu inn í Facebook-hóp íbúa í þeirri von að koma af stað umræðu. Það gekk eftir og Vigdís segir það hafa glatt sig að finna hversu margir væru á sama máli og hún.

Gangaleiðin hefur tekið völdin

„Umræðan um veg­lín­una hefur verið frekar eins­leit – jafn­vel má segja að það hafi engin umræða verið und­an­farið,“ sagði Vigdís. „Búið er að drepa niður allt tal í sam­fé­lag­inu um að laga núver­andi veg­línu. Það er búið að þagga niður í þeim hópi þannig að ganga­leiðin hefur tekið völdin.“ Hún segir að fólk sem hafi lýst þeirri skoðun sinni að vilja ekki göng hafi orðið fyrir skít­kasti og jafn­vel ein­elti „og svo eru dæmi um það að fólk hafi flutt frá svæð­inu og að ástæð­una megi rekja til þessa máls“.

[links]Í sam­tölum við fólk síð­ustu daga hefur hún kom­ist að því að legið hafi við slags­málum milli fólks áður fyrr er þessi mál bar á góma. „Ég vona að allir séu búnir að læra af þessu svo að fólk geti stigið fram með sínar skoð­anir án ein­hvers ótta.“

Margt sér­kenni­legt kom að hennar sögn upp á yfir­borðið er hún fór að grúska í vega­mál­unum í gegnum tíð­ina „og ég hef kom­ist að því að það hefur ekki verið farið vel með þetta mál“.

Nefndi hún að árið 2010, þegar vinna við nýtt aðal­skipu­lag Mýr­dals­hrepps var í gangi, hafi umhverf­is­ráð­herra hafnað veg­línu með sjónum. Það hafi hins vegar ekki stoppað sveit­ar­stjórn­ina, ekki frekar en allar þær nei­kvæðu umsagnir um málið sem bár­ust, m.a. frá Umhverf­is­stofnun, Skipu­lags­stofnun og Vega­gerð­inni.

Umhverfisstofnun lagðist gegn veglínunni

Árið 2013 halda svo skrítnir hlutir áfram að ger­ast að mati Vigdísar. Tillaga að veglagn­ing­unni er aftur komin á borð umhverf­is­ráð­herra og sá sem emb­ætt­inu gegndi þá gaf grænt ljós, mörgum til mik­illar undr­unar. Þar með hafi verið gengið þvert á umsagnir helstu stofn­ana. Umhverf­is­stofnun hafi til að mynda vikið sér­stak­lega að sér­stöðu Dyr­hóla­óss í sinni umsögn um aðal­skipu­lags­til­lög­una og sagt að svæðið hefði mikið vernd­ar­gildi og lagð­ist stofn­unin gegn veg­lín­unni með sjónum. Í umsögn Vega­gerð­ar­innar var m.a. vitnað í umsögn Umhverf­is­stofn­unar en einnig bent á að ekki væri nægj­an­lega rúmt og öruggt svæði fyrir vega­gerð í Vík­ur­fjöru.

Skipu­lags­stofnun bár­ust á þessum tíma tugir athuga­semda við aðal­skipu­lags­til­lög­una og sagði að af þeim mætti ráða að ekki hafi verið fjallað á opin­skáan og sam­an­burð­ar­hæfan hátt um aðra mögu­leika á legu hring­vegar, þar með talið á end­ur­bætur á núver­andi leið.

Veglínan var sett inn á aðal­skipu­lag þegar það var sam­þykkt árið 2013.

Fjármagn var að sögn Vigdísar tryggt fyrir end­ur­bótum á núver­andi leið en enn og aftur ger­ist und­ar­legir hlutir því árið 2015 fari sveit­ar­stjórn Mýr­dals­hrepps „í bar­áttu“ gegn þeim áformum. Hún hafi fengið þing­menn Suð­ur­lands með sér í lið sem hafi sent inn­an­rík­is­ráð­herra bréf þar sem sagði m.a. að meiri­hluti heima­manna væri á móti end­ur­bótum á veg­inum. Þetta segir Vigdís ekki rétt þar sem vilji heima­manna hafi aldrei verið kann­aður. Hið rétta sé að meiri­hluti sveit­ar­stjórnar hafi lagst gegn áformum um end­ur­bætur.

Miklar fórnir

„Út frá þessu öllu fæ ég þá nið­ur­stöðu að helsti kostur við göng og sjáv­ar­leið­ina er að taka brekk­urnar,“ sagði Vigdís. „En viljum við fórna þessu öllu fyrir þriggja kíló­metra stytt­ingu og að losna við brekku sem mér skilst að sé hægt að koma í um sex pró­sent halla?“

Nú er að mati Vigdísar þörf á því að hugsa til fram­tíðar. Bættra sam­gangna sé þörf – um það séu allir sam­mála. „En það er árið 2021. Við ættum að vera búin að læra að lifa í sátt og sam­lyndi við nátt­úr­una. Og við ættum að minna okkur á að hags­munir nátt­úr­unnar eru hags­munir mann­fólks­ins og því ættum við að geta fundið betri lausnir.“

Vigdís hvetur fólk til að segja sína skoðun á mál­inu. „Ég veit að það getur verið óþægi­legt að gera það opin­ber­lega en stundum þarf maður bara að gera eitt­hvað sem manni finnst óþægi­legt til að tala fyrir því sem maður trúir á.“

[adspot]

Þorbjörg Sæv­ars­dóttir, verk­fræð­ingur hjá Vega­gerð­inni, sagði í sínu erindi á fund­inum að þegar val­kostir veg­ar­ins væru skoð­aðir væri gott að hafa í huga hver mark­mið fram­kvæmd­ar­innar væru: Að til staðar væri greið­fær vegur fyrir alla umferð allan árs­ins hring og að umferð­ar­ör­yggi yrði bætt. Benti hún á að umferð um hring­veg­inn á þessum slóðum hefði auk­ist mikið síð­ustu ár og ætti eftir að aukast enn­frekar heldur en hitt. Enn ætti eftir að útfæra alla val­kosti og yrði for­hönnun fram­kvæmd­ar­innar unnin sam­hliða umhverf­is­mats­ferl­inu sem nú væri farið í gang. Hún sagði Vega­gerð­ina fagna öllum ábend­ingum og umræðum og í vinn­unni framundan yrði haft að leið­ar­ljósi að aðal­val­kost­ur­inn yrði vel útfærður vega­tækni­lega séð, að hann félli að stefnu­mörkun sveit­ar­fé­lags­ins og sam­göngu­á­ætlun en yrði einnig val­inn út frá umhverfis- og sam­fé­lags­sjón­ar­miðum.

Fund­ar­menn beindu fjöl­mörgum spurn­ingum til Þor­bjargar og í einni var bent á að veg­ur­inn um Reyn­is­fjall væri í sömu hæð og veg­ur­inn í gegnum Kór­a­hverfið í Kópavogi og hvað gæti þá rétt­lætt að fara í stóra fram­kvæmd á þessum slóðum á meðan mun alvar­legri tak­mark­anir væru á sam­göngum víða ann­ars staðar.

Þorbjörg benti á að í næstu skrefum umhverf­is­mats­ins og for­hönn­unar fram­kvæmd­ar­innar yrði farið yfir veð­ur­farið á svæð­inu og ólíkir val­kostir bornir saman með það í huga. „Auðvitað ætlum við að vinna þetta eins vel og við getum. Ætlum í ítar­legt mat á umhverf­is­á­hrifum.“ Í því ferli kæmi til greina að bæta við ein­hverjum val­kostum. „En við leggjum ekki fram val­kost nema að hann sé fýsi­legur.“ Einn þeirra val­kosta sem Vega­gerðin hefur sett fram fer þvert yfir Dyr­hólaós í stað þess að liggja á bökkum hans líkt og lagt er til í tveimur öðrum val­kostum. „Veg­tækni­lega séð er sú lína ansi góð,“ sagði Þorbjörg. Spurð hvort farið yrði yfir ósinn á brú sagði hún það lík­legt til að halda vatns­streymi inn á svæðið.

40-50 ára gömul tillaga

Guðni Ein­ars­son, sem einnig er í Íbúa og hags­muna­sam­tökum í Mýrdal, sagði vega­málin í sveit­inni sinni hafa verið sér hjart­leikin til margra ára. Hann er bóndi og land­eig­andi í Þór­is­holti og á því beina aðkomu að mál­inu.

„Hér ræðum við um 40 til 50 ára gamlar hug­myndir sem voru raun­hæfar á þeim tíma en eru það svo sann­ar­lega ekki í dag,“ sagði Guðni á fundi Land­vernar. „Um er að ræða umdeilda fram­kvæmd sem valdið hefur miklum deilum í Mýrdal.“ Sagði hann ákveð­inn hóp manna, sem berj­ist fyrir jarð­ganga­leið­inni, engu skeyta um nátt­úruperlurnar sem yrði fórnað undir nýja veg­inn.

„Og hver er svo þessi hræði­legi fjall­vegur um Reyn­is­fjall?“ spurði Guðni og benti svo á að í fyrsta lagi lægi hann ekki yfir Reyn­is­fjall, eins og oft heyrð­ist í umræð­unni, heldur fyrir fjallið. Ekki væri svo um raun­veru­legan fjall­veg að ræða þar sem hæsti punktur hans væri aðeins í 120 metrum yfir sjáv­ar­máli. Með því að gera end­ur­bætur á Gatna­brún og út úr þorp­inu eins og fram kæmi í val­kosti fjögur,, mætti ná fram öllum for­sendum um greið­færan lág­lendis­veg.

Guðni líkt og Vigdís benti á að þegar veg­línan „með gati í gegnum Reyn­is­fjall“ hafi verið sett á aðal­skipu­lag hafi henni verið „þröngvað í gegn með póli­tísku handafli“ – gegn því sem Umhverf­is­stofnun og Vega­gerðin höfðu ráð­lagt. Það hafi einnig gengið gegn hags­munum land­eig­enda og fjölda íbúa.

„Því fögnum við því að gert verði fag­legt mat á umhverf­is­á­hrifum þess­arar veg­línu sam­an­borið við val­kost fjögur,“ sagði Guðni og bætti við: „En jafn­framt að fag­leg nið­ur­staða verði virt.“

Fornaldarhugsunarháttur

Guðni sagði að í því ástandi sem ríkti í efna­hags­málum í dag ætti það ekki að hafa farið fram­hjá neinum að Mýr­dæl­ingar byggi afkomu sína á ferða­mönnum sem komi þangað til að skoða sig um í fag­urri og síbreyti­legri nátt­úru. „Það lýsir mik­illi skamm­sýni og forn­ald­ar­hugs­un­ar­hætti að heima­menn vilji skaða okkar helstu mjólk­urkú, sem eru nátt­úruperlur okkar Mýr­dæl­inga.“

Um tíu millj­arða króna einka­fram­kvæmd yrði að ræða með fylgj­andi gjald­töku næstu þrjá til fjóra ára­tug­ina – fram­kvæmd sem myndi hafa grafal­var­leg og óaft­ur­kræf umhverf­is­á­hrif. „Ég spyr því: Höfum við leyfi til að fara svona með okkar fal­lega Mýrdal? Ég segi nei. Við verðum að láta í okkur heyra til að koma í veg fyrir þetta stór­slys.“

Tryggvi Felixson, for­maður stjórnar Land­verndar, sagði að sú ákvörðun sem nú lægi fyrir um hring­veg­inn um Mýrdal væri fyrst og fremst póli­tísk, ekki fag­leg. Vega­gerðin hafi sjálf árið 2008 sagt að ekki væri skyn­sam­legt að færa veg­inn að sjónum.

Ferlið væri komið af stað en enn væri um áform að ræða – engin end­an­leg ákvörðun um fram­kvæmd hefði verið tekin. Að mati Land­verndar ætti aðal­kost­ur­inn hjá Vega­gerð­inni að vera að end­ur­bæta núver­andi veg og færa. Hvað nauð­syn fram­kvæmd­ar­innar varðar, að teknu til­liti til nátt­úru­vernd­ar­laga, segir mik­il­vægt að greina mun betur þann far­ar­tálma sem veg­ur­inn er sagður vera og slysa­tíðni á honum.

„Við erum að leggja upp í veg­ferð sem getur verið bæði löng og ströng. En við verðum að taka því, því okkar hlut­verk er að tala fyrir nátt­úru­verð­mætum og umhverfi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár