Vegagerðin setur göng í gegnum Reynisfjall og veg á bökkum Dyrhólaóss á dagskrá

Óstöðug fjaran við Vík kallar á bygg­ingu varn­ar­garðs ef af áformum Vega­gerð­ar­innar um færslu hring­veg­ar­ins verður. Hinn nýi lág­lendis­vegur myndi liggja í næsta nágrenni svæða sem njóta verndar vegna jarð­minja og líf­ríkis.

Yfirlitsmynd af fyrirhuguðu framkvæmdasvæði.
Yfir­lits­mynd af fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmda­svæði. Mynd: Úr drögum að tillögu að matsáætlun

Vega­gerðin áformar að færa hring­veg­inn um Mýrdal þannig að hann liggi á bökkum Dyr­hóla­óss og í gegnum Reyn­is­fjall í jarð­göngum í stað þess að hann liggi um Gatna­brún og þétt­býlið í Vík. Austan Reyn­is­fjalls er fjaran óstöðug og því þyrfti að reisa varn­ar­garð með­fram veg­inum í Vík­ur­fjöru.

Ráðgert er að fram­kvæmdir hefj­ist síðla árs 2022 og taki um þrjú ár.

Í drögum að til­lögu að mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­innar, sem nú hefur verið aug­lýst, kemur fram að með færsl­unni yrði veg­ur­inn greið­fær lág­lendis­vegur. Eina fjall­veg­inum á leið­inni frá Hell­is­heiði til Reyð­ar­fjarðar yrði þar með útrýmt með til­heyr­andi bótum á umferð­ar­ör­yggi. Umferð á hring­veg­inum um Mýrdal hefur meira en fimm­fald­ast frá árinu 2013 sem á sér skýr­ingar í auk­inni ferða­mennsku.

Nýi veg­ur­inn myndi liggja við og að hluta yfir svæði sem njóta verndar. Á þessum slóðum er að finna ein­stakar jarð­minjar og sér­lega fjöl­skrúð­ugt fugla­líf. Þá hefur sjald­gæft dýr í íslenskri nátt­úru, brekku­bobb­inn, búið þar um sig.

[adspot]

Hug­myndir um til­færslu veg­ar­ins ofan af fjall­inu og nær sjónum eru langt í frá nýjar af nál­inni. Í tutt­ugu ára gam­alli jarð­ganga­á­ætlun Vega­gerð­ar­innar segir að á hring­veg­inum á Suð­ur­landsund­ir­lendi sé Reyn­is­fjall „eina veru­lega mis­fellan“. Snjór sé þar „stundum til trafala“ og leiðin upp á fjallið að vest­an­verðu brött. „Oft hefur komið til tals að ein­fald­ast sé að fara í gegnum fjallið í til­tölu­lega stuttum göngum. Eðli­leg­ast væri þá að færa veg­inn í Mýr­dalnum tölu­vert sunnar og fara í gegnum fjallið til móts við Vík og svo áfram með veg­inn sjáv­ar­megin byggð­ar­innar.“

Samkvæmt skýrslu Vega­gerð­ar­innar um hættu­legar beygjur á þjóð­vegi 1 frá árinu 2002 var beygjan í Gatna­brún, þar sem núver­andi hring­vegur liggur upp á Reyn­is­fjall, ein af sex hættu­leg­ustu beygjum á hring­veg­inum á þeim tíma og þar flokkuð sem „stór­hættu­leg“. Þar varð banaslys árið 2016.

Gert er ráð fyrir hinni nýju veg­línu og jarð­göngum í Reyn­is­fjalli á aðal­skipu­lagi Mýr­dals­hrepps. Í Sam­göngu­á­ætlun til árs­ins 2024 er gert ráð fyrir fjár­magni í und­ir­bún­ing vega­gerð­ar­innar og í henni er tekið fram að leitað verði leiða til að fjár­magna fram­kvæmd­irnar í sam­starfi við einka­að­ila.

Umfang fram­kvæmd­ar­innar er slíkt að hún er háð lögum um mat á umhverf­is­á­hrifum. Nýlega birt drög að til­lögu að mats­á­ætlun, sem hér eru til umfjöll­unar, eru fyrsta skrefið í því ferli.

Fjórir valkostir kynntir

Í skýrslu Vega­gerð­ar­innar, sem VSÓ ráð­gjöf vinnur, er fjallað um fjóra val­kosti, auk óbreytts vegar, þ.e. núll­kosts. Í þremur þeirra er um flutn­ing veg­ar­ins að ræða niður að sjó en einn felur í sér lag­fær­ingar á núver­andi veg­línu.

Samkvæmt val­kosti 1, sem fram­kvæmda­lýs­ing til­lög­unnar mið­ast við, myndi nýr vegur liggja sunnan Geita­fjalls að vest­an­verðu, með­fram Dyr­hóla­ósi og í göngum sunn­ar­lega um Reyn­is­fjall. Austan Reyn­is­fjalls færi hann með fram sjó og myndi sam­ein­ast núver­andi vegi í Vík. Jarð­göngin yrðu 1,3-1,5 kíló­metri að lengd og gert er ráð fyrir einni akrein í hvora átt.

Miklar öldur eru við Vík og fjaran ekki stöðug. Byggðir hafa verið tveir svo­kall­aðir sand­fang­arar í Vík­ur­fjöru til að hefta land­brot. Vega­gerðin segir í skýrslu sinni að þörf verði á varn­ar­garði með fram veg­inum austan Reyn­is­fjalls þar sem hann myndi liggja í Vík­ur­fjöru. Rannsókn er hafin á stöð­ug­leika strand­ar­innar og er gert ráð fyrir að hún standi í þrjú ár.

Í flestum þeim val­kostum sem Vega­gerðin leggur fram liggur nýr vegur í Vík milli þétt­býl­is­ins og Vík­ur­fjöru og „mun mögu­lega skerða aðgengi íbúa og ferða­manna á svæð­inu að fjör­unni,“ segir í skýrslu Vega­gerð­ar­innar. Í hönnun vegar er gert ráð fyrir und­ir­göngum og áning­ar­stað við Vík­ur­fjöru.

Vegurinn yrði almennt mjög sýnilegur

Landslag í Mýr­dalnum er sér­stætt og í mats­skýrslu­drög­unum kemur fram að það hafi bæði gildi fyrir ferða­þjón­ustu sem og íbúa svæð­is­ins. Þar segir einnig að búast megi við að nýji veg­ur­inn verði almennt mjög sýni­legur þar sem hann mun liggja um opið lands­lag.

Í Dyr­hóla­hverfi og Reyn­is­hverfi er land­notkun helst skil­greind sem land­bún­að­ar­svæði í aðal­skipu­lagi Mýr­dals­hrepps. Þar fara val­kostir nýs vegar að stórum hluta um bújarðir í einka­eigu og einnig að hluta um svæði á nátt­úru­minja­skrá.

Allur Mýr­dals­hreppur, og þar með allt fram­kvæmda­svæðið, er innan Kötlu jarð­vangs (Geopark). Hlutverk jarð­vanga UNESCO er að stuðla að verndun mik­il­vægra jarð­minja, nátt­úru og menn­ing­ar­arf­leifð og að íbúar jarð­vang­anna til­einki sér ábyrgð á ofan­töldu auk þess sem áhersla er lögð á að efla innra hag­kerfi við­kom­andi svæða.

Á þessum slóðum eru þekkt nátt­úru­undur sem mörg hver njóta verndar, m.a. vegna sér­stæðra jarð­myndana. Loft­sala­hellir, Reyn­is­drangar og Reyn­is­fjall eru innan sama svæð­is­ins á nátt­úru­minja­skrá. Í nágrenni fyr­ir­hug­aðrar fram­kvæmdar eru auk þess svæði sem njóta verndar vegna fugla­lífs og ann­ars líf­ríkis:

  • Dyr­hólaey er frið­lýst sem friðland vegna fugla­lífs og nátt­úru­feg­urðar. Umferð um svæðið er stjórnað til að draga úr áhrifum á varp.
  • Dyr­hólaós er á nátt­úru­minja­skrá vegna sjáv­ar­leirna með sér­stæðum lífs­skil­yrðum. Ósar eru mik­il­vægir fæðu­öfl­un­ar­staðir vað­fugla en þar finn­ast gjarnan leirur sem eru orku­upp­spretta fyrir fugla­líf.
  • Austur af Vík eru Vík­ur­hamrar. Þar er mikil fýla­byggð og telst svæðið vera alþjóð­lega mik­il­væg sjó­fugla­byggð.
  • Í hlíðum Reyn­is­fjalls, Vík­ur­megin, er hvanna­stóð sem er á nátt­úru­vernd­ar­á­ætlun sem búsvæði brekku­bobba, sjald­gæfrar snigla­teg­undar hér á landi.

Í drögum Vega­gerð­ar­innar að mats­á­ætlun fram­kvæmd­ar­innar segir að hún kunni að hafa áhrif á búsvæði og fæðu­öfl­un­ar­svæðum fugla auk óbeinna áhrifa á nærum­hverfi. Unnin verður úttekt á fugla­lífi og gerð grein fyrir nið­ur­stöðum þeirrar rann­sóknar á síð­ari stigum umhverf­is­mats­ferl­is­ins, þ.e. í frum­mats­skýrslu.

Jóhann Óli Hilm­ars­son vann skýrslu um fugla­lífið við Dyr­hólaós árið 2013 og benti sú rann­sókn til að vegstæði með bökkum Dyr­hóla­óss gæti haft var­an­leg og skað­leg áhrif á fugla­líf við ósinn. „Margir fuglar nota túnin og mýr­arnar kringum ósinn til fæðu­öfl­unar og sækja svo á ósinn til hvíldar eða flýja þangað, ef þeir verða fyrir styggð. Í frétt á heima­síðu Fugla­verndar er bent á að skýrslu Jóhanns Óla sé „því miður ekki getið“ í drögum Vega­gerð­ar­innar.

[adspot]

Opnuð hefur verið vefsjá þar sem hægt er að nálg­ast ýmsar upp­lýs­ingar sem tengj­ast umhverf­is­mat­inu og koma á fram­færi ábend­ingum og athuga­semdum. Einnig má senda skrif­legar athuga­semdir eða ábend­ingar um drög að til­lögu að mats­á­ætlun á net­fangið erla@vso.is. Frestur til að senda inn ábend­ingar er til og með 1. febr­úar.

Land­vernd í sam­vinnu við Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Suð­ur­lands (NSS) og heima­menn í Mýr­dals­hreppi, efna til fræðslu­fundar um áform­aðar vega­fram­kvæmdir hring­vegar í Mýrdal í dag, föstu­dag. Fund­ur­inn fer fram á net­inu og hefst klukkan 11.45.

Meðal þeirra sem taka til máls eru Tryggvi Felixson for­maður Land­verndar og Þorbjörg Sæv­ars­dóttir, verk­fræð­ingur hjá Vega­gerð­inni.

Hér er hægt að skoða við­burð­inn á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár