Landrof við Vík yfir 50 metrar eftir veturinn – „Suðvestanáttin étur úr þessari fjöru“

Mikið land­brot hefur orðið í fjör­unni við Vík í Mýrdal frá ára­mótum og stefnir Vega­gerðin á að hækka flóð­varn­ar­garða sem liggja með­fram Vík­ur­þorpi. Hin óstöðuga strönd er meðal þess sem varað hefur verið við verði hring­veg­ur­inn færður niður að fjör­unni.

Hið mikla landbrot sem varð í fjörunni við Vík í Mýrdal í vetur er greinilegt á þessari mynd sem tekin var 17. mars.
Hið mikla land­brot sem varð í fjör­unni við Vík í Mýrdal í vetur er greini­legt á þess­ari mynd sem tekin var 17. mars. Mynd: Þórir Níels Kjartansson/Vegagerðin

Rof í Víkur- og Fagra­dals­fjöru var mikið í vetur vegna storm­viðra. Rofið er sums staðar yfir fimm­tíu metrar og hefur ekki verið meira í langan tíma, segir í skýrslu Jóhann­esar Marteins Jóhann­es­sonar hjá Kötlu­setri sem unnin var fyrir Mýr­dals­hrepp. Sveit­ar­stjórnin vill að hring­veg­ur­inn um Mýrdal verði færður af Gatna­brún og liggi þess í stað með strönd­inni við Dyr­hólaós, í gegnum jarð­göng í Reyn­is­fjalli og með Vík­ur­fjöru sunnan Vík­ur­þorps.

Mat á umhverf­is­á­hrifum á færslu veg­ar­ins er á loka­metr­unum og eru fjórir val­kostir Vega­gerð­ar­innar á svip­uðum slóðum og sveit­ar­stjórnin vill. Aðrir eru á svip­uðum slóðum og núver­andi vegur fer um. Fjaran er óstöðug, líkt og ham­farir vetr­ar­ins sýna, og í umsögn Veð­ur­stofu Íslands við mats­á­ætlun Vega­gerð­ar­innar kom m.a. fram að á kom­andi ára­tugum mætti gera ráð fyrir „veru­legum breyt­ingum“ á strönd­inni við Vík. Rannsókn á stöð­ug­leika strand­ar­innar vegna umhverf­is­mats á færslu hring­veg­ar­ins standa enn yfir en fyrstu drög benda til að verði nið­ur­staðan sú að færa hann niður að fjör­unni líkt og skipu­lags­lína sveit­ar­fé­lags­ins gerir ráð fyrir í aðal­skipu­lagi, þurfi lág­marks­hæð hans að vera 5,7 metrar og hæð varn­ar­garðs 7,5 metrar.

[adspot]

Í nýút­komnum Fram­kvæmda­fréttum Vega­gerð­ar­innar er haft eftir Sigurði Sig­urðs­syni strand­verk­fræð­ingi að ástæður rofs­ins í vetur séu þrá­látar og sterkar suð­vest­an­áttir sem geisað hafi síðan um ára­mótin. „Suð­vest­an­áttin étur úr þess­ari fjöru. Það kemur reyndar efni fyrir Reyn­is­fjall úr fjör­unum fyrir vestan fjallið en rof­mátt­ur­inn er meiri en aðfærslan af efn­inu og þess vegna verður rof,“ útskýrir hann. Ekki hafi mælst hærri öldur á svæð­inu ára­tugum saman. „Ástandið nú er afar ólíkt því sem var síð­asta vetur. Þá voru suð­aust­anáttir ráð­andi og sandur hlóðst að aust­an­verðu á sand­fang­ara. Á tíma­bili héldu heima­menn að sá sandur væri kom­inn til að vera en hann var mjög fljótur að fara strax í haust.“

Samkvæmt skýrsl­unni er mikið rof við flest svæði sem mæld eru og fram kemur að fjaran sé víða orðin stutt og brött. Þar segir enn­fremur að rof af þess­ari stærð­argráðu geti varla talist annað en nátt­úru­ham­farir. Verði veðrið áfram með sama sniði séu líkur á áfram­hald­andi land­broti því ekk­ert verji fjöru­kam­bana lengur fyrir öldum.

[links]Sigurður minnir í við­tal­inu við Fram­kvæmda­fréttir á að ströndin við Vík er ekki stöðugt fyr­ir­bæri heldur mjög breyti­legt. „Þessi fjara var ekki til fyrir Kötlu­gosið 1918 og meira að segja fyrir þann tíma var ströndin líka í rofi.“

Ýmislegt hefur verið gert til að hefta rof við strönd­ina. „Vega­gerðin hefur byggt tvo sand­fang­ara, þann fyrri 2011 og þann seinni 2018. Þeir verja núver­andi byggð fyrir rofi. Annar sand­fang­ar­inn hefur safnað miklum sandi en hinn litlum.“ Sigurður bendir á mik­il­vægi þess að græða upp þann sand sem safn­ast við sand­fang­ar­ana. „Þegar vindur blæs af hafi feykir hann sand­inum sem hefur safn­ast fyrir yfir bæinn. Ég veit að heima­menn hafa verið í sam­bandi við Land­græðsl­una og reyndar hefur verið í gangi upp­græðsla í gegnum árin en nú þarf að gera meira þegar komin er góð fjara milli Reyn­is­fjalls og fyrri sand­fang­ar­ans.“

Á tíunda ára­tug síð­ustu aldar var byggður flóð­varn­ar­garður með­fram öllu Vík­ur­þorpi. Nú er stefnt að því að hækka hann um 50-70 sentí­metra á þeim svæðum sem flætt hefur yfir hann til að minnka hætt­una á flóði á landi. Í vetur fór sjór ítrekað yfir garð­inn og fylgdi honum mik­ill sandur. Með hækkun hans ætti að vera hægt að koma í veg fyrir slíkt.

Mýr­dals­hreppur hefur óskað eftir því við Vega­gerð­ina að byggður verði nýr sand­fang­ari austan við þann nýrri og haft er eftir Sigurði í Fram­kvæmda­fréttum að sú fram­kvæmd verði sett inn á sam­göngu­á­ætlun á næst­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mýrdalshreppur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár