Enn ein námuáformin – Vilja vinna sand við Hjörleifshöfða

Sömu íslensku aðil­arnir og eiga aðkomu að áform­aðri vik­ur­vinnslu á Mýr­dals­sandi hafa kynnt áform um að taka sand úr fjör­unni syðst á Kötlutanga, skola hann og sigta og flytja svo til Þor­láks­hafnar í skip. Vöru­bílar færu full­hlaðnir sex ferðir á dag.

Horft yfir vinnslusvæði Lavaconcept ofan af Fagradalshamri. Myndin er tekin á framkvæmdatíma þegar unnið var að jarðvinnu. Svæðið er rétt við þjóðveg 1 í lúpínubreiðu austan við Vík, Reynisdrangar sjást í fjarska.
Horft yfir vinnslu­svæði Lavaconcept ofan af Fagra­dals­hamri. Myndin er tekin á fram­kvæmda­tíma þegar unnið var að jarð­vinnu. Svæðið er rétt við þjóð­veg 1 í lúpínu­breiðu austan við Vík, Reyn­is­drangar sjást í fjarska. Mynd: Úr matsáætlun LavaConcept Iceland

Vikur. Móberg. Sandur.

Íslensk jarð­efni eiga upp á pall­borðið á mörk­uðum í Evrópu þessi miss­erin ef marka má ásókn í vinnslu þeirra og útflutn­ings­á­form. Fyr­ir­tækið LavaConcept Iceland ehf. hefur kynnt mats­á­ætlun sína um efn­is­töku í Höfða­fjöru, fjör­unni rétt sunnan Hjör­leifs­höfða og bæt­ist þar með í hóp tveggja ann­arra aðila sem áforma mikla námu­vinnslu, ann­ars vegar EP Power Minerals, sem vill vinna vikur skammt frá Hafursey á Mýr­dals­sandi, og hins vegar Eden Mining sem vill vinna móberg úr Litla-Sand­felli í Þrengslum þar til það verður að engu orðið. Öll þessi þrjú verk­efni eiga það sam­eig­in­legt að flytja á jarð­efnin úr landi að mestu og að þeim fylgja flutn­ingar, mis­miklir þó, milli námu og Þor­láks­hafnar.

[adspot]

Reyndar er það svo að verk­efnin tvö við Vík tengj­ast því for­svars­menn LavaConcept Iceland ehf., þeir Victor Berg Guð­munds­son, Páll Tómasson og Jóhann Vignir Hró­bjarts­son, eru eig­endur að jörð­inni Hjör­leifs­höfða. Jörðin er hins vegar í meiri­hluta eigu (90 pró­sent) tékk­neska fyr­ir­tæk­is­ins EP Power Minerals sem hefur uppi áform um vik­ur­námið við Hafursey. Bæði Hafursey og Hjör­leifs­höfði eru innan þess­arar jarðar.

Sand­vinnsla LavaConcept Iceland ehf. yrði þó miklum mun minni í sniðum en áformað vik­ur­nám. Við Hafursey stendur til að vinna hálfa milljón tonna á ári næstu hund­rað árin eða svo og flytja beint til Þor­láks­hafnar. Úr Höfða­fjöru er ætl­unin að vinna 50 þús­und tonn á ári í fimmtán ár. Sandinn, sem kom upp í Kötlu­gos­inu árið 1918, á að flytja til Þýska­lands þar sem hann yrði not­aður til sand­blást­urs. Samn­ingar við kaup­anda liggja þegar fyrir, að því er segir í mats­á­ætl­un­inni, sem verk­fræði­stofan Efla vinnur fyrir LavaConcept Iceland ehf.

Mats­á­ætlun er með fyrstu skrefum sem tekin eru við mat á umhverf­is­á­hrifum fram­kvæmda. Í mats­á­ætlun er gerð grein fyrir hvernig mati á umhverf­is­á­hrifum verður háttað. Allir geta sent inn athuga­semdir við mats­á­ætl­un­ina og það er einnig hægt á síð­ari stigum er umhverf­is­mats­skýrsla er kynnt.

Fólk í Mýr­dals­hreppi hefur lengi haft áform um að nýta sand­inn, sem þar er að finna mjög víða, til atvinnu­upp­bygg­ingar. Á heima­síðu LavaConsept er rakin sagan á bak við þetta til­tekna verk­efni sem rekja má allt aftur til árs­ins 2008. Þá varð lítið úr hug­mynd­unum vegna banka­hruns en tím­inn hefur síð­ustu ár verið nýttur til að rann­saka efnið og koma á við­skipta­sam­böndum.

Skolað og sigtað

Sandinn á að taka í fjöru­borði Höfða­fjöru syðst á Kötlutanga. Hann yrði svo skol­aður og sigtaður á vinnslu­svæði LavaConcept við Uxa­fót­ar­læk við Vík­ur­fjöru, áður en hann yrði fluttur land­leið­ina til Þor­láks­hafnar. Þaðan færi hann svo með skipi til meg­in­lands Evrópu. Sand­ur­inn í fjör­unni er talin henta mjög vel í verk­efnið, það segir fram­kvæmda­að­ili margra ára rann­sóknir hafa sýnt.

„Efnið er tekið úr fjöru­borð­inu og sjór­inn fyllir því fljótt upp í þær holur sem mynd­ast við efn­is­tök­una, en sand­ur­inn með­fram strönd­inni er á stöðugri hreyf­ingu,“ segir í mats­á­ætl­un­inni. Í heild­ina yrði efn­is­töku­svæðið 30 hekt­arar að stærð en ein­ungis yrði unnið á litlum hluta þess í einu.

Hjör­leifs­höfði er rétt við þjóð­veg 1 og vin­sæll við­komu­staður ferða­manna. Efn­istakan yrði í um 2,5-3 kíló­metra fjar­lægð frá honum. Fram­kvæmda­að­ili segir sjald­gæft að ferða­menn fari í fjör­una sjálfa, ekki nema þá helst til að aka utan vega í sand­inum. Almennt sé ekki mikil úti­vist í Höfða­fjöru en þó er þar stundað mót­or­sport og í til­lögu að nýju aðal­skipu­lagi Mýr­dals­hrepps er gert ráð fyrir því að á sand­inum verði svokölluð end­ur­obraut fyrir mót­or­hjól og skotæf­ing­ar­svæði.

Í vinnu­lotum yrði ein grafa/hjóla­skófla á staðnum. Áætlað er að 2-4 vöru­bílar (búkollur) flytji efni úr fjör­unni á vinnslu­svæðið jafn­óðum.

Eftir að efnið er gróf­harpað, skolað og sigtað á vinnslu­svæð­inu yrði því ekið um 160 kíló­metra leið á vöru­bílum í gamla grjót­námu í landi Hrauns, skammt utan Þor­láks­hafnar þar sem það yrði geymt fram að útskipun.

Miðað við að hver vöru­bíll taki um 27,5 tonn af efni í hverri ferð, og efni yrði flutt 300 daga á ári, þá yrðu farnar um sex ferðir á dag með full­fermi frá Vík til Þor­láks­hafnar. „Þessi umferð er mun minni í sniðum en umferð tengd ferða­þjón­ustu og hefð­bundnum vöru­flutn­ingum sem fer sömu leið,“ segir fram­kvæmda­að­ili og telur því ekki sér­staka þörf á að skoða hljóð­vist og loft­gæði í þétt­býli á leið­inni.

Kötlutangi mynd­að­ist í Kötlu­hlaupi árið 1918 en síðan þá hefur hann stöðugt verið að ganga til baka. Hyggst fram­kvæmda­að­ili „nýta sand­inn og gera verð­mæti úr honum áður en hann hverfur end­an­lega,“ segir í mats­á­ætl­un­inni.

En af hverju að taka sand­inn á nákvæm­lega þessum stað – í Höfða­fjöru?

Í skýrsl­unni kemur fram að ekki sé hægt að fara lengra til vest­urs með efn­is­töku af þess­ari stærð­argráðu þó að aðgengi sé betra þar sökum hættu á auknu land­rofi í nágrenni þétt­býl­is­ins í Vík. Sér­fræð­ingar Vega­gerð­ar­innar hafi sagt að ef farið væri a.m.k. 4-5 km austur fyrir Vík þá myndi efn­istaka hafa óveru­leg áhrif á land­rof. Höfða­fjara er um 11 kíló­metra austan við Vík.

[adspot]

Í umhverf­is­mat­inu er reiknað með að allt að 850.000 rúmmetrar af sandi verði fjar­lægðir á 15 árum. „Það er þó ein­ungis brot af jarð­mynd­un­inni, en Kötlu­hlaupið 1918 er eitt og sér talið hafa borið fram allt að 1.200.000.000 m3 af efni,“ segir í mats­á­ætl­un­inni. Berggrunn­ur­inn á Mýr­dals­sandi er á um 10-25 metra dýpi undir sjáv­ar­máli „og því liggur ofan á honum allt að 100 metra þykkt lag af sandi, vikri og öðrum fram­burði“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár