Gera má ráð fyrir „verulegum breytingum“ á ströndinni við Vík

Munnar jarð­ganga í Reyn­is­fjalli yrðu á „alræmdu“ snjó­flóða­svæði og „einu þekktasta“ skriðu­falla­svæði lands­ins. Vegur um ósbakka og fjörur sam­ræm­ist ekki nútíma hug­myndum um umhverf­is­vernd. Kjarninn rýnir í umsagnir um áform­aða færslu þjóð­vegar í Mýrdal.

Yfirlitsmynd af fyrirhuguðu framkvæmdasvæði og þeirri skipulagslínu nýs vegar sem er að finna á aðalskipulagi Mýrdalshrepps.
Yfir­lits­mynd af fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmda­svæði og þeirri skipu­lags­línu nýs vegar sem er að finna á aðal­skipu­lagi Mýr­dals­hrepps. Mynd: Úr drögum að tillögu að matsáætlun

Ganga­munnar áform­aðra jarð­ganga í gegnum Reyn­is­fjall eru ann­ars vegar á einu þekktasta skriðu­falla­svæði lands­ins og hins vegar „á alræmdu“ snjó­flóða­svæði. Til að verj­ast þessu þyrfti ganga­skáli í aust­ur­hlíðum Reyn­is­fjalls að vera á þriðja hund­rað metra langur og hann­aður til að stand­ast stór berg­hlaup, allt að milljón rúmmetrum, sem hafa fallið í gegnum tíð­ina og mælst á jarð­skjálfta­mælum.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í umsögn Veð­ur­stofu Íslands um drög að mats­á­ætlun um færslu hring­veg­ar­ins um Mýrdal.

[links]Haf­rann­sókn­ar­stofnun bendir í sinni umsögn á að í Dyr­hóla­ósi, sem veg­ur­inn mun mögu­lega liggja yfir eða við, og ám og lækjum sem í hann renna, séu ekki aðeins mik­il­væg búsvæði fugla heldur einnig fiska og ann­arra vatna­líf­vera og Fugla­vernd segir veg um svæðið ekki sam­ræm­ast „nútíma hug­myndum um umhverf­is­vernd, stefnu stjórn­valda í lofts­lags­málum og alþjóð­legum skuld­bind­ingum Íslands á sviði nátt­úru­verndar“.

Samkvæmt þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um vega­á­ætlun, sem Land­vernd fjallar um í sínum athuga­semdum, kostar allt að 15 sinnum meira að fara þá leið sem Vega­gerðin leggur til en að lag­færa núver­andi veg um Gatna­brún. Með færslu veg­ar­ins mun hring­veg­ur­inn stytt­ast um þrjá kíló­metra sem rétt­lætir engan veg­inn, að mati íbúa­sam­taka, þann „gríð­ar­lega kostnað og óaft­ur­kræfu umhverf­is­á­hrif sem jarð­göng og þjóð­vegur eftir fjörum, leirum, ósbökkum og vot­lend­is­mýrum hefðu í för með sér“.

[adspot]

Umsagnir og athuga­semdir frá tólf stofn­unum og félaga­sam­tökum bár­ust Vega­gerð­inni við drög að mats­á­ætlun varð­andi fyr­ir­hug­aða færslu hring­veg­ar­ins um Mýrdal. Veglína við sjó­inn og um jarð­göng í Reyn­is­fjalli var sett á aðal­skipu­lag Mýr­dals­hrepps fyrir nokkrum árum. Þetta er nú sú leið sem Vega­gerðin stefnir að þó fjallað sé um aðra val­mögu­leika í drög­unum. Í inn­gangi skýrsl­unnar, sem VSÓ ráð­gjöf vann fyrir stofn­un­ina, segir: „Áformað er að færa hring­veg um Mýrdal. Í stað þess að veg­ur­inn liggi um Gatna­brún og í gegnum þétt­býlið á Vík er stefnt að því að færa veg­inn þannig að hann liggi suður fyrir Geita­fjall, með­fram Dyr­hóla­ósi og í gegnum Reyn­is­fjall í jarð­göngum sunn­ar­lega í fjall­inu. Vegurinn myndi svo liggja sunnan við Vík og tengj­ast núver­andi vegi austan við byggð­ina.“

Fyrsta skrefið í matsferli

Drög að mats­á­ætlun er fyrsti fasi í umhverf­is­mats­ferli fram­kvæmdar og rann frestur til að skila athuga­semdum við þessa til­teknu til­lögu út í febr­úar. G. Pétur Matth­í­as­son, upp­lýs­inga­full­trúi Vega­gerð­ar­innar, segir að nú sé verið að vinna úr umsögnum og ábend­ingum og að brugð­ist verði við þeim í til­lögu að mats­á­ætlun sem sé næsta skrefið í mats­ferl­inu. „Tillagan verður síðan send til Skipu­lags­stofn­unar sem mun aug­lýsa hana og þá gefst öllum aftur kostur á að koma á fram­færi sínum sjón­ar­miðum um hvernig verði staðið að mati á umhverf­is­á­hrifum veg­ar­ins. Skipu­lags­stofnun tekur síðan í fram­hald­inu ákvörðun um mats­á­ætlun sem Vega­gerðin mun vinna eftir við umhverf­is­matið.“

Vel þekkt skriðusvæði

„Á kom­andi ára­tugum má gera ráð fyrir veru­legum breyt­ingum á strönd­inni við Vík vegna land­hæð­ar­breyt­inga, sjáv­ar­stöðu­breyt­inga og ágangs sjávar,“ segir í umsögn Veð­ur­stofu Íslands. Einnig sé vel þekkt að ströndin geti færst til vegna efn­is­burðar ef til Kötlu­hlaups kæmi. Í drögum að mats­á­ætlun komi fram að fjaran sé ekki stöðug og því þörf á varn­ar­garði við veg­inn þar sem hann liggur í Vík­ur­fjöru. „Mik­il­vægt er að betur sé gerð grein fyrir sjó­vörnum með­fram veg­inum og hvernig þær taki til­lit til mögu­legra breyt­inga á sjáv­ar­stöðu og strönd­inni sjálfri.“

Segir stofn­unin vert að minna á við­mið­un­ar­reglur um skipu­lag á lág­svæðum í þessu sam­hengi þar sem fram kemur að gera þurfi ráð fyrir a.m.k. 1 metra hækkun sjáv­ar­stöðu á öld­inni. Einnig sé rétt að minna á að á næstu öldum megi búast við veru­legum sjávar- og land­hæð­ar­breyt­ingum. Tillögum um varn­ar­garð sam­hliða veg­inum þyrftu því að fylgja lýs­ing á því hvernig slíkt mann­virki yrði aðlagað breyttri sjáv­ar­stöðu eða auknum ágangi sjávar.

Ekki minnst á áhrif á vatnalíf Dyrhólaóss

Haf­rann­sókn­ar­stofnun bendir í sinni umsögn á að rann­sóknir hafi sýnt að í Dyr­hóla­ósi séu m.a. mik­il­vægar fæðu­vistir sjó­bleikju og sjó­birt­ings. Að auki er á það bent að ósinn sé á nátt­úru­minja­skrá. Stofn­unin vekur svo athygli á að í drögum Vega­gerð­ar­innar sé „ekki getið nokk­urs mats á áhrifum fram­kvæmda á vatna­líf í Dyr­hóla­ósi eða nær­liggj­andi vatns­föllum“. Einungis sé minnst á fugla­líf og annað líf­ríki. Ekki sé vikið sér­stak­lega að áhrifum á fiska og annað vatna­líf „þó svo að sýndar séu veg­línur sem liggja með fjöru­borði eða þveri Dyr­hólaós. Í drögum að mats­á­ætlun er þess getið að ár og lækir verði ýmist brú­aðir eða ræsum komið fyrir en ekki getið neins mats á líf­rík­is­á­hrifum þeirra verk­þátta“.

Fugla­vernd telur að af þeim val­kostum sem fjallað er um í drög­unum hafi fjórir í för með sér „veru­leg nei­kvæð og var­an­leg umhverf­is­á­hrif“. Segja sam­tökin að aðeins einn kostur, lag­fær­ing á núver­andi vegi, komi til greina.

Samtökin gera athuga­semdir við að í drög­unum sé ítrekað talað um að „í nágrenni fram­kvæmda­svæðis“ sé að finna svæði sem séu bundin vernd­ar­á­kvæðum. Telja þau þetta orða­lag óná­kvæmt og að hluta til rangt „og til þess fallið að slá ryki í augu þeirra sem kynna sér drögin og milda áhrif fram­kvæmd­ar­innar á vernd­ar­svæði sem eru til umfjöll­unar.“ Eðli­legra sé að tala um að vernd­ar­svæði séu „á og í“ nágrenni við fram­kvæmda­svæði.

Árið 2013 vann Jóhann Óli Hilm­ars­son skýrslu um fugla­líf við Dyr­hólaós en hennar er hvergi getið í drögum Vega­gerð­ar­innar. Í henni kom m.a. fram að vernd­ar­gildi svæð­is­ins fari vax­andi og telur Fugla­vernd nið­ur­stöð­urnar geta gefið til­efni til þess að Dyr­hólaós eigi heima á skrá Alþjóða fugla­vernd­ar­sam­tak­anna, BirdLife International, um Alþjóð­lega mik­il­væg fugla­svæði (IBA).

[adspot]

Fugla­vernd rifjar einnig upp að í umsögn Umhverf­is­stofn­unar frá árinu 2006, um þessa fyr­ir­hug­uðu legu hring­veg­ar­ins, er aðal­skipu­lag Mýr­dals­hrepps var til umfjöll­unar, hafi verið lagt til að vernda Dyr­hólaey, Dyr­hólaós, Reyn­is­fjöru og vot­lendi norðan óss­ins sem eina heild þar sem svæðið væri mik­il­vægt fyrir fugla­líf og nyti vin­sælda meðal ferða­manna. Auk þess væri þar að finna vist­kerfi sem leggja bæri áherslu á að vernda sam­kvæmt stefnu­mörkun íslenskra stjórn­valda. Umhverf­is­stofnun taldi að vega­lagn­ing yfir Dyr­hólaós myndi rýra vernd­ar­gildi svæð­is­ins.

Fugla­vernd tekur undir þetta mat og telur að vernd­ar­gildi svæð­is­ins sem heildar hafi auk­ist frá því að Umhverf­is­stofnun gaf umsögn sína. „Fugla­vernd telur því að í stað hug­mynda um að færa hring­veg að Dyr­hóla­ósi væri nær að stækka og sam­eina nátt­úru­vernd­ar­svæði í Mýrdal og styrkja vernd­ar­gildi þeirra með end­ur­heimt vot­lendis í sam­vinnu við heima­menn og land­eig­endur.“

Í athuga­semdum Land­verndar kemur fram að mikil nátt­úru­verð­mæti séu í húfi á hinu fyr­ir­hug­aða fram­kvæmda­svæði er varði alla lands­menn. „Þessum nátt­úru­verð­mætum má ekki spilla nema að mjög brýn nauð­syn kalli. Ekkert slíkt er fyrir hendi í þessu máli.“

Í drögum Vega­gerð­ar­innar að mats­á­ætlun kemur fram að fyrstu athug­anir bendi til þess að lág­marks­hæð veg­ar­ins þurfi að vera í 5,7 metrum yfir sjáv­ar­máli og að varn­ar­garður austan við við Víkurá þurfi að vera í um 7,5 m.y.s. „Þetta yrðu því mikil mann­virki og munu hafa mikil áhrif á upp­lifun og úti­vist á svæð­inu, og þar með lík­lega ferða­þjón­ustu,“ bendir Land­vernd á.

Verðmætt svæði á lands- og heimsvísu

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök Suð­ur­lands (NSS) segja í sinni umsögn að ný veg­lína snerti svæði sem séu mjög verð­mæt frá nátt­úru­fars­legu sjón­ar­miði, bæði á lands- og heims­vísu. Mörg kenni­leiti, svo sem Vík­ur­fjara, Reyn­is­drangar og Dyr­hólaey séu þekkt um allan heim. Svæðið hafi ómet­an­legt nátt­úru­vernd­ar­gildi en ekki síður efna­hags­legt gildi fyrir atvinnu­líf og ferða­þjón­ustu.

Samtökin segja að hug­mynd­irnar um veg­lín­una sem Vega­gerðin hefur nú sett á odd­inn séu 40 ára gamlar. Síðan þá hafi veru­leiki íslenskrar ferða­þjón­ustu og staða ferða­þjón­ustu í hreppnum gjör­breyst. Veglínan muni liggja um eða mjög nálægt nokkrum þekkt­ustu nátt­úruperlum lands­ins og raska þeim. „Vega­fram­kvæmdir af þeim toga eru alger tíma­skekkja í íslensku sam­fé­lagi í dag.“

Vanlíðan vegna sífelldrar varnarstöðu í litlu sveitarfélagi

Þá koma sam­tökin inn á þann sam­fé­lags­lega skaða sem orðið hefur vegna deilna um veg­inn og benda á að félags­menn sem búa í hreppnum eða eru fæddir þar hafi lýst van­líðan sinni og óánægju yfir því „að hafa þurft að vera í sífelldri varn­ar­stöðu gagn­vart þeim öflum sem harð­ast hafa beitt sér fyrir þessum fram­kvæmdum og gert athuga­semdir við það hversu erfitt er að standa í ára­tuga­langri bar­áttu í svo litlu sveit­ar­fé­lagi sem Mýr­dals­hreppur er. Stjórn NSS vill benda á að þess háttar tog­streita fram­kvæmda- og vernd­arafla sé allt of algeng á Íslandi, tog­streita og bar­átta sem oft nær yfir fleiri kyn­slóðir og ára­tugi.“

NSS segir að saga áfor­manna sé „stráð hættu­merkjum“ og rifjar upp að margar stofn­anir, þ.m.t. Umhverf­is­stofnun, Sigl­inga­stofnun og Skipu­lags­stofnun, hafi lagst gegn þess­ari veg­línu á sínum tíma.

Stórum hluta vot­lendis í Mýrdal hefur verið raskað, segir í umsögn Land­græðsl­unnar, og að þær til­lögur að veg­línu sem settar eru fram í drögum Vega­gerð­ar­innar „liggja helst í gegnum og við óraskað vot­lendi í mynni Dyr­hóla­óss.“ Í því sam­bandi telur stofn­unin rétt að árétta að óraskað vot­lendi njóti sér­stakrar verndar sam­kvæmt lögum. „Þá má end­ur­heimta raskað vot­lendi í sam­ræmi við áætl­anir íslenskra stjórn­valda sem mót­væg­is­að­gerð við lofts­lagsvá sem hins vegar er flókn­ari aðgerð verði veg­ur­inn að veru­leika.“

Land­græðslan bendir einnig á að þar sem strand­línan sé á mik­illi hreyf­ingu séu aðstæður þar ein­hverjar þær erf­ið­ustu til land­græðslu á Íslandi. Land­græðsla á sér langa sögu í Vík­ur­fjöru með það að meg­in­mark­miði að draga úr sand­foki og vernda byggð­ina. Mikilli vinnu og fjár­magni hafi verið ráð­stafað til að hefta land­brot og styrkja gróður. „Á allra síð­ustu árum gætir loks árang­urs aðgerð­anna.“ Ráði þar mestu sjó­varn­ar­garðar og starf heima­fólks með stuðn­ingi Land­græðsl­unnar. „Því er mik­il­vægt að gerð verði áætlun um upp­græðslu, frá­gang, og lag­fær­ingar eftir rask á umhverfi vegstæð­is­ins í fjör­unni svo öll sú vinna fari ekki í súg­inn.“

Gæti valdið verulegri röskun á náttúruminjum

Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands segir að þeir val­kostir veg­lín­unnar sem liggi um Dyr­hólaós og næsta nágrenni og í grennd við friðlandið í Dyr­hólaey, fari um fágætt leiru­svæði og leifar af ríku­legu vot­lendi í Mýrdal. Einnig séu alþjóð­lega mik­il­vægar fugla­byggðir í grennd­inni. „Það er því ljóst að um við­kvæmt svæði er að ræða og gætu sumir kost­irnir sem kynntir eru valdið veru­legu raski á nátt­úru­minjum.“

Í drögum að mats­á­ætlun segir að athug­un­ar­svæðið verði „vel rúmt“ svo hægt sé að hnika veg­línu. Nátt­úru­fræði­stofnun bendir á að engu að síður sé til­greint athug­un­ar­svæði ein­ungis látið ná yfir nyrðri hluta Dyr­hóla­óss og aðeins um einn kíló­metra á báðar hendur frá veg­línum þar sem best er og sums staðar sé þetta belti „örmjótt“. Að sögn stofn­un­ar­innar þyrfti athug­un­ar­svæðið að ná yfir allan ósinn. „Þess má geta að rann­sóknir – sem m.a. hafa verið styrktar af Vega­gerð­inni – hafa sýnt fram á áhrif vega (umferðar) á fugla­líf í mörg hund­ruð metra fjar­lægð frá fjöl­förnum vegum.“

Þá gagn­rýnir stofn­unin að svo virð­ist sem ekki eigi að skoða í umhverf­is­mat­inu líf­ríki Dyr­hóla­óss, hugs­an­lega að und­an­skildum fuglum. Einnig bendir hún á að í drög­unum sé ekki fjallað um svæði, 2,9 fer­kíló­metra að stærð, sem stofn­unin lagði árið 2018 til að fari á fram­kvæmda­á­ætlun nátt­úru­minja­skrár.

Um sé að ræða „mýr­lend­is­svæði upp af vest­ur­hluta Dyr­hóla­óss, vest­ur­mörk við brekkurætur Geita­fjalls, frá Loft­sala­helli að fram­ræslu­skurði sunnan Skarp­hóls, þaðan austur um eftir skurðum milli rækt­ar­lands og úthaga, yfir Brands­læk og frá mótum hans og Deildará upp með Deildará til Rauða­lækjar og síðan niður með honum til óss­ins“.

Að mati Nátt­úru­fræði­stofn­unar er hér um vot­lend­is­svæði með hátt vernd­ar­gildi að ræða; „síð­ustu heil­legu leifar af vot­lendi Mýrdals.“

Rannsóknum settar þröngar skorður

Í drög­unum komi fram að rann­sókn á stöð­ug­leika strand­ar­innar við Vík gæti tekið næstu þrjú árin. Öðrum rann­sóknum virð­ist hins vegar ætl­aður mun knapp­ari tími, því gert sé ráð fyrir kynn­ingu á mats­skýrslu haustið 2021, að álit Skipu­lags­stofn­unar liggi fyrir í mars 2022 og að fram­kvæmdir hefj­ist síðla árs 2022. „Þetta setur öllum rann­sóknum mjög þröngar skorður, sér­stak­lega þá fugla­rann­sóknum sem þurfa að ná yfir allar árs­tíðir.“

Samtök íbúa og hags­muna­að­ila um ábyrgar skipu­lags- og sam­göngu­bætur í Mýrdal segja vinnu­brögð við aðal­skipu­lag Mýr­dals­hrepps árið 2013 hafa verið gagn­rýn­is­verð. „Allar helstu stofn­anir sem gáfu umsögn um aðal­skipu­lagið höfðu uppi stór varn­ar­orð gegn þeirri veg­línu sem sett var inn.“

Ferðaþjónusta á öðrum hverjum bæ

Skipu­lags­stofnun hafi synja skipu­lag­inu hvað varð­aði nýja veg­línu, m.a. vegna „ítrek­aðrar og rök­studdrar afstöðu Umhverf­is­stofn­unar“. Þáver­andi umhverf­is­ráð­herra skrif­aði hins vegar undir aðal­skipu­lagið, „þvert á öll rök sinna helstu fag­stofn­ana,“ segja íbúa­sam­tökin.

Þá er bent á að ferða­þjón­usta sé „á nán­ast öðrum hverjum bæ“ í Mýrdal. Einnig hafi mörg sprota­fyr­ir­tæki risið upp kringum ferða­þjón­ust­una í þorp­inu í Vík. Því sé vert að skoða hvaða veg­línu­kostir stuðla að því að ferða­menn stoppi á svæð­inu og hvaða kostir séu lík­legri til að ferða­menn keyri fram hjá.

Katla UNESCO Global Geopark (Katla jarð­vangur) er fyrsti jarð­vangur Íslands, stofn­aður í nóv­em­ber árið 2010. Hann er innan þriggja sveit­ar­fé­laga: Rangár­þings eystra, Mýr­dals­hrepps og Skaft­ár­hrepps.

Í umsögn Kötlu jarð­vangs er bent á að ákveðnar kröfur um verndun og stjórnun UNESCO jarð­vanga séu skil­yrði til að halda slíkri vottun. Ferða­manna­staðir sem eru við­ur­kenndir af UNESCO séu eft­ir­sóttir m.a. vegna vernd­unar, sjálf­bærni, fræðslu og menn­ingar. „Katla jarð­vangur er á einu virkasta eld­fjalla­svæði heims. Þar finn­ast stór­kost­legar lands­lags­heildir, fjöl­breytt líf­ríki, búsvæði alþjóð­legra mik­il­vægra fugla, vot­lend­is­svæði og rík menn­ing.“

Margar rann­sóknir hafi sýnt fram á að þeir ferða­menn sem heim­sækja Ísland og þar með Kötlu jarð­vang, komi sér­stak­lega til að upp­lifa lands­lagið, fjöl­breytni þess og ósnortna nátt­úru. Það sé því „afar mik­il­vægt“ að tryggja að nátt­úran sé í for­grunni við alla ákvarð­ana­töku um skipu­lag og upp­bygg­ingu „að öðrum kosti munu veru­legar og jafn­vel óaft­ur­kræfar afleið­ingar verða, ekki aðeins á nátt­úr­unni heldur einnig á stærstu atvinnu­grein svæð­is­ins; ferða­þjón­ustu.“

Þá segir: „Breyting á hring­veg­inum sem hér er lögð til mun hafa mikil áhrif á mörg jarð­vætti sem og lands­lags­heildir svo ekki sé minnst á vist­kerfin og menn­ing­arminjar. Þetta mun án efa hafa mikil áhrif á ferða­þjón­ustu líka og þar með sam­fé­lagið og aðra inn­viði.“

Margir af mik­il­væg­ustu stöðum jarð­vangs­ins, svokölluð jarð­vætti, er að finna við hugs­an­legt fram­kvæmda­svæði nýrrar veg­línu. Má þar nefna Dyr­hólaey, Dyr­hólaós, Loft­sala­helli, Reyn­is­fjall, Reyn­is­dranga, Reyn­is­fjöru, Vík­ur­fjöru og gamla bæinn í Vík. „Það er því mjög mik­il­vægt fyrir Kötlu jarð­vang, og allt sam­fé­lagið í Mýr­dals­hreppi, að vel verði staðið að málum.“

Í umsögn Kötlu jarð­vangs kemur auk þess fram að áhættan á skemmdum á bæði umhverf­inu sem og ásýnd svæð­is­ins vegna þess­ara fram­kvæmda og stað­setn­ingu nýrrar veg­línu sé mikil, ekki ásætt­an­leg „og alveg á skjön við stefnu Kötlu UNESCO Global Geopark“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vegaframkvæmdir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár