Hóta að loka Reykjanesbrautinni í mótmælaskyni

Hópur fólks hyggst loka Reykja­nes­braut­inni í vik­unni eftir að banaslys varð þar í gær. Þau mót­mæla hæga­gangi stjórn­valda við tvö­földun veg­ar­ins en skiptar skoð­anir eru innan hóps­ins um aðgerðir.

Þrýsti­hóp­ur­inn Stopp, hingað og ekki lengra hyggst grípa til aðgerða í mót­mæla­skyni við hæga­gangi við tvö­földun Reykja­nes­braut­ar­innar. Hópurinn hefur lengi bent á hversu hættu­leg brautin er á þessum kafla og hefur und­an­farin ár þrýst á stjórn­völd að klára tvö­földun Reykja­nes­brautar. Banaslys sem var á Reykja­nes­braut­inni til móts við Valla­hverfi í gær­morgun hefur vakið hörð við­brögð innan hóps­ins.

Guð­bergur Reyn­is­son, annar þeirra sem fer fyrir hópnum, segir að hóp­ur­inn hafi lengi bent á hversu hættu­leg brautin sé á þessum kafla og hætt­una á banaslysum. „Þessi kafli þar sem þetta slys ger­ist er kom­inn á sam­göngu­á­ætlun en við börð­umst fyrir tveimur árum fyrir því að koma Reykja­nes­braut­inni á sam­göngu­á­ætlun og náðum því. Í nýj­ustu sam­göngu­á­ætl­un­inni er kafl­inn frá flug­stöð­inni að Fitjum í Reykja­nesbæ og svo frá Hvassa­hrauni inn í Hafn­ar­fjörð kom­inn aftur til 2033. Við erum búin að vera að benda á það síð­ustu daga að þetta gangi ekki. Það er alltof mikil hætta á banaslysum á þessum hættu­leg­asta kafla lands­ins. Það sann­ast núna í dag,“ segir Guð­bergur í við­tali við Rúv í gær

Hóp­ur­inn skoðar nú að loka Reykja­nes­braut­inni í mót­mæla­skyn­i: „Við erum búin að hóta því. Það virð­ist vera eina leiðin til að ná eyrum ráða­manna að gera eitt­hvað rót­tækt. Fyrir tveimur árum síðan ákváðum við að fara ekki í svona rót­tækar aðgerðir og okkur tókst að ná fram ýmsum umbót­um. Við fengum hring­torg og við náðum að láta loka þar sem Hafna­veg­ur­inn kom inn á Reykja­nes­braut­ina. Við höldum að þetta sé núna eina leiðin til að ná eyrum ráða­manna,“ segir Guð­bergur

Skiptar skoð­anir innan hóps­ins

Ísak Ernir Krist­ins­son, annar stofn­enda þrýsti­hóps­ins Stopp, hingað ekki lengra, kveðst ekki sam­mála Guð­bergi Reyn­is­syni, hinum stofn­enda hóps­ins, um að veg­ur­inn verði lok­aður í mót­mæla­skyn­i.

„Ég trúi ekki á svona aðgerð­ir,“ segir Ísak Ernir í færslu á Facebook-síðu sinni í gær­kvöldi. „Frá því að við Guð­bergur Reyn­is­son stofn­uðum þrýsti­hóp­inn „Stopp, hingað og ekki lengra” hefur hóp­ur­inn náð eft­ir­tekt­ar­verðum árangri í að bæta umferð­ar­ör­yggi á Reykja­nes­braut! Frá upp­hafi hafa verið uppi háværar raddir um að fara í lok­anir á Reykja­nes­braut­inni til þess eins að vekja athygli á mál­staðn­um. Ég hef alla tíð og er enn algjör­lega mót­fall­inn svo­leiðis aðgerðum enda hefur mál­efni Reykja­nes­brautar verið í brennid­epli! Við höfum náð árangri þó fulln­að­ar­sigrinum hafi enn ekki verið náð,“ segir Ísak Ern­ir.

Ísak kveðst ekki sam­mála ummælum Guð­bergs um að rót­tækar aðgerðir séu eina leiðin til að ná til eyra ráða­manna. „Stöndum saman og vinnum málin á eðli­legan máta: í gegnum stjórn­sýsl­una og á sviði stjórn­mál­anna. Sam­göngu­á­ætlun er til umfjöll­unnar á Alþingi og er ekki útséð með að henni verði breytt okkur til hags­bóta! Það skal þó skýrt tekið fram að sam­göngu­á­ætlun Sig­urðar Inga olli mér MIKLUM von­brigð­um! Áætlun með kol­rangri for­gangs­röð­un!“

Varð­stjóri varar við lokun

Guð­brandur Sig­urðs­son, aðal­varð­stjóri umferð­ar­deildar lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, segir að eng­inn hafi leyfi til að loka vegum án leyf­is. Guð­bergur bendir á að tvö­földun Reykja­nes­brautar hafi verið sett á 15 ára áætlun á síð­ustu sam­göngu­á­ætl­un. „Við vegum þetta og metum þegar þar að kem­ur. Ef þetta truflar gang sam­fé­lags­ins og rýrir umferð­ar­ör­yggi grípum við til okkar ráða,“ segir Guð­brandur Sig­urðs­son, en bætir við að auð­vitað sé ævin­lega fyrst reynt að höfða til skyn­semi fólks. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Guð­brandur segir að það sé lýð­ræð­is­legur réttur allra að mót­mæla en það tak­markast við að mót­mælin skapi ekki hættu. Guð­brandur segir að það sé þá sem lög­reglan grípi inn í. Hann seg­ist skilja áhyggjur fólks en betra sé ef fólk fari ekki að hlaupa á sig með svona aðgerð. „Þar að auki er ekki víst að þetta sé vegna vega­kerf­is­ins. Ýmsir aðrir þættir spila inn í svona mál, eins og athygli öku­manns,“ bætir hann við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vegaframkvæmdir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár