Nefndin aflar frekari gagna áður formleg skref vegna skipana án auglýsingar verða stigin

Skipun menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra á nýjum þjóð­minja­verði án þess að starfið væri aug­lýst hefur vakið hörð við­brögð. Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd skoðar hvort hún ráð­ist í frum­kvæð­is­at­hugun á skipun emb­ætt­is­manna án aug­lýs­ingar.

Þórrunn Sveinbjarnardóttir er formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Þórrunn Svein­bjarn­ar­dóttir er for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fjall­aði á fundi sínum í morgun um skipun emb­ætt­is­manna í störf án þess að þau væru aug­lýst laus til umsóknar. Umfjöll­unin var á almennum nótum, en ekki sér­tækt vegna ákveð­innar skip­unar en skipun nýs þjóð­minja­varðar í síð­asta mán­uði hefur vakið hörð við­brögð.

[links]Þórunn Svein­bjarn­ar­dóttir, for­maður nefnd­ar­innar, segir í sam­tali við Kjarnann að ákveðið hafi verið að hefja frek­ari gagna­öflun og ræða svo næstu skref á fundi nefnd­ar­innar eftir viku. Á meðal þess sem liggur fyrir að hægt sé að gera sé að stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd hefji frum­kvæð­is­at­hugun á skip­unum sem átt hafa sér stað án þess að störf eða emb­ætti hafi verið aug­lýst laus til umsóknar. Þórunn segir að ákvörðun um næstu form­legu skref gæti verið tekin á næsta fundi nefnd­ar­innar.

Til þess að hefja frum­kvæð­is­at­hugun þurfa þrír nefnd­ar­menn að vera sam­mála um að gera það, en níu þing­menn sitja í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans eru fleiri en þrír nefnd­ar­menn til­búnir í að ráð­ast í slíka athugun, verði það lagt til.

[adspot]Hver þau skref verða veltur á ýmsu. Til dæmis hvað Umboðs­maður Alþingis ákveður að gera en Félag forn­leifa­fræð­inga sendi ábend­ingu til hans vegna skip­unar þjóð­minja­varðar fyrir helgi. Í þeirri ábend­ingu sagði meðal ann­ars að stjórn félags­ins teldi að „ráð­herra menn­ingar- og við­skipta hafi sýnt af sér óvand­aða stjórn­sýslu­hætti. Við skipun stórra emb­ætta eins og for­stöðu­manns rík­is­stofn­unar er að mati stjórnar nauð­syn­legt að gæta þess að allir hafi jafnan mögu­leika á fá verð­leika sína metna og að koma sínum sjón­ar­miðum á fram­færi. Þannig er líka tryggt að aðil­inn sem ráð­inn er í starf sé raun­veru­lega sá hæf­asti sem völ er á.“

Skipan Hörpu vakti hörð viðbrögð

Sú atburða­rás sem ýtti þessum bolta af stað var ákvörðun Lilju D. Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, að skipa Hörpu Þórs­dóttur í emb­ætti þjóð­minja­varðar án þess að það væri aug­lýst laust til umsóknar.

Félag forn­leifa­fræð­inga og stjórn Félags íslenskra safna og safn­manna (FÍSOS) sendu nær sam­stundis frá sér harð­orðar yfir­lýs­ingar vegna ákvörð­unar Lilju um að skipa Hörpu í emb­ættið.

Síðar sendi Starfs­manna­fé­lag Þjóð­minja­safns­ins frá sér yfir­lýs­ingu þar sem það tók undir gagn­rýn­ina á verk­lagið og sagði það lýsa „ metn­að­ar­leysi ráðu­neyt­is­ins í garð Þjóð­minja­safns Íslands, ber vott um ógagn­sæja stjórn­sýslu og kastar rýrð á mála­flokk­inn í heild.“

Þá sagði Frið­rik Jóns­son, for­maður BHM, við RÚV í sam­hengi við þessa skipun að tryggja þyrfti heil­indi og traust til stjórn­sýsl­unnar og ræða heim­ild ráða­manna til að færa emb­ætt­is­menn til í starf­i.

„Ég hefði nú getað gert þetta öðruvísi“

Lilja ræddi þessa skipan við Kjarnann fyrir helgi og sagði meðal ann­ars að almennt væri hún fylgj­andi því að öll störf væru aug­lýst. Það væri hins vegar heim­ild í lögum um opin­bera starfs­menn sem gerði ráð­herra kleift að færa þá til í starfi. Í til­felli Hörpu taldi Lilja að það gæti verið far­sælt að taka safn­stjóra úr einu höf­uð­safni – en Harpa var áður yfir Lista­safni Íslands – og færa yfir í það næsta.

Hún sagði hins vegar að við­brögðin hafi verið slík við skipan þjóð­minja­varðar „að maður hugsar um það hvort það sé skyn­sam­legt að nýta þessa heim­ild yfir höf­uð. [...] Ef það er þannig að umræða í kringum flutn­ing­inn sætir gagn­rýni og sé þá kannski til þess fallin að það geti verið ákveðin áskorun fyrir við­kom­andi for­stöðu­mann að hefja störf, að þá er ég bara eins og allir aðrir og hugsa: Ég hefði nú getað gert þetta öðru­vísi.“

Meg­in­reglan í lögum að aug­lýsa skuli laus emb­ætti

Allt frá árinu 1954, þegar lög um rétt­indi og skyldur starfs­­­manna rík­­­is­ins voru sett, hefur það verið meg­in­regla í lögum á Íslandi að aug­lýsa skuli opin­ber­­­lega laus emb­ætti og störf hjá rík­­­in­u.

[adspot]Þegar lögin voru end­­­ur­­­skoðuð og ný lög sett árið 1996 voru áfram ákvæði um aug­lýs­inga­­­skyld­una. Í þessum reglum er það meg­in­reglan að aug­lýsa skuli laus störf en þau til­­­vik þegar ekki er skylt að aug­lýsa störf eru afmörkuð sér­­­stak­­­lega. Þessar und­an­þágur frá aug­lýs­inga­­­skyldu eiga við um störf sem aðeins eiga að standa í tvo mán­uði eða skem­­­ur, störf sem eru tíma­bundin vegna sér­­­stakra aðstæðna, svo sem vegna orlofs, veik­inda, fæð­ing­­­ar- og for­eldra­or­lofs, náms­­­leyf­­­is, leyfis til starfa á vegum alþjóða­­­stofn­ana og því um líkt, enda sé ráðn­­­ing­unni ekki ætlað að standa lengur en 12 mán­uði sam­­­fellt.

Þá eru und­an­þágur frá regl­unum sem fela í sér að störf sem hafa verið aug­lýst innan síð­­­­­ustu sex mán­aða ef þess er getið í aug­lýs­ing­unni að umsóknin geti gilt í sex mán­uði frá birt­ingu henn­­­ar. Að end­ingu er að finna und­an­þágur um störf vegna tíma­bund­inna vinn­u­­­mark­aðsúr­ræða á vegum stjórn­­­­­valda og aðila vinn­u­­­mark­að­­­ar­ins og hluta­­­störf fyrir ein­stak­l­inga með skerta starfs­­­get­u.

Engar fleiri und­an­þágur er að finna í lög­­­un­­­um.

Meiri­hluti ráðu­­neyt­is­­stjóra skip­aðir án aug­lýs­ingar

Það hefur hins vegar færst veru­­lega í vöxt hér­­­lendis að ráð­herrar skipi í emb­ætti án þess að þau séu aug­lýst. Það leiddi meðal ann­­ars til þess að umboðs­­maður Alþingis tók upp frum­­kvæð­is­at­hugun á mál­inu. Hann gafst upp á þeirri athugun í fyrra­vor.

Í bréfi þar sem þá settur umboðs­­maður útskýrði ástæðu þessa kom fram að ekki væri for­svar­an­­legt að nýta tak­­mark­aðan mann­afla emb­ætt­is­ins til að ljúka frum­­kvæð­is­at­hug­un­inni í ljósi þess að ráða­­menn færu hvort eð er ekk­ert eftir skýrum reglum og vilja lög­­gjafans í þessum mál­u­m.

Kjarn­inn greindi frá því í frétta­­skýr­ingu í síð­­asta mán­uði að sjö af tólf starf­andi ráðu­­neyt­is­­stjórum hefðu verið skip­aðir án þess að emb­ættin hafi verið aug­lýst laus til umsókn­­ar. Á yfir­­stand­andi kjör­­tíma­bili hafa þrír af þeim fjórum ráðu­­neyt­is­­stjórum sem hafa verið skip­aðir fengið þær stöður án þess að þær hafi verið aug­lýstar lausar til umsókn­­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár