Hörð gagnrýni á Lilju fyrir að skipa þjóðminjavörð án auglýsingar

Það hefur verið meg­in­regla í íslenskum lögum í tæp 70 ár að aug­lýsa laus emb­ætti hja rík­inu laus til umsóknar. Það er æ sjaldnar gert. Ferlið í kringum skipan nýs þjóð­minja­varðar er sagt „óvandað, ógegn­sætt og metn­að­ar­laust“.

Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, skip­aði Hörpu Þórs­dóttur til að gegna emb­ætti þjóð­minja­varðar síð­ast­lið­inn fimmtu­dag.

Í til­kynn­ingu var tekið fram að Harpa, sem er dóttir Þórs Magn­ús­sonar sem var þjóð­minja­vörður frá 1968 til 2000, hafi starfað við íslensk og erlend söfn í rúm 20 ár og sem safn­stjóri Lista­safns Íslands stjórnað einu af þremur höf­uð­söfnum íslenska rík­is­ins. „Með til­liti til far­sællar stjórn­un­ar­reynslu, víð­tækra starfa innan safna­geirans og góðrar þekk­ingar á mál­efnum Þjóð­minja­safns­ins, hefur menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra ákveðið að nýta heim­ild í lögum nr. 70/1996 um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins til að flytja emb­ætt­is­mann milli stofn­ana og skipa Hörpu þjóð­minja­vörð Þjóð­minja­safns Íslands. Mun reynsla hennar nýt­ast til að taka við Þjóð­minja­safni Íslands, höf­uð­safni íslenska rík­is­ins á sviði menn­ing­arminja.“

Embættið var því ekki aug­lýst líkt og lög gera almennt ráð fyrir að sé gert.

„Íslensk menning á nú betur skilið en eitthvað svona embættisleikja rugl“

Á laug­ar­dag sendi Félag forn­leifa­fræð­inga bréf til ráð­herra vegna skipan nýs þjóð­minja­varðar. Í tölvu­pósti sem sendur á fjöl­miðla vegna þessa sagði: „Enn og aftur er þessi rík­is­stjórn að ráða fólk í stór og mikil emb­ætti án aug­lýs­ingar. Nú var það staða þjóð­minja­varðar. Stjórn Félags forn­leifa­fræð­inga sendi í dag bréf til ráð­herra og lýsti yfir miklum von­brigðum með ráðn­ing­ar­ferlið; íslensk menn­ing á nú betur skilið en eitt­hvað svona emb­ætt­is­leikja rugl.“

[adspot]Í bréf­inu segir að ferlið í kringum skipun nýs þjóð­minja­varðar hafi verði óvandað, ógegn­sætt og metn­að­ar­laust. „Rétt er að árétta að gagn­rýnin snýr ekki að þeirri per­sónu sem var skipuð heldur að því að staðan hafi ekki verið aug­lýst til umsóknar. Þjóð­minja­safn Íslands er eitt höf­uð­safna þjóð­ar­innar og mið­stöð íslenskrar menn­ingar. Það á að gegna lyk­il­hlut­verki í metn­að­ar­fullu safna- og rann­sókn­ar­starfi en í ljósi þeirra starfs­hátta sem voru hafðir við skipun nýs þjóð­minja­varðar má efast um metnað núver­andi rík­is­stjórnar fyrir hönd þess. Stjórn Félags forn­leifa­fræð­inga þykir sárt að ekki var betur staðið að ráðn­ingu þjóð­minja­varðar. Að okkar mati á íslensk menn­ing betra skilið en að vera gert að emb­ætt­is­manna­leik.“

Grefur undan trausti á stjórnsýsluna

Á sunnu­dags­kvöld barst svo yfir­lýs­ing frá stjórn Félags íslenskra safna og safn­manna (FÍSOS). Þar gerir hún alvar­legar athuga­semdir við skipun nýs þjóð­minja­varðar og segir að ráðn­ingar sem þessar, með til­færslu á milli emb­ætta, séu ógagn­sæjar og ófag­legar. „Slík vinnu­brögð grafa undan trausti á stjórn­sýsl­una og emb­ætt­is­manna­kerfið.“

Stjórnin segir Þjóð­minja­safn Íslands vera höf­uð­safn á sviði þjóð­minja­vörslu og bero sem slíkt höf­uð­á­byrgð á að varð­veita, rann­saka og miðla stórum hluta íslensks menn­ing­ar­arfs. Með því að skipa í stöðu þjóð­minja­varðar án aug­lýs­ingar er gert lítið úr mik­il­vægi safns­ins, fag­legri starf­semi þess og starfs­fólki. Skipun sem þessi grefur undan fag­legu umhverfi safna og lýsir metn­að­ar­leysi stjórn­sýsl­unnar í garð Þjóð­minja­safns­ins og mála­flokks­ins í heild. Stjórn FÍSOS leggur áherslu á að athuga­semdir þessar bein­ast að engu leyti að nýskip­uðum þjóð­minja­verði, heldur að ógagn­sæju og órétt­látu ferli skip­un­ar­innar.“

Meginreglan í lögum að auglýsa skuli laus embætti

Allt frá árinu 1954, þegar lög um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins voru sett, hefur það verið meg­in­regla í lögum á Íslandi að aug­lýsa skuli opin­ber­lega laus emb­ætti og störf hjá rík­in­u.

[links]Þegar lögin voru end­ur­skoðuð og ný lög sett árið 1996 voru áfram ákvæði um aug­lýs­inga­skyld­una. Í þessum reglum er það meg­in­reglan að aug­lýsa skuli laus störf en þau til­vik þegar ekki er skylt að aug­lýsa störf eru afmörkuð sér­stak­lega. Þessar und­an­þágur frá aug­lýs­inga­skyldu eiga við um störf sem aðeins eiga að standa í tvo mán­uði eða skem­ur, störf sem eru tíma­bundin vegna sér­stakra aðstæðna, svo sem vegna orlofs, veik­inda, fæð­ing­ar- og for­eldra­or­lofs, náms­leyf­is, leyfis til starfa á vegum alþjóða­stofn­ana og því um líkt, enda sé ráðn­ing­unni ekki ætlað að standa lengur en 12 mán­uði sam­fellt.

Þá eru und­an­þágur frá regl­unum sem fela í sér að störf sem hafa verið aug­lýst innan síð­ustu sex mán­aða ef þess er getið í aug­lýs­ing­unni að umsóknin geti gilt í sex mán­uði frá birt­ingu henn­ar. Að end­ingu er að finna und­an­þágur um störf vegna tíma­bund­inna vinnu­mark­aðsúr­ræða á vegum stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins og hluta­störf fyrir ein­stak­linga með skerta starfs­get­u.

Engar fleiri und­an­þágur er að finna í lög­un­um.

Meirihluti ráðuneytisstjóra skipaðir án auglýsingar

Það hefur hins vegar færst veru­lega í vöxt hér­lendis að ráð­herrar skipi í emb­ætti án þess að þau séu aug­lýst. Það leiddi meðal ann­ars til þess að umboðs­maður Alþingis tók upp frum­kvæð­is­at­hugun á mál­inu. Hann gafst upp á þeirri athugun í fyrra­vor.

Í bréfi þar sem þá settur umboðs­maður útskýrði ástæðu þessa kom fram að ekki væri for­svar­an­legt að nýta tak­mark­aðan mann­afla emb­ætt­is­ins til að ljúka frum­kvæð­is­at­hug­un­inni í ljósi þess að ráða­menn færu hvort eð er ekk­ert eftir skýrum reglum og vilja lög­gjafans í þessum málum.

Kjarninn greindi frá því í frétta­skýr­ingu í síð­ustu viku að sjö af tólf starf­andi ráðu­neyt­is­stjórum hefðu verið skip­aðir án þess að emb­ættin hafi verið aug­lýst laus til umsóknar. Á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili hafa þrír af þeim fjórum ráðu­neyt­is­stjórum sem hafa verið skip­aðir fengið þær stöður án þess að þær hafi verið aug­lýstar lausar til umsóknar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár