Félag fornleifafræðinga vill að Lilja færi þjóðminjavörð aftur í fyrra starf

Því var haldið fram á for­síðu Frétta­blaðs­ins í morgun að Lilja D. Alfreðs­dóttir harm­aði skipan nýs þjóð­minja­varðar í síð­asta mán­uði. Ráð­herr­ann hefur nú hafnað því að harma skip­an­ina og segir að það standi ekki til að draga hana til baka.

Lilja D. Alfreðsdóttir skipaði Hörpu Þórsdóttur í embætti þjóðminjavarðar 25. ágúst.
Lilja D. Alfreðs­dóttir skip­aði Hörpu Þórs­dóttur í emb­ætti þjóð­minja­varðar 25. ágúst. Mynd: Stjórnarráðið

Félag forn­leifa­fræð­inga vill að Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, færi Hörpu Þórs­dóttur, fyrr­ver­andi safn­stjóra Lista­safns Íslands sem skipuð var þjóð­minja­vörður fyrir rúmum mán­uði síðan, aftur í sitt fyrra starf. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu sem félagið sendi frá sér í dag.

[links]Skipan Hörpu í emb­ætti þjóð­minja­varðar vakti hörð við­brögð þar sem emb­ættið var ekki aug­lýst laust til umsóknar. Þess í stað nýtti ráð­herra sér heim­ild í lögum sem gerir henni kleift að færa emb­ætt­is­menn til í starfi. Í til­felli Hörpu taldi Lilja að það væri far­sælt að taka safn­stjóra úr einu höf­uð­safni og færa yfir í það næsta.

Félag forn­­leifa­fræð­inga og stjórn Félags íslenskra safna og safn­­manna (FÍSOS) sendu nær sam­stundis frá sér harð­orðar yfir­­lýs­ingar vegna ákvörð­unar Lilju um að skipa Hörpu í emb­ætt­ið.

Síðar sendi Starfs­manna­fé­lag Þjóð­minja­safns­ins frá sér yfir­lýs­ingu þar sem það tók undir gagn­rýn­ina á verk­lagið og sagði það lýsa „metn­að­­ar­­leysi ráðu­­neyt­is­ins í garð Þjóð­minja­safns Íslands, ber vott um ógagn­­sæja stjórn­­­sýslu og kastar rýrð á mála­­flokk­inn í heild.“

Þá sagði Frið­­rik Jóns­­son, for­­maður BHM, við RÚV í sam­hengi við þessa skipun að tryggja þyrfti heil­indi og traust til stjórn­­­sýsl­unnar og ræða heim­ild ráða­­manna til að færa emb­ætt­is­­menn til í starf­i.

Segist ekki harma skipan Hörpu

Frétta­blaðið greindi frá því á for­síðu sinni í morgun að Lilja harm­aði skipan þjóð­minja­varðar. Þar var haft eftir Ólöfu Gerði Sig­fús­dóttir, for­manni Íslands­deildar alþjóða­ráðs safna, að Lilja hefði harmað að hafa fært Hörpu til í starfi með þeim hætti sem hún gerði. Lilja sagði hins vegar við Vísi eftir rík­is­stjórn­ar­fund í dag að hún harmi ekki skipan Hörpu í stöðu þjóð­minja­varðar. Hins vegar hafi mátt aug­lýsa stöð­una til að halda sátt um skip­an­ina. Lilja sagði enn fremur að það stæði ekki til að draga skip­un­ina til baka.

[adspot]Félag forn­leifa­fræð­inga fund­aði ásamt fleiri fag­fé­lögum með Lilju um stöðu Þjóð­minja­safns­ins í gær. Í yfir­lýs­ingu félags­ins segir að stjórn þess hafi von­ast eftir heið­ar­leika og hug­rekki að hálfu ráð­herra. „Okkur þykir sárt að þrátt fyrir að harma vinnu­brögð sín hygg­ist ráð­herra ekki leið­rétta þau. Dap­ur­legt er að enn hafi ekki komið fram nein mál­efna­leg eða fag­leg rök fyrir því að skipa þjóð­minja­vörð með þeim hætti sem gert var. Ekkert nýtt kom fram í svörum ráðu­neytis hvað það varðar á fund­inum; enn er skip­an­inni lýst eins og um til­færslu hvers ann­ars emb­ætt­is­manns væri að ræða – ekki for­stöðu­manns eins höf­uð­safna íslenskrar menn­ingar.“

Á fund­inum var stofn­aður sam­ráðs­hópur ráðu­neyt­is­ins og umræddum fag­fé­lögum sem á að hitt­ast aftur strax í næstu viku. Þar mun Félag forn­leifa­fræð­inga leggja til að nýlega skip­aður þjóð­minja­vörður verði færður aftur í sitt fyrra starf. „Önnur lausn sem félagið mun leggja til er að skip­aður verði ráð­gjafa­hópur fag­fólks sem gengið var fram­hjá við skip­an­ina til þess að ræða fram­tíð­ar­stefnu safns­ins og hlut­verk þjóð­minja­varðar.“

Á dagskrá stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á morgun

Lilja ræddi þessa skipan við Kjarn­ann um síð­ustu mán­aða­mót og sagði þá meðal ann­ars að almennt væri hún fylgj­andi því að öll störf væru aug­lýst. Það væri hins vegar heim­ild í lögum um opin­bera starfs­menn sem gerði ráð­herra kleift að færa þá til í starfi. Í til­felli Hörpu taldi Lilja að það gæti verið far­sælt að taka safn­stjóra úr einu höf­uð­safni og færa yfir í það næsta.

Hún sagði hins vegar að við­brögðin hafi verið slík við skipan þjóð­minja­varðar „að maður hugsar um það hvort það sé skyn­­sam­­legt að nýta þessa heim­ild yfir höf­uð. [...] Ef það er þannig að umræða í kringum flutn­ing­inn sætir gagn­rýni og sé þá kannski til þess fallin að það geti verið ákveðin áskorun fyrir við­kom­andi for­­stöð­u­­mann að hefja störf, að þá er ég bara eins og allir aðrir og hugsa: Ég hefði nú getað gert þetta öðru­­vísi.“

Stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd fjall­aði á fundi sínum þann 5. sept­em­ber um skipun emb­ætt­is­manna í störf án þess að þau væru aug­lýst laus til umsókn­ar. Umfjöll­unin var á almennum nót­um, en ekki sér­tækt vegna ákveð­innar skip­unar en skipun nýs þjóð­minja­varðar í síð­asta mán­uði hefur vakið hörð við­brögð.

Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir, for­maður nefnd­ar­inn­ar, sagði í sam­tali við Kjarn­ann eftir fund­inn að ákveðið hafi verið að hefja frek­ari gagna­öflun og ræða svo næstu skref. Á meðal þess sem liggur fyrir að hægt sé að gera sé að stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd hefji frum­kvæð­is­at­hugun á skip­unum sem átt hafa sér stað án þess að störf eða emb­ætti hafi verið aug­lýst laus til umsókn­ar.

Til þess að hefja frum­kvæð­is­at­hugun þurfa þrír nefnd­ar­menn að vera sam­mála um að gera það, en níu þing­menn sitja í stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd.

Skipun emb­ætt­is­manna án aug­lýs­ingar er á dag­skrá fundar stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar sem fer fram á morgun, 28. sept­em­ber. Heim­ildir Kjarnans herma að nefndin sé enn að bíða eftir gögnum frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu um skip­anir emb­ætt­is­manna án aug­lýs­ingar.

Meg­in­reglan í lögum að aug­lýsa skuli laus emb­ætti

Allt frá árinu 1954, þegar lög um rétt­indi og skyldur starfs­­­­manna rík­­­­is­ins voru sett, hefur það verið meg­in­regla í lögum á Íslandi að aug­lýsa skuli opin­ber­­­­lega laus emb­ætti og störf hjá rík­­­­in­u.

Þegar lögin voru end­­­­ur­­­­skoðuð og ný lög sett árið 1996 voru áfram ákvæði um aug­lýs­inga­­­­skyld­una. Í þessum reglum er það meg­in­reglan að aug­lýsa skuli laus störf en þau til­­­­vik þegar ekki er skylt að aug­lýsa störf eru afmörkuð sér­­­­stak­­­­lega. Þessar und­an­þágur frá aug­lýs­inga­­­­skyldu eiga við um störf sem aðeins eiga að standa í tvo mán­uði eða skem­­­­ur, störf sem eru tíma­bundin vegna sér­­­­stakra aðstæðna, svo sem vegna orlofs, veik­inda, fæð­ing­­­­ar- og for­eldra­or­lofs, náms­­­­leyf­­­­is, leyfis til starfa á vegum alþjóða­­­­stofn­ana og því um líkt, enda sé ráðn­­­­ing­unni ekki ætlað að standa lengur en 12 mán­uði sam­­­­fellt.

Þá eru und­an­þágur frá regl­unum sem fela í sér að störf sem hafa verið aug­lýst innan síð­­­­­­­ustu sex mán­aða ef þess er getið í aug­lýs­ing­unni að umsóknin geti gilt í sex mán­uði frá birt­ingu henn­­­­ar. Að end­ingu er að finna und­an­þágur um störf vegna tíma­bund­inna vinn­u­­­­mark­aðsúr­ræða á vegum stjórn­­­­­­­valda og aðila vinn­u­­­­mark­að­­­­ar­ins og hluta­­­­störf fyrir ein­stak­l­inga með skerta starfs­­­­get­u.

Engar fleiri und­an­þágur er að finna í lög­­­­un­­­­um.

Meiri­hluti ráðu­­­neyt­is­­­stjóra skip­aðir án aug­lýs­ingar

Það hefur hins vegar færst veru­­­lega í vöxt hér­­­­­lendis að ráð­herrar skipi í emb­ætti án þess að þau séu aug­lýst. Það leiddi meðal ann­­­ars til þess að umboðs­­­maður Alþingis tók upp frum­­­kvæð­is­at­hugun á mál­inu. Hann gafst upp á þeirri athugun í fyrra­vor.

Í bréfi þar sem þá settur umboðs­­­maður útskýrði ástæðu þessa kom fram að ekki væri for­svar­an­­­legt að nýta tak­­­mark­aðan mann­afla emb­ætt­is­ins til að ljúka frum­­­kvæð­is­at­hug­un­inni í ljósi þess að ráða­­­menn færu hvort eð er ekk­ert eftir skýrum reglum og vilja lög­­­gjafans í þessum mál­u­m.

Kjarn­inn greindi frá því í frétta­­­skýr­ingu í síð­­­asta mán­uði að sjö af tólf starf­andi ráðu­­­neyt­is­­­stjórum hefðu verið skip­aðir án þess að emb­ættin hafi verið aug­lýst laus til umsókn­­­ar. Á yfir­­­stand­andi kjör­­­tíma­bili hafa þrír af þeim fjórum ráðu­­­neyt­is­­­stjórum sem hafa verið skip­aðir fengið þær stöður án þess að þær hafi verið aug­lýstar lausar til umsókn­­­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár