Starfsmenn Þjóðminjasafnsins gagnrýna líka Lilju og segja verklagið lýsa metnaðarleysi

Enn eitt félagið hefur bæst á vagn þeirra sem opin­ber­lega hafa lýst yfir and­stöðu við það verk­lag sem ráð­herra við­hafði þegar hún skip­aði nýjan þjóð­minja­vörð án aug­lýs­ingar. Það beri „vott um ógagn­sæja stjórn­sýslu og kastar rýrð á mála­flokk­inn.“

Lilja Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Starfs­manna­fé­lag Þjóð­minja­safns Íslands hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu þar sem það tekur undir þá gagn­rýni sem komið hefur fram hjá ýmsum fag­fé­lögum og BHM á verk­lagi menn­ingar- og við­skipta­ráðu­neytis við skipun þjóð­minja­varðar fyrir viku síðan. Þar segir að félagið harmi að „ráðu­neyti og ráð­herra hafi valið að aug­lýsa ekki emb­ættið til umsóknar. Verk­lagið lýsir metn­að­ar­leysi ráðu­neyt­is­ins í garð Þjóð­minja­safns Íslands, ber vott um ógagn­sæja stjórn­sýslu og kastar rýrð á mála­flokk­inn í heild. Gagn­rýnin bein­ist alfarið að ferli skip­un­ar­innar en ekki að Hörpu Þórs­dóttur.“

Þar með bæt­ist starfs­manna­fé­lagið í hóp ann­arra gagn­rýnenda en Félag forn­leifa­fræð­inga og stjórn Félags íslenskra safna og safn­manna (FÍSOS) sendu frá sér harð­orðar yfir­lýs­ingar vegna ákvörð­unar Lilju D. Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, að skipa Hörpu til að gegna emb­ætti þjóð­minja­varðar án þess að aug­lýsa emb­ættið laust til umsóknar.

Í yfir­lýs­ingu fyrr­nefnda fag­fé­lags­ins var miklum von­brigðum lýst yfir með ráðn­ing­ar­ferlið. „Íslensk menn­ing á nú betur skilið en eitt­hvað svona emb­ætt­is­leikja rugl.“ Það sendi auk þess ábend­ingu til umboðs­manns Alþingis í gær vegna máls­ins og í morgun ábend­ingu til stjórn­skip­unar- og eftr­lits­nefnd alþingis.

[adspot]Í yfir­lýs­ingu FÍSOS sagði að stjórn félags­ins gerði alvar­legar athuga­semdir við skipun nýs þjóð­minja­varðar og sagði að ráðn­ingar sem þess­ar, með til­færslu á milli emb­ætta, væru ógagn­sæjar og ófag­leg­ar. „Slík vinnu­brögð grafa undan trausti á stjórn­sýsl­una og emb­ætt­is­manna­kerf­ið.“

Þá sagði Friðrik Jónsson, for­maður BHM, við RÚV um síð­ustu helgi og í sam­hengi við þessa skipun að tryggja þyrfti heil­indi og traust til stjórn­sýsl­unnar og ræða heim­ild ráða­manna til að færa emb­ætt­is­menn til í starfi.

Meg­in­reglan í lögum að aug­lýsa skuli laus emb­ætti

Allt frá árinu 1954, þegar lög um rétt­indi og skyldur starfs­­manna rík­­is­ins voru sett, hefur það verið meg­in­regla í lögum á Íslandi að aug­lýsa skuli opin­ber­­lega laus emb­ætti og störf hjá rík­­in­u.

[links]Þegar lögin voru end­­ur­­skoðuð og ný lög sett árið 1996 voru áfram ákvæði um aug­lýs­inga­­skyld­una. Í þessum reglum er það meg­in­reglan að aug­lýsa skuli laus störf en þau til­­vik þegar ekki er skylt að aug­lýsa störf eru afmörkuð sér­­stak­­lega. Þessar und­an­þágur frá aug­lýs­inga­­skyldu eiga við um störf sem aðeins eiga að standa í tvo mán­uði eða skem­­ur, störf sem eru tíma­bundin vegna sér­­stakra aðstæðna, svo sem vegna orlofs, veik­inda, fæð­ing­­ar- og for­eldra­or­lofs, náms­­leyf­­is, leyfis til starfa á vegum alþjóða­­stofn­ana og því um líkt, enda sé ráðn­­ing­unni ekki ætlað að standa lengur en 12 mán­uði sam­­fellt.

Þá eru und­an­þágur frá regl­unum sem fela í sér að störf sem hafa verið aug­lýst innan síð­­­ustu sex mán­aða ef þess er getið í aug­lýs­ing­unni að umsóknin geti gilt í sex mán­uði frá birt­ingu henn­­ar. Að end­ingu er að finna und­an­þágur um störf vegna tíma­bund­inna vinn­u­­mark­aðsúr­ræða á vegum stjórn­­­valda og aðila vinn­u­­mark­að­­ar­ins og hluta­­störf fyrir ein­stak­l­inga með skerta starfs­­get­u.

Engar fleiri und­an­þágur er að finna í lög­­un­­um.

Meiri­hluti ráðu­neyt­is­stjóra skip­aðir án aug­lýs­ingar

Það hefur hins vegar færst veru­lega í vöxt hér­lendis að ráð­herrar skipi í emb­ætti án þess að þau séu aug­lýst. Það leiddi meðal ann­ars til þess að umboðs­maður Alþingis tók upp frum­kvæð­is­at­hugun á mál­inu. Hann gafst upp á þeirri athugun í fyrra­vor.

Í bréfi þar sem þá settur umboðs­maður útskýrði ástæðu þessa kom fram að ekki væri for­svar­an­legt að nýta tak­mark­aðan mann­afla emb­ætt­is­ins til að ljúka frum­kvæð­is­at­hug­un­inni í ljósi þess að ráða­menn færu hvort eð er ekk­ert eftir skýrum reglum og vilja lög­gjafans í þessum mál­u­m.

Kjarn­inn greindi frá því í frétta­skýr­ingu í síð­asta mán­uði að sjö af tólf starf­andi ráðu­neyt­is­stjórum hefðu verið skip­aðir án þess að emb­ættin hafi verið aug­lýst laus til umsókn­ar. Á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili hafa þrír af þeim fjórum ráðu­neyt­is­stjórum sem hafa verið skip­aðir fengið þær stöður án þess að þær hafi verið aug­lýstar lausar til umsókn­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár