Ætla að meta árangur af stórauknum styrkjum til rannsókna og þróunar á næsta ári

Fjár­laga­nefnd ætlar að meta árangur og skil­virkni af auknum fram­lögum til nýsköp­unar, sem hafa hækkað um tólf millj­arða á átta árum. Hækka þarf fram­lag til end­ur­greiðslna vegna kvik­mynda­gerðar um fjóra millj­arða króna.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, er formaður fjárlaganefndar.
Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, er for­maður fjár­laga­nefndar. Mynd: Eyþór Árnason

Framlög til nýsköp­unar, rann­sókna og þekk­ing­ar­greina verða aukin um 6,1 millj­arð króna frá því sem lagt var til í fjár­laga­frum­varp­inu sem var lagt fram í sept­em­ber. Um er að ræða rúm­lega 20 pró­sent hækkun á fram­lögum til mála­flokks­ins sem er hlut­falls­lega þriðja mesta hækkun allra mál­efna­sviða milli umræðna um fjár­laga­frum­varpið. Ástæðan er aðal­lega tví­þætt: aukn­ing á end­ur­greiðslum til kvik­mynda­gerðar um fjóra millj­arða króna vegna hækk­unar á þeim í 35 pró­sent og hækkun á styrkjum til nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja um 1,3 millj­arð króna.

Með þess­ari aukn­ing fara útgjöld rík­is­sjóðs til þessa mál­efna­sviðs í heild í 34,3 millj­arða króna og hækka um ell­efu pró­sent frá því sem þau áttu að vera þegar fjár­laga­frum­varpið var lagt fram í sept­em­ber.

Áætlaðir styrkir til nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja hafa farið úr 1,3 millj­arði króna í 13,8 millj­arða króna á átta árum. Skatt­ur­inn hefur lýst yfir áhyggjum af því að fyr­ir­tæki séu að svindla á styrkja­kerf­inu til að fá hærri styrki, en ekk­ert hefur verið gert til að mæta þeim áhyggjum hans. Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar, sem sam­anstendur af nefnd­ar­mönnum stjórn­ar­flokk­anna, segir þó að fjár­laga­nefnd stefni „að því að meta árangur og skil­virkni af auknum fjár­munum á árinu 2023.“

True Detective kallar á milljarða úr ríkissjóði

Hið aukna fram­lag til end­ur­greiðslu vegna kvik­mynda­gerðar er til komið vegna þess að sá 1,7 millj­arður króna sem búið var að heita til þeirra dugir fjarri því til að hægt verði að standa við útgreiðslur á þeim vil­yrðum sem áætluð eru á árinu 2023. Þess í stað verður heild­ar­fram­lagið 5,7 millj­arðar króna, eða rúm­lega þrisvar sinnum það sem rík­is­stjórnin áætl­aði fyrir þremur mán­uðum síðan.

[adspot]Sá kostn­aður kemur til við­bótar við það fjár­magn sem þarf að sækja á fjár­auka­lögum til að greiða til kvik­mynda­fram­leið­enda, aðal­lega erlendra, fyrir að vinna verk­efnin sín á Íslandi. Kjarn­inn greindi frá því í nóv­em­ber að það þurfi að sækja tæp­lega 1,8 millj­arð króna þar til við­bótar við þann tæp­lega 1,5 millj­arð króna sem gert var ráð fyrir að eyða af opin­beru fé í end­ur­greiðslur vegna kvik­mynda­gerðar í ár á gild­andi fjár­lög­um. Kostn­aður vegna end­ur­greiðsln­anna er því rúm­lega tvö­faldur það sem hann var áætl­aður í ár.

Ástæða þessa er ákvörðun stjórn­­­valda að hækka end­­ur­greiðslu vegna fram­­leiðslu­­kostn­aðar kvik­­mynda­fram­­leið­enda úr 25 í 35 pró­­sent fyrir stærri verk­efni. Rík­­is­­stjórnin sam­­þykkti frum­varp Lilju D. Alfreðs­dótt­­ur, menn­ing­­ar- og við­­skipta­ráð­herra, um málið í maí og það var afgreitt sem lög frá Alþingi um miðjan júní. Innan kvik­­mynda­­geirans er almennt talið að fram­lagn­ingu frum­varps­ins hafi verið flýtt til að tryggja að fram­­leiðsla á fjórðu þátta­röð True Detective færi fram hér á landi, en umfang þess er metið á níu til tíu millj­­arða króna. Ef efri mörk þess bils verður nið­ur­staðan munu 3,5 millj­arðar króna af þeim 5,7 millj­örðum sem rík­is­sjóður telur sig þurfa að greiða í end­ur­greiðslur vegna kvik­mynda­gerðar á næsta ári renna til banda­ríska fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is­ins HBO fyrir að taka upp þátta­röð hér­lendis.

Í til­kynn­ingu sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins í lið­inni viku sagði að velta íslensks kvik­mynda­iðn­aðar hafi auk­ist um 85 pró­sent á síð­ustu fimm árum og nemi nú um 30 millj­örðum króna á árs­grund­velli. Það sem af er þessu ári, fyrstu átta mán­uði árs­ins, hafi veltan auk­ist um 2,9 millj­arða króna eða um 25 pró­sent miðað við sama tíma­bil í fyrra. Vel á fjórða þús­und ein­stak­linga starfi við kvik­mynda­gerð.

13,1 milljarður króna í endurgreiðslur vegna nýsköpunar

Þá þarf að sækja 1,3 millj­arð króna til við­bótar við það sem áður var áætlað vegna upp­færslu á áætlun um styrki til fyr­ir­tækja vegna rann­sókna og þró­un­ar.

Nýsköp­un­­ar­verk­efni sem hlotið hafa ­stað­­fest­ingu frá Rannís eiga rétt á sér­­­stökum skatt­frá­drætti vegna rann­­sókna og þró­un­­ar. Með opin­berum stuðn­­ingi er átt við skatt­frá­­drátt og styrki frá opin­berum aðil­um, sam­an­lagt. Njóti verk­efnið opin­berra styrkja hafa þeir áhrif á fjár­­hæð skatt­frá­­dráttar sem fæst end­­ur­greidd­­ur. End­­­­ur­greiðslu­hlut­­­­fallið er 35 pró­­­­sent í til­­­­viki lít­illa og með­­­­al­stórra fyr­ir­tækja, en 25 pró­­­­sent í til­­­­viki stórra fyr­ir­tækja. Há­­­mark skatta­frá­­­­dráttar er 385 millj­­­­ónir króna hjá litlum og með­­­­al­stórum fyr­ir­tækjum og 275 millj­­­­ónir króna hjá stórum fyr­ir­tækj­u­m.

[adspot]Í fjár­­­laga­frum­varpi næsta árs var gengið út frá því að end­­­ur­greiðslu vegna rann­­­sóknar og þró­unar yrði 11,8 millj­­­arðar króna, en hún verður þá vænt­an­lega 13,1 millj­arður króna. Sam­­kvæmt frum­varpi sem Bjarni Bene­dikts­­son hefur lagt fram og dreift var á þingi í síð­asta mán­uði, á ekki að gera end­­ur­greiðsl­­urnar var­an­­legar heldur fram­­lengja þær út árið 2025. Þar segir að búast megi við því að kostn­aður rík­­is­­sjóðs verði 14,5 millj­­arðar króna árið 2024 og 15,3 millj­­arðar króna árið 2025.

Stuðn­­ings­­kerfi við nýsköp­un­­ar­­fyr­ir­tæki er til skoð­unar og úttektar af Efna­hags- og fram­fara­­stofn­un­inni (OECD) og er nið­­ur­­stöðu hennar að vænta á árinu 2023.

Grunur um svindl

End­­­ur­greiðsl­­­urnar hafa hækkað gríð­ar­lega á skömmum tíma. Þær voru um 11,6 millj­arðar króna í ár en 1,3 millj­­­arður króna 2015. Þær hafa því auk­ist um 10,3 millj­arða króna á sjö árum og gangi áætl­anir fyrir næsta ár eftir munu þær hafa auk­ist um 11,8 millj­arða króna á átta árum.

[links]Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar segir að grund­vall­ar­breyt­ingar hafi verið gerðar í umhverfi nýsköp­unar og með efl­ingu sam­keppn­is­sjóða sem hafi laðað fram mikla krafta sem byggja undir sókn til verð­mæta­sköp­unar og fjölg­unar starfa. „Afar mik­il­vægt er að hefja vinnu við að meta árangur af auknum fjár­munum og hvert við stefnum. Miklum vexti í mála­flokknum fylgja vaxt­ar­verkir sem nauð­syn­legt er að leggja mat á. Fjár­laga­nefnd stefnir að því að meta árangur og skil­virkni af auknum fjár­munum á árinu 2023.“

Kjarninn hefur greint frá því að Skatt­ur­inn hafi haft umtals­verðar áhyggjur af fyr­ir­komu­lagi end­ur­greiðslna vegna rann­sókna og þró­unar. Á meðal þeirra áhyggja sem settar voru fram í umsögn hans til Alþingis fyrir einu og hálfu ári síðan var að mikil þörf væri á eft­ir­liti með útgreiðslu styrkj­anna meðal ann­ars vegna þess að „nokkur brögð hafa verið að því að við skatt­skil hafi almennur rekstr­­ar­­kostn­aður og kostn­aður sem telja verður að til­­heyri frekar eðli­­legum end­­ur­­bótum á fyr­ir­liggj­andi afurð sem við­kom­andi fyr­ir­tæki hefur tekjur af verið færður undir kostnað vegna stað­­festra nýsköp­un­­ar­verk­efna.“

Þá eru ekki ákvæði í lögum sem heim­ila refs­ingar fyrir þá sem reyna að telja fram rangar upp­lýs­ingar til að fá meira fé úr rík­is­sjóði en til­efni var til. Að mati Skatts­ins var bent á að „mis­­­notkun á þessum stuðn­­ingi með órétt­­mætum kostn­að­­ar­­færslum getur leitt til veru­­legra útgjalda af hálfu hins opin­bera, í formi órétt­­mætra end­­ur­greiðslna, auk þess að raska sam­keppni á mark­að­i.“

Kjarninn greindi frá því í nóv­em­ber að engar laga­breyt­ingar hafi verið gerðar til að bregð­ast við þeim áhyggjum sem Skatt­ur­inn setti fram um fyr­ir­komu­lag end­ur­greiðslna vegna rann­sókna og þró­unar fyrir einu og hálfu ári síð­an.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

menningarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár