Controlant fékk hæsta skattafrádráttinn vegna nýsköpunar en CCP hæstu upphæðina

Árið 2015 voru end­ur­greiðslur úr rík­is­sjóði vegna rann­sókna og þró­unar 1,3 millj­arðar króna. Í ár voru þær 11,6 millj­arðar króna og áætlað er að þær verði 15,3 millj­arðar króna árið 2025.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur kom fram að hún ætlaði sér að gera hækkun á endurgreiðslum vegna rannsókna og þróunar varanlega. Í nýframlögðu frumvarpi er það þó ekki raunin, heldur verða greiðslurnar framlengdar út árið 2025.
Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Katrínar Jak­obs­dóttur kom fram að hún ætl­aði sér að gera hækkun á end­ur­greiðslum vegna rann­sókna og þró­unar var­an­lega. Í nýfram­lögðu frum­varpi er það þó ekki raunin, heldur verða greiðsl­urnar fram­lengdar út árið 2025. Mynd: Bára Huld Beck

Alls nam stuðn­ingur vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­kostn­aðar á þessu ári 11,6 millj­örðum króna. Það er næstum 1,2 millj­arði krónum meira en hann var árið 2021. Af þeirri upp­hæð sem veitt var í stuðn­ings­greiðslur í ár voru 10,9 millj­arðar króna í formi end­ur­greiðslna og 715 millj­ónir króna vegna skulda­jöfn­unar á móti tekju­skatti. End­­ur­greiðsl­­urnar voru um 5,2 millj­arðar króna árið 2019, 2,1 millj­­arður króna árið 2016 og 1,3 millj­­arður króna 2015. Þær hafa því auk­ist um 6,4 millj­arða króna frá 2019, um 9,5 millj­arða króna frá 2016 og 10,3 millj­arða króna frá árinu 2015.

Þetta kemur fram á heima­síðu Skatts­ins.

Alls fengu 267 fyr­ir­tæki stuðn­ing­inn í ár en þeir voru 264 á síð­asta ári. Þeim fjölgar því um þrjú. Alls fengu 36 fyr­ir­tæki bæði skulda­jöfnun og end­ur­greiðslu í álagn­ingu árs­ins 2022 en þeir voru 44 árið 2021. Þeim fækkar því um átta.

Nýsköp­un­ar­verk­efni sem hlotið hafa stað­fest­ingu frá Rannís eiga rétt á sér­stökum skatt­frá­drætti vegna rann­sókna og þró­unar. Með opin­berum stuðn­ingi er átt við skatt­frá­drátt og styrki frá opin­berum aðilum, sam­an­lagt. Njóti verk­efnið opin­berra styrkja hafa þeir áhrif á fjár­hæð skatt­frá­dráttar sem fæst end­ur­greiddur. End­­ur­greiðslu­hlut­­fallið er 35 pró­­sent í til­­viki lít­illa og með­­al­stórra fyr­ir­tækja, en 25 pró­­sent í til­­viki stórra fyr­ir­tækja. Há­mark skatta­frá­­dráttar er 385 millj­­ónir króna hjá litlum og með­­al­stórum fyr­ir­tækjum og 275 millj­­ónir króna hjá stórum fyr­ir­tækj­u­m.

[adspot]Ákveðið var að hækka þakið á end­­ur­greiðslum vegna rann­­sókna og þró­unar á árinu 2020 og í stjórn­­­ar­sátt­­mála rík­­is­­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­­stæð­is­­flokks og Fram­­sókn­­ar­­flokks var til­­kynnt að sú tíma­bundna hækkun yrði gerð var­an­­leg.

Í fjár­laga­frum­varpi næsta árs er gengið út frá því að end­ur­greiðslu vegna rann­sóknar og þró­unar verði 11,8 millj­arðar króna. Samkvæmt frum­varpi sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur lagt fram og dreift var á þingi á þriðju­dag, á ekki að gera end­ur­greiðsl­urnar var­an­legar heldur fram­lengja þær út árið 2025. Þar segir að búast megi við því að kostn­aður rík­is­sjóðs verði 14,5 millj­arðar króna árið 2024 og 15,3 millj­arðar króna árið 2025.

Stuðn­ings­kerfi við nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki er til skoð­unar og úttektar af Efnahags- og fram­fara­stofn­un­inni (OECD) og er nið­ur­stöðu hennar að vænta á árinu 2023.

Controlant fékk 385 milljónir króna í stuðning

Á heima­síðu Skatts­ins er birt yfir­lit yfir þau fyr­ir­tæki sem fengu stuðn­ing úr rík­is­sjóði. Þar kemur fram að hæsti ein­staki styrk­ur­inn, 385 millj­ónir króna, hafi farið til Controlant, sem þróar tækni­lausnir sem hjálpa til við að við­halda gæðum við­kvæmra vara í geymslu og flutn­ingi á milli staða.Það er hæsta mögu­lega greiðsla sem hægt er að fá end­ur­greitt vegna skatta­frá­dráttar.

Tekjur Controlant hafa marg­fald­ast á örfáum árum. Þær voru 166 millj­ónir króna árið 2017 og 410 millj­ónir króna árið 2019. Í fyrra voru þær hins vegar 8,9 millj­arðar króna, ef miðað er við gengi Banda­ríkja­dals í lok árs 2021. Á þessu ári gerir fyr­ir­tækið svo ráð fyrir að ná um 15 millj­örðum króna í tekjur.

Þennan gríð­ar­lega tekju­vöxt má að miklu leyti rekja til samn­inga Controlant við alþjóð­leg lyfja­fyr­ir­tæki, líkt og Merck, Roach og GlaxoSmit­hKline. Stærsti bit­inn er þó lík­lega við­skipti félags­ins við Pfizer, sem fram­leiðir eitt af vin­sæl­ustu bólu­efn­unum gegn COVID-19.

CCP fær alls 550 milljónir í tveimur skömmtum

Fyr­ir­tækið Coripharma er í öðru sæti yfir stakar stuðn­ings­greiðslur úr rík­is­sjóði vegna end­ur­greiðslna vegna rann­sókna og þró­unar með 342 millj­ónir króna. LS Retail, sem fékk hæsta ein­staka styrk­inn 2021, er í þriðja sæti með 340 millj­ónir króna.

Það fyr­ir­tæki sem fær þó mest end­ur­greitt frá Skatt­inum vegna rann­sóknar- og þró­un­ar­starfa er tölvu­leika­fyr­ir­tækið CCP. Það hefur fengið tvö­falda end­ur­greiðslu á und­an­förnum árum þar sem fyr­ir­tækið skiptir rann­sókn­ar- og þró­un­ar­kostn­að­inum af starf­semi sinni upp í tvö félög. Hið sama er uppi á ten­ingnum í ár, CCP fær 275 millj­óna króna frá­drátt í gegnum félagið CCP ehf. og aðra jafn­háa upp­hæð í gegnum félagið CCP Plat­form ehf. Því fær CCP-sam­steypan 550 millj­ónir króna í end­ur­greiðslu í ár, sem er sama upp­hæð og hún fékk í fyrra. CCP flokk­ast sem stórt fyr­ir­tæki og getur því ekki fengið hærri styrki en þá sem sam­steypan fær.

Origo, sem er skráð í Kauphöll Íslands, fékk jafn mik­inn skatta­af­slátt og Controlant ef tal­inn er með stuðn­ingur til Tempo sem félagið átti tæp­lega 40 pró­sent hlut í þar til nýlega, en Origo seldi þann hlut á um 28 millj­arða króna i októ­ber. Hlut­hafar Origo hafa þegar sam­þykkt að greiða sér út 24 millj­arða króna vegna þessa, en það verður gert 1. des­em­ber næst­kom­andi sam­hliða því að hlutafé í Origo verður lækkað um næstum 68 pró­sent.

Alls fengu 44 fyr­ir­tæki yfir 75 millj­ónir króna í end­ur­greiðslu í ár. Það eru sex fleiri en í fyrra.

[adspot]Greiðslur til nokk­urra fyr­ir­tækja hækka mikið á milli ára. Þar ber fyrst að nefna heil­brigð­is­tækni­fyr­ir­tækið Sidekick Health. End­ur­greiðslur til þess hækka um 210 millj­ónir milli ára og voru 335 millj­ónir króna í ár. Lyfja­þró­un­ar­fyr­ir­tækið EpiEndo Pharmaceuticals hækkar um 168 millj­ónir króna milli ára og fékk alls 331 millj­ónir króna árið 2022. Þá fór Lucinity, þróar lausn fyrir banka til að berj­ast gegn pen­inga­þvætti, úr 83 millj­ónum króna í 171 milljón króna.

Af þeim fyr­ir­tækjum sem koma ný inn á list­ann yfir þau sem fá meira en 75 millj­ónir króna fær DTE, sem hefur und­an­farin ár unnið að þróun lausnar til þess að efna­greina ál í fljót­andi formi og gefa nið­ur­stöður í raun­tíma, mest eða 191 milljón króna. Þá fær smá­söluris­inn Festi, sem er skráður á markað og rekur meðal ann­ars N1, Krónuna og ELKO, 105 millj­ónir króna.

Hægt er að sjá list­ann yfir þau 44 fyr­ir­tæki sem fengu mestan stuðn­ing úr rík­is­sjóði hér.

Sögðu ýmsa telja fram rekstr­­ar­­kostnað sem nýsköpun

Í fyrra­vor var frum­varp sem Við­reisn lagði fram um að gera end­­ur­greiðsl­­urnar var­an­­legar til umfjöll­unar á þingi. Á meðal þeirra sem skil­uðu umsögn um það var Skatt­­ur­inn. Hann hafði ýmis­­­legt við áformin að athuga. Í um­­sögn­inni sagði að fram­­­kvæmd sú sem snerti nýsköp­un­­­ar­­­styrki væri afar flókin þar sem erfitt geti verið að skilja á milli venju­bund­ins rekstr­­­ar­­­kostn­aðar og kostn­aðar vegna nýsköp­un­­­ar­verk­efna. Á stundum þurfi sér­­­hæfða þekk­ingu til að skilja þar á milli.

Reynslan af úthlutun nýsköp­un­­­ar­­­styrkja úr rík­­­is­­­sjóði hafi sýnt „að ekki er van­þörf á eft­ir­liti með þessum mála­­­flokki þar sem nokkur brögð hafa verið að því að við skatt­skil hafi almennur rekstr­­­ar­­­kostn­aður og kostn­aður sem telja verður að til­­­heyri frekar eðli­­­legum end­­­ur­­­bótum á fyr­ir­liggj­andi afurð sem við­kom­andi fyr­ir­tæki hefur tekjur af verið færður undir kostnað vegna stað­­­festra nýsköp­un­­­ar­verk­efna.“

[adspot]Skatt­­ur­inn benti á að ekki hafi verið sett með lögum ákvæði um beit­ingu álags eða ann­­­arra refsi­við­­­ur­laga til að bregð­­­ast við eða skapa varn­að­­­ar­á­hrif vegna „hátt­­­semi sem sam­­­rým­ist ekki lögum þessum [...] Ekki ætti að þurfa að árétta að mis­­­­­notkun á þessum stuðn­­­ingi með órétt­­­mætum kostn­að­­­ar­­­færslum getur leitt til veru­­­legra útgjalda af hálfu hins opin­bera, í formi órétt­­­mætra end­­­ur­greiðslna, auk þess að raska sam­keppni á mark­að­i.“

Í ljósi alls þessa taldi Skatt­­ur­inn „óvar­­­legt að gera ráð­staf­­­anir sem ljóst þykir að muni leiða til auk­ins umfangs mála­­­flokks­ins til fram­­­búð­­­ar, og auk­inna end­­­ur­greiðslna úr rík­­­is­­­sjóði, án þess að hugað sé að því hvernig styrkja megi við­eig­andi reglu­verk í því skyni að ein­falda og styrkja umrædda fram­­­kvæmd. Slíkar breyt­ingar væru jafn­­­framt til þess fallnar að auka gagn­­­sæi og fyr­ir­­­sjá­an­­­leika gagn­vart skatt­að­il­u­m.“

Frum­varpið hlaut ekki braut­ar­gengi á síð­asta kjör­tíma­bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár