Jólin koma snemma hjá hluthöfum Origo sem eiga von á 24 milljarða greiðslu í desember

Fjórir líf­eyr­is­sjóðir munu skipta á milli sín 8,8 millj­örðum króna af þeirri útgreiðslu úr Origo sem vænt­an­leg er í jóla­mán­uð­inum. Stærsti einka­fjár­festir­inn, félag meðal ann­ars í eigu Bakka­var­ar­bræðra, fær millj­arð króna í sinn hlut.

Jón Björnsson, forstjóri Origo.
Jón Björns­son, for­stjóri Origo. Mynd: Origo

Á full­veld­is­dag­inn, þann 1. des­em­ber næst­kom­andi, verður hald­inn hlut­hafa­fundur í Origo, skráðu félagi í íslensku kaup­höll­inni. Til­gangur fund­ar­ins er fyrst og síð­ast einn, að kjósa um hvort greiða eigi 24 millj­arða króna út úr félag­inu og til hlut­hafa og lækka hlutafé í Origo sam­hliða um næstum 68 pró­sent.

Sú ákvörðun er afleið­ing af því að Origo seldi tæp­lega 40 pró­sent eign­ar­hlut sinn í Tempo fyrir 195 millj­ónir Banda­ríkja­dali, um 28,5 millj­arða króna á gengi dags­ins í dag, til félags á vegum banda­ríska tækni­fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins Diversis Capital í byrjun októ­ber síð­ast­lið­inn. Væntur sölu­hagn­aður Origo, að teknu til­liti til bók­færðs virðis og kostn­aðar, var áætl­aður yfir 22 millj­arðar króna.

Til sam­an­burðar má nefna að mark­aðsvirði Origo í lok þriðja árs­fjórð­ungs, sem lauk í sept­em­ber­lok, var 27,8 millj­arðar króna, eða minna en kaup­verðið á hlut félags­ins í Tempo. Eftir að til­kynnt var um söl­una hefur hluta­bréfa­verið í Origo hækkað mikið og heild­ar­virði félags­ins nú er rúm­lega 35 millj­arðar króna. Því nemur útgreiðslan um 69 pró­sent af mark­aðsvirði Origu við lokun mark­aða í gær.

[adspot]Origo velti tæp­lega 14,1 millj­arði króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2022 og hagn­að­ist um tæpa 1,3 millj­arða króna króna. Eigið fé félags­ins var 9,6 millj­arðar króna í lok sept­em­ber, nokkrum dögum fyrir söl­una á Tempo. Að við­bættum væntum sölu­hagn­aði mun eigið fé Origo fara upp í um um 32 millj­arða króna. Nú stendur því til að greiða um 75 pró­sent af eigin fé Origo út til hlut­hafa.

Stærstu hlut­hafar Origo eru líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Birta líf­eyr­is­sjóð­ur, Stapi líf­eyr­is­sjóður og Lífs­verk. Saman eiga þessir fjórir sjóðir um 36,7 pró­sent hlut. Stærsti einka­fjár­festir­inn í Origo er Frigus II, í eigu Ágústs og Lýðs Guð­­­munds­­­sona, fyrr­ver­andi aðal­­eig­enda Exista og stærstu eig­enda Bakka­var­ar, og Sig­­­urðar Val­týs­­­son­­­ar, fyrr­ver­andi for­­­stjóra Exista sem á 4,25 pró­sent hlut.

Stofnað 2009 og marg­fald­ast í virði á fjórum árum

Tempo var stofnað árið 2009, af starfs­­fólki TM Software, sem þá var dótt­ur­fé­lag Nýherja, og varð fljótt leið­andi hug­­bún­­að­­ar­­fyr­ir­tæki sem þró­aði verk­efna­­stýr­ing­­ar- og við­­skipta­hug­­búnað (B2B) fyrir JIRA kerfið frá Atlassian. Um hreint íslenskt hug­vits­fyr­ir­tæki er því að ræða.

Vöxt­ur­inn á tekjum vegna Tempo var um 50 pró­sent á ári fyrstu árin. Snemma árs 2015 var Tempo búið að vaxa svo mikið að ákveðið var að aðskilja rekst­ur­inn frá TM Software og setja hann inn í sér­stakt fyr­ir­tæki. Ári síð­ar, 2016, var greint frá því að ráð­gjafar hefðu verið ráðnir til að und­ir­búa sölu­ferli. Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um veg­ferð Tempo á þessum árum.

Í til­kynn­ing­u sem send var til Kaup­hallar sam­hliða því að kaupin á hlut Origo í Tempo voru kunn­gjörð var haft eftir Hjalta Þór­ar­ins­syni, stjórn­ar­for­manni Origo að nú væri komið að ánægju­legum tíma­mótum eftir langa sam­fylgd. „Stórt skref var tekið í nóv­em­ber 2018 þegar Origo seldi meiri­hluta í félag­inu til Diversis Capital í þeim til­gangi að fá með­fjár­festa með alþjóð­lega reynslu til að hraða vexti félags­ins og auka virði fyrir hlut­hafa Origo. Sú veg­ferð sem Origo lagði upp með þá hefur að fullu gengið eftir og rúm­lega það, og hefur virði Tempo átt­fald­ast frá því haustið 2018. Arð­semi Origo af þessum við­skiptum er frá­bær og hlut­hafar Origo inn­leysa hér mikil verð­mæt­i.”

Jón Björns­son, for­stjóri Origo, sagði á sama stað að sala á meiri­hluta í félag­inu til Diversis Capital árið 2018 hafi reynst mjög góð ákvörðun hjá stjórn­endum Origo. „Ár­angur Diversis með Tempo hefur farið fram úr vænt­ing­um. Tempo stendur nú á ákveðnum kross­götum í sinni veg­ferð eftir kaup á tveimur nýjum félögum sem meira en tvö­faldar stærð félags­ins.

Veg­ferð Tempo sýnir skýrt hvað frá­bært starfs­fólk, íslenskt hug­vit, stuðn­ingur eig­enda og stjórn­valda getur búið til mikil verð­mæti í hug­bún­að­ar­geir­an­um. Origo heldur áfram að þróa lausnir sem breyta leiknum líkt og Tempo hefur gert og vonum við að fleiri hug­bún­að­ar­vörur geti átt jafn far­sælan feril og Tempo.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hugvit

Fréttirhugvit

Búið að ganga frá sölu QuizUp til Banda­ríkj­anna

Plain Vanilla hefur náð sam­komu­lagi við banda­ríska fyr­ir­tækið Glu Mobile um að selja QuizUp leik­inn til þess. Heild­ar­virði samn­ings­ins er um 7,5 millj­ónir dala, um 850 millj­ónir króna, en kaup­verðið er að hluta greitt með upp­gjöri skulda milli fyr­ir­tækj­anna tveggja. Í til­kynn­ingu vegna þessa segir að starfs­menn beggja fyr­ir­tækja hafi að und­an­förnu unnið hörðum höndum að yfir­færslu leiks­ins og hefur...
Aðsenthugvit

Ragnheiður H. Magnúsdóttir

Kæra næsta rík­is­stjórn, mætti ég biðja um tækni- og hug­vits­ráð­herra?

Mig langar að Íslend­ingar eign­ist tækni- og hug­vits­ráð­herra. Sem sagt ráð­herra sem hefur það hlut­verk, í stórum dráttum, að halda utan um þann stóra hóp sem vinnur við að nýta hug­vitið alla daga. Ég er að tala um fólkið sem starfar hjá ýmsum tækni­fyr­ir­tækjum, fjar­skipta­fyr­ir­tækjum, í kvik­mynda­iðn­aði, við tón­list, við leik­list, hjá sprota­fyr­ir­tækjum, við mynd­list, vöru­þróun, vöru­hönnun, graf­íska hönnun og...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár