Eigið fé Origo margfaldast við söluna í Tempo fyrir 28 milljarða króna

Árið 2009 stofn­uðu starfs­menn TM Software lítið hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki, sem nefnt var Tempo. Í dag er það metið á 85,4 millj­arða króna og Origo var að selja hlut sinn í því á 28 millj­arða króna. Við það fer eigið fé Origo úr níu millj­örðum í 31 millj­arða.

Jón Björnsson, forstjóri Origo.
Jón Björns­son, for­stjóri Origo. Mynd: Origo

Origo, sem er skráð á íslenskan hluta­bréfa­markað, gerði í gær­kvöldi skuld­bind­andi kaup­samn­ing við Diversis Tempo Holdings II LLC, félags á vegum banda­ríska tækni­fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins Diversis Capital, um sölu á öllum tæp­lega 40 pró­sent eign­ar­hlut félags­ins í Tempo fyrir 195 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða 27,7 millj­arða króna.

Heild­ar­virði Tempo í við­skipt­unum er áætlað um 600 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða 85,4 millj­arðar króna, og sölu­hagn­aður Origo, að teknu til­liti bók­færðs virðis og kostn­aðar, er áætl­aður 22,2 millj­arðar króna.

Til sam­an­burðar má nefna að mark­aðsvirði Origo í heild var 30,1 millj­arður króna við lokun mark­aða í gær. Sölu­hagn­að­ur­inn af Tempo er því næstum 74 pró­sent af mark­aðsvirði félags­ins. Origo velti tæp­lega 9,3 millj­örðum króna á fyrri hluta árs­ins 2022 og hagn­að­ist um 561,6 millj­ónir króna. Eigið fé félags­ins var 8,9 millj­arðar króna í lok júní síð­ast­lið­ins. Að við­bættum væntum sölu­hagn­aði mun eigið fé Origo fara upp í um 31,1 millj­arð króna.

[adspot]Í til­kynn­ingu sem send var til Kaup­hallar Íslands seint í gær­kvöldi sagði að ljóst væri að salan á Tempo muni hafa umtals­verð jákvæð áhrif á efna­hags­reikn­ing Origo þar sem lausa­fjár­staða styrk­ist og geta til innri og ytri vaxtar verður umtals­verð. „Stjórn og fram­kvæmda­stjórn Origo munu vinna að til­lögu um ráð­stöfun sölu­and­virð­is­ins sem verður kynnt hlut­höfum í fram­hald­inu.“

Stærstu hlut­hafar Origo eru líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, Birta líf­eyr­is­sjóður, Stapi líf­eyr­is­sjóður og Lífsverk. Saman eiga þessir fjórir sjóðir um 37,7 pró­sent hlut. Stærsti einka­fjár­festir­inn í Origo er Frigus II, í eigu Ágústs og Lýðs Guð­­munds­­sona, fyrr­ver­andi aðal­eig­enda Exista og stærstu eig­enda Bakka­varar, og Sig­­urðar Val­týs­­son­­ar, fyrr­ver­andi for­­stjóra Exista sem á 4,25 pró­sent hlut.

Stofnað 2009 og margfaldast í virði á fjórum árum

Tempo var stofnað árið 2009, af starfs­fólki TM Software, sem þá var dótt­ur­fé­lag Nýherja, og varð fljótt leið­andi hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki sem þró­aði verk­efna­stýr­ing­ar- og við­skipta­hug­búnað (B2B) fyrir JIRA kerfið frá Atlassian. Um hreint íslenskt hug­vits­fyr­ir­tæki er því að ræða.

Vöxt­ur­inn á tekjum vegna Tempo var um 50 pró­sent á ári fyrstu árin. Snemma árs 2015 var Tempo búið að vaxa svo mikið að ákveðið var að aðskilja rekst­ur­inn frá TM Software og setja hann inn í sér­stakt fyr­ir­tæki. Ári síðar, 2016, var greint frá því að ráð­gjafar hefðu verið ráðnir til að und­ir­búa sölu­ferli. Kjarninn fjall­aði ítar­lega um veg­ferð Tempo á þessum árum.

Í til­kynn­ing­unni sem send var til Kaup­hallar í gær er haft eftir Hjalta Þór­ar­ins­syni, stjórn­ar­for­manni Origo að nú væri komið að ánægju­legum tíma­mótum eftir langa sam­fylgd. „Stórt skref var tekið í nóv­em­ber 2018 þegar Origo seldi meiri­hluta í félag­inu til Diversis Capital í þeim til­gangi að fá með­fjár­festa með alþjóð­lega reynslu til að hraða vexti félags­ins og auka virði fyrir hlut­hafa Origo. Sú veg­ferð sem Origo lagði upp með þá hefur að fullu gengið eftir og rúm­lega það, og hefur virði Tempo átt­fald­ast frá því haustið 2018. Arðsemi Origo af þessum við­skiptum er frá­bær og hlut­hafar Origo inn­leysa hér mikil verð­mæti.”

Jón Björns­son, for­stjóri Origo, segir á sama stað að sala á meiri­hluta í félag­inu til Diversis Capital árið 2018 hafi reynst mjög góð ákvörðun hjá stjórn­endum Origo. „Árangur Diversis með Tempo hefur farið fram úr vænt­ingum. Tempo stendur nú á ákveðnum kross­götum í sinni veg­ferð eftir kaup á tveimur nýjum félögum sem meira en tvö­faldar stærð félags­ins.

Vegferð Tempo sýnir skýrt hvað frá­bært starfs­fólk, íslenskt hug­vit, stuðn­ingur eig­enda og stjórn­valda getur búið til mikil verð­mæti í hug­bún­að­ar­geir­anum. Origo heldur áfram að þróa lausnir sem breyta leiknum líkt og Tempo hefur gert og vonum við að fleiri hug­bún­að­ar­vörur geti átt jafn far­sælan feril og Tempo.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár