SFS styðja frumvarp Svandísar um að hækka veiðigjöld á næsta ári en lækka þau árin á eftir

Rík­is­stjórnin setti inn heim­ild fyrir útgerðir til að fresta skatt­greiðslum á meðan að á kór­ónu­veiru­far­aldr­inum stóð. Sjáv­ar­út­vegur skil­aði met­hagn­aði á meðan. Allt stefndi í að veiði­gjöld yrðu fyrir vikið mun lægri en fjár­laga­frum­varpið gerir ráð fyrir.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir er framkvæmdstjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Hún skrifar undir umsögnina.
Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir er fram­kvæmd­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Hún skrifar undir umsögn­ina. Mynd: RÚV/Skjáskot

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) styðja frum­varp Svan­dísar Svav­ars­dóttur um breyt­ingar á lögum um veiði­gjöld. Í frum­varp­inu felst að inn­heimt veiði­gjöld á næsta ári verði 2,5 millj­örðum krónum hærri en ann­ars en verði svo lægri árin á eftir. Sú fjár­hæð sem skilar sér í rík­is­sjóð að óbreyttu á fimm ára tíma­bili er því sú sama.

[links]Fram­lagn­ing frum­varps­ins átti sér skamman aðdrag­anda og það var afgreitt út úr rík­is­stjórn í síð­ustu viku. Til stendur að það verði að lögum strax og búið verði að sam­þykkja frum­varp­ið.

Frum­varp­inu er ætlað að bregð­ast við víxl­verkun ákvæðis í lögum um veiði­gjöld ann­ars vegar og lögum um tekju­skatt hins vegar sem heim­ilar útgerðum að fyrna meðal ann­ars skip og skips­búnað um 50 pró­sent á ári vegna fjár­fest­inga á árunum 2021 og 2022. Sú heim­ild var sett inn í lögin sem hluti af við­brögðum stjórn­valda við efna­hags­legum afleið­ingum við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum, með frum­varpi sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram. Hún átti að skapa hvata fjár­fest­ingar, þannig að skatt­greiðslum yrði frestað til skamms tíma.

Ef lög­unum verður ekki breytt mun þessi víxl­verkun leiða til þess að minna sam­ræmi yrði á milli raun­veru­legrar afkomu sjáv­ar­út­vegs og inn­heimtra veiði­gjalda.

Ná ekki forsendum fjárlagafrumvarps að óbreyttu

Um mikla hags­muni er að ræða fyrir rík­is­sjóð á næsta ári. Verði frum­varp Svan­dísar sam­þykkt munu veiði­gjöld sem útgerðir greiða í rík­is­sjóð hækka um 2,5 millj­arða króna á næsta ári og verða 9,5 millj­arðar króna alls. Verði ekk­ert að gert munu veiði­gjöldin verða sjö millj­arðar króna, sem er langt undir for­sendum fjár­laga­frum­varps­ins, þar sem reiknað er með 8,3 millj­örðum króna í veiði­gjöld á árinu 2023.

[adspot]Á móti munu veiði­gjöld verða lægri árin þar á eft­ir, verði engar frek­ari breyt­ingar gerðar á lögum um veiði­gjald, þar sem fyrn­ingar sem að óbreyttu kæmu að fullu til frá­dráttar rekstr­ar­kostn­aði ein­stakra fyr­ir­tækja næstu eitt til tvö árin dreifast yfir á fleiri ár og verða í gangi í allt að fimm ár.

Í umsögn SFS er gerð athuga­semd við að verið sé að breyta sköttum á grein­ina fyr­ir­vara­laust. Þau telji hins vegar

mik­il­vægt að lög nái þeim mark­miðum sem að er stefnt og end­ur­spegli sann­an­lega vilja lög­gjafans. „Samkvæmt frum­varps­drög­unum hafa skatta­legar flýti­fyrn­ingar skapað meiri sveiflur í reikni­stofni veiði­gjalds á milli ára en ráð var fyrir gert. Unnt er að taka undir það, að miklar sveiflur í veiði­gjaldi, sem rekja má til fyrn­inga fárra skipa, eru síst heppi­legar. Mik­il­vægt er því að finna á þessu far­sæla lausn. Af þeim sökum og að öllu fyrr­greindu virtu styðja SFS þær breyt­ingar sem nú eru lagðar til.“

Vert er að taka fram að sam­ráð var haft við SFS við gerð frum­varps­ins.

Svan­dís skip­aði stóra sam­ráðs­nefnd um sjáv­ar­út­vegs­stefnu í maí á þessu ári. Undir henni starfa svo fjórir starfs­hóp­ar auk þess sem sér­stök verk­efna­stjórn er að störf­um. Þessi hóp­ur, sem telur um 50 manns, á að starfa út næsta ár og skila meðal ann­­ars af sér nýjum heild­­ar­lögum um stjórn fisk­veiða eða nýjum lög um auð­lindir hafs­ins, verk­efnum á sviði orku­­skipta, nýsköp­un­­ar, haf­rann­­sókna og gagn­­sæi og kort­lagn­ing eigna­­tengsla í sjá­v­­­ar­út­­­veg­i. Einn starfs­hóp­ur­inn á að fjalla um ágrein­ing um stjórn fisk­veiða og mög­u­­leika til sam­­fé­lags­­legrar sátt­­ar, sam­­þjöppun veið­i­­heim­ilda, veið­i­­­gjöld og skatt­­spor.

Því er mögu­legt að lögum um veiði­gjöld verði breytt áður en veiði­gjöld fara að skerð­ast vegna frum­varps­ins sem nú hefur verið lagt fram.

Sjáv­ar­út­vegur hagn­að­ist um 65 millj­arða króna í fyrra

Met­hagn­aður var í sjá­v­­­ar­út­­­vegi í fyrra, þegar geir­inn hagn­að­ist um 65 millj­­örðum króna eftir skatta og gjöld. Alls jókst hagn­að­­ur­inn um 124 pró­­sent milli ára.

Á sama tíma greiddu sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækin 22,3 millj­­arða króna í öll opin­ber gjöld. Veið­i­­­gjöld, tekju­skatt og trygg­inga­gjöld. Það þýðir að rúm­­lega fjórð­ungur af hagn­aði fyrir greiðslu opin­berra gjalda fór til hins opin­bera en tæp­lega 75 pró­sent varð eftir hjá útgerð­ar­fyr­ir­tækj­u­m.

Hagn­aður geirans áður en hann greiddi veið­i­­­gjöld, tekju­skatt og trygg­inga­gjald í rík­­is­­sjóð var sam­tals 752,3 millj­­arðar króna frá 2009 og út síð­­asta ár. Af þessum hagn­aði sat tæp­­lega 71 pró­­sent eftir hjá útgerðum lands­ins en rétt um 29 pró­­sent fór í opin­ber gjöld.

Frá árinu 2010 hafa þau greitt 143,2 millj­­­­arða króna til eig­enda sinna í arð­greiðsl­­­­ur. Hagur sjá­v­­­­­ar­út­­­­­­­vegs­­­­fyr­ir­tækj­anna hefur því vænkast um 575,2 millj­­­­arða króna frá hruni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár