Segir ríkisstjórnina beita hótunum í samningaviðræðum um ÍL-sjóð

Þing­maður Við­reisnar segir fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra beita hót­unum í samn­inga­við­ræðum um ÍL-sjóð. For­sæt­is­ráð­herra segir nokkra val­kosti í stöð­unni, en engan góðan.

Þorbjörg Sigríður Gunnarsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunn­ars­dóttir, þing­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þorbjörg Sigríður Gunn­ar­dóttir, þin­maður Við­reisnar, segir Bjarna Bene­diksts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefja við­ræður um mál­efni ÍL-sjóðs með hótun af hálfu rík­is­stjórn­a­innar með því að segja að ef eig­endur bréfa í sjóðnum gangi ekki til samn­inga við ráð­herra muni hann beita laga­setn­ingu til að setja sjóð­inn í þrot.

Þorbjörg, auk Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, beindu fyr­ir­spurnum sínum í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í morgun að Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og spurðu hana hvort hún sé sam­mála þeirri leið sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra vill fara í málum ÍL-sjóðs og hvort hún hafi verið með í þeim ráðum.

[adspot]ÍL-sjóður, sjóður sem stofn­aður var árið 2019 þegar Íbúða­lána­sjóði var skipt upp, mun að óbreyttu tapa 200 millj­örðum króna og standa stjórn­völd frammi fyrir þeirri ákvörðun hver eigi að greiða það tap. Almenn­ingur í gegnum rík­is­sjóð eða almenn­ingur í gegnum líf­eyr­is­sjóði.

Hægt er að lesa um það sem ÍL-­sjóðs málið snýst um hér, í frétta­skýr­ingu Kjarn­ans sem birt­ist á mánu­dag.

„Nú stendur almenn­ingur frammi fyrir þeirri spurn­ingu hvort hann eigi að borga í gegnum líf­eyr­is­sjóð­ina sína eða rík­is­sjóð­inn sinn fyrir hag­stjórn­ar­mis­tök Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks í byrjun ald­ar­innar,“ sagði Logi á Alþingi í morgun þegar hann beindi fyr­ir­spurn sinni að for­sæt­is­ráð­herra.

Telur hagsmuni skattgreiðenda og lífeyrisþegar geta farið saman

[links]Katrín sagði málið vissu­legu hafa verið rætt í rík­is­stjórn og sagði hún mik­il­vægt að ræða skýrsl­una um mál­efni ÍL-sjóð, sem fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti í síð­ustu viku, á þing­inu. „Það er kannski það sem mér finnst mik­il­væg­ast í þessu máli, það skiptir máli að vanda til verka því að þetta eru miklir hags­munir,“ sagði Katrín.

For­sæt­is­ráð­herra sagði hóp kröfu­hafa fjöl­breyttan, þó líf­eyr­is­sjóðir væru vissu­lega stærsti hluti þeirra. Telur hún að vel verði haldið á málum geti hags­munir skatt­greið­enda og líf­eyr­is­þega farið saman við lausn máls­ins. „Með því einmitt að haga þessu upp­gjöri tím­an­lega þýðir það ekki sjálf­krafa tap líf­eyr­is­sjóð­anna heldur hafa þeir tæki­færi til þess að ná fram við­un­andi ávöxtun á þá fjár­muni sem þarna um ræðir. Þetta eru nú helstu sér­fræð­ingar okkar í því að ávaxta eignir sínar.“

Katrín sagði ábyrgð stjórn­valda mikla. „Við erum auð­vitað að tala um mikla fjár­muni sem munu ann­ars, að öllu óbreyttu, ef ekk­ert verður gert, falla á kom­andi kyn­slóðir.“

Sanngjarnt að ellilífeyrisþegar borgi fyrir ævintýri óreiðustjórnmálamanna?

Logi spurði í fram­hald­inu hvort for­sæt­is­ráð­herra finn­ist það sann­gjarnt að elli­líf­eyr­is­þegar þurfi að borga fyrir „ævin­týri óreiðu­stjórn­mála­manna“?

Katrín sagði að gera megi vænt­ingar um að sam­komu­lag náist um upp­gjör og í fram­hald­inu hafi líf­eyr­is­sjóð­irnir færi á að ávaxta fé sitt þannig að til þess þurfi ekki að koma að þetta bitni á elli­líf­eyr­is­þegum. „En ég trúi ekki öðru en að hátt­virtur þing­maður sé sam­mála mér um það að ef ekk­ert er að gert þá fellur þessi reikn­ingur á kom­andi kyn­slóðir og ég vil ekki að við hér sem sitjum á Alþingi nú berum ábyrgð á þeim reikn­ingi,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Þorbjörg Sigríður gagn­rýndi fram­setn­ingu fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra á málum ÍL-sjóðs fyrir helgi og sagði að í henni hafi falist hótun, að ef eig­endur bréf­anna ganga ekki til samn­inga við fjár­mála­ráð­herra þá muni hann beita laga­setn­ingu til að setja sjóð­inn í þrot.

„Þá er stóra spurn­ingin: Í hvaða samn­ings­stöðu eru menn í við­ræðum sem hefj­ast með hótun af hálfu rík­is­stjórnar Íslands?“ sagði Þorbjörg Sigríður, sem spurði í kjöl­farið for­sæt­is­ráð­herra hvort henni hugn­að­ist þessi aðferða­fræði, að hefja samn­inga­við­ræður með beinum hót­unum af hálfu rík­is­stjórnar Íslands?

Enginn góður valkostur í stöðunni

Katrín sagð­ist ekki geta litið á málið sem hótun. Nokkrir val­kostir eru í stöð­unni að hennar mati, en eng­inn þeirra er góður.

„Hér hefur verið rætt að það sé æski­legt að við getum hafið sam­tal við eig­endur bréf­anna um að ná mögu­lega ein­hverju sam­komu­lagi. Það fynd­ist mér eðli­legt fyrsta skref í þessum málum.“

Þorbjörg Sigríður sagði engin svör heyr­ast um afstöðu Vinstri grænna um hvernig eigi að leysa málið. „Tveir flokkar eiga þetta klúður skuld­laust, Fram­sókn­ar­flokkur og Sjálf­stæð­is­flokkur, en eins og venju­lega er það for­sæt­is­ráð­herra sem situr uppi með höf­uð­verk­inn og hún er ekki öfunds­verð af því.“

„Ég hef engar skýr­ingar heyrt á því hvers vegna ekki var hægt að hefja sam­tal við samn­ings­að­ila án þess að blása fyrst í her­lúðra, án þess að beita hót­unum, án þess að stilla upp við vegg,“ sagði Þorbjörg Sigríður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár