„Fjármálalestarslys“ sem hangi yfir tæplega 20 árum eftir að Framsókn breytti ÍLS í spilavíti

„Hvort á ég að taka af þér pen­ing­inn úr buxna­vas­anum hægra megin eða vinstra megin,“ spurði þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar á þingi í dag þegar hann ræddi boð­aða úrvinnslu ÍL-sjóðs.

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

„Hvort á ég að taka af þér pen­ing­inn úr buxna­vas­anum hægra megin eða vinstra megin? Þetta eru kost­irnir sem hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra stillir upp líkt og um sé að ræða sér­staka sparn­að­ar­að­gerð fyrir almenn­ing. Ég er að sjálf­sögðu að tala um það fjár­mála­lest­ar­slys sem hangir ennþá yfir okkur tæp­lega 20 árum eftir að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn breytti Íbúða­lána­sjóði (ÍLS) í spila­víti.“

Þetta sagði Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, á Alþingi í dag undir liðnum störfum þings­ins, þegar hann ræddi þá stöðu sem upp er komin vegna ÍL-sjóðs, sem fyrir liggur að muni að óbreyttu tapa 200 millj­örðum króna.

Tapið er til­komið vegna skulda­bréfa­flokka sem gefnir voru út af Íbúða­lána­sjóði árið 2004 en voru ekki upp­greið­an­legir. Lán­tak­endur flúðu síðar sjóð­inn og nú eru útlán ein­ungis um 20 pró­sent af eignum hans. Ávöxtun eigna stendur því ekki undir skuldum og sjóð­ur­inn verður tómur löngu áður en síð­ustu skulda­bréfin, sem eru með gjald­daga 2044, eiga að koma til greiðslu.

Hvort á höggið að koma á ríkissjóð eða lífeyrissjóði?

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, til­kynnti á blaða­manna­fundi fyrir helgi að reynt verði að ná sam­komu­lagi við eig­endur skulda­bréfa sem ÍL-sjóður gaf út um að þeir gefi eftir hluta eigna sinna.

[adspot]Tak­ist ekki að ná þessu sam­komu­lagi ætlar Bjarni að leggja fram frum­varp fyrir árs­lok sem feli í sér að ÍL-­sjóði verði slitið á næsta ári, skuldir hans látnar gjald­falla og með því myndi ein­föld rík­is­á­byrgð virkj­ast. Við það myndu 47 millj­arðar króna falla á rík­is­sjóð og skatt­greið­endur spara sér um 150 millj­arða króna á núvirði.

Það tap þyrftu þá aðrir að axla. Þessir aðrir eru að uppi­stöðu sami hópur og sá sem á að verja, almenn­ingur í land­inu. Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins áttu íbúða­bréf útgefin af Íbúða­lána­sjóði fyrir 643 millj­arða króna í ágúst síð­ast­liðn­um. Það var um 75 pró­sent af öllum slíkum bréf­um um mitt þetta ár.

Jóhann Páll sagði í ræðu sinni í dag að heið­ar­leg­ast hefði verið af Bjarna að spyrja lands­menn á blaða­manna­fund­inum: „Hvort viljið þið krakkar mínir taka á ykkur höggið í gegnum rík­is­sjóð eða í gegnum líf­eyr­is­sjóð­ina ykkar?“

„Hvaða merkingu hefur ríkisábyrgð héðan í frá“

Talsmenn líf­eyr­is­sjóða lands­ins hafa gagn­rýnt þá leið sem ráð­herr­ann boðar harð­lega og meðal ann­ars kallað hana til­raun til að ganga í sparnað almenn­ings. Már Wolfgang Mixa, lektor í fjár­málum við HÍ og stjórn­ar­maður í Almenna líf­eyr­is­sjóð­un­um, sagði í Kast­ljósi í gær að það að slíta ÍL-­sjóði jafn­gildi greiðslu­falli rík­is­sjóðs og að það gæti haft nei­kvæð áhrif á láns­hæfi rík­is­sjóðs. Bjarni hefur mót­mælt þess­ari gagn­rýni og í hádeg­is­fréttum Bylgj­unnar líkti hann henni við þá orð­ræðu sem var uppi þegar verið að var að gera upp gömlu bank­ana, og ríkið átti í erjum við að mestu erlenda kröfu­hafa.

[links]Þegar umrædd skulda­bréf voru gefin út árið 2004 var skýrt í útgáfu­lýs­ingu þeirra að þau nutu rík­is­á­byrgðar. Fyrir vikið fengu útgáf­urnar sömu láns­hæf­is­ein­kunn og íslenska ríkið hafði á þessum tíma, AAA hjá Moody´s. Það er hæsta ein­kunn sem hægt er að fá hjá því láns­hæf­is­mats­fyr­ir­tæki.

Jóhann Páll sagði stóru spurn­ing­una í mál­inu ein­falda. „Hvaða merk­ingu hefur rík­is­á­byrgð héðan í frá ef lög­gjaf­inn telur sig þess umkom­inn að gjör­breyta leik­regl­unum eftir á? Og hvaða afleið­ingar hefur það að umgang­ast rík­is­tryggð skulda­bréf og þá skil­mála sem liggja þeim til grund­vallar með þessum hætti? Hvað þýðir þetta fyrir láns­hæfi rík­is­sjóðs til lengri tíma? Hvað þýðir þetta fyrir sam­vinnu­verk­efnin sem ráð­ist verður í hér á næstu árum og sam­starf rík­is­sjóðs við stofn­ana­fjár­festa? Þetta eru stóru spurn­ing­arnar sem við þurfum að ræða hér í þing­sal á næstu dögum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár