Skuldahlutfall ríkissjóðs hríðversnar ef vandi ÍL-sjóðs er tekinn með í reikninginn

SA gagn­rýndu í umsögn sinni um fjár­laga­frum­varpið að ekki væri tekið á vanda ÍL-sjóðs. Fyrr­ver­andi for­ystu­maður í líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu hvetur sjóð­ina til að gefa ekki „þuml­ung eftir og því á ráð­herr­ann að draga þessa fárán­legu hótun til baka.“

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra og sá sem ber ábyrgð á úrlausn ÍL-sjóðs.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og sá sem ber ábyrgð á úrlausn ÍL-sjóðs. Mynd: Eyþór Árnason

Samtök atvinnu­lífs­ins gagn­rýndu í umsögn sinni um fyr­ir­liggj­andi fjár­laga­frum­varp fyrir næsta ár að ekk­ert til­lit væri tekið til vanda ÍL-sjóðs í því. Sá vandi hangi „yfir rekstri rík­is­sjóðs og mun að óbreyttu skella fyrr eða síðar af fullum þunga með hund­ruð millj­arða skuld á skatt­greið­endur.“ Lauslega áætla sam­tökin að skuldir sam­kvæmt skulda­reglu laga um opin­ber fjár­mál væru 38,6 pró­sent af lands­fram­leiðslu ef tekið væri til­lit til stöðu ÍL-sjóðs, en ekki 33,4 pró­sent líkt og hún er sögð vera.

[links]Sú áætlun byggir á því að tap ÍL-sjóðs var 16 millj­arðar króna á fyrstu sex mán­uðum þessa árs og eigið fé sjóðs­ins var nei­kvætt um 213 millj­arða króna um mitt þetta ár.

Í fjár­laga­frum­varp­inu segir að þróun efna­hags ÍL-sjóðs sé stór óvissu­þáttur í lang­tíma þróun skulda rík­is­sjóðs. „Efna­hagur sjóðs­ins er bæði umfangs­mik­ill og næmur fyrir breyt­ingum á mark­aðs­að­stæðum. Verð­trygg­ing­ar­jöfn­uður sjóðs­ins er nei­kvæður svo verð­bólga dregur niður afkomu sjóðs­ins og veikir efna­hag hans. Upp­safnað yfir langt tíma­bil getur afkoma sjóðs­ins því haft veru­lega nei­kvæð áhrif á skulda­stöðu rík­is­sjóðs þegar fram í sækir [...] Skuldir ÍL-sjóðs eru í formi afborg­un­ar­bréfa og hefur upp­reiknað nafn­virði skulda sem ábyrgðin tekur til lækkað sam­hliða hóf­legri verð­bólgu síð­ustu ára. Há verð­bólga und­an­farna mán­uði hefur hins vegar hækkað höf­uð­stól skulda á milli tíma­bila þrátt fyrir afborg­anir en ábyrgðir vegna skulda ÍL-sjóðs eru langstærsti hluti veittra ábyrgða, eða 87 pró­sent.“

Skuldareglan tekin úr sambandi í faraldrinum

Umsögn Samtaka atvinnu­lífs­ins var skilað inn áður en Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, greindi frá því að hann vildi semja við kröfu­hafa ÍL-sjóðs um að þeir sam­þykki að gefa eftir hluta eigna sinna. Líf­eyr­is­sjóðir eiga um 75-80 pró­sent allra skulda­bréfa sem útgefin eru af ÍL-sjóði og þeir þurfa því að taka mesta höggið, eigi til­laga Bjarna að ganga upp. Takist ekki að semja ætlar Bjarni að leggja fram frum­varp fyrir árs­lok sem felur í sér að ÍL-­sjóði verði slitið á næsta ári, skuldir hans látnar gjald­falla og með því myndi ein­föld rík­is­á­byrgð virkj­ast.

[adspot]Sú skulda­regla sem vísað er til gengur út á að heild­ar­skuldir rík­is­sjóðs, að frá­töldum líf­eyr­is­skuld­bind­ingum og við­skipta­skuldum og að frá­dregnum sjóðum og bankainn­stæðum, eiga að vera lægri en nemur 30 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu.

Það náð­ist árið 2019 en þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á var ein­fald­lega ákveðið að taka þessa reglu tíma­bundið úr sam­bandi, eða út árið 2025. Í fjár­laga­frum­varp­inu er gert ráð fyrir að skulda­hlut­fallið lækki á næsta ári – úr 33,4 í 33 pró­sent – án til­lits til þeirra skuld­bind­inga sem rík­is­sjóður þarf að axla vegna ÍL-sjóðs.

Sú lækkun hvílir þó alfarið á sölu á eft­ir­stand­andi hlut rík­is­ins í Íslands­banka, sem hefur ekki verið ákveðin. Verði ekki af þeirri sölu mun skulda­hlut­fallið hækka.

200 milljarða tímasprengja

ÍL-sjóður varð til á grund­velli laga sem sam­þykkt voru árið 2019, og skiptu Íbúða­lána­sjóði upp í tvennt. Hluti hans, sá sem snýr að fjár­mögnun á félags­legri upp­bygg­ingu á hús­næði, færð­ist í nýja stofnun, Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun. Skuldir og eignir vegna íbúða­lána á almennum mark­aði, sem rekja má að mestu til skulda­bréfa­út­gáfu á árinu 2004, voru sett í ÍL-sjóð. Skulda­bréfin, sem eru með gjald­daga til 2044, eru ekki upp­greið­an­leg en lánin sem sjóð­ur­inn veitti eru það hins vegar.

Vandi ÍL-sjóðs er til­kom­inn vegna þess að íbúða­lán bank­ans hafa verið greidd upp á miklum hraða, og eru nú ein­ungis um 20 pró­sent af eignum sjóðs­ins, á meðan að enn þarf að þjón­usta skulda­bréfin. Áætlað er að tap vegna þessa fyr­ir­komu­lags verði að óbreyttu 200 millj­arðar króna.

Viðbrögð þeirra sem gæta, eða gætt hafa, hags­muna líf­eyr­is­sjóða lands­ins við þeirri hótun fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra að lög verði sett sem muni rýra eignir sjóð­anna um meira en 100 millj­arða króna, sam­þykki þeir ekki að gefa eftir sam­bæri­lega upp­hæð í frjálsum samn­ingum um slit ÍL-sjóðs, hafa verið hörð.

Vill að Bjarni dragi „þessa fáránlegu hótun til baka“

Davíð Rúd­ólfs­son, for­stöðu­maður eigna­stýr­ingar Gildis, sagði í Morg­un­blað­inu á laug­ar­dag að þarna væri rík­is­sjóður að fara í vasa almenn­ings. „Þetta er til­raun til þess að ganga í sparnað almenn­ings, sparnað sem sem liggur í líf­eyr­is­sjóðum og verð­bréfa­sjóðum sem eru í eigu lands­manna.“

Hrafn Magn­ús­son, sem var fram­kvæmda­stjóri Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða í 36 ár þar til hann lét af störfum 2011, sagði í færslu á Facebook í gær að um „afar ósvífna aðgerð“ væri að ræða sem gæti haft ófyr­ir­sjá­an­legar afleið­ingar fyrir sjóðs­fé­laga líf­eyr­is­sjóð­anna. „Þessi skuld Íbúða­lána­sjóðs gufar ekki upp. Hana þarf að greiða hvort sem mönnum líka betur eða verr. Ráð­herr­ann þarf að átta sig á því að það kemur ekki til greina hægt sé að nota ævisparnað fólks með þessum hætti. Nú er nóg komið. Líf­eyr­is­sjóð­irnir geta ekki gefið þuml­ung eftir og því á ráð­herr­ann að draga þessa fárán­legu hótun til baka.“

Már Wolfgang Mixa, lektor í fjár­málum við HÍ og stjórn­ar­maður í Almenna líf­eyr­is­sjóð­unum, sagði í Kast­ljósi í gær að það að slíta ÍL-sjóði jafn­gildi greiðslu­falli rík­is­sjóðs.

Mikill titr­ingur hefur orðið á mörk­uðum eftir að hótun ráð­herra um laga­setn­ingu var sett fram. Ávöxt­un­ar­krafa á rík­is­skulda­bréf hefur hækkað sam­hliða því að hún hækk­aði gríð­ar­lega á skulda­bréfa­flokk­anna sem ÍL-sjóður er ábyrgur fyrir. Kaup­höllin setti auk skulda­bréf ÍL-­sjóðs á athug­un­ar­lista sem vísar til aðstæðna sem leiða af sér umtals­verða óvissu varð­andi útgef­and­ann eða verð­myndun fjár­mála­gern­ing­anna.

Ráðherra hafnar gagnrýni

Bjarni Bene­dikts­son hefur mót­mælt þess­ari gagn­rýni. Hann kall­aði orð Dav­íðs Rúd­ólfs­son­ar, um að verið væri að seil­ast í vasa almenn­ings, „ótrú­lega afbökun á stöðu máls­ins“ í færslu á Facebook á laug­ar­dag. Öllu væri snúið á hvolf með því að segja það aðför að sparn­aði. „Krafan um að rík­is­sjóður gangi í sjálf­skuld­ar­á­byrgð fyrir skuldum ÍL-­sjóðs byggir ekki á lög­um, og er í reynd krafa fyrir hönd afmark­aðs hóps á hendur öllum almenn­ingi um að ábyrgð rík­is­ins verði útvíkkuð og þessu risa­stóra máli sópað undir tepp­ið. Það væri engum til góðs.“

Í morgun gagn­rýndi Bjarni svo harð­lega orð Más um greiðslu­fall rík­is­sjóðs í færslu á Facebook og sagði það ekki stand­ast skoðun að sú leið sem hann hafi boðað skapi láns­traust rík­is­sjóðs. „Helst bind ég vonir við að far­sæl lausn fáist í málið með við­ræðum rík­is­ins og kröfu­hafa sjóðs­ins þar sem útgangs­punkt­ur­inn verður að vera laga­leg staða máls­ins. Ég mun hins vegar ekki sam­þykkja að við veltum vand­anum á undan okkur. Með því verða kom­andi kyn­slóðir að bera allt að 150 millj­arða byrðar umfram laga­lega skyldu rík­is­ins. Það væri bæði óábyrgt og rangt. Sama hvað þeir sem horfa ein­göngu á málið út frá þröngum hags­munum kröfu­hafans segja.“

Umræddur kröfu­hafi eru líf­eyr­is­sjóðir lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár