ASÍ: Misneyting á starfandi hælisleitendum jaðrar í verstu tilfellum við mansal

ASÍ segir að mun fleiri hæl­is­leit­endur séu á vinnu­mark­aði en opin­berar tölur gefi til kynna. Ýmis sam­tök styðja að þeir ein­stak­lingar sem fá dval­ar­leyfi hér á landi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða þurfi ekki að sækja um atvinnu­leyfi sér­stak­lega.

Hælisleitendur hafa meðal annars verið að starfa í byggingageiranum
Hæl­is­leit­endur hafa meðal ann­ars verið að starfa í bygg­inga­geir­anum Mynd: Bára Huld Beck

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) segir vís­bend­ingar úr vinnu­staða­eft­ir­liti sam­bands­ins og stétt­ar­fé­laga lands­ins benda til þess að raun­veru­leg atvinnu­þátt­taka hæl­is­leit­enda sé miklu meiri en opin­berar tölur gefi til kynna. „Mál sem koma inn á borð stétt­ar­fé­lag­anna benda til þess að þessi hópur sé sér­stak­lega ber­skjald­aður fyrir mis­neyt­ingu af hendi atvinnu­rek­enda, sem í verstu til­fellum jaðra við man­sal.“

Þetta kemur fram í umsögn ASÍ um frum­varp til laga um breyt­ingu á lögum um atvinnu­rétt­indi útlend­inga sem lagt var fram af þing­mönnum Pírata, Sam­fylk­ingar, Flokks fólks­ins og Við­reisnar í sept­em­ber og er nú til með­ferðar hjá vel­ferð­ar­nefnd. Fyrsti flutn­ings­maður þess er Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­maður Pírata.

Í samræmi við stjórnarsáttmála

Í frum­varp­inu er lagt til að útlend­ingar sem hafa fengið dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða eða vegna sér­stakra tengsla við landið sam­kvæmt lögum um útlend­inga verði und­an­þegnir kröfu um tíma­bundið atvinnu­leyfi hér á landi. Með því er átt við að þeir ein­stak­lingar sem fá dval­ar­leyfi hér á landi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða, t.d. vegna þess að þeir upp­fylla ekki skil­yrði þess að fá alþjóð­lega vernd, þurfi ekki að sækja um atvinnu­leyfi sér­stak­lega heldur verði þeim heim­ilt að vinna þegar þeir hafa fengið dval­ar­leyfi.

ASÍ styður breyt­ing­una og bendir á í umsögn sinni að þau sjón­ar­mið sem fram komi í frum­varp­inu hafi einnig verið sett fram í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­sam­starfs Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna á haust­mán­uðum 2021 undir kafl­anum um mál­efni útlend­inga.

[adspot]Þar sagði orð­rétt: „Lög um útlend­inga og lög um atvinnu­rétt­indi útlend­inga verða tekin til end­ur­skoð­unar með það að mark­miði að rýmka ákvæði er varða útgáfu dval­ar­leyfa á grund­velli atvinnu­þátt­töku og auka skil­virkni með ein­földun ferla. Þá verði þeim sem hér fá dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða eða sér­stakra tengsla við landið veitt und­an­þága frá kröfu um atvinnu­leyfi. Haft verður sam­ráð við aðila vinnu­mark­að­ar­ins í þess­ari vinnu.“

Sögð mikil réttarbót

Fleiri hafa skilað inn umsögnum um frum­varpið. Þar á meðal er Vinnu­mála­stofnun, sem bendir á að efn­is­lega sé um að ræða sam­bæri­lega til­lögu og sett er fram í frum­varpi Jóns Gunn­ars­sonar um breyt­ingar á lögum um útlend­inga. Það frum­varp er afar umdeilt og skiptar skoð­anir um það meðal þing­manna hvort það fáist sam­þykkt þótt þing­flokkar stjórn­ar­flokk­anna hafi afgreitt það og hleypt frum­varp­inu í efn­is­lega umræðu. Vinnu­mála­stofnun telur ríka ástæðu til að gera hóp­inn und­an­þegna kröfu um tíma­bundið atvinnu­leyfi með hlið­sjón af hag­ræði fyrir þá sjálfa og skil­virkni.

Mann­rétt­inda­skrif­stofa Íslands styður frum­varpið og segir það vera mikla rétt­ar­bót fyrir þá sem hafa fengið dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða, eða á grund­velli sér­stakra tengsla við landið, að þurfa ekki að sækja um tíma­bundið atvinnu­leyfi heldur verði þeim heim­ilt að vinna jafn­skjótt og dval­ar­leyfið hefur verið veitt. Rauði kross­inn fagnar sömu­leiðis þeim breyt­ingum sem lagðar eru til í umsögn sinni og telur að ákvæði frum­varps­ins bæti veru­lega stöðu þeirra útlend­inga sem fengið hafa dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða eða sér­stakra tengsla við landið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár