Hluthafafundur Síldarvinnslunnar samþykkti kaupin á Vísi

Hluta­bréf í Síld­ar­vinnsl­unni hafa rokið upp á síð­ustu vikum. Sá hlutur sem systk­inin úr Grinda­vík sem eiga Vísi í dag munu fá fyrir að selja útgerð­ina til Síld­ar­vinnsl­unnar hefur hækkað um 3,7 millj­arða króna í virði á rúmum mán­uði.

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar, á kynningarfundi á uppgjöri félagsins í gær.
Gunnþór Ingvason, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar, á kynn­ing­ar­fundi á upp­gjöri félags­ins í gær. Mynd: SVN/Skjáskot

Kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á Vísi í Grinda­vík voru sam­þykkt á hlut­hafa­fundi sem fram fór á fimmtu­dag. Tillaga um kaupin var sam­þykkt sam­hljóða með 98,51 pró­sent greiddra atkvæða en á fund­inn voru mættir hand­hafar 89,54 pró­sent hluta í Síld­ar­vinnsl­unni.

Til­kynnt var um kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á öllu hlutafé í Vísi 10. júlí síð­ast­lið­inn. Útgerð­ar­ris­inn frá Nes­kaup­stað sagð­ist vera að borga 31 millj­arð króna fyrir Vísi. Sú tala skipt­ist þannig að skuldir upp á ell­efu millj­arða króna yrðu yfir­tekn­ar, sex millj­arðar króna yrðu greiddir í reiðufé og 14 millj­arðar króna með nýjum hluta­bréfum í Síld­ar­vinnsl­unni, þar sem miðað yrði með­al­tals­gengi síð­ustu fjög­urra vikna á undan við­skipt­un­um. Útgáfa þeirra nýju hluta­bréfa var líka sam­þykkt á hlut­hafa­fund­inum í gær.

Frá þeim tíma hefur gengi bréfa í Síld­ar­vinnsl­unni hækkað um 26 pró­sent og virði þeirra hluta­bréfa sem systk­ina­hóp­ur­inn sem á nú Vísi fær sem afgjald fyrir fyr­ir­tækið hefur þegar auk­ist um 3,7 millj­arða króna, upp í 17,7 millj­arð króna.

Stærsti ein­staki eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er Samherji hf. með 32,64 pró­sent hlut og Kjálka­nes með 17,44 pró­sent hlut. Stjórn­ar­for­maður félags­ins er Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja.

Helst verið að kaupa kvóta

Helstu bók­færðu eignir Vísis eru ann­ars vegar afla­heim­ildir sem metnar voru á 90,9 millj­ónir evra, alls um 13,4 millj­arða króna á árs­loka­gengi síð­asta árs. Afla­heim­ildir eru nær und­an­tekn­ing­ar­laust van­metnar í reikn­ingum sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja, en fyrir við­skiptin var heild­ar­upp­lausn­ar­virði úthlut­aðs kvóta á Íslandi áætlað um 1.200 millj­arðar króna, miðað við kaup Síld­ar­vinnsl­unnar á útgerð­inni Bergi Hug­inn í fyrra.

[adspot]Kaupin á Vísi eru langt undir því verði. Heild­ar­eignir félags­ins, miðað við gengi evru í dag, eru í árs­reikn­ingi metnar á um 19 millj­arða króna. Af því eru fasta­fjár­munir – fast­eign­ir, skip, vélar og tæki – metnir á 5,3 millj­arða króna.

Helstu verð­mæti Vísis eru því úthlut­aðar afla­heim­ildir sem bók­færðar eru á um 12,6 millj­arða króna miðað við gengi evru í dag. Aðrar eign­ir, eins og eign­ar­hlutir í hlut­deild­ar­fé­lög­um, eru mun minna virð­i.

Vísir heldur á 2,16 pró­sent af úthlut­uðum kvóta hér­lend­is, að lang­mestu leyti í bol­fiski­fiski eins og þorski og ýsu. Ef miðað er við kaup­verðið á Bergi Hug­inn ætti virði afla­heim­ild­anna að vera rúm­lega tvisvar sinnum meira, eða 25,8 millj­arðar króna. Þá er þó horft fram­hjá því að fisk­teg­undir eru mis­mun­andi verð­mæt­ar. Verð­mæt­ustu afla­heim­ild­irnar í þorski, þar sem Vísir er með gríð­ar­lega sterka stöð­u.

Ef horft er til nýlegra við­skipta með afla­heim­ildir þorsks þá hefur kaup­verð á þeim verið í kringum fjögur þús­und krónur á kíló. Miðað við þá tölu ætti bara úthlut­aður kvóti Vísis í þorski – 5,4 pró­sent alls slíks kvóta, eða í kringum tíu þús­und tonn – einn og sér að vera í kringum 40 millj­arða króna virði. Þá á eftir að reikna með úthlut­uðum afla­heim­ildum í öðrum teg­und­um.

Skuld­sett fyr­ir­tæki með þunga gjald­daga framundan

Miðað við þetta má ætla að Vísir hafi fyrst og síð­ast verið að selja Síld­ar­vinnsl­unni kvóta. Og það á frekar lágu verði, þrátt fyrir að á fjórða tug millj­arða króna sé gríð­ar­legir pen­ingar í hugum flestra.

Ástæða þessa gæti verið falin í því að Vísir er afar skuld­sett fyr­ir­tæki. Fjár­magns­kostn­aður þess á árinu 2020 var um 500 millj­ónir króna og í fyrra var hann litlu lægri, eða um 430 millj­ónir króna.

Sam­kvæmt árs­reikn­ingi Vísis fyrir árið 2020 áttu 46,3 millj­ónir evra, um 6,4 millj­arðar króna á gengi dags­ins í dag, af lang­tíma­skuldum fyr­ir­tæk­is­ins við lána­stofn­anir að vera á gjald­daga á árinu 2022. Í nýbirtum árs­reikn­ingi fyr­ir­tæk­is­ins hefur sá þungi gjald­dagi færst til árs­ins 2023 og er nú 50,1 millj­ónir evra, eða 6,9 millj­arðar króna. Lang­tíma­skuldir Vísis juk­ust um 2,2 millj­ónir evra, um 300 millj­ónir króna, á síð­asta ári og voru ell­efu millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Þær skuldir tekur Síld­ar­vinnslan yfir sam­þykkti Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­runa félag­anna.

Kaupin eru afar umdeild og hafa víða vakið hörð við­brögð. Verði þau sam­þykkt Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu munu núver­andi afla­­heim­ildir Síld­­ar­vinnsl­unnar fara yfir það tólf pró­­sent hámark sem hver útgerð má sam­­kvæmt lögum halda á af úthlut­uðum kvóta.

Hagnaðist um 6,5 milljarða á fyrri hluta árs

Síld­ar­vinnslan birti upp­gjör sitt fyrir fyrri hluta árs­ins 2022 í gær. Þar kom fram að hagn­aður félags­ins hafi verið 6,5 millj­arðar króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, ef miðað er við gengi Banda­ríkja­dals í dag, en útgerðin gerir upp í þeim gjald­miðli.

Eigið fé Síld­ar­vinnsl­unnar var 61,7 millj­arðar króna um mitt þetta ár. Verð­mætasta bók­færðu eignir félags­ins eru afla­heim­ildir sem eru sagðar 37,7 millj­arða króna virði.

Kaupin á Vísi eru önnur tveggja risa­við­skipta sem Síld­ar­vinnslan hefur ráð­ist í á skömmum tíma. Í júní var til­kynnt um kaup á 34,2 pró­sent hlut í norska lax­eld­is­fé­lag­inu Arctic Fish Holding AS fyrir um 13,7 millj­arða króna. Það félag á allt hlutafé í Arctic Fish ehf. sem er eitt af stærstu lax­eld­is­fyr­ir­tækjum á Íslandi og rekur eld­is­stöðvar á Vest­fjörðum þar sem félagið er með rúm­lega 27 þús­und tonna leyfi fyrir eldi í sjó. Fyr­ir­tækið er auk þess í mik­illi upp­bygg­ingu á Bol­ung­ar­vík þar sem verið er að byggja laxa­slátrun. Fyrir hlut­inn var greitt með reiðufé og lánsfé.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár