Ef útflutningur við stríðandi Evrópulönd stöðvast gæti tapið verið 20 milljarðar á ári

Bein áhrif inn­rásar Rússa í Úkraínu eru ekki mikil á íslensk við­skipta­líf. Marel gæti orðið fyrir þrýst­ingi frá líf­eyr­is­sjóðum að draga úr starf­semi sinni á svæð­inu. Óbeinu áhrifin af stríð­inu eru mikil, sér­stak­lega vegna hækk­unar á elds­neyti og hrá­vöru.

Stríðsrekstri Rússa í Úkraínu er mótmælt daglega víða um heim. Hér sjást mótmæli sem fóru fram í byrjun viku í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu.
Stríðs­rekstri Rússa í Úkraínu er mót­mælt dag­lega víða um heim. Hér sjást mót­mæli sem fóru fram í byrjun viku í Kænu­garði, höf­uð­borg Úkraínu. Mynd: EPA

Ekki er lík­legt að stríðs­á­tökin í Úkraínu hafi mikil bein áhrif á utan­rík­is­við­skipti Íslands þótt þau geti orðið nokkru fyrir ein­staka fyr­ir­tæki og atvinnu­greinar.

Meg­in­uppi­staða útflutn­ings íslenskra fyr­ir­tækja til Rúss­lands hefur verið notuð skip, ýmsar iðn­að­ar­vörur og tæki til mat­væla­fram­leiðslu en sjáv­ar­af­urðir, einkum upp­sjávar- og eld­is­fiskur, vega þyngst í útflutn­ingi til Úkraínu og Hvíta-Rúss­lands.

[links]Þá vógu komur rúss­neskra ferða­manna þyngst í þjón­ustu­út­flutn­ingi til þess­ara þriggja landa en veru­lega dró úr komum þeirra í kjöl­far far­sótt­ar­innar. Annar þjón­ustu­út­flutn­ingur jókst hins vegar á móti, einkum tækni­þjón­usta og önnur við­skipta­þjón­usta.

Þetta kemur fram í nýjasta riti Pen­inga­mála sem Seðla­banki Íslands birti á mið­viku­dag.

Þar segir að ef öll við­skipti við löndin þrjú stöðvast gæti beint útflutn­ings­tap numið um 15 til 20 millj­örðum króna á ári. Tapið gæti mögu­lega orðið meira þar sem um fimm millj­arðar króna af sjávar- og eld­is­af­urðum hafa verið fluttir árlega frá Íslandi til Úkraínu í gegnum Litháen und­an­farin ár. „Auk þess höfðu inn­lendir sölu­að­ilar gert ráð fyrir að hluti af auknum loðnu­kvóta í ár myndi fara á Úkra­ínu­markað. Á móti vegur þó að lík­lega tæk­ist að koma afurðum á aðra mark­aði þótt það gæti tekið lengri tíma og mögu­lega feng­ist lægra verð fyrir þær“.

Hins vegar sé útlit fyrir að aðrar sjáv­ar­af­urðir, einkum botn­fiskaf­urðir, hækki í verði vegna auk­innar eft­ir­spurnar eftir íslenskum sjáv­ar­af­urðum í kjöl­far fyr­ir­hug­aðrar hækk­unar inn­flutn­ings­tolla og skerts aðgengis rúss­neskra sjáv­ar­af­urða að alþjóða­mörk­uðum. „Þá hefur Rússum verið vikið tíma­bundið úr Alþjóða­haf­rann­sókn­ar­stofn­un­inni (ICES). Rússar gætu brugð­ist við með því að loka á aðgengi ann­arra þjóða að rúss­neskri lög­sögu en Ísland hefur verið með tví­hliða samn­ing við Rússa um veiði­heim­ildir í Barents­hafi. Þær vega þó ekki þungt í heild­ar­afla Íslend­inga.“

Marel og Eimskip þurfa að svara fyrir viðskipti í Rússlandi

Ekki er úti­lokað að íslensk fyr­ir­tæki verði fyrir ann­ars konar beinum áhrifum vegna stríðs­ins en sam­drætti í við­skiptum. Á meðal þeirra stóru íslensku fyr­ir­tækja sem eiga hags­muni undir í Rúss­landi eru Marel og Eimskip, sem bæði eru skráð á hluta­bréfa­markað og eru að stórum hluta í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Kjarninn greindi frá því snemma í mars að Eimskip hefði dregið úr umsvifum sínum í Rúss­landi í ljósi stöð­unnar en Marel hefur ákveðið að setja öll ný verk­efni í Rúss­landi á ís. Fyr­ir­tækið heldur áfram að reka sölu- og þjón­ustu­skrif­stofu í land­inu þar sem starfa um 70 manns. Í upp­gjöri Marel fyrir fyrsta árs­fjórð­ung 2022, sem birt var í síð­ustu viku, segir að fyr­ir­tækið for­dæmi harð­lega hern­að­ar­að­gerðir rúss­neskra stjórn­valda í Úkraínu og fyrri afstaða ítrekuð.

[adspot]Umsvif Marel í Rúss­landi og Úkraínu, tekjur fyr­ir­tæk­is­ins og pönt­un­ar­bók, eru um fjögur pró­sent af heild­ar­um­svifum þess. Í árs­hluta­reikn­ingnum segir að Marel fylgi öllum efna­hags­legum refsi­að­gerðum sem lagðar hafa verið á vegna stríðs­ins.

Í hluta­bréfa­grein­ingu Jak­obs­son Capital sem send var áskrif­endum í síð­ustu viku var þessi staða til umræðu. Þar sagði að Marel og Eimskip þyrftu að svara fyrir við­skipti sín í Rúss­landi jafn­vel þótt lítil væru. „Líf­eyr­is­sjóð­irnir eru meðal stærstu eig­enda félag­anna og hafa allir stefnu í sam­fé­lags­legri ábyrgð líkt og félögin sjálf. Eimskip hefur dregið úr umsvifum í Rúss­landi á meðan Marel hefur aðeins frestað frek­ari fjár­fest­ingu. Málið er aug­ljós­lega við­kvæmt og þögnin neyð­ar­leg. Á meðan þess­ari spurn­ingu er ósvarað er lík­legt að gengi Marels verði frekar undir þrýst­ingi til lækk­unar. Í það minnsta myndu margir telja að erfitt væri fyrir líf­eyr­is­sjóð­ina að auka vægi sitt í félagi sem hefur ekki einu sinni dregið úr umsvifum.“

Marel gerir athuga­semd við fram­setn­ingu Jak­obs­son Capital og segir að fyr­ir­tækið hafi ekki frestað frek­ari fjár­fest­ingu. Þar séu engar fjár­fest­ingar fyr­ir­hug­aðar. Um sé að ræða sölu­verk­efni.

Áhrifin á framfærslukostnað minni hér á landi

Í Pen­inga­málum er líka fjallað um óbein áhrif stríðs­átak­anna og sagt að þau séu mikil. Þar skipta mestu miklar verð­hækk­anir á orku­gjöfum og annarri hrá­vöru. „Kostn­aður fyr­ir­tækja eykst, inn­flutn­ings­verð hækkar og fram­færslu­kostn­aður heim­ila þar með einnig, sem hefur nei­kvæð áhrif á eft­ir­spurn eftir vöru og þjón­ustu. Aukin óvissa um efna­hags­horfur kann jafn­framt að draga enn frekar úr útgjalda- og fjár­fest­ing­ar­vilja inn -lendra heim­ila og fyr­ir­tækja.“

Á móti vegi hins vegar sterk eigna­staða heim­ila og mik­ill upp­safn­aður sparn­aður sem þau geta gengið á til að mæta hækkun verð­lags. „Áhrifin á fram­færslu­kostnað heim­ila verða einnig minni hér á landi en á meg­in­landi Evrópu þar sem vatns­afl og jarð­varmi eru notuð hér á landi til hús­hit­unar og raf­magns­fram­leiðslu fremur en olía og jarð­gas. Verð­hækkun mik­il­vægra útflutn­ings­af­urða eins og áls og sjáv­ar­af­urða vegur einnig á móti nei­kvæðum áhrifum mik­illar hækk­unar olíu- og hrá­vöru­verðs á við­skipta­kjör“.

Átökin kunna að draga úr ferðavilja

Þá megi ætla að hægt verði að nálg­ast aðföng sem keypt hafa verið frá þessum löndum, eins og t.d. steypu­styrkt­ar­járn, timbur og kros­svið, frá öðrum löndum þótt verðið gæti reynst hærra. „Í ein­hverjum til­vikum gæti þó reynst erfitt að finna sam­bæri­lega vöru ann­ars staðar frá og trufl­anir því varað lengur og verð­hækk­anir orðið meiri.“

Seðla­bank­inn segir að erfitt sé að meta hver áhrif átak­anna verði á inn­lenda ferða­þjón­ustu. Ólíklegt sé að beinu áhrifin verði mikil á árinu 2022 þar sem langstærstur hluti þeirra ferða­manna sem heim­sækja landið komi frá Banda­ríkj­unum og Vestur Evrópu. Átökin kunni þó að draga úr ferða­vilja ein­hverra þeirra. „Einnig kann aukin verð­bólga, minnk­andi kaup­máttur og hærra far­miða­verð sakir hækk­andi olíu­verðs að draga úr komum til lands­ins þrátt fyrir auk­inn ferða­vilja í kjöl­far aflétt­ingar ferða­tak­mark­ana vegna far­sótt­ar­innar. Ekki er heldur lík­legt að truflun á flug­um­ferð vegna lok­unar loft­helgi Rúss­lands í kjöl­far stríðs­ins hafi víð­tæk áhrif hér á landi enda er ekki gert ráð fyrir miklum fjölda ferða­manna til lands­ins frá Asíu í ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár