Sagði Bjarna annaðhvort ekki skilja einfaldar fjármálaafurðir eða vera að ljúga að þjóðinni

Kristrún Frosta­dóttir líkti Bjarna Bene­dikts­syni við Liz Truss á þingi í dag, sagði hann stunda „vúd­úhag­fræði“ og svara með frekju og hroka. Bjarni sagði Kristrúnu ekki skilja lög­fræð­ina í máli ÍL-sjóðs og fara fram með útúr­snún­inga.

„Kreddupóli­tík hæst­virtrar rík­is­stjórnar virð­ist nú vera að ná hámarki. Hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra fetar nú í fót­spor fyrrum for­sæt­is­ráð­herra Breta, Liz Truss, með glanna­skap í efna­hags­málum. Hann heldur blaða­manna­fund um hvernig hann ætlar að spara þjóð­inni fúlgur fjár með því að knýja gamla Íbúða­lána­sjóð í þrot. Álíka van­hugsað og hug­myndir Truss um að hægt sé að end­ur­reisa breska hag­kerfið með því að ráð­ast í umfangs­miklar skatta­lækk­anir. Ásýnd­ar­stjórn­mál drifin áfram af úreltri hug­mynda­fræði um útvistun á póli­tískri ábyrgð. Íslenskir fjár­mála­mark­aðir kaupa ekki þessa hug­mynd hæst­virts ráð­herra, ekki frekar en mark­aðir keyptu skatta­lækk­un­ar­hug­myndir bresku rík­is­stjórn­ar­innar.“

Þetta sagði Kristrún Frosta­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og vænt­an­legur for­maður hennar, í inn­gangi að fyr­ir­spurn um mál­efni ÍL-sjóðs sem hún lagði fyrir Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks, í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma í dag.

Hægt er að lesa um það sem ÍL-sjóðs málið snýst um hér, í frétta­skýr­ingu Kjarnans sem birt­ist á mánu­dag.

Kristrún sagði að sú leið sem Bjarni hafi boðað í mál­efnum sjóðs­ins, að setja sjóð­inn þrot með laga­setn­ingu, væri enn ein bók­halds­brellan, til­færsla á skuld og til­færsla á póli­tísku verk­efni sem fór illa yfir á líf­eyr­is­sjóði lands­ins. „Það er í hæsta máta óábyrgt að bera þessa vúd­úhag­fræði á borð fyrir þjóð­ina. Annað hvort skilur hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra ekki hvernig ein­faldar fjár­mála­af­urðir virka, eða hann er að ljúga af þjóð­inni. Og ég veit ekki hvort er verra. Þegar á hæst­virtan ráð­herra er gengið er svarað með frekju og hroka og skýlt sér á bak­við lög­fræði­á­lit um lög­mæti þess­arar aðgerðar, sem er engan vegin afdrátt­ar­laust. Samkvæmt hæst­virtum ráð­herra ætlar rík­is­sjóður enga ábyrgð að bera á fram­tíð­ar­skuld­bind­ingum opin­berrar stofn­unar sem sett var á lagg­irnar í póli­tískum til­gangi með líf­eyri þjóð­ar­innar að veði.“

[adspot]Spurning hennar til Bjarna sneri svo að þeirri 190 millj­arða króna lán­veit­ingu sem rík­is­sjóður tók úr ÍL-sjóði á árunum 2020 og 2021, til að standa straum að halla­rekstri á þeim árum vegna áhrifa kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Hún spurði hvaða sjón­ar­mið hefðu legið að baki ákvörðun Bjarna um að sækja þá upp­hæð í sjóð­inn á þessum árum, fara fram hjá mark­aðnum í útgáfu skulda­bréfa og festa það sem hún kall­aði „ofur­hagstæð kjör“ fyrir rík­is­sjóð á lánum frá ÍL-sjóði allt til árs­ins 2034. „Ef ætl­unin var aldrei að standa undir fram­tíð­ar­skuld­bind­ingum sjóðs­ins er þessi snún­ingur býsna skugga­legur.“

Slík öfugmæli að um háalvarlegt mál væri að ræða

Bjarni brást við fyr­ir­spurn­inni með því að segja það fárán­legt að opna á umræðu um ÍL-sjóð í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum í ljósi þess að sér­stök umræða fari fram um mál­efni sjóðs­ins á þingi síðar í dag. Þrátt fyrir það ætl­aði hann að bregð­ast við nokkrum hlutum. „Það er mik­ill ábyrgð­ar­hluti þegar hátt­virtur þing­maður stendur hér í þing­sal og heldur því fram að fram sé komið að ríkið ætli enga ábyrgð að bera á fram­tíð­ar­skuld­bind­ingum ÍL-sjóðs. Þetta eru slík öfug­mæli þegar verið er að reyna að vitna í þann vanda sem ég hef vakið athygli á að það er háal­var­legt mál.“

Það væri fyrst ástæða til þess að hafa áhyggjur ef ákveðið væri að víkja sér undan ábyrgð rík­is­sjóðs á mál­inu. „Þegar hátt­virtur þing­maður sakar mig um að skilja ekki fjár­mála­mark­aði þá ætla ég að halda því fram að hátt­virtur þing­maður skilji ekk­ert í lög­fræð­inni í þessu máli. Vegna þess að það eina sem ég hef gert á þessum tíma­punkti er að vekja athygli á alvar­legri stöðu ÍL-sjóðs sem á ekki fyrir skuld­bind­ingum sínum. Ég hef vakið athygli á hvers eðlis rík­is­á­byrgð á skuldum ÍL-sjóðs er og ég hef sagt að það væri mitt mat, en á end­anum ákvörðun Alþingis, að við ættum að gera upp sjóð­inn á grund­velli þeirra lof­orða sem gefin voru á sínum tíma. Sem felur í sér fullt upp­gjör gagn­vart öllum kröfu­höfum á grund­velli rík­is­á­byrgð­ar­innar með slitum ÍL-sjóðs.“

Bjarni end­ur­tók það sem hann sagði á blaða­manna­fundi á fimmtu­dag, að sú leið sem hann boði muni spara rík­is­sjóði aukna vænta áhættu inn í fram­tíð­ina. „En það tjón sem hátt­virtur þing­maður er að vísa til að verði út á fjár­mála­mörk­uð­unum ræðst á end­anum á næstu 22 árum á því hvernig þeir spila úr þeim eignum sem til þeirra ganga með fullu upp­gjöri á öllum skuld­bind­ingum ÍL-sjóðs, eins og þær standa á upp­gjörs­degi. Og fárán­legt að vera með full­yrð­ingar um það hvernig úr mun spil­ast.“

Sagði Kristrúnu vera að tala fyrir því að strjúka fjármálaöflunum í landinu

Kristrún kom aftur í pontu og sagði það ótrú­legt að fylgj­ast með því að einn dag­inn hafi ráð­herr­ann talað um að spara rík­is­sjóði 150 millj­arða króna og þann næsta talað um að ekk­ert sé verið að gera. „Það er aug­ljós­lega verið að taka fram­tíð­ar­greiðslu­flæði frá þessum sjóðum. Það átta sig allir á því sem skilja fjár­mála­af­urðir sem eru óupp­greið­an­legar með þess­ari rík­is­á­byrgð. Þetta er útúr­snún­ingur á orð­ræðu sem hæst­virtur fjár­mála­ráð­herra beitti fyrir sig í síð­ustu viku. Fullt upp­gjör er greini­lega eitt­hvað allt annað skil­grein­ing­ar­at­riði í þessu máli. “

[links]Hún benti svo á að Bjarni hefði ekki svarað fyr­ir­spurn­inni sem hún lagði fram, um þá pen­inga sem ríkið tók að láni úr ÍL-sjóði, í ljósi þess að ekki hafi staðið til að upp­fylla fram­tíð­ar­greiðslu­flæðis sjóðs­ins. Með því hafi verið farið í sjóði sem aðrir eiga.

Bjarni sagði mál­flutn­ing Kristrúnar vera útúr­snún­ing. Þau rík­is­skulda­bréf sem seld hafi verið inn í ÍL-sjóð í skiptum fyrir millj­arð­ana 190 væru bestu skuldir sem sjóð­ur­inn gæti átt. Skulda­bréfin væru verð­tryggð og hent­uðu sjóðnum vel. „Ég hafna þessu algjör­lega.“

Kristrún væri að sjá fyrir sér að láta sjúk­lingnum, ÍL-sjóði, blæða hægt og rólega út og láta okkur það engu varða þó að í hverjum mán­uði vaxi fram­tíð­ar­skuld­bind­ingar skatt­greið­enda um 1,5 millj­arða króna, á hverju ári 18 millj­arða króna. Hún væri að segja að strjúka þyrfti „fjár­mála­öfl­unum í land­inu, kröfu­höf­unum. Fjár­mála­mark­aðir verða ávallt að vera í for­gangi.“ Hann væri hins vegar að mæla fyrir hönd fram­tíð­ar­kyn­slóðs þessa lands sem ættu það ekki skilið að rík­is­á­byrgð sem var skýrt hafi verið skil­greind sem ein­föld yrði útvíkkuð í sjálf­skuld­ar­á­byrgð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár