Tempo vex og dafnar

Fyr­ir­tækið Tempo, dótt­ur­fé­lag Nýherja, hefur átt góðu gengi að fagna síðan það varð til árið 2009 hjá starfs­fólki TM Software. Tekjur hafa auk­ist jafnt og þétt á þessu ári.

Óhætt er að segja að fyr­ir­tækið Tempo, sem er dótt­ur­fé­lag Nýherja, hafi átt góðu gengi að fagna á und­an­förnum árum og hefur þetta ár ekki verið und­an­tekn­ing þar á. Tekjur fyr­ir­tæk­is­ins juk­ust um 43 pró­sent milli ára, og eru starfs­menn nú orðnir 90 tals­ins, og telst fyr­ir­tækið með mestu vaxt­ar­fyr­ir­tækjum lands­ins í hug­bún­að­ar­geir­anum. Starfs­fólkið er stað­sett í höf­uð­stöðv­unum í Reykja­vík, og einnig á skrif­stofum fyr­ir­tæk­is­ins í San Francisco í Banda­ríkj­unum og Montreal í Kanada.

Í forgrunni á stórri ráðstefnu

Í síð­ustu viku var Tempo aðal­styrkt­ar­að­il­inn að Atlassian Summit, sem er stór ráð­stefna sem haldin er í Síli­kondalnum. Atlassian er hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki sem fram­leiðir hug­búnað fyrir fyr­ir­tæki sem yfir 60 þús­und við­skipta­vinir nýta sér á heims­vísu. Á ráð­stefn­unni eru vörur kynntar, en þetta var í átt­unda sinn sem ráð­stefnan fer fram. Þátt­tak­endur á ráð­stefn­unni voru 3.200 að þessu sinni og voru 17 starfs­menn Tempo á ráð­stefn­unni til að kynna lausnir fyr­ir­tæk­is­ins. Á meðal kynn­ing­ar­efnis fyr­ir­tæk­is­ins voru mynd­bönd þar sem fyr­ir­tækin Icelandair og LS Retail fóru yfir það hvernig lausnir Tempo hafa hjálpað þeim.

Mögulegt söluferli

Fyr­ir­tækið var stofnað árið 2009, af starfs­fólki TM Software. Vöxt­ur­inn hefur síðan verið næstum 50 pró­sent á hverju ári. Tempo er leið­andi hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki sem þróar verk­efna­stýr­ingar- og við­skipta­hug­búnað (B2B) fyrir JIRA kerfið frá Atlassian.

Við­skipta­vinir Tempo eru í dag um 8700 í yfir 115 löndum. Við­skipta­vinir eru af öllum stærðum og gerðum, allt frá smáum og með­al­stórum fyr­ir­tækjum yfir í stór alþjóð­leg fyr­ir­tæki.

Á síð­ustu mán­uðum hafa mörg stór fyr­ir­tæki bæst í hóp við­skipta­vina fyr­ir­tæk­is­ins, meðal ann­ars Deloitte, LinkedIn, NBC Uni­ver­sal, Sears, og Starbucks. Aðrir stórir við­skipta­vinir eru Amazon, BMW, Disney, Dow Jones, Hulu, NASA, Princeton Uni­versity, og PayPal.

Nýherji til­kynnti um það í til­kynn­ingu til kaup­hallar Íslands 24. ágúst síð­ast­lið­inn að fyr­ir­tækið AGC Partners hefði verið ráðið til að und­ir­búa mögu­legt sölu­ferli á félag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár